Morgunblaðið - 31.12.1944, Síða 16

Morgunblaðið - 31.12.1944, Síða 16
1G Sunnudag'ur 31. des. 1944 Verð á prent- viirnu, bókhands- linnu oy bóka- pappír lækkar VIÐSKIFTARÁÐ hefir á- kveðið verðlækkun á allskon- ar prentvinnu, bókbandsvinnu og öllum venjulegum tegund- um af bókapappír. Nemur lækk un þessi á preptvinnu um 8% og á bókbandsvinnu um 12%. Gengur hún í gildi, að því er snertir verk, sem afgreidd verða frá prentsmiðjum og bók- bandsstofum eftir 1. jan. 1945. Lækkun bókapappírs nemur um 18%. í tilkynningu, sem verðlags- stjóri hefir gefið út um þetta, er skýrt svo frá, að grunnverð skuli vera samkvæmt verðskrá Fjelags ísl. prentsmiðjueigenda frá 1. okt. 1942. Grunnverðið skal síðan umreiknað með vísi- tölu 226, en áður var það um- reiknað með vísitölu 245. Verk, sem áður hafa verið unnin fyr- ir lægra verð, en samkvæmt taxta, mega þó ekki hækka frá þr sem verið hefir, án leyfis verðlagsstjóra. Grunnverð bókbandsvinnu skal vera samkvæmt verðskrá Fjelags bókbandsiðnrekenda frá 1. maí 1942. Grunnverðið skal síðan umreiknað með vísi- töiu 175. Nemur sú lækkun um 12%. Þá má verð á öllum venju- legum tegundum af bókapapp- *r ekki vera hærra en kr. 3.60 pc kg., en var áður 4.40 pr. kg Sje um að ræða sjerstak- lega vandaðar og dýrar tegund ir af pappír, getur verðlags- stjóri þó leyft hærra verð. Heildsöluálagning á hvers- i. nar pappír má ekki vera hærri en 14%. Við verðlagningu bóka skal ekki taka tillit til pappírsrýrn- unar vegna óhentugra pappírs- stærða, nje heldur annara ó- eðiilegra kostnaðarliða. Hannaskiffi í vil- skiiiaráSi FRÁ ÁKAMÓTUM verða mannaskifti í viðskiftaráði, að tveir nýjir menn Icóma í ráðið, í stað tveggja (>: íyiir voru, sem fara. Þessir koma inn í ráðið: IJaukur Ilelgason. bankafull— trúi á ísafirði og Kjartan Ólafsson, bæjarfulltrúi í Ilafn arfirði. En úr ráðinu fara, ]ieir Oíinnlaugur E. Eriem stjórnar ráðsftilltrni og Jón Guðmunds ron, skrifstofustjóri. Júifus Arnasofl kaupmaður láiirni JÚLÍUS ÁRNASON ka«p- maður andaðist í gærmorgun. í sjúkrahúsinu á Landakoti eftir ianga og stranga sjúk- dómslegu. Þessa rnæta manns verður nánar getið síðar hjer í blaðinu. 14YNÐÍRNAR hjer að ofan >i teknar í sjóorustunni miklu V Filipseyjar, sem háð var fyr- skemstu. Sýnir efri myndin •eríska flugvjelaskipið Prince- í, rjeít áður en það sökk. itiskip er hjá,. til að bjarga innum. — Neðri myndin sýnir ■n af björgunarbátum flug- elaskipsins og ausa mennirnir onum af kappi, þar sem hann lekur. Leikfjelag, Akureyrar kemur í heimsókn Brá3uheimi!ii Reykjavík LEIKFJELAG REYKJAVIKUR hefir booið leikflokki Leik- fjelags Akureyrar hingað til bæjarins og mun flokkurinn leika hjer Brúðuheimilið eftir H. Ibsen. Stjórn Leikfjelags Reykja- víkur skýrði blaðamönnum frá þessari heimsókn og aðdrag- anda að henni. Hafði Brynjólf- ur Jóhannesson orð fyrir stjórninni og gat hann þess, að Leikfjelag Reykjavíkur hefði farið margar leikferðir til Norðurlands. Sú síðasta var farin sumarið 1943, og var það leikritið Orðið, er þá var flutt. Var þá rætt um heimsókn leik- flokks frá Akureyri til Reykja- víkru. I Stjórn Leikfjelagsins hefir nú ákveðið að bjóða leikflokki Leikfjelags Akureyrar hingað og mun L. R. kosta för flokks- ins, svo og alt uppihald, með- an hann dvelur hjer. , Fyrsta sýning á Brúðuheim- ilinu er ákveðin að verði 29. jan. n.k. Af skiljanlegum ástæð um verða nokkrar æfingar hafðar hjer áður. Verður ekki hjá því komist, að hin smærri hlutverk, þá einkum barna, verði æfð hjer, þar sem Akureyrarbörnin geta ekki komið með flokknum. Frú Gerd Grieg æfði og setti leikritið á svið þar nyrðra og mun hún koma með leikflokkn um hingað. Leikendur aðalhlut verka eru: frú Alda Möller leikur Nóru, Stefán Jónsson leikur Helmer, Júlíus Oddsson leikur Rank lækni, Jónína Þorsteinsdóttir leikur frú Linde, Hólmgeir Pálmason leik ur Krogstad málaflutnings- mann, Freyja Antonsdóttir leik ur Önnu Maríu barnfóstru og Anna Snorradóttir leikur stofu þernu. Þetta- er í fyrsta skifti, að L. R. býður leikflokki að flytja viðfangsefni sitt á þess vegum. — Þessu hefði ekki verið hægt að koma í framkvæmd, sagði Brynjólfur, ef