Morgunblaðið - 16.11.1944, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 16. nóv. 1944
MttltttMftfrÍfe
Utg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Eitstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Áugiysmgar: Arru öla
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstrœti 8. — Sími 1600.
Áskriítargjaid: kr. 7.00 á mánuði innanl&nds,
kr. 10.00 utanlands
f lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbðk.
Hverjir eru stjórnar-
andstæðingar ?
NÚVERANDI ríkisstjórn hefir verið tekið betur af
þjóðinni en nokkurri stjórn annari. Alþjóð fagnar því að
elsta og merkasta stofnun landsins, Alþingi, er laus úr
þeim álagafjötrum, sem á hana voru lagðir með hinni
óþingræðislegu utanþingsstjórn. Það má segja, að þjóðin
sætti sig ótrúlega vel við ástandið fram að þeim tíma
að lýðveldið var stofnað, en eftir það var það alþjóðar
'krafa, að Alþingi myndaði löglega ríkisstjórn. Sómi
þingsins var að því kominn að hrapa niður fyrir bakkann.
Því varð að forða, og að það var gert með myndun núver-
andi stjórnar, veldur gleði fólksins.
'k
Nú hefir sumum blöðum og mönnum orðið það á, að
brengla sannindum um það, hverjir sjeu raunverulega
stjórnarandstæðingar á þingi. Að telja þá alla stjórnar-
andstæðinga, sem ekki eru beinir stuðningsmenn stjórn-
arinnar, er auðvitað rangt.
Þegar einn af elstu og reyndustu stjórnmálamönnum
landsins bar fram vantraust sc ríkisstjórnina, þá fjekk
sú tillaga eitt atkvæði. Af hverju? Auðvitað vegna þess,
að ýmsir'þeir menn, sem ekki eru beinir stuðningsmenn
stjórnarinnar, eru heldur ekki andstæðingar. Hlutleysi
við stjórn er aiþekt fyrirbrigði, og nú sem oft áður getur
það vel staðist, enda þótt líf stjórnarinnar velti ekki á
því.
Þeir 5 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem greiddu
atkvæði gegn því í flokknum að mynda þessa stjórn, hafa
ekkert um það sagt, að þeir ætli sjer að verða í stjórnar-
andstöðu. Þeir eru og verða áfram í Sjálfstæðisflokknum.
Þeir munu ekki vilja torvelda starf þeirrar stjórnar, sem
formaður flokksins hefir myndað, og, það er áreiðanlega
ekki að þeirra skapi, að andstæðingar flokksins noti þeirra
nöfn gegn stjórn hans. Þegar þjóðstjórnin var mynduð,
1939, greiddu 8 þingmenn Sjálfstæðisflokksins atkvæði
gegn því. En þeir tóku ekki upp stjórnarandstöðu. Fyrst
voru þeir nánast hlutlausir, en síðan ákveðnir stuðnings-
menn. Þó var forsætisráðherra þá úr öðrum flokki. Þeir
5 Sjálfstæðismenn, sem nú eru í svipaðri aðst'ðu, hafa
það eitt aðhafst síðan stjórnin kom, að sitja hjá í atkvæða-
greiðslu um vantraust.
ir
En hvers vegna sátu flestir Framsóknarmenn líka hjá?
Ljetu þeir hina hlutlausu Sjálfstæðismenn narra sig til
þess? Eða var það af því, að sumir þeirra eru líka hlut-
lausir? Þegar greindasti maður flokksins flytur vantraust
og fær engan með sjer-, þá getur það ekki verið með feldu.
Það er líka mjög eðlilegt að fleiri eða færri Framsókn-
armönnum þyki viðurhlutamikið að samþykkja vantraust.
Þeir hafa barist fyrir því í tvö ár að ganga í stjórnarsam-
’innu við tvo núverandi stjórnarflokka og ýmsir þe’irra
munu líka hafa viljað samvinnu við forustuflokkinn.
Út um landið hafa þeir víða orðið varir við óánægju
meðal flokksmanna sinna út af því, að Framsóknarflokk-
urinn er utan við samvinnuna. Því skyldu þá slíkir menn
ganga lengra í öfuga átt við kjósendur sína en það, að
vera sem hlutlausastir gagnvart stjórninni? Það væri þó
fróðlegt mál, að fá það upplýst hvernig Framsóknarflokk-
urinn skiftist að þessu leyti. Að það fari dult enn, er að
vísu eðlilegt, og má vera að svo verði um sinn. En veikari
stjórnarandstaða, hefir sjaldan þekkst en nú.
Má ríkisstjórnin og stuðningslið hennar vel við una.
Væri og óskandi að þjóðin öll sýndi þann þroska að fylgja
þessari stjórn, sem bygð er á sáttmálum milli andstæð-
ustu afla þjóðarinnar. Sá samhugur, sem lýsti sjer við
stofnun lýðveldisins, ætti að geta enst meðan stríðsástand
er í heirninum.
Það er framtíð þjóðarinnar meira virði heldur en það,
hvort einstakir flokkar, menn eða stefnur græða fleiri
eða færri atkvæði á þessum hættutímum.
