Morgunblaðið - 20.06.1945, Side 5
Miövikudagur 20. júní 1945.
5
MORGUNBLAÐIÐ
Frá uppsögn Menta-
skólans í Reykjavík
ínntökupróf var haldið dag-
ana 7.—14. maí. Undir það
gengu 139 nem. Af þeim stóð-
ust 121, en 18 fjellu. Hæsta
einkunn hlaut Guðrún Björg-
vinsdóttir, 9.39, næst hæsta Jón
Helgason, 9.23, þriðju hæstu
Axel Einarsson, 9.05.
Árspróf var haldið 7.—28.
maí. Undir það gengu 213 nem-
endur, 8 fjellu, 16 luku því;
ekki, en 187 stóðust. Hæstu
einkunnir: Örn Ingvarsson III.
bekk A, 9.15„ Þorvarður Örn-
ólfsson, IV. bekk B, 9.02, og
Guðrún Jónsdóttir V. bekk A,
8.98.
Gagnfræðapróf var haldið 28.
maí—13. júní. Undir það gengu
73 utanskólanem. og 31 skóla-
nem. Skólanemendur luku allir
prófinu og stóðust, en af utan-
skólamönnum luku 12 ekki pr.,
12 fjellu, en 49 stóðust. Út-
skrifuðust því 80 gagnfræðing-
ar, 1 með ágætiseinkunn, 13
með I. einkunn, 38 með II.
einkunn og 8 með III. einkunn.
Hæstu einkunnir: Steingrímur
Baldursson, 9.01, Guðmundur
Pálmason, 8.66, Erla Jónsdótt-
ir, 8.56, öll innanskóla, og Mar-
grjet Guðnadóttir, 8.53, utan-
skóla.
Stúdentspróf var haldið 24.
maí—12. júní. Undir það gengu
68 nem., 39 í máladeild, en 29
í stærðfræðideild. Úr máladeild
útskrifuðust 34 nem., 18 með I.
einkunn, 12 með II. einkunn og
4 með III. einkunn. Hæstu
einkunnir: Álfheiður Kjartans-
dóttir, 8.64, Þorbjörg Kristins-
dóttir, 8.22, Jónbjöi'g Gísladótt-
ir, 8.18 og Ida Björnsson, 8.15.
Úr stærðfræðideild útskrifuðust
27 nem., 1 með ágætiseinkunn,
12 með I. einkunn og 14 með II.
einkunn. Hæstu einkunnir:
Magnús Magnússon, 9.43, Páll
Hannesson, 8.75, Loftur Þor-
steinsson, 8.57', Magnús Berg-
þórsson, 8.49. Alls útskrifuðust
því 61 stúdent.
Rektor gat þess, að einkunn
Magnúsar Magnússonar væri
hin hæsta, sem gefin hefði ver-
ið við skólann hin síðari ár á
stúdentsprófi og varla sambæri
leg við aðrar einkunnir en Jóns
heitins Þorlákssonar. Sagði
hann, að Magnús hefði verið
hæstur á öllum prófum í sín-
um bekk og ætíð nema í eitt
skifti hæstur yfir allan skól-
ann. enda hefði hann altaf hlot-
ið ágætiseinkunn.
Þegar rektor hafði úthlutað
prófskírteinum, afhenti hann
þessi verðlaun:
Legat dr. Jóns Þorkelssonar,
rektors, Magnúsi Magnússyni.
Verðlaunum úr verðlaunasj.
ÍP. O. Christensens lyfsala og
konu hans, Páli Hannessjni.
En síðan verðlaunabækur
fyrir iðni, siðprýði og framfar-
ir, 13 nemendum, sem hæstar
einkunnir höfðu hlotið við
prófin.
Þá aíhenti rektor og umsjón-
armönnum bækur og þakkaði
þeim störfin í þágu skólans. —
Umsjónarmaður skólans (in-
spector scholae) síðasta ár var
F/.fnar Pálsson, en klukkuvörð-
úr Bergsteinn ónsson, og fór
I'ektor viðurkenningarorðum
úm stm'f.þeirrá heggjg.
