Morgunblaðið - 09.01.1946, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 9. jan. 1946
MOEÖUNBLABiÐ
9
HERNÁM NOREGS
NASISTAR höfðu ákveðið að
leggja alla Evrópu undir sig —
þetta er kjarninn í ákæru sak-
sóknarans í Níirnberg gegn
valdamönnum þriðja ríkisins.
Hin illa meðferð hernumdu
þjóðanna, morð og rán, voru
aðeins einn þáttur í hinni kald-
rifjuðu landvinninga fyrirætl-
an, sem samin var af sjerfræð-
ingum á öllum sviðum: fjár-
málamönnum, iðjuhöldum og
herforingjum, ekki síst herfor-
ingjum, sem ætluðu að telja
heiminum trú um, að þeir hefði
aðeins verið verkfæri í hönd-
um æðri manna" og orðið að
hlýða skipunum þeirra. Þýskir
liðsforingjar, fyrirmynd í her-
aga og hlýðni — en í rauninni
upphafsmenn og hvatamenn að
verstu grimdarverkum.
Hernám Noregs
undirbúið.
Hernám Noregs lýsti vel fyr-
irætlunum þeirra.
Hinir hefndarþyrstu liðsfor-
ingjar Weimarlýðveldisins, sem
skreyttu sig með nafninu ,,land
varna“-liðsforingjar, rannsök-
uðu gaumgæfilega alla viðburði
fyrra heimsstríðsins. Þeir ætl-
uðu sjer að komast að því hvaða
yfirsjónir Þjóðverjum hefði þá
orðið á, til þess að koma í veg
fyrir að þeir yrði fastir í sömu
keldunni í næsta stríði, og væri
þess vegna öruggari um sigur-
inn. Athygli þeirra beindist að
Noregi, og þeir komust að
þeirri niðurstöðu, að það hefði
verið yfirsjón hjá keisarastjórn-
inni að hernema ekki Noreg
og fá þannig betra svigrúm
fyrir kafbátahernað sinn. Slík
yfirsjón skyldi ekki henda þá
í næsta stríði! Það hlyti að
hafa geysilega hernaðarlega
þýðingu að hernema Noreg og
auk þess gafst þá flotanum
tækifæri til að spreyta sig, og
afla sjer frægðar. en hann var
þó ekki nú nema brot af hinum
glæsilega herskipaflota Tirpitz
í fyrra stríði.
Fyrirætlanir flota-
stjórnarinnar.
Fremstir í flotastjórninni voru
þeir Raeder og DÖnitz. Þeir
höfðu sínar fyrirætlanir. Hinn
14. desember 1939 kom Raeder
til Hitlers og tilkynti honum
það, að Þjóðverjar yrði að
hernema Noreg! En það var
ekki álitlegt nema því aðeins
að hernema Danmörk líka. Það
varð því að gerást. Sama dag
gaf Hitler út skipun um það
að undirbúa innrás í Danmörk
og Noreg. Bandamenn hafa kom
ist yfir brjef frá Raeder þar
sem hann telur sig upphafs-
mann að þessu hróplega rang-
læti. Brjef þetta var lagt fram
í rjettinum í Nurnberg. Raeder
brá heldur en ekki í brún þeg-
ar hann heyrði það lesið og
hlustaði á þessa sjálfsákæru
* sína! Hann hafði með dugnaði
undirbúið innrásins, en hafði
þó • ekki verið einn í ráðum.
Dönitz hafði hjálpað honum. Og
það var Dönitz sem undirritaði
fyrirskipunina 20. mars 1940
um að beita öllum hernaðar-
mætti flotans við innrás í Nor-
eg.
Innrásin.
Hinn 9. apríl var alt undir
búið. Herstjómartilkynningin
þá var á þessa leið: „Til þess
Óhöndulegur kattarþvottur nasista
Breta á hlutleysi Noregs og
að svara yfirvofandi árásum
Danmerkur hefir þýska her-
stjórnin ákveðið að verja þessi
lönd með vopnum".
