Morgunblaðið - 19.01.1946, Page 16
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói:
Sunnan og suð-vestan kaidi. —
Skúrir eða smájel.
Stórþjófnaður í
fvrrinótt
i
EINN af stærri innbrots-
bjófnuðum, sem framdir hafa
verið um þó nokkuð langan
tíma, var framinn í fyrrinótt,
er brotist var inn í Blikk-
smiðjuna Grettir í Brautarholti.
En þar var sprengdur upp pen
ingakassi og stolið úr honum
um 10 þúsund krónum.
Peningakassi þessi var í skrif
stofuherbergi sem er til hliðar
við vinnusal á fyrstu hæð húss-
ins.
Rannsóknarlögreglan vinnur
nú að rannsókn málsins.
orctttnbUií»iö
Laugardagur 19. janúar 1946
GREIN UM NYJA kensluað-
ferð, sem gefist hefir mjög vel.
— Bls. 9.
Jén Pá'sstm fyrv.
bankðfjehirðir láfinn
JON PALSSON fyrverandi
bankagjaldkeri andaðist á
hádegi í gær að heim-
ili sínu, Laufásveg 59 hjer íí
bænum, á 81. aldursári. —J
Hann hafði um all-langt!
skeið átt við vanheilsu að
stríða. Æfiatriða þessa merka
manns verður getið hjer í
blaðinu síðar.
Hjerna er húsaleigureiknijngurinn,
Þannig hugsar Steinþór að efla fjárhag bæjarins, ef
Iagsi!
hann fengi að ráða.
Mesf effirspurn
effir skáldsögum
BÆJARBÓKASAFN Reykja-
víkur lánaði út samtals 118.840
bindi á árinu sem leið. Lang-
flestar útlánsbækur voru skáld-
rit, eða tæplega 79 þús. bindi.
Lesstofu safnsins sóttu 6204
á árinu, en 4843 barnalesstof-
una.
Engin brcyiing í Súlu
ENN er svipað vatnsmagn í
Súlu og virðist lítil breyting þar
á. Hefir vatnsmagnið haldist
nokkuð svipað síðan um áramót.
Þess var getið fyrir skömmu,
að skyndivöxtur hefði komið í
vestustu kvísl Skeiðth’ár. En
hún fjaraði fljótt áftur og er nú
ekkert óeðlilegt vatn þar. Hins
vegar tók þá að vaxa í austustu
kvíslum Skeiðarár, sem renna
fram með Skaftafelli og er enn
all-mikill vatnsflaumur þar. —
Oddur á Skaftafelli telur þó,
að þetta ( geti verið eðlilegt
vegna úrkomu og óvenju mik-
! ilía hlýinda. “
18 íslensk skip hafa selt
ísvarinn fisk í Englandi
frá áramótum
ÞAÐ SEM AF er þessu ári, hafa 19 íslensk fiskiskip selt afla
sinn í Englandi. Samanlagt magn aflans er 41.336 kits, er selt
hefir verið fyrir samtals 155.664 sterlingspund.
Aflahæsta skipið er bv.
Júpiter, 2798 kits, er seld voru
fyrir 11.369 sterlingspund. —
Skipin eru þessi:
Geir seldi 1964 kits fyrir
7. 114 pund, Grótta seldi 2604
kits, fyrir 10.493 pund. Viðey
seldi 2197 kits fyrir 8.508 pund.
Haukanes seldi 1483 kits fyrir
5.798. Skutull seldi 1503 kits
fyrir 6.806 pund. Helgafell
seldi 2636 kits fyrir 9.061 pund.
Júpiter seldi 2798 kits fyrir
11.369 pund. Tryggvi Gámli
seldi 1852 kits fyrir 7199.
Fagriklettur seldi 1500 kits
fyrir 6125 pund. Gylfi seldi
2904 kits fyrir 9.735 pund. For-
seti 2585 kits fyrir 8.392. Óli
Garðar seldi 2334 kits fyrir
8.616 pund. Mai seldi 2276 kits
fyrir 8.882 pund. Richard seldi
1. 155 kits fyrir 4.594 pund. Þór
seldi 1949 kits fyrir 7.842 pund.
Skallagrímur seldi 2733 kits
fyrir 8.852 pund. Júní seidi
2602 kits fyrir 9.506 pund. Ól-
afur Bjarnason seldi 1771 kits
fyrir 6.986 pund og Kópasker
seldi 2490 kits fyrir 9.786
sterlingspund.
var iangt til
kosninga
ÞAÐ VAR 21. jan. 1944.
Þá var langt til kosninga.
Hitaveitan var á tilrauna-
stigi. Þá birtist í Alþýðu-
blaðinu forystugrein, er
nefndist „Plágur Reykvík-
inga“. Þar segir svo:
„Loks er það hin lagg-
þráða hitaveita. Ileita vatn
ið er ekki fyrr farið að
streyma um bæinn, að það
skapar stórkostleg vand-
ræði fyrir íbúana. Hitinn
verður af ákaflega skorn-
um skamti. Loks hverfur
heita vatnið með öllu. Það
hefir alt streymt gegnum
greipar verkfræðinga, án
þess að sinna ætlunarverki
sínu. Og það er ekkert
rafmagn til að dæla vatni
í geymana að nýju. Fólk
situr skjálfandi í íhúðum
sínum í 12—17 stiga frostí
og óskar þess í hjarta
sírsu, að aldrei hefði ver
ið ráðist í annað eins
glæfrafyrirtæki og hita
veitu fyrir Reykjavík.
