Morgunblaðið - 07.12.1944, Síða 1
BORGARASTYRJÖLD í GRIKKLAIMDI
Fánar bandamanna yfir Aniwerpen
BaHdamenn hafa nú byrjað að flytja birgðir til herja sinna
um hina miklu höfn í Antwerpen, Belgíu. Hjer sjást fánar
bandamanna yfir horginni. Myndin er tekin af þaki hæsta húss
borgarinnar.
Hersveitir Pattons
sækja fram í Saar
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuler.
AÐAL FREGNIRNAR frá vesturvígstöðvunum eru frá víg-
stöðvunum í Saar, þar sem hersveitir Pattons hafa sótt fram
um 11 kílómetra síðasta sólarhringinn. Hefir 3. ameríski her-
Inn farið yfir Saar-fljót á 6 stöðum óg sumsstaðar komið skrið-
arekum og fallbyssum, kem notaðar eru i viðureignum við skrið-
dreka, yfif' fljólið.
Breskur her og stjórnarsinnar
berjast við skæruliða um yfir-
ráðin í Aþenu
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ALGJÖR BORGTRASTYRJÖLD hefir brotist út í
Grikklandi og í Aþenu berjast breskar hersveitir með
stjórnarliðum við skæruliða um yfirráðin í borginni.
Komið hefir og til uppreisna í öðrum borgum landsins,
þar á meðal Saloniki og Pyræus. Bresku hersveitirnar
hafa hreinsað til í miðbiki Aþenu og tekið aðalstöðvar
kommúnista og annara, er að uppreisninni standa. Um
3000 skæruliðar hafa verið teknir höndum.
Rússar nálgast
landamæri
Auslurríkis
LONDON í gærkveldi: — Það
var tilkynnt í kvöld frá Moskva
að hersveitir Rússa hafi í dag
tekið 100 borgir og bæi í Ung
verjalandi og Júgoslavíu. í her
stjórnartilkyningu Rússa í
kvöld ér sagt, að Rússar hafi
sött fram í „þríhyrningum“,
sem myndast með vígstöðvum
þeirra við Dóná, Drava og Balat
onvatni. Rússar hafa nú alt
svæðið austan Balatonvatni á
sínu valdi og eru nú eina 40
km. frá Buda, sem er útborg
frá Budapest.
I fregnunum frá Moskva seg
ir og að hersveitir Rússa sjeu
um 70 km. frá landamærum
Austurríkis.
Þá berasl fregnir frá Rússum
um framsókn í Júgoslavíu, en
þar berjast hermenn Titos með
Rússum.
r
Alfundi herínn
sækir norður fyrir
Ravenna
Róm í gærkvöldi:
Attundi herinn breski hefir
sótt fram allverulega síðan í
gær, að hann tók ítavenna,
Ilafa Bretar sótt fram til
Lemognéfljóts og tekið þær
hæðir nokkrar, sem taldar
eru hernaðarlega mikilvægar.
■ Er búist við, að Þjóðverjuni
standi stuggur af þessari nýju
framsókn áttunda hersins, því
með lienni er herinn kominn á
hlið við þýsku hersveitirnar,
sem herjast á þessum slóðum.
12 þúsund korlum
rænt frá Þjóðverjum
Frá norksa blaða-
Julltrúanum.
AÐFARANÓTT 21. nóv. s.l.
átti sjer stað dularfult rán í
„Geografisk Oppmálning í
Oslo.
Rjett eftir miðnætti komu
þar nokkrir menn klæddir í
einkennisbúninga liðsforingja.
Þeir kröfðust að vörðurinn
hleypti sjer inn, sem hann og
gérði og höfðu á brott með sjer
12 þús. kort, þar á meðal mjög
mikilvægan uppdrátt um tund-
urduflalagnir Þjóðverja með
ströndum Noregs. Álitið er, að
hjer hafi föðurlandsvinir verið
að verki.
Barist er í borginni Saaregu-
eminés, en það er þýðingarmikil
umferðarborg á þessum slóðum.
Bandamenn hafa % af borginni
á sínu valdi.
Framsókn Frakka.
Syðst á vesturvígslöðv'unum
hafa Frakkar sótl fram i Vog-
esafjöllum og tekið hæðir, sem
tveir vegir til Colmar liggja
um.
Gagnáhlaupum hrundið.
