Morgunblaðið - 22.07.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.07.1944, Blaðsíða 12
12 Laugaídagar 22. júlí 1944. otgttttblnfttf SUMARHÖLL PÁFA Á MYNDINNI sjest sumarhöll páfa, Castle Gandolfo, sem cr skammt fyrir utan Rómaborg. — Margir ítalskir flóltamenn leituðu þar hælis, þegar barist var á þeim slóðum. ússar tnka Ostrif STALIX MARSKÁLKUR tilkynti í dag í sjerstakri dag- skipan, að Rússar hefðu tekið Ostrov. Ostrov er mjög þýð- ingarmikil borg, og hafa Þjóðverjar beðið mikinn hnekki við missi hennar. Ostrov er á aðaljárnbrautarlínunni milli Leningrad og Dvinsk, sem er um það l)il 30 mílur fyrir sunn- an Pskov. Einnig er borgin mikilvæg miðstöð járnbraut- Vainsveilan aukin - e( hægi er Skorað á bæiarbúa að fara suarletra með vatnið. Á BÆJARRÁÐSFUNDI í gær kveldi var samþykt að fela Helga Sigurðssyni verkfræðingi forstjóra vatns- og hitaveit- unnar, að athuga möguleika á því að auka vatnsveitu bæjar- ins úr Gvendarbrunnum. Undanfarnar vikur hefir vatnsskortur verið mjög tilfinn anlegur í ýmsum hverfum bæj arins og þessvegna endurtók bæjarráð í gær fyrri samþykt sína að banna bæjarbúum að nota vatn úr vatnsveitu bæj- arins til þvotta á gluggum, hús um, bílum og þessháttar og til vökvunar í görðum. Ef það sannast, að bæjarbúar nota vatn á þennan hátt, geta þeir búist við að vatnsleiðslum til þeirra verði lokað. Jafnframt samþykkir bæjarráð eindregin tilmæli til bæjarbúa að fara sparlega með vatn við fata- þvott og annað og láta það ekki koma fyrir, að sírenslf úr vatns veitunni eigi sjer stað í húsum þeirra. AuScaskamfur af kaffibæfi Viðskiftamálaráðuneytið hef- ir ákveðið, að frá og með 26. þ. m. sje heimilt að afhenda 2 stk. af kaffibæti gegn afhend- ingu stofnauka nr. 5; af nú- gildandi matvælaseðli. Stofnauki nr. 3; sem gefið var gildi 16. maí s. 1. fyrir einu stk. af kaffibæti, fellur úr gildi að kvöldi þess 31. þ. m. og er því óheimilt að afgreiða út á hann cftir þann tíma. r (slsndingar í af- mælisveislu hjá Andenen Nexö STOKKHÓLMUR: — Hinn danski rithöfundur, Martin Andersen Nexö, hjelt nýlega upp á 75 ára afmæli sitt í Stokkhólmi. Meðal gesta voru ekki einungis margir sænskir vinir hans, heldur einnig full- trúar danskra verkamanna, Fmnar, Norðmenn, íslendingar og innflytjendur frá Tjekkó- slóvakíu og Þýskalandi. —---♦ ♦ ♦ Svíi (ann upp svifsprengjuna STOKKHÓLMUR: „Afton- bladet” hefir skýrt frá því. að sænski uppfinningamaðurinn Georg Edward Waseles höf- uðsmaður; hafi í september 1917 sótt um einkaleyfi á upp- fmningu, sem í mörgu tilliti líkist svifsprengju Þjóðverja. Silkisokkar frá Mönd- ulveldunum. LONDON: — Frá því hefir verið skýrt, að eftir stríð muni silkisokkar, framleiddirí Þýska landi, Italíu og Japan, verða fíuttir til landa bandamanna. aisamgangna til Kistlands og Ostrov er hjer um bil 10 míl- ur fyrir austan landamæri Lit- hauen og um það bil 25 mílur fyrir suðaustan landamæri Eistlands, þar sem þau liggja næst henni. Ný sókn Maslennikovs hers- höfðingja á þessum norðurhluta vígstöðvanna var fyrst tilkynt fyrir tveim sólarhringum. Borg in var svo tekin með kænlegrí hiiðarsókn. Klukkan tíu í kvöid mun töku Ostrov verða fagnað í Moskva með skotum úr 124 fall byssum. Ilerstjórnartilkynningin. I herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld segir m. a. svo: Á Kirjálavígstöðvunum fyr- ir norðan og vestan Suojarvi hrundu hersveitir vorar sókn óvinanna og tóku yfir 40 bæi og þorp. Hersveitir vorar á Eystra- saltsvígstöðvunum tóku í dag borgina Ostrov með kænlegri hliðarsókn og tóku yfir 150 bæi, þorp og járnbrautarstöðvar. Á Brest-Litovsk vígstöðvun- um sóttu hersveitir vorar fram og tóku borgirnar Diven og Vo- lyn og yfir 100 bæi og þorp. Þjóðverjar innikróaðir fyrir sunnan Brody. Fyrir suðvestan Brody unnu hersveitir vorar að eyðingu inni króaðra þýskra hersveita og tóku marga bæi og þorp. Óvin- irnir biðu mikið tjón á mönn- um og hergögnum. Yfir 2000 Þjóðverjar voru teknir til Lithauen. Við Lvov halda hersveitir vorar áfram sókn sinni með góðum árangri. Hafa þær tekið á þessum slóðum yfir 100 bæi, þorp og járnbrautarstöðvar. Ný ferðabók: „Fjallið Evereif" ÞESSA