Morgunblaðið - 02.12.1944, Síða 1
31. árgangnr.
Isafoldarprentsmiðja h.f
246. tbl. — Laugardagur 2. desember 1944
BAMÐAM
VINNA
Á VIÐ SAAR
Gjðldeyris-
hrun í Grikk-
landi
LONDON: — Fyrir skemstu
fjell gríska drachman
algjörlega, og koma nú um tutt
ugu triljónir drachma móti einu
sterlingspundi. Viðskiíti eru
öjil orðin ómöguleg, og verið að
loka verslunum í Aþenu.
Hinn daglegi brauðskamtur
er bað ódýrasta, sem fasst keypt
100 grömm af brauði kosta 180
milj. drachma. Ein einasta sig
aretta er 10 sinnum meira virði
Allir pappírspeningar hafa fall
ið mjög mikið, jafnvel amerísk
ir dollarar. Þannig eru nú
greiddir 18 dollarar fyrir eitt
sterlingspund í gulli. (Daily
Telegraph).
Scobie sfendur fast-
ur fyrir
London í gærkveldi.
SCOBIE hershöfðingi, vfir-
maður breska hersins í Grikk-
landi, flutti útvarpsræðu til
grísku þjóðarinnar í dag, og
sagði, að hann og hermenn
hans myndu standa fastir fyr-
ir, ef reynt yrði að steyi>a
hinni rjettkjörnu stjórn lands
ins eða hafa annað ofbeldi í
f.rammi.
Hershöfðinginn kvað ýmsar
klíkur vaða uppi með ofbeldi
í landinu, svifta menn rit-
frelsi og málfrelsi, en liann
og her hans, ásamt stjórnar-
vöklum landsins, skyldi sjá
svo xxm, að þetta mætti lagast,
hið fyrsta.
AU agasamt er enn í Grikk
landi, og herma fregnir að;
ríkisstjórnin hafi nú klofnað
í spursmálinu um afvopnun
skæruliðanna.
Reuter.
Slys.
í GÆR vildi þáð slys til í
Tryggvagötu, að maður á reið-
hjóli fjell á bifreið og hand-
leggsbrotnaði. — Maður þessi
heitir Lárus Hjálmarsson, til
heimilis í Bragga 12, Seltjarn-
arnesi.
Var Lárus á leið vestur göt-
una, en bifreiðin austur. Er
Lárus var kominn á móts við
bifreiðina, rann reiðhjól hans
til á götunni og fjell hann á
bifreiðina, með þeim afleiðing-
um, að handleggur hans brotn-
aði.
Sfyrjöldin svifii þær heimilinu
Styrjöldin kemur ekki síður niður á börnum, en fullorðnum.
Þannig hrakti hún þessar tvær litlu systur frá heimilum sínum.
Þær áttu heima í frönsku horginni Dunkerque, en urðu að fara
þaðan, er vopnahlje var gert, til þess að flytja íbúa borgarinnar
á hrott, svo þeir yrðu ekki fyrir, þegar farið yrði að berjast
um hana.
Deiit um utan-
ríkismál í breska
þinginu
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ALLHARÐAR DEILUR urðu um ulanríkismálastefnu bresku
stjórnarinnar á fundi í neori málstofunni í dag. Var það aðallega
Aneurin Bevan, hinn orðhvati jafnaðarmaður, sem deildi á
sljórnina- Anthony Eden svaraði, og' gerði grein fyrir stefnunni.
Aneurin Bevan rjeðist fyrst
að Churchill forsætisráðherra
fyrir síðustu ræðu hans á þingi,
og kvað hana hafa verið sund-
urlausa og í surnum atriðum
blátt áfram óþolandi fyrir jafn
aðarmenn. Því næst rjeðist
hann að stefnu stjórnarinnar í
því, að neila að Sforza greifi
yx-ði utanríkisráðherra ítala og
kvað það hart, að breskir her-
menn væru látnir halda óvin-
sælli stjórn við vöid, og meinti
þar Pierlot-stjórnina í Belgíu.
Eden svarar.
Eden svaraði, og' byrjaði á
því að ræða um Þjóðverja, en
vjek síðan máli sínu að ræðu
Bevans. Kvað hann takmark
Bi’ela vera þrennskonar: Sig-
ur, röð og reglu að baki víglín-
unum og kosningar á stjórnum
landa þeirra, er leyst yrðu und
an valdi Þjóð’C’erja. Sagði hann,
að Pierlot-stjórnin í Belgíu
væri rjettkjörin stjórn, sem
nyti sluðnings allrar þjóðarinn-
Framh. á 2. siðu
Erfiit um sijórnar-
rnyndun á Ítalíu
London í gærkveldi:
ENN hei'ir Umberto ríkis-
stjóri falið Bonomini, fyrver-
andi foi’sætisráðherra að
mynda stjórn á Italíu, en ekki
iítur vel út með að honum
\
takist það. Margir af hinum
sex flokkum, sem í stjórn-
inni voru, eru honunx algjör-
lega andsnúnir, og eini flokk-
urinn, sem ráðið gæti úrslit-
um í málinu, Kristilegi lýðræð.
isflokkurinn, er klofinn í af-
stöðu sinni til Bonomini. —
Bretar vilja ekki Sforza
gi'eifa sem utanríkisráðherra,
og yfirleitt virðast erfiðleik-,
arnir á því, að stjórn, sem
bandamenn geti viðurkennt
verði mvnduð á Italíu, lítt yf-
irstíganlegir. —- Bæði komm-
únistar og jafnaðarmenn eru
á móti Bonomini.
