Morgunblaðið - 16.11.1944, Side 16
1G
Fimtudag-ur. 16. nóv. 1944
R ímlega 18 þús.
krénur söfnuéus! III
Á SUNNUÐAGNN safnaðist
í bænum kr. 17.521.60 fyrir
merkjasölu Blindravinafjelags
Islands til ágóða fyrir Blindra-
heimilissjóð fjelagsins. Einnig
gaf Jóhannes Reykdal, Þórs-
bei'gi í Hafnarfirði kr. 5000.00
í efnivið til væntanlegrar bygg
ingar. Ennfremur bárust kr.
100 frá Ó. E. Söfnunin nam því
alls kr. 18.121.60.
Stjórn Blindrávinfjelags Is-
lands flytur unnendum sínum
hinar innilegustu þakkir fyrir
þeirra örlátu gjafir til Blindra-
heimilisins og sjerstaklega vill
stjórnin þakka hinum duglegu
sölubörnum, sem mörg ekki
tóku þóknun fyrir starf sitt.
Stðasía yinnudeilan
leysl
SAMNINGAR milli Klæð-
skerafjelagsins Skjaldborg og
Klæðskerameistarafjel. Reykja
víkur voru undirritaðir í gær
fyrir millgöngu sáttasemjara.
Vinnustöðvun hefir staðið yf
ir hjá klæðskerum síðan 13.
sept. s.l. 1
Samkvæmt hinum nýju
samningum hækkar vikukaup
sveina úr kr. 138.00 á viku í
kr. 145.00 á viku. Ákvæðis-
vinna sveina hækkar um 25%.
Mánaðarkaup stúlkna hækk-
ar úr kr. 285.00 á mánuði í kr.
315.00 á mánuði. Ákvæðisvinna
stúlkna hækkar um 5—10%.
Onnur ákvæði samningsins eru
að mestu samhljóða fyrra
samningi.
Vinna á klæðskeravinnustof
um hefst því í dag.
Þar með er síðasta vinnu-
deilan leyst.
IMaður á reiðhjéli
ekur á slúlku
MÁNUDAGINN 13. þ. m.
varð stúlka fyrir reiðhjóli og
rneiddist svo mikið, að flytja
varð hana 1 sjúkrahús.
Þetta skeði um kl. 20.30 um
kvöldið. Var hún á gangi eftir
Vesturgötu, er maður á reið-
hjóli ók á hana. Stúlkan fjell
í götuna og misti hún meðvit-
und. — Maðurinn á reiðhjól-
inu skifti sjer ekkert af stúlk-
unni og hjelt leiðar sinnar eins
ekkert hefði ískorist.
Farið var með stúlkuna í
sjúkrahús. Við rannsókn kom
í Ijós, að hún hafði fengið heila
hristing. Liggur stúlkan þar
enn.
Ekki er upplýst, hver mað-
urinn var, er sat reiðhjólið, og
biður rannsóknarlögreglan þá,
er einhverjar upplýsingar gætu
gefið, að tala við sig hið fyrsta.
Times vill Burma í
*
samveldið breska.
LÓNDON: — The Times
leggur til í ritstjórnargrein í
fyrradag, að Burma fái sömu
aðstöðu og önnur samveldis-
iönd Breta, þegar er landinu
hefir verið náð úr greipum Jap
ana, sem blaðið telur að verði
bráðlega.
Sfóri salurinn í S/álfstæbish.úsinu
Sjeð inn í stóra salinn. Lauslegur uppdráttur, sem sýnir tilhögun borða og skiftingu salarins. Að sjálfsögðu mun
unnið frekar úr einstökum atriöum innrjettingarinnar, klæðningju veggja og lýsingu, sem verður mikið atriði innrjetting-
arinnar. — Birtar verða frekari myndir af salnum, þegar þeirri vinnu er lokið.
Maður verður fyrir
bifreið og fótbrolnar
FYRIR NOKKRU síðan, eða
sunnudaginn 5. nóv. s.l., varð
bifreiðarstjóri fyrir bifreið og
fótbrotnaði. — Nánari Aildrög
eru þau, að áætlunarbifreið sú,
er annast ferðir til Vífilsstaða,
var á leið inn Hverfisgötu. Er
bifreiðin var komin rjett inn
fyrir Smiðjustíg, þurfti bifreið
arstjórinn að lagfæra keðju á
hægra afturhjóli. Skreið hann
undir bifreiðina, til þess að kom
ast betúr að biluninni, og stóð
fótur hans rjett út undan bif-
reiðinni hægra megin. Þá ók
bifreið með miklum hraða inn
Hverfisgötu. Er bifreið þessi
var komin að áætlunarbifreið-
inni, fór vinstra afturhjól henn
ar yfir fót bifreiðarstjórans og
braut hann.
Bifreiðarstjórinn á fyrnefndri
bifréið ók áfram og númer bif-
reiðarinnar náðist ekki. Eru
því þeir, er einhverjar upplýs-
ingar geta gefið, beðnir að tala
við rannsóknarlögregluna hið
fyrsta.
Framsókn norðan
Forli
London í gærkveldi.
BANDAMENN á Ítalíu hafa
unnið nokkuð á norðan Forli
og beggja megin borgarinnar,
og er eiginlega hvergi barist
annarsstaðar að ráði á Italíu-
vígstöðvunum sem stendur. —
Tókw bandamenn fyrir austan
Forli hæð eina allþýðinggr-
mikla með áhlaupi og hafa kom
ist yfir á norðan borgarinnar.