Þessi umtalaða enska innrás
varð síðar dálítið erfið í með-
förum hjá þýskum frjettarit-
urum og ræðumönnum. Öllum
var ljóst hvers vegna Bretar
lögðu tundurduflum í norska
landhelgi; það var vegna
þýsku innrásarinnar, sem
hafði verið undirbúin í
fjóra mánuði. En Þjóðverjar
vildu láta líta svo út að þeir
hefði þarna gert Norðmönnum
vináttubragð, þeir hefði gert
þetta til þess að vernda „vora
norsku bræðraþjóð“, eins Ter-
boven komst einu sinni að orði.
En gegn hverjum áttu Þjóð-
verjar að vernda hinn afskekta
Noreg, sem ekki var í neinni
hættu? Jú, gegn Norðursjávar-
flota Breta. Hinn 10. apríl stóð
í þýsku blöðunum: Ensk flutn-
ingaskipalest, varin herskipum,
kom siglandi að ströndum Nor-
egs „seinni hluta dags 9. apríl“
þegar Þjóðverjar voru komnir
þar á land; njósnaflugvjelar
komu auga á skipalestina, og
hún fjekk makleg málagjöld;
næstum öll herskipin urðu fyr-
ir flugvjelasprengjum og enn
iremur tvö flutningaskip.
En Ribbentrop var ekki
ánægður með þessa útlistun.
Hinn 27. apríl boðaði hann
sendiherra og erlenda frjetta-
ritara á sinn fund. Ribbentrop
byrjar að skýra þeim frá því
| að herlið hefði verið flutt um
borð í skipum í enskum höfn-
um til þess að vera á undan
Þjóðverjum að hertaka Stavan-
ger, Bergen, Þrándheim og
Narvik. Skipin leggja úr höfn,
en þá fær enska flotamálaráðu-
neytið frjett um það, að þýsk
Bandaríkin rjetta við vonum fyr
HUNDRAÐ dögum eftir
stríðslokin tilkynnti forseti
Bandaríkjanna að svo að segja
öllu atvinnulífi þar hefði nú
aftur verið beint að friðsamleg
um störfum. Hann sagði að
93% af verksmiðjum hefði ver
ið leystar frá því að vinna að
hergagnaframleiðslu fyrir rík-
ið. Hann skýrði ennfremur frá
því að þriðjunginn af þeim
122.000 samningum um her-
gagnaframleiðslu fyrir stjórn-
ina hefði nú verið jrpphafnir.
Þetta er stórmerkilegt um
iðnaðinn í Bandaríkjunum. —
Mer.n munu minnast þess, að
aðeins fyrir hálfu óri var rætt
um það bæði í Ameríku og ann
ars staðar að stórkostlegt at-
vinnuleysi myndi verða á með
an verið væri að breyta her-
gagnaiðnaðinum í friðsamlegan
iðnað. Menn töldu það óhugs-
andi að hin mikla hernaðarvjel
Bandaríkjanna, sem hafði fram
leitt fallbyssur, skriðdreka,
flugvjelar og þúsundir annara
hergagna til notkunar í Evrópu
og Asíu, gæti alt í einu snúið
við blaðinu og horíið að frið-
samri iðju. Menn töldu að þetta
hlyti að taka miklu lengri tíma
heldur en það tók, að breyta
verksmiðjunum áður í hergagna
verksmiðjur. Margir voru svart
sýnir þá líka, og hjeldu að það
mundi verða margra ára verk,
að breyta um og framleiða her-
gögn eingöngu. En hrakspár
þeirra urðu sjer til skammar.
Iðjuhöldar Bandaríkjanna
breyttu framleiðslu sinni í
skjótari svip heldur en nokkr-
um hafði órað fyrir, og nú hafa
þeir breytt í gamla horfið aft-
ur á enn styttri tíma.
' Atvinnuléysi.
ÞETTA furðulega þrekvirki
heíir þó ekki komið í veg fyrir
öll vandræði. Hinar opinberu
skýrslur um atvinnuleysi telja
að í október hafi verið IV2 milj.
| atvinnuleysingja. En þótt sú
tala sje nokkuð há, má geta
þess, að hinir svartsýnu höfðu
spáð því að tala atvinnuleys-
ingja mundi þá verða 10 milj.