Áköi skothríð Þjód-
veBrjes á Siiresshtsrg
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞRIÐJI HER Bandaríkjamanna, undir stjórn Pattons
hershöfðingja, hefir unnið nokkuð á í orustunum um Saar
hjéraðið og komist að Saar-ánni, sem nú er í miklum
vexti, á um 14 km svæði. Er herinn nú alls kominn að
ánni á fjórum stöðum. Þjóðverjar hörfuðu yfir fljótið eigi
allfjarri borginni Merzig, og sprengdu brúna í loft upp,
er þeir voru komnir yfir. Halda þeir uppi öflugri skothríð
yfir fljótið, bæði úr smáum fallbyssum, og einnig úr stór-
um fallbyssum í Siegfriedvirkjunum.
Einnig gera Þjóðverjar nú stórkostlega stórskotahríð
að borginni Strassburg, yfir um Rín.
A Aachensvæðinu hafa breytingar ekki orðið miklar,
þrátt fyrir harðar orustur, en bandamenrj hafa heldur
unnið á sumsstaðar.
Rússar sækja fram
sunnan Budapest
London í gærkveldi:
RÚSSNESKAR hersvéitir
liafa að sögn þjóðverja hald-
ið áfram sókn sinni sunnan
Bndapest, þar sem þær kom-
ust yfir Dóná frá Jugóslaviu,
og orðið allmikið ágengt. Eru
fremstu sveitirnar nú um 128
km. frá Budapest að suðaust-
an. Ilafa þardagar orðið mikl-
ir um þessar slóðir.
Þá hafa Rússar að því er
Moskvafregnir herma, unnið;
frekar á námd við bæinn
Eger, sem þeir tóku í gær
og er nú borgin Miskolzet í
aukinni liættu af herjum Mal;
inowskis.
Þjóðverjar segja. að Rúss-
ar undirbúi nú niikla sókn
gegn Austur-Prússlandi og,
dragi saman feikna lið við
landamærin. Biiast þeir við;
stórorustum um þær slóðir á
uæstunni. — Annarstaðar á,
vígstöðvunum virðist kyrrt.
— Reuter.
Stórárás á Duisburg
London í gærkveldi.
I NÓTT sem leið gerðu
breskar sprengjuflugvjelar,
mjög harða árás á þýsku bot'g
ina Duisburg, og auk þess á
Hamborg. Yar varpað niður,
á Duisburg 2000 smálestumj
af sprengjum, og auk þess,
miklum fjölda eldsprengja, og
komu upp eldar afar tniklir.
— Pjórar flugvjelar komu
ekki aftur.
1 hinum miklu dagárásum
á Þýskaland í gær, misstu
Bandaríkjamenn alls 40 stór-
ar sprengjuflugvjelar og 13
orustuflugvjelar, en alls tóku
um 2000 flugvjelar þátt í
þeim árásum.
—Reuter.
Sótt í tvær áttir.
Bandaríkjamenn og Frakk-
ar sækja frá Strasburg, hæði
til suðurs og norðurs, og verð-
ur allvel ágengt, þrátt fyrir
það, þótt Þjóðverjar hafi
þarna öflugar sveitir manna
með skriðdrekabyssur. Einn-
ig vinna bandamenn á í Vog-
esafjöllum, og við Belfort-
hafa Frakkar þrengt enn frek
ar að Þjóðverjum. ■— Erfitt
er um sókn þar í fjöllum og
skógum.
StuSningur af flugvjelum.
Til þess að reyna að vega
upp á móti stórskotahríð Þjóð
verja yfir Saar, rjeðust 250
meðalstórar sprengjuflugvjel-
ar bandamanna á stöðvar Þjóð
verja handan árinnar í dag.
Var varpað niður miklu af.
sprengjum. Lentu flugvjelar
handamanna í hardaga við
hinar nýju, þrýstiloftsknúðu
flugvjelar Þjóðverja. -— Her-
fræðingar telja, að Þjóðverj-
ar hafi mikið lið austan við
Saarfljótið, og hvggist varna
handamönnum yfirferðar vfir
það.
Orustur í skógarhæðum.
Miklar orustur geysa í hæð
unum í austurjaðri Hiirtgen-
skógarins fyrir suðaustan.
Aachen, og veitir ýmsum het-
ur. Hersveitir handamanna
hafa getað sótt nokkuð fram
fyrir austan Geileukirchen. og
eru þar. nokkur þorp undir
ákafri stórskotahríð styrjald-
araðila, sem gera svo áhlaup
á þau á víxl. Nokkuð hafa
bandamenu þokast nær ánni
Röhr á allbreiðu svæði.
De Gaulle hefir að undan-
förnu dvalist í Stalíngrad, en
er nú farinn þaðan til Moskva.
Færði hann borginni að gjöf
frá frönsku þjóðinni minning-
artöflu eina veglega. — Reuter.