Morgunblaðið - 02.12.1945, Side 10
10
MORGTJNBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. des. 1945
8 Bí U G G I IM IM
Efftir Thelma Strabel
15. dagur
Hún sljettaði úr svarta sam-
kvæmiskjólnum sínum, og lagði
hann á rúmið. Hún hafði hlakk
að mikið til þess að koma til San
Francisco og hitta Alan, og nú
fann hún til vonbrigða þeirra,
sem ætíð fylgja í kjölfar mikill
ar tilhlökkunnar. Alan var glað
ur yfir, að hún skyldi vera kom
in aftur. Hún var glöð yfir að
vera aftur svona nálægt honum,
heyra ákafa rödd hans — en
samt....
Einhvernveginn höfðu þau
ekkert komist áleiðis. Þegar Al-
an hafði kvænst henni, var eins
og hann hefði opnað fyrir henni
útidyrnar og síðan látið hana
bíða í anddyrinu, eins og sendi-
svein, sem kemur með pakka.
Ef til vill var það ógjörningur
fyrir hann að hleypa nokkrum
lengra en inn í anddyrið, eins
og nú stóðu sakir. Ef til vill
höfðu þeir, sem hann unni mest
og treysti best, brugðist hon-
um of hatrammlega. Og þess-
vegna hjelt hann áfram að tala,
um alt og ekki neitt, á mcðan
einhver hluti af verund hans
hnipraði sig saman, eins og lítið,
óttaslegið barn, að baki lokaðra
dyra. Ef til vill var því þannig
farið.
Hún varð að gera sjer cnn
meira far um að reyna að skilja
hann.
„Þú hlustar als ekki á mig“,
kvartaði Alan.
„Jú, jú. Þú varst að segja, að
verksmiðjan væri nú sextán
daga á undan áætlun. Það er
glæsilegur árangur, elskan
mín“.
Alan reis á fætur.
„Ef þú ert búin að ganga frá
þessu, skulum við koma niður
og fá okkur að borða“.
Þau fóru með lyftunni nið-
ur í anddyrið. Þaðan gengu þau
upp þrjú þrep og komu inn í
stóran og afar skrautlegan sal.
Fála fjekk ofbirtu í augun fyrst
í stað, af öllu ljósinu.
Yfirþjónninn brosti sínu blíð-
asta brosi, þegar hann kom auga
á Alan, og kom hlaupandi til
þeirra. Hann vísaði þeim sjálf-
ur til sætis og spurði, hvað þeim
þóknaðist að fá að borða. Pála
var dálítið rugluð yfir allri dýrð
inni. Þarna var margt um mann
inn. Konurnar voru skrautbún-
ar, karlmennirnir flestir í ein-
kennisbúningum. Henni sýndist
allir vera glaðir og kátir.
„Hefirðu tekið eftir loftinu“,
sagði Alan.
Hún hallaði höfðinu aftur á
bak, og horfði upp í loftið. Það
var úr ljósum viði, útskorið af
frægum listamanni. Það ljet
nærri, að hana sundlaði af að
horfa á það.
„Það er svei mjer skrautlegt,
þykir mjer“, sagði hún, og leit
niður aftur. „Það er... . “
Alan hlustaði ekki á hana. —
Hann var að horfa á konu, sem
stóð þar rjett hjá, ásamt tveim
ur sjóliðsforingjum. Hún var
mjög glæsileg með rauðbrúnt
hár, mikið í sjer og þykkt. Hún
var klædd í dýrindis loðkápu
með litla loðhúfu, skreytta
tveimur rauðum rósum, á höfð
inu.
Það er einmitt svona, sem Al-
an vill að jeg líti út, hugsaði
Pála með sjer. Jeg myndi bara
aldrei koma mjer að því að
ganga með rauðar rósir á höfð
inu.
Nú leit stúlkan á Alan, stór-
um, brúnum augum, og gekk
því næst að borðinu til þeirra.
