Morgunblaðið - 19.01.1946, Side 1
16 síður
63. árg'angur.
15. tbl. — Laugardagur 19. janúar 1946
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Þing sameinuðu þjóðanna:
Deilt á neitunarvald stórveldanna
íslsnskir flusnesnar í Ameríku
Rætt um alþjóðaráðs-
mensku yfir nýlendum
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
LENGSTA FUNDI á þingi sameinuðu þjóðanna til þessa
lauk ekki fyr en á miðnætti í nótt. Þegar venjulegur fund-
ur var á enda í dag, voru enn 17 menn á mælendaskrá og
var þá gripið til þess ráðs, að halda kvöldfund. Rætt var
m. a. um neitunarvald stórveldanna, sem Rússar fengu sett
inn í sáttmála hinna sameinuðu þjóða í San Francisco. Ljet
Peter Fraser, fulltrúi Nýja Sjálands svo ummælt, að „neit-
unarvaldið væri blettur á sáttmála hinna sameinuðu þjóða“.
HJER Á MYNDINNI sjást nokkrir íslenskir flugmenn, sem stunda nám í Eire í Bandaríkj-
unum. Kennarinn þeirra er að segja þeim frá flugtækni. Á myndinni sjást, talið frá vinstri:
Páll Magnusson, Jón Guðmundsson, Kristján Steindórsson og Jóhannes Markússon. Kennar-
inn heitir Otto Luthringer. Á myndina vantar Gunnar Frederiksen, sem einnig stundar
nám við þenna sama flugskóla. Blaðið Eire Daily News birti þossa mynd og gat þess um leið,
að hinir ungu flugnemar væru duglegir námsmenn.
V.R. gerir samninga við
kaupsýslumenn
Samræmd launakjör
verslunarfólks og bætt
kjör lægst launaðra
SAMNINGAR voru í gær
undirritaðir milli ýmissa
sjergreina fjelaga kaupsýslu
manna og KRON annarsveg
ar og Verslunarmannafjel.
Reykjavíkur hinsvegar, um
kaup og kjör starfsfólks við
fyrirtækin.
Tildrög máls þessa eru þau,
að í októbermánuði í haust leit
aði Verslunarmannafjelag
Reykjavíkur hófanna hjá kaup
sýslumönnum um samning f. h.
starfsfólksins, og þá sjerstak-
lega með tilliti til samræming-
ar á kjörum vefslunarfólks og
einnig að fá bætt kjör þeirra,
er lægst launaðir voru.
Þessari málaleitan V. R. var
strax vel tekið og strax hafist
handa um undirbúning þessa
máls. En málið var mjög yfir-
gripsmikið, þar sem um var að
ræða samræmingu á kaupi
margra og ólíkra sjergreina,
enda í fyrsta skifti, að gerður
er heildarsamningur um kjör
þessa starfsfólks. Það tók því
eðlilega álllangan tíma að
ganga frá samningum.
Aðilar samninganna eru ann
arsvegar: sjö sjergreinar fje-
laga kaupsýslumann*. og Kaup
fjelag Reykjavíkur og nágrenn-
is og hinsvegar: Verslunar-
mannafjelag Reykjavíkur
í samninganefnd af hálfu
sjergreina kaupsýslumanna
voru þessir menn: Bergur
Þrælahald Þjóðverja
á dðfinni í Nurnberg
Nurnberg í gær: — í
rjettarhöldunum í Nurnberg
í dag var þrælahald Þjóð-
verja styrjaldarárin rætt ogj
rakið. Þjóðverjar neyddu
menn frá löndum þeim; sem
þeir höfðu undirokað, til
þess að koma til Þýskalands
til að vinna í hergagnaverk-
smiðjum. Var þetta bæði
gert til þess að bæta við
stöðugt þverrandi vinnuafl í
Þýskalandi og ennfremur til
þess að taka vinnuafl frá her
numdu löndunum til þess að
hagur þeirra yrði sem verst-
ur.
Gíslason stórkaupm., Gunnar
Hall kaupm., Páll Sæmunds-
son kaupm., Sumarliði Krist-
jánsson kaupm og Sveinn Helga
son stórkaupm., og fyrir KRON
| Isleifur Högnasoh forstjóri. En
|í samninganefnd V. R. voru:
'Adolf Björnsson bankafulltrúi,
Baldur Pálmason fltr., Björg-
úlfur Sigurðsson deildarstjóri,
Gyða Halldórsdóttir deildarstj.
og Hemming Sveins fltr. —
Helgi Bergsson skrifstofustjóri
Verslunarráðs íslands aðstoð-
aði við samningagerðina.