Þetta eru plágur Reyk-
víkinga“.
Nýit hraðfrystihús
í Neskaupstað
LOKIÐ er byggingu nýs hrað
frystihúss í Neskaupstað, en
vjelar í það eru væntanlegar
með vorinu.
Áætlað er að hraðfrystihús
þetta geti hraðfryst alt að 10
smálestir' fiskafla á sólarhring.
Kaupdeilan
í Sandgerði leyst
SAMNINGAR náðust í kaup
deilu þeirri, sem staðið hefir í
Sandgerði, aðfaranótt s. 1. föstu
dags. Verður kaup og kjör
verkafólks í öllum aðalatrið-
um það sama og í Keflavík. Þó
er greitt fyrir vinnu í frystihús
um, þegar vaktaskipti eru við-
höfð, með nokkuð öðrum hætti.
Grunnkaup karla hækkar úr
kr. 2.10 á klukkustund í krón-
ur 2.40 og grunnkaup kvenna úr
kr. 1.40 á klst. í kr. 1.68. — Þá
voru gerðar þær breytingar á
hlutaskiptum sjómanna, að með
12 manna áhöfn er nú skipt í
24 Vz hlut í stað 25 hluta áður.
Þá var" og samið um, að hluta-
trygging sjómanna skyldi vera
kr. 350 í grunnlaun á mánuði.
Glæsileg kvöldvaka
Heimdallar
Æskan tryggir Sjálfstæðis-
flokknum sigurinn
HEIMDALLUR — fjelag
ungra Sjálfstæðismanna —•
efndi til kvöldvöku í Tjarnar-
café í fyrrakvöld fyrir troð-
fullu húsi.
Formaður fjelagsins, Lúðvig
Hjálmtýsson, setti skemmtun-
ina og minntist á þá baráttu,
sem nú stendur yfir vegna bæj-
arstjórnarkosninganna 27. jan.
Hvatti hann menn til þess að
halda þeirri baráttu áfram að
glæsilegu sigurmarki. — Þá tók
Már Jóhannsson til máls, og
minntist m. a. á hinar miklu
hrakfarir kommúnista á æsku-
lýðsfundinum s. 1. þriðjudag.
Næst söng Gunnar Kristinsson
nokkur lög við góðar undirtekt
ir. Síðan flutti Gunnar Helga-
son snjalla ræðu. Bragi Hlíð-
berg ljek á harmoniku við mik
inn fögnuð tilheyrenda.
Að lokum talaði Jóhann Haf-
stein nokkur hvatningarorð til
Heimdellinga. Var honum ó-
spart fagnað, og kom greinilega
í ljós, að ungir Sjálfstæðismenn
eru ákveðnir í því að vinna vel
það hlutverk, sem þeim hefir
verið falið, að tryggja bænum
örugga stjórn.
| Æska Reykjavíkur mun meta
það við Sjálfstæðisflokkinn, að
hann hefir falið henni þetta
i verk og stendur nú sem einn
maður að baki hinum glæsilega
fulltrúa sínum, Jóhanni Haf-
stein.
Blaðamaður styður
Morgan
LONDON: Aðalfregnritari
. The New York Times í
Evrópu hefir stutt það álit
Morgans hershöfðingj a, að
ríkir pólskir Gyðingar þyrp-
; ist nú vestur á hernáms-
' svæði Bandaríkjanna. Segisfc
hann hafa talað við marg i
Ulíka Gyðinga þar vesturfrá.
Mála miðlunTrumans
í stáliðnaðardeil-
unni hafnað
WASHINGTON í gærkvöldi: — Málamiðlunartillögu Trumans
forseta í stáliðnaðardeilunni í Bandaríkjunum var hafnað í k.völd
af atvinnurekendum, eftir að verklýðsfjelögin höfðu gengið inn
á hana. Er búist við að næstu daga geri 800.000 stáliðnaðarmenn
í Bandaríkjunum verkfall.
er að vinna stöðvist í fjölda
mörgum iðngreinum sökum efn
isskorts. Bifreiðaverksmiðjur
verða að hætta framleiðslu svo
og allar aðrar verksmiðjur, sem
framleiða tæki, sem stál er í.
Talið er að forsetinn muni
enn gera tilraun til að koma í
veg fyrir verkfallið. — Reuter.
Alvarlegar afleiðingar.
Verkfall í stáliðnaðipum
mun hafa hinar alvarlegustu
afleiðingar fyrir allan iðnað
Bandaríkjanna og standi yerk-
fallið lengi er ófyrirsjáanlegt
hvaða afleiðingar slíkt verk-
fall getur haft. Óhjákvæmilegt
Listi Sjálfstæðismanna í Reykjavík er D-listi