húsvörður Iðnó hefði ekki sýnt fjelaginu þá vel vild að lána L. R. húsið Óskift í eina viku. Gert er ráð fyrir, að Brúðuheimilið verði sýnt hjer í fimm skifti í röð. I Þá gat Brynjólfur Jóhannes- son þess að lokum, að næsta viðfangsefni Leikfjel. Reykja- víkur væri nú ákveðið. Væri það Kaupmaðurinn Feneyj- um, eftir Shakespeare, í þýð- ingu Sigurðar Grímssonar. — Brynjólfur varðist allra frekari frjetta af leiknum, en gat þess þó, að leikstjóri yrði Lárus Pálsson, — Þegar minst er á æfingar, > segir Brynjólfur, langar mig að geta þess, að L. R. hefir nú feng ið nokkurt pláss í Þjóðleikhús- j inu til æfinga, en eftir því sem ^ Iðnó verður upptekið til ann- * 1 ara nota, munu æfingar allar fara fram í þessum nýju húsa- kynnum, en hingað til höfum við verið í miklu hraki með húsnæði til æfinga. I KAUPLAGSNEFND hefir reiknað út húsaleiguvísitöluna fyrir tímabilið 1. janúar 1945 til 31. mars 1945, og reyndist hún vera 136 stig. Húsaleiguvísitalan verður því óbreytt fyrstu þrjá mánuði næsta árs frá því sem hún var síðustu þrjá mánuði þessa árs. Sigríður Sigurjéns- læiur ai for- sijórasiöðu Sund- hallarinnar SIGRÍÐUR SIGURJÓNS- DÓTTIR, forstjóri Sundhallar- innar, lætur af störfum á morg un. Hinn nýi forstjóri Sund- hallarinnar verður Þorgeir Sveinbjörnsson, er verið hefir framkvæmdastjóri I. S. I. — Hann er fæddur 14. ágúst 1905 að Efstabæ í Skorradal. Sigríður Sigurjónsdóttir hef- ir verið forstjóri Sundhallar- innar í um 2 ár, en sagði starfi sínu lausu á s.l. sumri. — Reyk- víkingar munu sammála um, að hún hefir leyst starf sitt af hendi með hinni mestu prýði og röggsemi. (airoux sendiherra í Moskva CATROUX hershöfðingi hef- ir af De Gaulle verið skipaður sendiherra frönsku stjórnarinn ar í Moskva, og mun innan skams fara þangað austur. — — Reuter. Stjórn heimavíg- stöðvanna sendir nýárskveðju STJÓRN heimavígstöðvanna í Noregi hefir sent svohljóðandi nýárskveðju til allra Norð- manna, sem staddir eru ’utan Noregs. I tilefni áramótanna, sendir stjórn heimavígstöðvanna kveðj ur sínar til allra Norðmanna er lendis, til konungsins, stjórnar- innar, hermannanna, sjómann- anna og allra, sem berjast f.vrir frelsi Noregs. Á hinu liðna ári hafa orðið straumhvörf í styrjölóinni — Harðstjóm Nazista hefir fengið banasár, og flestar kúgaðai þjóðir álfunnar hafa fengið frelsi. Norski fáninn blaktir nú yfir norskri grund- En miklar fórnir hafa verið færðar til að frelsa þann landshluta. Margir af sjómönnum okkar, flugmönn um og hermönnum, hafa fórn- að lífinu í baráttunni. Vjer heiðrum minningu hinna föllnu og beygjum oss í djúpri lotningu fyrir barátíu þeirra og fórn. Nýtt erfiði og fórnir bíða okkar, sem enn er- um uppistandandi. Vjer viturri, að þið, sem erlendis eruð, er- uð viðbúnir. Vjer sem heima erum lofum að leggja fram vorn skerf í lokabarátlunni, —; hvað sem það kostar, fyrir frelsi Noregs. Og vjer erum þess fullvissir, að á árinu 1945, munum vjer mætast til þess að hefja endurreisnarstarfið fyrir frjálsri og hamingjusamii þjóð Noregs. Rausnarleg gjöf li! Mæðraslyrks- nefndar Mæðrastyrksnefndinni barst á laugardag eftirfarandi nafn- laust brjef, frá konu utan af landi: „Mæðrastyrksnefndin, Reykjavík. Mig hefir oft langað til að þakka gott og óeigingjarnt starf yðar fyrir fátækar, umkomu- lausar mæður. Með yðar blessaða mannkær- leika starfi hafið þjer þerrað margt sorgmæddrar móður tár. Jeg, sem er margra barna móðir, finn þann yl, sem frá starfsemi yðar starfar og lang- ar nú á fimmtíu ára afmæli mínu, að vera þátttakandi í slarfi yðar, með þeirri upphæð, sem hjer með fylgir. Virðingarfyllst, Tólf barna móðir“. Með brjefinu fylgdu 4000 krónur í seðlum. Mæðrastyrksnefndin þakkar innilega þessa miklu gjöf, sem nefndin veit ekkert um hvaðan kemur, og hin fögru orð, sem fylgja henni, sem munu verða nefndinni hvatning til að starfa sem best fyrir málefni mæðr- anna. Það gleður nefndina al- veg sjerstaklega að sjá þenr.a vott um fullan skilning á því, að slarf hennar er ekki staö- bundið, ekki fyrir Reykjavík eina, heldur fyrir allar íslensk- ar mæður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.