Minning Sveins M.
Hjartarsonar bak- l 7/ / / do. Jj
arameislara | U/r dacýlecýci lífinu !! {•444444444444444 4*W«4»X»44444444t‘
SVEINN M. HJARTARSON
bakarameistari verður borinn
til grafar í dag. Hið sviplega
fráfall hans kom okkur öllum
á óvart, þar sem við vissum
ekki annað en hann væri svo
vel hraustur. Þá er fráfall hans
ekki síður sárt, en þó sárast
fyrir eiginkonu hans og nán-
ustu ættingja, en það er einnig
mjög sárt fyrir okkur samstarfs
menn hans og fjelaga í Bakara
meistarafjelagi Reykjavíkur.
Hann var einn af stofnendum
þess og sístarfandi alla tíð. Var
í stjórn þess sem gjaldkeri í
mörg ár, einnig í stjórn Sam-
bands bakarameistara og for-
maður dómnefndar við sveins-
brjefatöku í bakaraiðn mörg s.l.
ár. Síðustu störf hans fyrir fje-
lagið voru þau, að hann var í
nefnd þeirri, sem vann að
stofnun Rúgbrauðsgerðar bak-
ara. Hann var mjög góður fje-
lagi, samvinnuþýður og brást
aldrei því trausti, sem fjelagar
hans báru til hans. Fyrir öll
störf hans í þágu fjelagsins og
bakarastjettarinnar yfirleitt,
erum við honum innilega þakk-
látir, og munum lengi minnast
hans.
Sveinn M. Hjartarson var
fæddur 16. apríl 1885, í Reykja
vík. Foreldrar hans voru hin
ágætu merkishjón, Hjörtur
Hjartarson og Margrjet Sveins
dóttir, sem bjuggu á Reynimel
við Bræðraborgarstíg. Áttu þau
mörg myndarleg börn, sem öll
eru að góðu kunn.
Sveinn byrjaði starf sitt rjett
eftir aldamótin í bakaríi Björns
Símonarsonar, Vallarstræti 4,
en árið 1902 fór hann í Frede-
riksens-bakaríið í Fischers-
sundi og var þar í tvö ár, þang-
að til hann rjeðst í bakarí vest-
ur á Isaíjörð. Þar var hann, þar
til árið 1908, að hann fluttist
hingað aftur og stofnsetti sitt
eigið bakarí á Bræðraborgar-
stíg 1, sem hann rak síðan með
miklum dugnaði og myndar-
skap í 36 ár samfleytt, eða þar
til hann ljest 8. þ. m.
Sveinn var sjerstakur vinnu-
og afkastamaður í sinni grein,
enda ágætur iðnaðarmaður.
Við kveðjum þig, vinur og
fjelagi, og erum innilega þakk-
látir fyrir samverustundirnar.
G.
Þingfararkaup hækkar.
Sidney: — Vegna hækkandi
verðlags eiga ástralskir þing-
menn á næsta ári að fá 650
sterlingspund í þingfararkaup,
í stað 500 punda áður.
Góð hugmynd.
NÝLEGA ÁTTI jeg erindi inn
á skrifstofu, þar sem útlendingar
vinna, en þar sem margir íslend
ingar koma og eiga erindi. Á ein
um vegg skrifstofunnar, sem
blasti við þeim er inn komu var
spjald og stóð á þvi með greini-
legu letri:
„Tefjið ekki menn frá vinnu,
þó þjer hafið nægan tíma“.
Þeir hafa komist fljótt að því,
útlendingarnir, sem stjórna þess
ari skrifstofu, að það fer mikill
og oft dýrmætur tími til ónýtis
á vinnustöðvum vegna aðskota-
dýra, sem koma eingöngu til að
tefja fyrir þeim, sem eiga að
vera við vinnu sína.
Slíkar aðvaranir, sem þessa
þyrfti að setja upp víðar á vinnu
stöðum og fylgja eftir að þeim
sje hlýtt. Sá ósiður, að tefja fólk
frá vinnu með slúðri í síma og
heimsóknum, er orðinn svo út-
breiddur hjer í bænum, að óþol-
andi má kallast víða. Vinnusömu
fólki er enginn greiði gerður með
tilgangslausum heimsóknum í
vinnutíma og vinnutafir, sem af
hljótast, eru ekkert annað en
vinrfúsvik.
9
En til hvers eru að-
varanir.
ÞAÐ ER ekki til neins, að setja
upp skriflegar aðvaranir um
þetta eða hitt, gæti fólk sagt. —
Hvaða gagn er t. d. í að setja
upp skilti um, að bannað sje að
innheimta reikninga hjá starfs-
fólki viðkomandi fyrirtækis? —
Fæstir innheimtumenn láta sig
það nokkru skipta. Víða á vinnu
stöðum eru sett upp merki, sem
hljóða eitthvað á þessa leið: „Að-
gangur bannaður." „Erindislaus-
um bannaður aðgangur“ o. s.
frv. En þrátt fyrir það er stöð-
ugur straumur ókunnugra manna
út og inn allan daginn, sem ekki
hafa minsta erindi, annað en að
eyða tímanum og tefja fyrir
fólki.