Ekki hefir veður enn skánað
að neinum mun. — Reuter.
Baldur Möller gefur
handrif að skákbók
1 GÆRKVELDI var Ás-
mundi Ásgeirssyni afhent
verðlaun Skákmeistara Is-
lands 1944. Árni Snævarr
íorset i Skáksambands íslands
afhenti verðlaunin og hjelt
hann jafnframt aðalræðuna.
Að lokinni ræðu forseti tal-
aði Baldur Möller. Afhenti
hann Skáksambandinu hand-
rit að skákl)ók, en í henni eru
rúmar 50 skákir scm Islend-
ingar hafa unnið á erlendum
skákmótum.
Árni Snævarr þakkaði g.jöf
ina og gat þess, að hann hefði
kvnnt sjer handritið, væri það
algjörlega búið undir prent-
un og mjög vandvirknislega
frá því gengið.
Baldur Möller gat þess, að
hann hefði ákveðið, að bók
þessj skyldi tileinkuð Eggert
Gilfer. — Árni Snævarr svar-
aði þá, að þessum kvöðum
skyldi verða fylgt og vonaðist
hann til, að unnt yrði að gefa
bókina ilt á þessum vetri.
Þjóðverjar missa
Skoplje og Elbasan
London í gærkveldi.
Hersveitir Búlgara hafa náð
borginni Skopljc í Júgóslavíu
sf Þjóðverjum, og einnig hafa
þeir orðið að yfirgefa Elbasan,
eitthvert ramgerðasta virkið í
Norður-Albaníu.
Hörfa Þjóðverjar hægt norð-
ur eftir dölum Júgóslavíu, og
segja það undanhald mjög erf-
itt, sökum vetrarveðurs, sem
þegar er byrjað á þeim slóð-
um, og einnig vegna árása
fjandmannanna. — Reuter.
Slórhöfðingleg gjöf
til Landgræðslu-
sjoðs
í GÆR barst Landgræðslu-
sjóði stórhöfðingleg gjöf, 10
þús. krónur frá h.f. Shell á Is-
landi. — Tilkynti forstjóri fje-
lagsins sjóðnum, að á síðasta
aðalfundi hefði verið ákveðið,
að gefa skyldi til Landgræðslu
sjóðs 10 þús. kr.
Þetta er önnur þöfðinglega
gjöfin, er sjóðnum berst á
skömmum tíma; var hin frá
Olíuverslun íslands h.f., einnig
10 þús. krónur.
Skipum sökkl við
Noreg
London í gærkveldi.
BRESKAR flugvjelar frá
flugvjelaskipi rjeðust í gær á
tvo þýska vopnaða togara á
Þrándheimsfirði og söktu öðr-
um, en líklegt er, að hinn hafi
sokkið líka.
Flugvjelaskipið var með all-
stórri flotadeild, sem hefir ver-
ið á sveimi við Noregsstrendur
að undanförnu. — Mistu Bret-
ar enga flugvjel og ekkert tjón
varð á herskipum þeirra.
— Reuter.
Manntjón í York.
London: — Nýlega var til-
kynt, að manntjón af völdum
loftárása á ensku borgina Yorg
næmi alls 87 mönnum látnum
og 111 alvarlega slösuðum. —
Hjerumbil þriðjungur af hús-
um borgarinnar er eyðilagður
eða laskaður.
Frá Færeyjum
Nýlega hefir Lögþing Fær-
eyinga ákveðið, að þingið skuli
koma saman á Ólafsvökunni,
en nú um nokkurra ára skeið
hefir þingið verið kallað sam-
an að vetrinum til. Með þessu
er komið á hið gamla skipulag,
að Lögþingið og Ólafsvakan
eigi saman. Þetta var samþykt
í þinginu með 14 samhljóða at-
kvæðum.
Lögþingið samþykti samhlj.
að vinna að því, að eins fljótt
og mögulegt væri, yrði komið
upp skipasmíðastöð í Færeyj-
um, bæði til þess að endur-
byggja skip og byggja ný.
íþróttaleikvangur í Þórshöfn.
Það hefir nú fyrir alvöru
verið horfið að því, að koma
upp varanlegum íþróttaleik-
vangi í Þórshöfn, sem mun hafa
það í för með sjer að nýtt líf
færist þar í allar íþróttaiðkan-
ir. Leikvangi þessum er ætlað-
ur staður í fögrum dal, Gunda-
dal við Þórshöfn. í ágúst var
byrjað að vinna að útisundlaug
og handknattleiksvelli. Bæjar-
stjórn Þórshafnar hefir heitið
árlegri fjárupphæð til styrktar
þessu, en íþróttaráð Þórshafn-
ar sjer um framkvæmdir og
hefir þegar hafið fjársöfnun í
því skyni. — Teikningar af
svæðinu hafa þeir gert Johan
Ziska, bæjarsljóri og Dewald
Hansen, bæjarskrifari.
Ungmennafjelag Færeyja.
Ungmennafjelag Færeyja er
nú í örum vexti og eru nú 10
fjelög í því. í þessum mánuði
verður haldin ungmennaráð-
stefna i Þórshöfn. Aðalhlutverk
Ungmennafjelags Færeyja er
hvorki meira nje minna en það
að kenna færeyskum æskulýð
að elska. land sitt, þjóð sína,
tungu og fána. — Formaður
Ungmennafjelagsins er Páll
bóndi Patursson.