Morgunblaðið - 03.05.1946, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.05.1946, Blaðsíða 1
ARABAR HÓTA ÖRÞ Strætisvagn ekur SL. miðvikudag lenti stræt- isvagn út .af akbrautinni, er honum var ekið norður Berg- staðastræti með þeim afleið- ingum, að hann lenti á húsið nr. 14 við götuna og braut þar rúðu í Bernhöftsbakaríi. Tvær stúlkur, sem í búðinni voru, slösuðust nokkuð. Lentu glerbrot í höfuð annarar og skarst hún nokkuð á enni, en kökufat hrökk í höfuð hinnar og fjell hún við það á gólfið. Slys þetta* mun hafa borið að með þeim hætti, að er stræt- isvagnifln -var ^ð sveigja til hliðar svo að annar bíll kæmist framhjá, biluðu hemlar hans og með þeim afleiðingum sem fyrr segir. Strætisvagninn skemdist all mikið. Drottningin skemtir sjer 1. maí í Húsavík ELIZABETH Bretadrottning sjest hjer með borgarstjóran- um í London, Sir Charles Davis á góðgerðarskemtun einni í London. Skemtiatriðin virðast hafa verið góð eftir ánægju- svipnum á drottningunni að dæma. Frá frjettaritara vorum á Húsavík. AÐ tilhlutun Verkamanna- fjelags Húsavíkur fóru hjer lram hátíðahöld í gær og hóf ust þau með skemtun í Sam- komuhúsinu kl. 16. Þar töl- uðu Valdimar Holm Hallstað, Axel Benediktsson, skólastj. og Páll Kristjánsson, forstjóri. Höskuldur Jónsson las upp. Sýnd var kvikmynd og dans stiginn um kvöldið. Austuríkismenn mótmæla ráðstöfun á S-Iyrol London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. í AUSTURRÍSKU Tyrolhjeruðunum hefir komið til tölu- verðra óeirða vegna þeirrar ákvörðunar utanríkisráðherra íjóveldanna, að Suður-Tyrol skuli vera áfram undir yfirráð- um ítala. Var stofnað til allsherjarverkfafls þar, og stóð það iram yfir miðjan dag í dag. — Stjórn dr. Renners hefir og sagt af sjer 1 mótmælaskyni við þessa ráðstöfun utanríkis- ráðherranna. Hörð mótmæli. * í Tyrolhjeruðum Austur- ríkis hafa verið haldnir mjög fjölmennir útifundir, þar íjem borin hafa verið fram áköf mótmæli vegna aðgerða ut- anríkisráðherranna. Ekki hef ir þó* að því er vitað er, kom- ið til líkamsmeiðinga á fund- um þessum. — Hinsvegar kom til átaka milli íbúa norð- an við landamæri Suður-Tyr- ol og ítalskra lögregluþjóna og landamæravarða. Ekki er enn kunnugt um manntjón I þessum viðureignum. Júgóslavar fá eyjar í Adriahafi París í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR fjórv.eldanna ákváðu á fundi sínum í dag, að nokkrar eyjar í Adríahafi skuli hverfa undir íorræði Júgóslavíu, en þær hafa áður tilheyrt ítölum. Þau skilyrði eru þó sett, að engin hernaðarvirki skuli gerð á eyj- unum, og ítalir skuli njóta áfram fiskveiðirjettinda sinna við þær. — Ráðherrarnir ákváðu einnig að halda einn óform- legan fund í dag til þess að flýta fyrir úrlausn aðkallandi mála. — Næsta mál á dagskrá funda þeirra mun verða iViðarsamninfjar við Rúmeníu. Ágreiningur um stríðsglœpamenn. Á fundi utanríkisráðherr- anna í morgun varð ágrein ingur með Bevin og Byrnes annarsvegar og Molotov hins vegar. Bevin og Byrnes vildu koma á fót nefnd til þess að hafa eftirlit með því, að ítalska stjórnin framseldi ítalska stríðsglæpamenn, en Molotov taldi slíka ráðstöfun iirjóta í bága við fullveldi Ítalíu. — Með fram af þessari ástæðu ákváðu ráðherrarnir að halda með sjer einn óform legan fund í dag, til þess að cþörf formsatriði þyrftu ekki að tefja störf þeirra. Komu Allsherjarverkfallið. Framh. á 12. síðu. Allsherjarverkfall hófst í Tyrolhjeruðunum snemma i morgun. Stóð það fram yfir miðjan dag. Stjórn sambands verklýðsfjelaga í AusturríkL hefir beint þeirri ósk til fje- laga sinna, að þeir hefji vinnu á ný og grípi ekki til frekari verkfalla. — Ríkisstjórn Aust urríkis átti í dag langar við- xæður