„Sæl vert þú, Sylvia“. Alan
reis á fætur og rjetti stúlkunni
höndina.
„Sæll, Alan“. Hún hafði mjög
viðfeldið bros.
„Þetta er Pála, konan mín“,
sagði Alan. „Pála — þetta er
Sylvia Burton, gömul vinkona
mín“.
„Komið þjer sælar“, sagði
stúlkan. „Það gleður mig að
kynnast yður. Finnst yður ekki
vera altof margt fólk hjerna?“
Jú, Pálu fannst það.
„Hvernig líkaði yður lífið í
Mexikó. Jeg frjetti, að von væri
á ykkur þangað“. Hún sneri
sjer að Alan. „Við mamma
höfðum Henderson-húsið á
leigu nokkrar vikur“.
„Rjett á undan okkur?“
„Jeg er ekki .... Það er
naumast!“ Það var einhver,
sem ýtti á hana, svo að henni
lá við falli. Hún gretti sig og
sagði: „Það er víst best að koma
sjer áfram, svo að maður verði
ekki troðinn undir hjer. Verið
þið blessuð“.
„Hvcr var þetta?“ spurði
Pála, þegar stúlkan var farin.
„Jeg kynntist henni hjá fólki,
sem jcg þekkti í Parlo Alto“,
svaraði Alan, annars hugar. —
Hann horfði á eftir stúlkunni.
Pála var alt í einu gripin snögg
um ótta — eins og hún hefði
verið skilin eftir ein á ókunn-
um stað. Hún rjetti ósjálfrátt
fram höndina og greip í hand-
legg manns síns.
Hann leit á hana. „Það eru
nokkur ár síðan jeg hefi sjeð
Sylviu“, sagði hann. „Hún er
ekki nærri því eins lagleg og
hún var — hörundsliturinn ekki
eins ferskur og vöxturinn ekki
eins spengilegur." Það ljet
nærri, að rödd hans væri sigri
hrósandi.
„Mjer fanst hún samt sem áð-
ur falleg“, sagði Pála.
„Nú, þegar þú hefir lært að
klæða þig eftir öllum kúnstar-
innar reglum, ert þú miklu fal-
legri og sjerkennilegri en hún“.
Hann virtist óeðlilega æstur. —
„Já, svei mjer, ef þú ert ekki
miklu fallegri! Hún hefir þess
konar útlit, sem konur fá, þegar
þær hafa skemmt sjer full mik-
ið og notið lífsins helst til ríku-
lega. Menn myndu taka fyrr eft
ir þjer en henni“.
„Þakka þjer fyrir“, sagði
Pála, og brosti örlítið. Einhvern
tíma hefði hún orðið upp með
sjer af slíkum gullhömrum frá
Alan. Nú fanst henni þetta láta
í eyrum eins og hrós frímerkja
safnara, sem væri að hæla fá-
gætu eintaki, sem hann hefði
eignast.
Hún sneri höfðinu örlítið og
reyndi að koma auga á stúlk-
una.
„Sæll, Alan. Komið þjer sæl-
ar, frú Garoway“.
Það var Warmsley, forstjór-
inn fyrir verksmiðjunni í San
Francisco, sem Pála hafði ekki
sjéð, síðan hann tók á móti þéim
á brúðkaupsdaginn þeirra. —
Henni sýndist hann ennþá meg
urri og uppþornaðri, eins og
hann hefði verið látinn inn í
bók og gleymst þar.
„Komdu blessaður“, sagði Al-
an. „Fáðu þjer sæti“.
Warmsley settist og baðst af-
sökunar á því, að hann skyldi
gera þeim ónæði.. En hann
kvaðst hafa komið með nokkur
brjef, sem væri mjög áríðandi,
að Alan undirskrifaði þegar í
stað, til þeSs að hægt væri að
senda þau áleiðis. Hann sagð-
ist hafa reynt að ná í hann í
síma, en árangurslaust.
