Morgunblaðið - 09.01.1946, Síða 5

Morgunblaðið - 09.01.1946, Síða 5
■Miðvikuclagur 9. jan. 1946 MORGUNBLAÐIÐ — Greinarkornið Framh. af 4. síðu. óráðandi öllum bjargráðum. Ekki aðeins á því svæði hnattarins, sem þessir menn ráða. Heldur líka á íslandi. Þannig skuli það vera um allar jarðk. Þegar jeg vissi seinast til, voru 40 flótta- mannanna enn í Svíþjóð. Skyldi pol. . mag. Haralz halda að þeir sjeu þar enn fyrir tilipæli frá nasistasinn uðum Svíum og fyrverandi tugthúslimum? Hann ljet svo fyrir jól, að engir aðrir þar í landi hefðu leyft sjer að láta í ljós meðaumkvun með þessum veslings mönn- um. ★ Kem jeg þá að jólapistli Jónasar Haralz, er hann sendi mjer sjerstaklega, í Þjóðviljanum. Eftir æðilangan formála, þar sem hann tekur upp fyrri umkvartanir sínar út af því, að baltnesku flótta- mönnunum í Svíþjóð skuli sýnd linkind og samúð — þvert ofan í vilja Moskva- manna, kemst Haralz að þeirri niðurstöðu, að frjetta- flutningpr blaða eigi að vera hlutlaus. í hinu umrædda tilfelli átti ,;hlutleysi“ Morg unblaðsins, að hans dómi, að birtast þannig, að hjer væri málið túlkað fyrst og fremst frá hinu rússneska sjónarmiði. Með öðrum orðum, þessir menn, Haralz Co. halda að hjer muni vera hægt að koma upp svipuðu „frjetta- kerfi“ eins og viðgengst í austurverði Evrópu, áður en nokkurt vald boð í þeim efn um nær til íslensku þjóð- arinnar. Hægt sje að segja pðrum að þegja, meðan þeir sem berjast nótt og dag fyr ir hinu svonéfnda „aust- ræna lýðræði“ fái einir að láta áróðursljós sín skína. Hagfræðingurinn velur jólin til þess að sjálfstæða skoðun, eins og gatslitið fat — gleypa það sem að honum er rjett og gera það sem honum er sagt. Hvernig er svo hljóðið .í þessum sama manni, næst þegar til hans heyrst — á þrettándanum? Þá hefir hann fengið í hendur all- mikil sannleikskorn um á- standið í Rússlandi, frásögn, sem styðst við bestu heim- ildir. Og hann hefir af fremsta megni reynt að hrekja, en gafst upp. Þá kenmr það á daginn, að í hans augum er sannleik urinn um Rússland orðinn met í siðlausri blaðamensku. Mig skortir í svipinn orð til þess að lýsa rjett þeim takmarkalausu óheilindum, yfirdrepsskap og hroka, sem skín út úr skrifum Jónasar Haralz, þeim, er jeg hjer hef lýst. Og læt nú staðar num- ið. Það kann að vera, ef hann heldur áfram rit- mokstri sínum í Þjóðviljan- um, að jeg síðar meir beini til hans fáeinum orðum. Lýsi að lokum ánægju minni yfir því að slíkur mað ur sem hann skuli hafa ver- ið settur á lista kommún- ista við bæjarstjórnarkosn- ingarnar. Hentugri maður mun vandfundinn í flokki kommúnista — fyrir okkur andstæðinga þeirra. V. St. írjettir frá Í.S.f. Fimleikalög ÍSÍ. FYRIR nokkru hefir ÍSÍ gengið endanlega frá Almenn- um reglum ÍSÍ um firnleika- mót. Gerð var þriggja ára á- ætlun nm framkvæmd þeirra. Stjórn ÍSÍ hefir skipað þriggja manna nefnd til að sjá um fram kvæmd þessa máls. Þessir afhjúpa) menn eru í nefndinni: Benedikt þenna hugsunarhátt hinna íslensku kommúnista. Haralz klykki? út með því í jóla-grein sinni, að benda mjer á, að aðeins eitt sjón- armið megi vera ríkjandi í íslenskri blaðamensku, þ. e. „að flytja það sannasta og rjettasta í hverju máli“. Þetta er engin saga fyrir Morgunblaðið þannig hefir frjettastarfsemi blaðsins ver ið rekin