við kanslarann,' og um miðjan dag í dag var tilkynt að hún hefði lagt fram lausn- arbeiðni sína. Forsæfisráðherra- hjónin í París I ÓLAFUR THORS, forsæt- irráðherra og frú hans fóru til Parísar flugleiðis í fyrra- dag og munu dvelja þar í viku til 10 daga. Fara þau í heimsókn til dóttur sinnar og tengdasonar, PjeturS Bene- diktssonar, sendiherra. RIFARÁÐ8JM ' % Orðsendingar Attíee og Bevins um fræmkvæmd tillaga Palestínunefndar Málið fyrlr öryggisráðið! London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TILLÖGUR bresk-bandarísku Palestínunefndarinnar hafa c akið feikna gremju Araba. Stjórn Arababandalagsins hefir mótmælt þeim kröftulega. Æðstaráð Araba í Palestínu hefir hótað ítrustu örþrifaráðum, ef reynt verði að framkvæma lillögurnar. — Attlee, forsætisráðherra Bretlands, hefir sent Bandaríkjastjórn orðsendingu, þar sem hún er beðin aðstoð- ar við að gera óvirka „hina ólöglegu heri í Palestínu“, sem gera myndu ókleift að framkvæma þá ráðagerð Palestínu- nefndarinnar, að til Palestínu verði á þessu ári fluttir 100 þúsund Gyðingar. Monígomery yfir- maður herforingja- r raos London í gærkvöldi. MONTGOMERY marskálk ur, sem verið hefir yfiwnað- ur bresku hernámssveitanna í Þýskalandi, hefir látið af þeim starfa. Lagði hann af stað áleiðis til London í dag. Hann tekur þar við störfum sem yfirmaður herforingja- ráðsúíis breska. Áður en Mont gomery lagði af stað, flutti hann útvarpsávarp til herja sinna, þakkaði þeim góða samvinnu og árnaði þeim heilla. — Við störfum Mont- gomerys í Þýskalandi tekur Douglas hershöfðingi. — Reuter. ♦ ♦ Breskt frumvarp um atómmál London í gærkvöldi. LAGT hefir verið fyrir neðri málsstofu -breska þings ins frumvarp um atómmál. Efni frumvarps þessa var birt í dag. Er þar gert ráð fyr- ir ströngu eftirliti um fram- leiðslu á sviði atómorkunn- ar. Öll slík mál verða, að því er Bretland snertir, í hönd- um innanríkisráðherrans. Sjerhverjum þeim, sem gef- ur fulltrúum annalra þjóða upplýsingar um slík levndar- mál, skal' sæta refsingu, alt að fimm ára betrunarhúss- vinnu eða háum sektum. Það verður á valdi innanríkisráð- herrans eins að ákveða, hvort eitthvað skuli birt um fram- leiðsluháttu á sviði atóm- æálanna. — Reuter. Bevin, utanríkisráðherra Breta, hefir einnig sent Byrn es, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, fyrirspurn þess efnis, hverja aðstoð Banda- ríkin ætli sjer að veita í þessu efni. — Einnig er. það haft eftir einum fulltrúa í öryggis ráði Sameinuðu þjóðanna, að vel geti verið, að Palestíhu- málin verði tekin á dagskrá öryggisráðsins. Truman um málið. Truman Bandaríkj af orseti var í dag á blaðamannafundi spurður þess, hvað Banda- ríkjastjórn ætlaði sjer að gera til þess að eyða „ólög- legum herjum í Palestínu“. Hanri kvaðst ekkert vilja um það segja. Því sama svaraði hann, þegar hann var spurð- ur um það, hvort Bandaríkja stjórn hugsaði sjer að fram- kvæma tillögur Palestínu- nefndarinnar, eða hvort hann ælaði að leyfa það, að til Bandaríkjanna yrði fluttur á. næstunni mikill fjöldi Gyð- mga frá Evrópu. Mótmœli Arahahandalagsins. Abdúl Rahman Pasha, að- alritari Arababandalagsins, sagði í útvarpsræðu í kvöld, að beiðni Attlee um aðstoð Bandaríkjastjórnar við að út íýma „ólöglegum herjum í Palestínu“ og ofangreind fyr- irspurn Bevins til Byrnes væru hvorttveggja mjög eðli- legir hlutir. Bandaríkjamenn hefðu átt hlutdeild að tillög- um Palestínunefndarinnar, og það væri ekki von, að Bret rr vildu vera einir um skömm ina við að framkvæma þær. — Raham Pasha gekk í dag á fund sendiherra Breta og Bandaríkjamanna í Cairo og bar fram hin hörðustu mót- Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.