En það er engu hægt að spá
um það, hvað tala atvinnuleys-
ingja muni aukast á næstu mán
uðum við verkföll. í öndverð-
um desember voru um 500.000
manna í verkföllum, og alt út-
lit var fyrir, eins og raun hefir
síðar orðið a? að verkfallsmönn |
um mundi fjölga. A verka- 1
mannaráðstefnunni í Washing-
ton urðu menn sammála um
ráðstafanir til þess að bæta sam
komulag verkamanna og at-
vinnuveitenda. En ráðstefnunni
tókst ekki að leysa vandamálið
um hlutfall milli launa og dýr-
tíðar. Og önnur vandamál
steðja einnig að viðskiftalífinu.
Eitt af þeim er verðlagseftir-
litið. Sumir telja að það eftirlit
verði að haldast enn um sinn,
til þess að hindra frekari hækk
un á vöruverði og þar af leið-
andi dýrtíð. En verðlagshækkun
á lífsnauðsynjum hefir ekki orð t
ið nema 30% og er það lág visi j
tala sje hún t. d. borin saman
við vísitöluna í Englandi og Sví
þjóð — hvað þá heldur á Is-
landi. Þeir, sem vilja halda
verðlagseftirlitinu, álíta að
kaupgetan sje nú svo mikil, að
viðskiftakreppa muni óhjá-
kvæmilega hljótast af því, ef
allar hömlur á vöruverði væri
afnumdar. En þeir, sem eru á (
móti þessu, halda því fram, að,
verðlagseftirlit muni setja höml
ur á framleiðsluna, því að með j
an það sje, þá sje ekki hægt!
að stilla framleiðslukostnaði í
hóf við vöruverð. Þeir telja að
verðlagseftirlitið muni draga úr
íramleiðslunni, svo að hún full
nægi ekki þeirri eftirspurn, sem
kaupgetan skapar, og muni
þannig beinlínis leiða til
kreppu. Sem stendur er þetta
mál pólitískt, því að það er ekki
hægt að greina það frá vandan
um um jafnvægi launa og dýr-
tíðar, og þessvegna er ekki
hægt að ræða það öðru vísi en
taka með í reikninginn rjettindi
og skyldur verkamanna. — Og
eins og nú horíir er ekki búist
við því að vandamáiið ifiuni
koma fyrir þingið fyrr en í vor,
en þao er sennilegt, að áður
veröi rætt um að ljeita af verð
lagseftirliti í sumum greinum.
En hjer er um að ræða viðskifta
mál sem snerta eigi aðeins
Bandaríkin heldur ailan heim-
inn, og munu hafa-mikla þýð-
ingu um það, hvernig rætist úr
um viðreisnina eftir stríðið. —
Það er því nauðsynlegt að mál-
ið verði athugað rækilega frá
öllum hliðum áður en þingið
afgreiðir það.
herskip sje á sveimi í Norð-
ursjó. í skyndi gefur ráðuneyt-
ið skipunum skipun um að
snúa við, en það mistókst;
þýskar árásarflugvjelar vörp-
uðu sprengjum á nokkur skip-
in og söktu þeim. Ensku her-
skipin reyndu aftur á móti að
komast í færi við þýsku her-
skipin. Ribbentrop mintist ekk-
ert á það, sem stríðsfrjettarit-
arar hans höfðu sagt, að nær
öllum bresku herskipunum
hefði verið sökt. Hann 1 jet sjer
nægja að segja: . Það kom þann
ig í Ijós, að gagnráðstafanir
Þjóðverja komu á síðustu
stundu“. Síðan rituðu þýskir
blaðamenn um kapphlaupið
milli Þjóðverja og Breta um það
hverjir yrði fyrri til Noregs og
komust að þeirri niðurstöðu að
Þjóðverjar hefði verið „ná-
kvæmlega HÞklukkustundum á
undan Bretum“.
Skýring Hillers.
Að lokum tók Hitler sjálfur
að sjer að útlista bresku inn-
rásina. Hinn 19. júlí hjelt hann
ræðu og sagði þá að það næði
engri átt að -segja að Þjóð-
verjar hefði ekki orðið nema
! nokkrar klukkustundir á und-
an Bretum. Að vísu hefði breska
Önnur viðskiftamál.
YMIS önnur smærri viðskifta
mál_eru Hka á dagskrá og á þá
við að minnast á afstöðu kven-
þjóðarinnar í Bandaríkjunum.