Á Kölnavígstöðvunum hafa
Þjóðverjár gert nökkur gagn-
áhlaup í dag. við Dúren, en
þeim hefir öllum veriö hrund-
ið. Er þarna enn um kyrrstöðu-
hernað að ræða.
enn í dag haldið uppi miklurn
loftárásum á samgöngukerfi
Þjóðverja, sem liggur að vest-
urvígstöðvunum og ennfremur
á olíuhreinsunarstöðvar. 800
stórar amerískar sprengjuflug-
vjelar gerðu í dag árásir á sam
göngumiðstöðvar Þjóðverja og
olíuhreinsunarstöðvarnar í Le-
una, skamt frá Leipzig og Bilé-
feldt. Þýska flugliðið ljet ekki
sjá sig í árásum þessum.
Bretar auka útflutn-
ingsverslun sína
London í gærkveldb
Þingmaður íiokkur úr
flokki íhaldsmanna bar fram.
þá fyrirspurn í hreska þing-
inu í dag hvort stjórnin ætl-
aði leyfa Bandaríkjamönnum,
að halda áfram að vinna er-
lenda markaði úr höndum
Breta. Dalton ráðherra svar-
aði, að það væri langt frá, að
utanríkisverslun Breta væri
með öllu óveruleg. Myndi ut-
anríkisverslunin jiegar á næsta
ári verða . aukin til nmna.
Margar þjóðir biðu þess nú
með eftirvæntingu að geta
hafið viðskifti við Breta, en
ekki væri ha'gt að húast við
að liægt væri að hefja utan-
ríkisverslunina í jafnstórum
stíl og verið hefði fyrir stríð
með einnar nætur fyrirvara.
Stjórnin hefir liinsvegar
veitt mörgun kaupsýslumönn-
um fararleyfi til útlanda upp
á síðkastið, er ferðir þeirra
væru farnar í vershmarerind-
um. „Eu við getum ekki”,
sagði ráðherrann, „aukið ut-
anríkisverslun vora svo miklu
nemi fyrr en við höfum unnið
sigur í styrjöldinni”.
— Reuter.
„Dularfullir storm-
sveipir“,
London: Lögreglan í Frakk-
landi stendur ráðalaus vegna at
burða; sem urðu í allmörgum
þorgum Frakklands nótt eina
Skutu á breskar hersveitir.
Uppreisnin brautst út
snemnía í morgun. Breskur her
flokkur var á leið til Akropolis
hæðarinnar til að leisa annan
breskan herflokk af verði. Er
bresku hermennirnif komu á
„stjórnarskrártorgið" skutu
skæruliðar á hermennina og
urðu þeir að snúa við og sækja
liðsauka. Til bardaga kom og
við breska hermenn á öðrum
stað í borginni.
Bretar tefla fram skriðdrekum
og flugvjelum.
Bresku hersveitirnar í Aþenu
hafa barist við skæruliða með
skriðdrekum og flugvjelum í
dag og forsætisráðherra
Grikkja hefir látið svo ummælt
að öll ráð verði notuð til að
bæla niður uppreisnina gegn
stjórninni. Stjórnin muni ekki
þola, að skæruliðar vaði uppi
með ofbeldi, eins og þeir hafa
gert undangengna daga. Ríkis-
stjórnin muni halda áfram áð
stjórna þangað til hægt sje að
láta kosningar fara fram 1 land
inu. Allir grískir kjósendur
muni fá leyfi til að láta skoðan
ir sínar í ljós, en einræði verði
ekki þolað, í hvaða mynd, sem
það komi fram.
Skæruliðasveitir stefna til
Aþenu úr öllum áttum til að
berjast. Hefir sumsstaðar kom-
ið til átaka milli þeirra og
breskra hermanna. Á veginum
til Patras lenti í bardaga milli
Breta og skæruliða. Gerðu
skæruliðar fyrirsát bresk-
um hermönnum, er • leið
áttu um veginn og skutu á þá
með vjelbyssum. Bretar náðu
þessum skæruliðaflokki á sitt
vald, en feldu suma.
Áður gáfu þeir okkur blóm
cn nú
Frjettaritari Reuters var í
fylgd með breska herflokknum.
sem lenti í bardaganum á veg-
inum til Patras. Eftir bardag-
ann varð einum breska her-
manninum að orði:
Framh. á 2. síðu
Miklar loftárásir.
Flugsveilir bandamanna hafa
1300 flugvjelar gdi-a
árásir.
Breska flugmálaráðuneylið
tilkynnir í kvöld (miðviku-
dag), að eftir að skyggja tók
hafi 1300 breskar flugvjelar
verið sendar til árása á sam-
göngumiðstöðvar í Vestur-
Þýskalandi.
jfyrir skömmu. Varð víða mjög
mikill loftþrýstingur, líkt og
stormsveipir færu um, eða
sprengingar hefðu orðið nærri.
| Alt fauk um koll í veitingahúsi,
jþar sem Giraud hershöfðingi
jhafði verið að borða.