DAGANA er að koma á bókamarkaðinn ný bók; sem heilir „Fjallið Everesl“ og fjall ar um leiðangur, sem farinn var á þetta hæsta fjall í heimi. Höfundur bókarinnar er bresk- ur maður Sir Francis Young- husband, en Skúli Skúlason rit stjóri Kefir þýtt bókina á ís- lensku. Jón Eyþórsson veðurfræðing ur skrifar framan við bókina stutta lýsingu á- Himalayafjöll- um og fylgja þeirri greinargerð tvær myndir. Líklegt má telja; að þeim mönnum5 sem gaman hafa af ferðasögum og frækn- um afrekum^ þyki fengur í bók þessari. (Jtgefandi er Snælandsútgáf- an. Svíi endurbætir vjel- byssnategund. Sænska herstjórnin hefir gert það að tillögu sinni, að S. W. Stenmo verði veitt 3000 kr. verðlaun fyrir að hafa endur- bætt vjelbyssnategund. — Hin nýja vjelbyssnategund, M 42, er helmingi ljettari en sú gamla, M 36. „Friður á jörðu" fyrsfa „óraloríó" r , í NÆSTU VIKU kemur út mikið og glæsilegt söngrit^ eftir Björgvin Guðmundsson^ tón- skáld, á Akureyri. Er það ,,óra- toríó'^ eða söngdrápa; sem nefn ist „Friður á jörðu”. Þelta verð ur fyrsta tónverk sinnar teg- undar( sem út kemur á íslandi. Verkið er gert við ljóðaflokk eftir Guðmund Guðmundsson, og er útsett fyrir blandaðar raddir með píanó-undirleik. Er þefta mikil bók5 176 bls. að stærð. Myndamótin af nótunum eru gerð í Englandi og bókin er prentuð þar. Fimtarþraut meist aramótsins á mánudag MEISTARAMÓT í. S. I. í frjálsum íþróttum hefst að þessu sinni n. k. mánudag. — Fara þá fram boðhlaupin; 4x100 m. og 4x400 m. I 4x100 m. boðhlaupi eru skráðar til kepni 8 sveitir; 4 frá K. R.; 2 frá Ármanni og 2 frá í. R. — í 4x400 m. hlaupi eru skráðar til kepni 4 sveitir; 2 frá K. R„ ein frá Ármanni og ein frá í. R. Næsti liður meistaramótsins verður svo fimtarbraut. Fer sú kepni fram 3. ágúst. Aðalhluli meistaramótsins fer svo fram 12. og 13. ágúst; en mótinu lýkur ekki fyr en 22. ágúst. en dagana 21. og 22. ágúst fer tug-j þrautarkepnin fram. Glímufjelagið Ármann sjer að þessu sinni um meistaramót- ið. Síðasta tækifæri að sjá sögusýninguna SÖGUSÝNINGIN í Menta- skólanum hefir nú staðið í rúm an mánuð. Var sýningin opnuð 20. f. m. — Alls hafa sjeð sýn- inguna rúm 9000 manns. Nú er ákveðið að sýningin verði aðeins opin í tvo daga enn, í dag og á morgun. Báða þessa daga verður hún opin frá kl. 1 e. h. til kl. 10 e. h. Þar sem ekkert er vitað um, hvort hægt verður að taka sýn- inguna upp aftur, er nú síð- asta tækifæri fyrir þá, sem ekki hafa sjeð þessa stórmerki legu sýningu, að gera það nú þegar. — Enginn, sem unnir menningarsögu landsins, getur gengið fram hjá þessari sýningu án þess að skoða hana, og gera það vel. Haegg seiur heims- met í tveggja mílna hlaupi SÆNSKI hlauparinn Gunder Hágg hefir sett enn eitt heims- met. — Að þessu sinni var það í tveggja enskra mílna hlaupi. Hljóp hann vegalengdina á 8:46;4 mín. Fyrra metið átti hann sjálfur, '♦ ♦ ' ■■ Kluge segir ait rólegt heimafyrir London i gærkveldi. Gúnther Weber, frjettaritari þýsku frjettastofunnar, skýrði frá því í þýska útvarpinu í kvöld, að von Klúge marskálk- ur, yfirmaður þýska hersins í Frakklandi, hafi í dag gefið út dagskipan til hermanna sinna, sem var' á þessa leið: „Alt er rólegt á heimavíg- stöðvunum. Við hermenn höf- um heyrt um samsærið og er- um höggdofa af undrun og reiði. Hvað okkur skiftir, er ekki um að ræða neina endur- tekningu á atburðunum 1918, nje atburðunum í Italíu“. „Það er aðeins eitt kjörorð okkar hjer á vesturvígstöðv- unum: „Að vinna sigur yfir óvinun- um og vera ákveðnir í trausti á foringjanna. Lengi lifi foring inn. Lengi lifi Þýskaland“. Bandaríkjamenn ganga á land á Guam-ey Washington í gærkveldi. BANDARÍKJAMENN gengu í dag á land á Guam-ey í Mar- iane-eyjaklasanum í Kyrra- hafi. Er opinberlega tilkynt, að *þeir hafi náð fótfestu á eynni og að varnir Japana hafi verið í meðallagi sterkar. Guam-ey er um 1200 mílur frá meginlandi Japan og er fyrsta ameríska landsvæðið, sem Bandaríkjamenn ná aftur úr höndum Japana. Flugher Bandaríkjanna hafði gert árásir á eyna í tvær vik- ur áður ,en herinn gekk þar á land. Flotinn aðstoðaði við land, gönguna. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.