frá byrjun. Á þenna hátt hefir blaðið aflað sjer vinsælda, á meðan ekkert tölublað hefirvkomið út af Þjóðviljanum án þess að þar hafi verið rekinn einhliða, harðvítugur, skipu lagður áróður fyrir einræði og heimsyfirráðastefnu nú- verandi valdhgfa í Moskva? Þetta telja flokksmenn Har- alz alveg sjálfsagðan hlut. Og verði á sama máli, þegar augu hans uppljúkast fyrir því hvernig frjettunum er stjórnað í Þjóðviljanum. Því kommúnistar eru altaf sam- mála. Það er einkenni þeirra Það er lífsskilyrði fyrir flokk þeirra og stefnu. Til þess að geta verið góður liðs maður í þeim flokki, þarf rnaðurinn að leggja niður hann kvikmyndir ÍSÍ. Nýja Þjóðminjasaínið kemst undir þak á þessu ári Jakobsson, Þorgeir Sveinbjarn- arson og Baldur Kristjónsson. Nefndin vinni í samráði við ISI. Sambandsfjelög ISI. Hjeraðssamband Snæfelsnes- og Hnappadalssýslu hefir geng ið í ÍSÍ. í Hjeraðssambandinu eru 10 fjelög með 511 fjelaga. Formaður sambandsins er Gunnar Guðbjartsson á Hjarð- arfelli. — Þá hefir íþróttafjel. Skjöldur í Hrísey gengið í ÍSÍ, form. Skjaldar er Sigurður B. Brynjólfsson. Fjelagatala 45. — Samb'andsfjelög ÍSÍ eru 205. Gullmerki ÍSÍ. í tilefni af 50 ára afmæli þeirra Axels Andrjessonar knattspyrnukennara og Þórar- ins Magnússonar, afgreiðslu- manns íþróttablaðsins, voru þeir sæmdir gullmerki ÍSÍ fyr- ir ágæta starfsemi í þágu íþróttahreyfingarinnar. Farandkensla. Kjartan Bergmann hefir haldið glímunámskeið frá 16. ‘nóv. til 21. des. á þessum stöð- um: íþróttaf. Miklaholtshrepps í Hnappadalssýslu, Reykja- skóla ‘Hrútafirði .og Hvanneyr- arskóla Borgarfirði. Nemendur á námskeiðum þessum voru 127. Á öllum stöðunum sýndi SKOMMU EFTIR lýðveldis- stofnunina samþykti Alþingi að veita þrjár miljónir króna til þess að reisa byggingu yfir Þjóðminjasafnið. Þessi fjárveit- ing var af sumum kölluð: Morgungjöf til lýðveldisins, en Þjóðminjasafnið er eitt af merkilegustu söfnum landsins, og því mikil nauðsyn að koma þessari byggingu upp. Þáverandi mentamálaráð- herra, Einar Arnórsson, skipaði þriggja manna byggingarnefnd og áttu þessi menn sæti í henni: Prófessor Alexander Jóhannes- son, sem er formaður nefndar- innar, próf. Matthías Þórðar- son þjóðminjavörður og Valtýr Stefánsson ritstjóri. — En Brynjólfur Bjarnason, núver- andi mentamálaráðherra, bætti tveim mönnum við í nefndina, þeim Kristni Andrjessyni al- þingismanni og Kristjáni Eld- járn magister. Tíðindamaður Mbl. hitti að máli í gær formann nefndar- innar, próf. Alexander Jó- hannesson og bað hann segja frá undirbúningi byggingarinn- ar. — — Nefndin hefir unnið að undirbúningi málsins nú um langt skeið. Er honum nú lok- ið og hefir þegar verið grafið fyrir grunni safnsins á horni Melavegar og Hringbrautar, sagði próf. Alexander. Vegna skipulags á næstu slóðum hefir legu safnsins nýlega verið lít- ilsháttar breytt. Nú á húsið að standa í 12 metra fjarlægð frá Melavegi og aðra 12 metra frá Iiringbraut. Uppdrættir hafa verið samþyktir af öllum aðil- um og verður hafist handa af fullum krafti mjög snemma í vor, eða strax og frost fer úr jörðu. > Arkitektar eru þeir Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Ein- arsson. — Fór Sigurður til Sví- þjóðar á s.l. sumri, til þess að kynna sjer fyrirkomulag nýrra safnabygginga. Eftir