Að lokum ávarpaði rektor
hina ungu stúdenta með stuttri
ræðu og lagði út af orðunum:
„Börn mín, varið yður við
skurðgoðum“.
Mikill fjöldi manna var við
skólauppsögn og urðu margir
frá að hverfa. Allmargt var þar
eldri stúdenta, og þá fyrst og
frenfst 25 ára stúdentar. Þegar
rektor hafði lokið máli sínu,
kvaddi Tómas Jónsson borgar-
ritari sjer hljóðs og flutti ræðu
af hálfu þeirra fjelaga til skól-
ans. Sagði hann, meðal annars,
að nú væru þeir jafn þakklátir
skólanum eins og þeir hefðu
verið honum vanþakklátir, er
þeir útskrifuðust þaðan árið
1920. Færði hann rektor 10.000
kr. að gjöf til skólans, er verja
á til þess að skreyta „eina
kenslustofu eða svo“ í hinu nýja
skólahúsi, sem væntanlega rís í
nánustu framtíð. Rektor þakk-
aði ræðumanni og þeim fjelög-
um hans hina rausnarlegu gjöf
og sagði skólanum slitið.
Aðalfundur LI.U.
EINS OG auglýst hafði ver-
ið hófst aðalfundur Landssam-
bandsins í Kaupþingssalnum í
fyrradag, þann 18. júní, kl.
13.30.
Fulltrúar voru mættir víðs-
vegar að af landinu, en þó eru
nokkrir fulltrúar enn ekki
komnir til bæjarins.
Formaður sambandsins setti
fundinn og bauð fundarmenn
velkomna til fundarhaldsins.
Síðan mintist hann druknaðra
sjómanna og risu fundarmenn
úr sætum sínum í virðingar-
skyni við hina horfnu sjómenn.
Ólafur B. Björnsson, útgerð-
armaður á Akranesi, var kosinn
fundarstjóri með dynjandi lófa-
taki, en hann hefir jafnan áð-
ur stýrt aðalfundum sambands-
ins. Fundarritari var kosinn
erindreki sambandsins, Bald-
vin Kristjánsson.
Þvínæst tók til máls formað-
ur sambandsins, Sverrir Júlíus
son, útgerðarmaður, og flutti
mjög ítarlega og fróðlega
skýrslu um Störf og fram-
kvæmdir sambandsins frá síð
asta aðalfundi. Tóku fundar-
menn máli hans með ágætum
og því starfi, sem sambandið
hafði int af hendi síðustu 7 mán
uðina.
Að máli hans loknu skilaði
kjörbrjefanefnd störfum, eftir
að hafa rannsakað umboð full-
trúanna.
Þá lagði stjórnin fram eftir-
farandi tillögur:
1. Aðalfundur L.-í. Ú. lýsir
samþykki sínu á þeirri ákvörð
un stjórnarinnar að Landssam-
bandið tæki að sjer dreifingu
fisktökuskipa á hinar ýmsu
hafnir á síðastliðinni vertíð og
telur fundurinn rjett og sjálf
sagt að L. í. Ú. fari eitt með
þessi mál, á meðan að úíflutn-
ingurinn á ísvörðum fiski er
jafn stórum stíl og verið hefir
undanfarin ár.
2. Á síðasta aðalfundi var
frestað að taka afstöðu til þess,
hvort sambandið skyldi vera
deild í Vinnuveitendafjelagi
íslands og samþykt að bíða með
ákvörðun í þessu efni til aðal-
fundar þess, er nú situr.
| Fundurinn samþykkir því að
kjósa 5 manna nefnd til þess að
athuga og gera tillögur um
þetta mál og leggja þær fyrir
fundinn.
! 3. Aðalfundur L. í. Ú. sam-
þykkir að kjósa 5 manna nefnd
til þess að gera tillögur um
framtíðarfyrirkomulag á sam-
eiginlegum innkaupum á útgerð
arvörum til meðlima og deilda
L. í. Ú.
I 4. Aðalfundur L. í. Ú. sam-
þykkir að kjósa 5 manna nefnd
til þess að gera tillögur um inn-
’ tökugjöld og ársgjöld til sam-
| bandsins.
i Eftir að gengið hafði verið
5 frá nefndarkosningum þessum
= var fundi frestað þar til kl. 10
ɧ árdegis í gær, en þá hófust fund
j§ ir að nýju með erindum Dr.
