Morgunblaðið - 19.01.1946, Side 5
Laugardagur 19. jan. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
5
Sigfús og Jón Axel gefast upp — Kronbíiarnir
í notkun — Sigrar alþýðunnar — Koestler
fyrrum og nú — Þeir mega ekki missa Rússland
ALDREI HAFA kosningabomb-
ur nokkurs flokks mishepn-
ast eins gersamlega eins og
skýjaborga bomba Sigfúsar
Sigurhjartarsonar, er hann
varpaði frá sjer í september.
Lúrði síðan sjálfur á, í bæj-
arráði, þangað til í janúar og
kom með á síðasta bæjar-
stjórnarfundinn, og kvartaði
þá yfir, ,að borgarstjóri
skyldi ekki hafa tekið af sjer
ómakið með framsögu í mál-
inu.
Því hann, sjálfur flutnings-
maðurinn, hefði þar engu við
að bæta, frá því, sem hann
hafði áður sagt.
★
HONM HEFIR VERIÐ bent á,
að svo mikið væri bygt í
bænum, að ekki væri hægt
að byggja meira. Til þess
vantaði fólk. Að úrræði hans
um innflutning erlendra
verkamanna myndi ekki
mælast vel fyrir. Og að bær-
inn ætti heimtingu á, að
ríkið legði til fje í stórfeldar
byggingarframkvæmdir
handa fólki því, sem vantar
i húsnæði. Að bygging hins
fyrirhugaða bæjarhverfis
myndi stöðva byggingar
hinna hálfbygðu húsa o. s.
frv.
Sigfús var sjálfur orðinn
sannfærður um að „bomba“
hans kom honum og flokki
hans að engu gagni. Það var
auðheyrt á honum á bæjar-
stjórnarfundinum.
★
(JÓN A. PJETURSSON átti
ekkert annað eftir í húsnæð-
ismálunum, er á bæjarstjórn
arfundinn kom, en að óska
þess að bæjarstjórn samþykti
fyrir sitt leyti, uppkast að
samningi við iðnaðarmenn
um að þeir ljetu vinnu við
íbúðabyggingar sitja fyrir.
Þegar Gunnar Thoroddsen
bar fram tillögu um að nefnd
manna yrði látin athuga
hvernig skipulagning vinn-
unnar yrði best hagað, þá
gat Jón ekki andmælt þeirri
tiHögu með neinum rökum.
Þegar Jón sagði sjálfur á
fundinupn, að nú væri verið
að bæta við íbúðarhúsin í
Reykjavík, er nægja myndi
til margra ára, þá hafði hann
mist fótfestu í áróðri sínum.
En eftir að hann hjelt því
fram, að nú störfuðu of
margir að byggingum í
Reykjavík, þá hafði hann
ekki önnur ráð en að þagna
fyrir fult og alt.
★
í HÚSNÆÐISTILLÖGUM Sig-
fúsar og Jóns, kommúnista
og Alþýðuflokksins, varð
því einskonar bræðrabylta í
bæj arst j órninni.
Enda gátu þeir ekki annað
en viðurkent, að hinar raun-
hæfu tillögur Sjálfstæðis-
manna, sem samþyktar voru
á fundinum, fela í sjer lausn
þessara mála.
★
ÍSLEIFUR HÖGNASON í Kron
vill ekki kannast við að bílar
fjelagsins hafi verið notaðir
til þess að flytja meðlimi
hinnar svonefndu „æskulýðs
fylkingar“ á þriðjudagsfund
inn, sem haldinn var í sam-
komuhúsi Sjálfstæðisflokks
ins við Austurvöll.
Engu er líkara en honum
finnist það vera skömm fyr-
ir fyrirtæki hans að ljetta
undir með hinu fótfúna
„æskuliði“ flokksins. Það
fer að kárna um fylgið hjá
kommúnistum, þegar sjálfur
höfuðpaurinn í Kron vill
ekki lengur við þá kannast.
★
ÞJÓÐVILJINN getur ekki orða
bundist út af þessu „bíla-
máli“ kommúnista-,,æskunn
ar“, og segir í gær, að ekki
þýði fyrir ísleif að þræta.
Því að minsta kosti einn
„Kron“-bíll hafi verið not-
^ aður til liðflutninganna þetta
kvöld.
k
KOMMÚNISTAR þrástagast á
því í blaði sínu, að alþýðan
eigi að sigra í kosningunum
þ. 27. þ. m. í hvert einasta
skifti, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefir unnið bæjar-
stjórnarkosningar hjer í
Reykjavík, hefir alþýðan
sigrað. Því eftir almennri
málvenju er alþýða manna
og almenningur í bænum
eitt og hið sama. Þar sem er
frjáls kosningarjettur og ó-
hindraðar kosningar fara
fram, þar er það altaf al-
þýða manna sem ræður.
★
HVAÐ VILJA ÞEIR, sem vinna
að því að koma á hinu aust-
ræna stjórnskipulagi? Um
það spyr alþýðan í Reykja-
vík þessa daga. Og hún hefir
fengið alveg skýlaus svör.
í$><^§><§><§><$»<$><^3><S>3><^<^<§><§><§><3><§><§><§><$><$><§,<$><§><$<$><$><§><$><$,<$><$><$><$><$><§,<^<$><§><$>^<$>^<§><§><§>^
Fyrirliggjandi
Umbúðateygjur
í 3 stærðum.