. „Þetta hljóta að vera mikil-
væg brjef“, sagði Alan stuttara
lega. Hann var bersýnilega lítið
hrifinn af þessari truflun.
„Já — það er varðandi Fen-
way-málið“.
Warmsley talaði í auðmjúk-
um undirgefnistón, en hún hafði
á tilfinningunni, að það væri
uppgerðar auðmýkt. Hún hafði
einnig á tilfinningunni, að hann
gæfi nánar gætur að henni,
virti fyrir sjer hinn glæsilega
og djarflega búning hennar. •—
Henni leið illa í návist hans.
„Jæja“, sagði Alan. „Jeg get
ekki skrifað undir þetta hjerna.
Þú getur skilið brjefin eftir, og
jeg skal svo líta á þau, þegar
jeg má vera að“.
„Ef þjer væri sama, þætti
mjer vænt *um, að þú kæmir
með mjer fram fyrir. Þú ert
enga'stund að athuga þetta“.
„Þá það“, sagði Alan. — En
hann hreyfði sig ekki. Það varð
löng þögn. Svipur Alans var
í senn ólundarlegur og óþolin-
móður.
Af hverju hafðí hann Warms
ley í þjónustu sinni, ef honum
geðjaðist illa að honum? — Það
gat verið vegna þess, hve mikil
ekla var á mannafla. Ef til vill
gat verksmiðjan líka illa verið
án hans. Hann var skarplegur
og greindarlegur á svipinn, svo
að þannig gata legið í því,
Alt í einu heyrðist hvellur,
glaðvær hlátur frá fólkinu, sem
sat við næsta borð. Pála sá, að
Alan leit í áttina til þess, og
hún sá ekki betur, en í augnaráð
hans væri sambland af öfund
og sárri eymd. Það var samskon
ar augnaráð og þeir menn fá,
sem hafðir eru útundan.
Svo sagði hann snöggt: —
„Jæja. Við skulum þá koma. —
Það er best að ljúka þessu af“.
Hann reis á fætur. „Er þjer ekki
sama, þó að við skiljum þig eft-
ir eina á meðan?“
Sjálfstæðiskvennafjelagið Hvöt:
Skewn tiíun d ur
í Tjarnarcafé annað kvöld, — mánudag — kl. 8,30. ■
' s'
Konur fjölmenni og taki með sjer gesti.
STJÓRNIN.
Ungling
vantar til að bera blaðið til kaupenda við
Vesturgötu
Ránargötu
Baronsstíg
Túngötu
Skólavörðustíg
Baldursgötu
Víðimel
Bræðrab.stíg
Talið strax við afgreiðsluna. Sími 1600.
or9
itn
llakik
Kvennfjelag Fríkirkjusafnaðarins
býður bæjarbúum.
\
Hallveigarstaðakaffi
í dag, í Listamannaskálanum, frá kl. 2—6 e. h. ■— Að
gömlum og góðum sið, er borðið hlaðið allskonar góð-
gæti, svo sem: pönnukökum með jarðarberjasultu og
rjóma, flatkökum, hveraseyddu brauði og ísl. smjöri
og óteljandi kökutegundum.
Um kvöldið, kl. 9,30 hefst
■m
Dansskem tun
í Listamannaskálanum. — Gömlu og nýju dansarnir.
Veitingar.
Fjáröflunamefnd Hallveigarstaða.
Skrifstofustúlka
óskast til fyrirtækis hjer í bænum. Þarf að vera vön
vjelritun. Enskukunnátta nauðsynleg, ennfremur nokk
ur þekking í bókfærslu. Umsóknir merktar: „Skrif-
stofustúlka 5/12“, sendist blaðinu fyrir 5. des. n. k.
Sníðakensla
1 =
Næsta námskeið í að taka mál og sníða kjóla hefst
12. des. Tek á móti umsóknum alla mánudaga, mið-
vikudaga og íimtudaga kl. 5—8 e. h.
MARGRJET GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sólvallagötu 56.