§j Jakobs Sigurðssonar um hagnýt
1 ingu fiskafurða og erindi Jóns
1 Gunnarssonar forstj. um nýj-
1 ungar í þurkun fiskjar og fleiri
s nýjungar.
g;| Að þessum erindum loknum
= var svo venjulegum aðalfund-
iÍipiilimiiiiiiiiiiiiiiiWWMWiwtiriiinmininimiff haidið. áfi;am.
H M I ' i tuLJTn ! I : -1 ' í-1 .! U ! i 1
Kvlkmynd af þjóð-
báfíðinnl
Óskar Gíslason ljósmyndari
hefir tekið frjettakvikmynd,
sem hann mun bráðlega sýna
i Gamla Bíó. Aðalhluti mynd-
arinnar er af þjóðhátíðinni á
þjóðhátíðardaginn 17. júní s. I.,
en auk þesS eru þarna myndir
frá hátíð þeirri, sem haldin var
á ártíð Jónasar Hallgrímssonar,
frá firmakepninni í Golfi, frá
hátíðahöldum á Sjómannadag-
inn og ennfremur frá Hafnar-
firði.
Frá Barnakórnum Sólskins-
deiklinni barst blaðinu í gær svo-
hljóðandi skeyti: „Sungum í gær
að Skútustöðum í Mývatnssveit
við góðar viðtökur. Móttökur
voru með ágætum. Skoðum Detti
foss og Ásbyrgi í dag. Veðrið altaf
yndislegt".
wiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiminmiimmiiiiiiiiiiitimiimiiin
| Fyrirliggjandi:
| Álún |
I Sótii calc. 1
| Formalin |
| Pimpsteinn |
ISalmiakspiritu^
I Saltsýra )
För þingeysku
bændanna
Fimtudagskvöldið um 7 leyt-
ið komu Þingeyingarnir að
Laugarvatni, drukku þar kvöld
kaffið og hjeldu síðan niður að
húsmæðrakennaraskólanum
sem er þar í sumar og fengu
aar ábæti.
Það var heldur kalt í veðri
um kvöldið en þó var gengið
um umhverfi skólans áður en
gengið var til hvílu. í leiðangr-
inum voru um 190 manns og
vakti það almenna hrifningu,
að allir fengu rúm að sofa f;
svo að enginn þurfti að grípa
til svefnpokans. Fengu því allir
ágæta hvíld, sem ekki Var van-
þörf á, því löng leið og erfið
var fyrir hendi næsta morgun.
Flestir vöknuðu eldsnemma
föstudagsmorguninn og undruð
ust, er þeir komu út, því þá
tjaldaði Laugarvatn öllu því
fagra sem það á til, svo að á
betra varð ekki kosið. Gengu
menn nú um staðinn á ný,
skoðuðu „vígðu laug” og „Líka
steina” og öll mannanna verk
sem á staðnum eru. Fjallasýn
var fádæma góð og sán nú
margir Þingeyingarnir Heklu
í fyrsta sinn á æfinni og Tinda-
fjalla og Eyjafjallajökul.
Svo kvöddu þeir staðinn með
söng og ræðuhöldum. Þessi
fagra morgunstund hreif
marga meira en alt annað er
þeir höfðu sjeð hjer syðra.
Var svo ekið að Selfossi, þar
sem Kaupfjelag Árnesinga bauð
upp á morgunverð. Var borið
á borð fyrir 250 manns af hinni
mestu rausn. Páll Hallgrímsson
sýslumaður og Guðmundur Þor
bjarnarson á Stóra-Hofi ávörp-
uðu gestina. Fleiri ræður voru
haldnar og auk þess sungin
nokkur lög. Var siðan gengið
til Mjólkurbús Flóamanna og í
leiðinni skoðuðu sumir bænd-
urnir viðgerðarverkstæði kaup
fjelagsins fyrir landbúnaðar-
vjelar.