heim- komu hans var gert ráð fyrir stærra húsnæði en áður, svo ekki þyrfti að koma til stækk- unar í fyrirsjáanlegri framtíð. Fjekk góðan dóm. — Jeg dvaldist í London seint Frásögn próf. Alex- anders Jóhannessonar í s.l. októbermánuði og tók jeg ’ þá með mjer uppdrætti að | Þjóðminjasafninu, segir .próf. Alexander. — Jeg sýndi þá frægasta arkitekt Breta, Sir Patrick Abercrombie, og var hann mjög ánægður með hið inna skipulag byggingarinnar. Sir Patrick hefir verið falið, af bresku stjórninni, að endur- skipuleggja London. Hann er einnig væntanlegur forseti hins fyrsta alþjóðafjelagsskapar arkitekta, sem nú er verið að undirbúa. Skipulag tíyggingarinnar. Gólfmál Þjóðminjasafnsins er 1.400 fermetrar, en öll bygg ingin er 17.000 kúbikmetrar. -—• Aðalbyggingin er þrjár hæðir og er hverri hæð þrískipt, þann ig, að eftir henni miðri, frá norðri til suðurs, eru stórir sýningarsalir, en minni salir til beggja handa. Ur anddyri er gengið inn í miðsalina, er hafa ofanljós, en úr þeim er svo gengið inn í hliðaherbergi, sem eru báðum megin. Er á þennan hátt engu plássi eytt 1 ganga. Sýningarsalir Þjóðminjasafns- ins verða bæði á neðstu hæð og miðhæð, en á efstu hæð er ráð- gert að komið verði fyrir mál- verkasafnf ríkisins, að minsta kosti fyrst um sinn. — Að því kemur, að reist verður sjerstök bygging handa.því. — Mun þá heil hæð losna, til viðbótar Þjóðminjasafninu. Á neðstu hæð verður íbúð þjóðminjavarðar og er gert ráð fyrir, að núverandi þjóðminja- vörður flytji þangað, því vit- anlega mun hann sjá um skipu- lagningu safnsins og koma því öllu fyrir. ■—- Auk sýningarsala og íbúðar þjóðminjavarðar verða á neðstu hæð mörg her- bergi,. sem notuð verða til geymslu á sýningarmunum, vinnustofur, til þess að undir- -búa sýningargripi og skrásetja þá o. s. frv. Þá verða í húsinu skrifstofa þjóðminjavarðar og vinnustofa aðstoðarmanns. —• I byggingunni verður enn frem ur stór salur, sem mun taka um 150 manns og verður hann. notaður til fyrirlestrahalds cg til sýninga. — Nefndin hefir mikinn hug á, að í þessum sal, eða öðrum svipuðum, sepa er á neðstu hæð, verði komið fyrir sögusýningu, er sýni höf- uðdrætti í menningarsögu ís- lendinga. — Á sýningu þessari að svipa til sögusýningar lýð- veldishátíðarinnar, en vitan- lega í breyttri mynd. Sjersöfnum er ætlaður staður. Eins og sjá má af líkani safns ins, rís byggingin í norðurenda. í herbergjum í þessum enda safnsins verður hinum ýmsu sjersöfnum komið fyrir. T. d. Jóns Sigurðssonar-safni, Fiske- safni, Vídalíns-safni, Tryggva- Gunnarssonar-safni, Thorodd- • sen-safni og Stephensen-safni. Sjálfu Þjóðminjasafninu verð- ur raðað eftir efni. Þar verða kirkjugripir, minnismerki (leg- steinar og grafskriftir), húsbún aður, vefnaður, bækur, prent, bókþand, handrit, upþdrættir, mælitæki o. s. frv. Þetta sagði prófessor Alex- ander að lokum: — Það er von mín, að okk- ur takist að láta steypa alla bygginguna upp'á þessu ári, og að henni verði langt komið á ár inu 1948. Fijóíir að samþykkja. NEW YORK: í bænum Mil- ton í Florida var nefnd að deila um tillögur frá bæjar- stjórninni um rottueyðingu, en var fljót að samþykkja þær, þeg ar rotta ein mikil hljóp yfir borðið, sem þeir’sátu við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.