JJ. Cdlajóóon ds? Ídemliöjt
Símar: 2090, 2790 og 2990.
Hún hefir fengið alveg óyggj
andi vitneskju um það,
hvernig stjórnarhættir
kommúnista eru, þar sem
þeir fá völdin. Þar ræður
mjög fámenn klíka manna
yfir öllum athöfnum, lífi og
eignum alþýðunnar.
Frjálsbornir íslendingar
vilja ekki harðstjórn komm
únista. íslendingar hafa
skömm á blekkingum komm
únista, og undirlægjuhætti
þeirra gagnvart erlendu
valdi.
★
ÓHEPPNIN HEFIR ELT komm
únistaflokkinn alt frá því
hann hóf kosningaundirbún-
inginn að þessú sinni.
Þó er talið að í einu hafi
þeir verið hepnir. Fyrir
nokkru síðan fengu þeir í
hendur bók eftir Arthur
Koestler, þann, sem rjettast-
ar og nákvæmastar fregnir
hefir flutt um kommúnism-
ann í framkvæmd. Þessa bók
ætluðu kommúnistar að þýða
og fá útgefna til framdrátt-
ar fyrir stefnu sína. En bók-
in varð síðbúin. Nú munu
þeir horfnir frá að láta opin-
berlega í ljós þá skoðun, að
Arthur Kostler sje merkur
rithöfundur.
•k
EINN AF REYNDUSTU flokks
mönnum kommúnista sagði
nýlega við kunningja sinn:
Við vitum að fregnirnar frá
Rússlandi, sem Koestler
skýrði frá í bók sinni, eru
rjettar. En við megum aldrei
viðurkenna það. Við megum
ekki missa af því, að telja
flokksmönnum okkar trú
um, að í Rússlandi sje sælu-
ríki alþýðunnar. Þeir, sem
komast að raun um, aðjiessi
kenning okkar er röng, þeir
snúa við okkur bakinu.
★
ÞESSI VELUNNARI KOMM-
ÚNISTA, sem svona talar,
hefir meira raunsæi til að
bera en margir starfsbræður
hans. Hann veit, að þeir hafa
haft mjög takmarkaðan tíma
til þess að vinna fylgi með-
al íslendinga.
Sá tími er nú liðinn hjá,
um leið og almenningur fer
að sjá og heyra hvernig
kommúnisminn reynist í
framkvæmd.
+
ÞAÐ ÞARF EKKI annað en
líta í Þjóðviljann til þess að
sjá, hvílíkur taugaæsingur
hefir gripið alla þá, sem í
það blað skrifa nú. Þar sjást
naumast greinarnar fyrir
gleiðletruðum fyrirsögnum.
Vanstilling og skap-
vonska Þjóðviljamannanna
er fyrirboði ósigurs þeirra
við bæjarstjórnarkosning-
arnar.
Kjósið D ■ listann
Aðalfundur
Vörubílstjórafjelagið Þróttur, heldur aðal-
fund sunnudaginn 20. jan. 1946, í Nýju Mjólk
urstöðinni og hefst kl. 1,30 e. h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf. -— Sýnið skírteini.
STJÓRNIN.
Aðalfundur
Fasteignaeigendafje-
lags Reykjavíkur
verður haldinn að Röðli (Laugaveg 89), mánu
daginn 21. þ. m., kl. 9 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Fjelagsmenn, fjölmennið!
%
STJÓRNIN.
Pantograph
Tökum upp í dag nokkur stykki af Panto-
graph, einnig nokkra reiknistokka (Loz-
Loz- Duplex-Frig).
l\ajtcel?jaueról. cJijós JJiti
Laugaveg 79. — Sími 5184.
♦ > 4”» ♦ > «> *> > ♦% «> « > ♦% ♦>
JJancísJincj Jöltjóauamajjelat^ó
Jólandó
♦♦♦ '
❖ Akveðið hefur verið að næsta Landsþing
Slysavarnafjelags íslands, verði sett í Reykja
% vík 3. apríl n. k. — Fjelagsdeildirnar eru á-
* mintar um að senda fulltrúa.
| Stjórn Slysavarnafjelags íslands.
‘♦X**X**X^:**X*4X^X^X^X4*:**X**X^X^X^X44X4*X^X44:-MX^*X*4X**X*<4<^X4^
l
t
1
Y
t
t
i
Hefilbekkir
Danskir hefilbekkir væntanlegir.
móti pöntunum.
i
Tekið á t
r
t
1
t
i
X,
ARINBJÖRN JÓNSSON,
heildverslun — Laugaveg 39 — Sími 6003
Atvinna
Ungur maður getur fengið atvinnu við versl-
un, nú þegar. Þarf að hafa unnið við versl-
unarstörf áður og geta unnið að nokkru leyti
sjálfstætt. Umsókn, merkt: „Atvinna 737“,
sendist í Post Box 671, fyrir 23. þ. m.
<^»^><$><^<$><$><$><$>^><^<^<^<$h^^><$K$.<§><$><$><$><$><S><^<$><^^k^<V§><^><$><$K$><$><^><^><^<$><^<§><5»^<$>^>^