Frá mjólkurbúinu var svo
haldið að Þjórsárbrú. Þar
kvöddu Árnesingar vestan ár-
innar en austan hennar biðu
Rangæingar og fagnaði Guðjón
hreppstjóri í Ási Þingeyingum.
Var því næst ekið að Sámsstöð-
f uuTjndoq Tpn>[s jbc| So um
Gengu bændurnir að skoða tún
in, korn og grasfræs ræktunina
undir leiðsögn Klemensar Kristj
ánssonar og þótti mikið til
koma. En búsfreyjur allar, sera
eru i förinni, óku að Múlakoti,
að sjá hina þjóðfrægu trjágarða
og voru bæði hrifnar og undr-
andi yfir þeim og fegurð Inn-
hliðarinnar. Veitti Búnaðarfje-
lag Islands öllum mjólk og öl
í hinni stóru kornhlöðu.
Frá Sámsstöðum var haldið
að Seljalandsfossi og staðnæmst
þar góða stuhd. Sólskin var og
bliða. Hef jeg varla sjeð foss-
inn fegurri, enda var hrifning
norðanmanna sem mest mátti.
vera. Gengu margir þeirra á
bak við fossinn. Þeir einir
þekkja fossinn, sem það gera.
Var svo ekið meðfram Eyjafjöll
um, sem voru svo blíð sem best
verður á kosið og hrifning ferða
fólksins varð því meiri sem á
daginn leið.
Við Jökulsá var áð stutta
stund og gengið yfir brúna. Við
Hafursá komu Skaftfellingar til
móts við leiðangurinn og fylgdu
honum til Vikur.
Um endilangt Suðúrlandsur.d
irlendið blöktu fánar á flestuni
bæjum, sem eru nálægt veg-
inum, og Víkin fánum prýda.
Þar bauð Gísli Sveinsson al-
þingisforseti Þingeyinga vel-
komna fyrir hönd sýslunnar, en
Magnús Finnbogason og Stefán
Hannesson fyrir hönd búnað-
arfjelags Hvammshrepps, sem
báuð til kvöldverðar. Þakkaði
Gísli Sveinsson þingeysku
bændunum fyrir að þeir'færu
með friði, því ekki kvað hann
stærri flokka manna hafi farið
þar um hjerað, síðan á Sturl-
ungaöld.
Var síðan gengið um í Vík.
Gengu margir út undir urðina,
því versta brim var við strönd-
ina, en aðrir upp á Reynis-
fjall, því þaðan er víðsýnt m jög.
Voru ferðamennirnir glaðir yf
ir að hafa fengið tækifæri til
að lita Mýrdalinn augum, og
allir virtust sammála um að
þetta væri besti dagurinn ferða
lagsins enn sem komið er.
FERÐAÁÆTLUN
til og frá Þingvöllum
>Frá Reykjavík: Alla virka daga ki. 10, 10.30 og 19
>Frá Þingvöllum: Alla virka daga kl. 12, 17 og 20,30.
>Frá Reýkjavík: Sunnudaga kl. 10, 13,30, 18,30 og 21,30.
>Frá Þingvöllum: ----- kl. 12, 17, 20, og'23.
Bifreiðastöð íslands. Sími 1540.
|^<®<®<í><®<®3><®®<®<®<®*®*®<®<®®,®<®<®<®>®<®®,®<®<®'®4><®®®<®<®*®*®<®<®<®<®®®<®<®‘®<®®4
<^$<^®kÍk®<^<^><®*®<®*®<®<®<®^<®»®<®*®<®<®<®<®<®<®3><®<®,®<®<®<®*®<®x®“®<®<®<®<®h®<$><®*®ý
Chrysler bifreið
5 manna model 36 til sölu og sýnis í dag á Vesturgötu J>
20. Sími 4134. " .HÍDMu-rövmSttnlíV
®W®®®<®<®®<$>‘®,®<$>,®K®'<$><®®<®<®<®®®®®®^>3>®<®®®<S>,$-<*'-'í>® ®-®<®<$*$><®3><$<®<?>4>«