Allir vita að þær eru í heild
stærsti kaupandinp á heims-
markaðnum. Og nú hafa kon-
urnar snúið sjer að einni vöru-
tegund — sokkum. Það er ekki innrásarliðið verið flutt um
nema fyrir sjerstaka þolinmæði borð í skip dagana 5. og 6.
og rólyndi ef karlmaður kemst apríl, en þegar Churchill frjetti
að í sokkabúðunum, og komist- að þýski flotinn hefði látið úr
hánn svo langt að hann nái tali höfn, þá gaf hann fyrirskipun
af afgreiðsluíólkinu, þá fær um það að herliðið skyldi flutt
hann að frjetta, að það verði í land aftur. En í þess stað
langt þangað til hægt sje að voru herskip send út til þess
framleiða sokka handa honum. að mæta þýska flotanum. En
þeim tókst ekki að komast í
Ekld er viðlit að fá herbergi kagt vig hann> að undan tpknu
á gistihúsi og ekki er hægt að einjT skipi> Qg þyí var sökt<l_
komast mn í næturklúbb. En Qg SVQ kom ]andganga Þjóð_
smjorið er aftur komið á mark verja j Noreg hinn 9 apríl á.
aðmn, og nóg er til af vindling ÖUu svæðinu frá ósló norður
um með sama verði og áður. — ti] Naryik þegar Bretar frjettu
Yfirleitt er nóg til af nauðsynja þetta hafði Chuhchill beðið eft
vorum, enda þótt sumar tegund* ir því j margar k]ukkustundir
ir af kjöti sje ófáanlegt. Eina að heyra einhverjar frægðar-
nauðsynjavaran, sem skömmt- sögur af sínum f]ota..
uð er enn, er sykur.
Þýsku blóðin voru samt sem
„ _ áður mjög treg til að kasta
Hermenn hverfa að . . _ •........ ....
; fyrir borð frasognmm um hið
friðarstörfum. spennandi kapphlaup milli Þjóð
ERFITT er að ferðast. Öll veÖa og Breta um hernám
samgöngutæki eru full af fólki, Noregs og því að Þjóðverjar
og búist- er við að svo haldist orðið 10 klukkustundum
enn um nokkra mánuði. Banda!á undan- °S Þe-§ar Terboven
ríkjamenn hafa altaf haft mik-|skiPaði Qoisling stjórnarforseta
í Noregi í febrúar 1942, full-
yrti hann að „leiðtoginn“ hefði
aðeins orðið nokkrum klukku-
ið dálæti á hermönnum sínum, ■
og ekki síst nú. ,,Drengirnir“,
sem múna tvær stórstyrjaldir í
einu, eiga að hafa forjettindi
alsstaðar. Þetta er skoðun alls
almennings. En þeir eru nú
flestir farnir úr einkennisbún-
ingunum og komnir í sín venju
legu föt. En það er ekki sama
sem að þeir hafi allir fengið
vinnu við sitt hæfi. Þúsundir! segir Alfred Rosenberg í dag-
þeirra eru enn utanveltu við bók sinni 9. apríl 1940:
hið borgaralega líf og geta ekki j
samiagast því, og það er alvar-
legt mál. Auðvitað fer enn.
margt fieira aflaga. En þrátt |
fyrir alt, þá virðist orka og dugn
aður þjóðarinnar hafa að mestu
leyti leyst úr vandamálunum, j
svo að friðarvellíðan verði kom
in á áður en menn átta sig á j
því, að skorti vegna stríðsins
sje af ljett.
(Ur brjefi frá frjettaritara
„Dagens Nyheter“ 12. des.).
stundum á undan Bretum til
Noregs.
Ur dagbók Rosenbergs.
En þrátt fyrir þennan hringl-
anda allan var mikið unnið. Svo
„Þetta er merkisdagur í sögu
Þýskalands, Danmörk og Nor-
egur hafa verið hernumin. Jeg
samgladdist „leiðtoganum“ fyr
ir þetta mikla afrek, sem jeg
hafði líka undirbúið. Hann hló
með öllu andlitinu. Nú getur
Quisling myndað stjórn! Og
eins og ríki Bismarcks hófst
1866, svo skal þessi dagur vera
upphaf hins stórgermanska rík-
is“.
(Úr „Dagens Nyheter“).
i