Þeir, sem eiga að stjórna vinnu
veigra sjer við að reka menn út,
sem koma í heimsókn. Það þyk-
ir smámunasemi, eða jafnvel
vinnuharka af viðkomandi.
Tímamerkið og
þulirnir.
PJETUR PJETURSSON þulur
vjek sjer að mjer á götu í gær.
Við erum gamlir kunningjar.
„Þið hafið alt á hornum ykkar,
karlarnir“, sagði hann“. Jeg var
að lesa þetta, sem þú sagðir um
tímamerkið og okkur þulina. —
Skýringin á því, að við höldum
áfram að lesa á meðan tímamerk
ið er gefið klukkan 12.30 er sú,
að við heyrum ekki merkið. Tíma
merkið er gefið frá Loftskeyta-
stöðinni og við getum ekki vitað
hvenær það kemur“.
Jæja, Pjetur minn, þá veit mað
ur það.
•
Mataræði.
HEIMILISFAÐIR skrifar mjer
athyglisvert brjef um mataræði
okkar íslendinga. Hann segir
meðal annars:
„Fyrir nokkrum árum, meðan
jeg átti erfitt með.að veita börn-
um mínum nægjanlegt fæði, voru
börnin furðanlega hress og heil-
brigð. En nú, þegar þau hafa nóg
af öllu, eru þau dauf, fjörlitil,
kvarta um verki í fótum, mátt-
leysi og höfuðverk. Við sömu
veiklun verðum við foreldrarnir
vör.
Hver getur ástæðah verið? Er
það vegna fæðunnar. Mjólkin
verður fyrir óeðlilegri meðferð í
vjelum og efnabreytist ef til vill
við það. Kjöt og mjólk er í sívax
andi mæli, og nú að mestu, fram
leitt með fóðurbæti, en grasfóðr
ið með tilbúnum áburði. Getur
það verið orsökin?
Þá er það eins með kartöflur
og annað grænmeti, að það er að
mestu ræktað með tilbúnum á-
burði. Virðist jafnvel bragð kart
aflna hafa breytst, hvernig, sem
efnagreiningin er.
0
Verkefni fyrir vís-
indamenn.
ER EKKI, segir brjefritari, veg
ur til þess, að einhver af okkar
ágætu vísindamönnum vilji, eða
geti athugað þetta og segi okkur
sannleikann í því efni. Nú segir
einn þetta og annar hitt, en eng
inn veit, hvað satt er. Það er til
lítils að borða grænmeti og á-
vexti, ef því hefir verið spilt með
annarlegum áburði. Það er áreið
anlega full þörf á því, að almenn
ingur fái rjetta fræðslu í þessum
efnum.
•
Hitaveituvatnið í mat.
„SÍÐAN heita vatnið kom höf
um við notað það mikið í mat
og kaffi, til að spara gas og raf-
magn. Getur verið, að einhver ó-
hollusta stafi af neyslu þess?
Það væri afar æskilegt, að mat-
vælaeftirlitið eða heilbrigðis-
stjórnin gæfu þessu gaum.
Við megum hvorki lifa sem
skynlausir grasbítir eða blindar
kjötætur.“
Mikið verkefni.
VISSULEGA er það rjett hjá
brjefritara, að hjer er mjög mik
ið og merkilegt atriði til umræðu
og er mikið undir því komið, að
vel sje á haldið. En það verður
að treysta því, að matvælaeftir-
litið hafi ströngustu gætur á því,
að matvörur, sem seldar eru hjer
á markaði’sjeu hollar.
Hvað snertir heita vatnið, mun
það hafa verið rannsakað og jeg
held að það sjeu fleiri, sem halda
því fram, að það sje holt, en hin
ir, sem hræddir eru um, að það
geti verið mönnum skaðlegt til
neyslu. En það er eins og segir
í brjefinu. Það væri gott, ef vís-
indamenn okkar- ljetu almenn-
ingi í tje upplýsingar um þessi
mál yfirleitt.
9
Spádómur, sem ekki
rættist.
BORGARI hefir skrifað mjer,
að því er virðist í reiði, yfir því,
að einhver spádómur um lok
styrjaldarinnar, hafi ekki komið
fram á rjettum tíma. Hann eys
úr skálum reiði sinnar yfir
„spámanninn". Jeg sje enga á-
stæðu til að taka þetta mál svona
hátíðlega. Öllum mönnum getur
skjátlast segir gamalt máltæki.
Við íslendingar ættum, að vera
orðnir ’ ví kunnugir, af langri
reynslu, að það er enginn Jónas
til meðal okkar, sem getur leitt
okkur í allan sannleika.
Yfir 3 milj. vinnudaga
fóru forgörðum.
LONDON: — Á fyrstu 9
mánuðum yfirstandandi árs,
1944, fóru 3.291 000 vinnudag-
ar forgörðum í Bretlandi, sök-
um verkfalla og vinnudeilna.
Alls urðu 1298 vinnustöðvanir
frá 1. jan. til 1. sept.
(Daily Telegraph.)