Samningarnir fóru fram af
mikilli vinsemd og gagnkvæm-
um skilningi. Fullyrða má, að
! allir aðilar una vel niðurstöð-
I
inni.
J Samningarnir eru gerðir til
eins árs. Þar sem þetta er í
fyrsta skifti, sem slíkir heild--
! arsamningar eru gerðir, þótti
rjett að sjá hvernig þeir reymd-
ust; þess vegna voru þeir látn-
ir gilda til eins árs.
Samningarnir færa mörgu
verslunarfólki góðar kjarabæt-
ur, einkum því, er átti að búa
við lökust kjör.
Verslunarmannafjel. Reykja-
víkur heldur fund á morgun og
þar mun samninganefndin
skýra frá niðurstöðum samning
anna.
Er það aðilum til sóma,
hversu vel tókst með þessa
samninga. Má vænta þess, að
eins verði í framtíðinni.
Kaldasli dagur velr-
arins í Englandi
LONDON í gærkvöldi: —
Kaldasti dagur vetrarins var
í Englandi í gær. Víða er
mikill snjór og hálka á veg-
um, sem hefur valdið um-
ferðarslysum.
Spáð er áframhaldandi
kuldatíð í' Englandi næstu
daga. — Reuter.
FriSarráðstefna
undirbúin
FULLTRÚAR utanríkis'
ráðherra stórveldanna halda;
nú fund með sjer í London. j
Eiga þeir að gera uppkast að
friðarsamningum á grund-
velli samkomulagsins, sem
varð milli utanríkisráðherr-
anna þriggja á fundinum í
Moskva um jólaleytið.
Rætt er um nýjan utanrík
isfund stórveldanna, en sam-
kvæmt Potsdam samþyktinni
áttu utanríkisráðherrarnir að
hittast við og við, til að ræða
vandamál í alheimsmálum,
sem kynnu að vera á döfinni.
Gæti haft alvarlegar
afleiðingar.
„En verst væri“, sagði Fraser
„ef rteitunarvaldið verður not-
að. Það gæti haft hinar alvar-
legustu afleiðingar. Það myndi
ekki sýna mikið traust á vilja
sameinuðu þjóðanna til friðar
og samstarfs. í líkan streng tók
dómsmálaráðherra Kanada. —
Gromyko sendiherra, fulltrúi
Rússa var á öðru máli. Hann
taldi að ekkert dygði að ræða
um alþjóðasamvinnu nema að
stórveldin væru sammála.
Ráðsmenska yfir nýlendunum.
Fulltrúar Nýja Sjálands og
Ástralíu lýstu því yfir, að stjórn
ir þeirra væru reiðubúnar til
að láta ráðsmensku nýlenda,
sem þeim hefði verið falin
stjórn á í hendur hinna samein-
uðu þjóða. Líka yfirlýsingu gaf
Bevin fyrir hönd bresku stjórn
arinnar í gær. Var þessum yf-
irlýsingum mjög fagnað af full
trúum.
Stríðsglæpamenn á Spáni.
Fulltrúi Rússa las upp lista
yfir stríðsglæpamenn, sem hann
kvað hafa fengið griðland á
Spáni. Vildi hann að þess yrði
krafist að menn þessir yrðu
framseldir og að þeir yrðu
dregnir fyrir dómara og þeim
síðan hegnt sem öðrum stríðs-
glæpammönnum.
Skaut Þjóðverja
LONDON: Nýlega kom til
viðureignar á götum Berlín-
ar um nótt, og var Þjóðverji
einn skotinn til bana. Amer-
ískur hermaður hefir verið
handtekinn fyrir dráp þetta.
M.s. Laxfoss komst
ekki lil Vesl-
mannæyja
M.S. LAXFOSS kom hingað
um fimm-leytið í gærkveldi,
eftir að hafa orðið að snúa viy>
sökum veðurs á leið sinni til
Vestmannaeyja.
Lagði hann af stað til Eyja kl.
10,00 á fimmtudag og lá alllengi
við Reykjanes, en treystist ekki
lengræ og sneri þá aftur til
Reykjavíkur.