Morgunblaðið - 03.05.1946, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.05.1946, Blaðsíða 8
ar MORGDNBLAbIÐ Föstudagur 3. maí 1946 Utg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.). Frjettaritstjóri: Ivar GuSmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlandt. kr. 12.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók, Raforkulögin MEÐAL HINNA MERKUSTU verka, er síðasta Alþingi vann, var setning raforkulaga, þar sem lagður er grund- völlur að stórfeldum framkvæmdum í raforkumálum þjóðarinnar. Um það blandast engum hugur, að aukin raforka til almenningsþarfa er hið merkasta nauðsynjamál. Rafork- an skapar glæsileg lífsþægindi og er auk þess frumskil- yrði alls iðnaðar í landinu. Þróun og efling íslensks iðn- aðar byggist fyrst og fremst á því, að mjög ódýr raforka sje fyrir hendi. ★ Baráttan fyrir því, að allir íslendingar yrðu þeirra lífsþæginda aðnjótandi, sem raforkan veitir, var hafin af Jóni heitnum Þorlákssyni, formanni Sjálfstæðisflokks- ins. Árið 1929 lagði hann fram tillögur á Alþingi, þar sem að því var stefnt, að veita raforkunni út í sveitirnar, jafn hiiða því, að borgir og bæir yrðu hennar aðnjótandi. Jóni Þorlákssyni var þetta mál, ekki aðeins hugsjónamál, heldur fyrst og fremst raunhæf umbót, sem skapaði þjóð- inni, í sveit og við sjó, stóraukna framfaramöguleika. En tillögum hans var tekið með miklum fáleik af þáverandi ráðamönnum. Formaður Framsóknarflokksins sagði, að ef tillögur hans yrðu samþyktar, mýndu þær setja landið á hausinn. Þannig bljes nú í Framsókninni þá. En árið 1942, á sumarþinginu, flytja fjórir Sjálfstæð- ismenn frumvarp um raforkusjóð. — Þetta frumvarp varð að lögum. Framsóknarafturhaldið rjeði þá ekki lengur lögum og lofum á þingi. Samkvæmt þessum lögum var raforkustjóður stofnaður með 10 miljón kr. stofn- framlagi ríkisins og 500 þús. kr. árlegu framlagi. Eru því nú í sjóðnum yfir 12 miljón krónur. Segja má, að með stofnun raforkusjóðs hafi grundvöll- urinn verið lagður að raforkulögunum, sem síðasta þing samþykti. ★ Samkvæmt hinum nýju raforkulögum, er komið ákveð- ið skipulag á allar raforkuframkvæmdir í landinu, og þeim trygður ýmist bein forusta ríkisvaldsins eða mikill stuðningur. Samkvæmt öðrum kafla laganna, er ákveðið að ríkið setji á stofn og starfræki rafveitur, sem hafi það verkefni að afla almenningi og atvinnuvegunum nægrar raforku á sem hagfeldastan og ódýrastan hátt. Þessar rafveitur verða algerlega eign ríkisins og að öllu leyti reknar af því. í III. kafla laganna er rætt um stofnun hjaraðsraf- veitna. Veitir ríkisvaldið tilteknum aðiljum, sveitarfje- lögum eða einstaklingum einkaleyfi til þess að byggja og starfrækja slík orkuver. En ríkisstjórninni er heimilt að styðja byggingu þeirra með ríkisábrygð fyrir stofn- kostnaði, allt að 85% kostnaðarins, enda liggi fyrir sam- þykki raforkumálastjóra á fyrirkomulagi, gerð og til- högun orkuversins. í fjórða kafla laganna eru svo ákvæðin um'hjaraðsraf- veitur ríkisins. Samkvæmt þeim lætur ríkið reisa raforku- ver í samvinnu við einstök bygðalög landsins og með fjárhagslegri þátttöku þeirra er nemi að minsta kosti % af framlagi ríkissjóðs. í ákvæðunum um raforkusjóð er árlegt framlag ríkis- sjóðs til hans hækkað upp í 2 milj. króna. Raforkusjóður- inn skal síðan veita lán til raforkuframkvæmda. ★ Hjer hefir aðeins verið stiklað á því stærsta í þessari merku löggjöf. Sjálfstæðismenn hafa frá upphafi haft alla forustu um þessi mál, nú síðast í góðri samvinnu við samstarfsflokka sína í ríkisstjórn. Hann hefir tekið málið raunhæfum tökum á meðan Framsókn gamla hefir ýmist fjandskap- ast við það eða sofið á því. En Framsókn ræður ekki leng- ur, það er giftumunurinn.Þessvegna munu sveitir og sjáv- arsíða fá rafmagn á næstu árum eftir því, sem fjárhags- geta og aðrar aðstæður leyfa. ÚR DAGLEGA LÍFINU Ösin við farþega- skipin. FYRIR NOKKRU var drepið á það hjer í dálkunum, að ekki næði neinni átt hvernig fólki er leyft að þyrpast að skipum, sem eru að koma, þannig að farþegarnir geta varla komist í land fyrir þrengslum og ná ekki sambandi við aðstandend ur sína fyrir óviðkomandi fólki, sem fer niður á hafnarbakka þegar skip koma af einskærri forvitni. Þetta er vissulega mál, sem þarf að taka til athugunar og ekki síst fyrir það, að hægt er að kippa þ^ssum málum í lag með lítilli fýrirhöfn. Þegar farþegatalan er farin að skifta hundruðum á hinum litlu skipum, sem hingað sigla frá -útlöndum, segir það sig sjálft, að ekki má miklu bæta við af fólki um borð í skipin til þess að hægt sje að hreyfa sig úr stað. Það er líka alveg óþar.fi fyrir menn að vera að flækjast um borð í skip, þegar þau koma. Mikið betra að hitta vini og kunningja á hafnarbakkanum. • Gamall ósiður. ÞETTA SKIPARÁP er gam- all ósiður, sem ætti að leggj- ast niður hið fyrsta. Ekki dett- ur mönnum í hug að vaða inn í almenningsbíla til þess að faðma að sjer ferðamenn og komast þeir þó heilu og höldnu þangað sem ferðinni er heitið. Skipafjelögin geta afnumið skiparápið með því að hafa menn við landganginn og leyfa engum að fara um borð. Lög- reglan ætti svo að afmarka svæði á hafnarbakkanum þeg- ar skip koma og leyfa aðeins aðstandendum farþega að fara inn fyrir afgirta svæðið. Loks þarf lögreglan að hafa betri stjórn á því hvernig bílum er lagt, sem koma til að sækja farþega. • Tundurduflahættan á ströndunum. ÞAÐ MÁ MIKIÐ læra af hinu stutta viðtali, sem Morg- unblaðið birti við Evald Christ- iansen frá Norðfirði á dögun- um, en hann skýrði m. a. frá því að hann hefði gert als 107 tunduldufl óvirk á ströndun- um umhverfis ísland. Það virðist vera svo mikið um tundurdufl við strendur ís- lands, að búast má við að þau reki á fjörur um allt land. Er þá nauðsynlegt að menn, sem koma kunna að reknum tund- urduflum gæti fyllstu varúðar, til þess að ekki hljótist slys af. Segulmögnuðu tundurduflin eru svo bráðhættuleg, að þau geta sprungið, ef komið er með segulmagnaðan hlut í 50 metra ,færi frá þeim. Maður, sem hefir þó ekki sje nema tveggja- tommu nagla í vasanum, verð- ur að gæta sín að koma ekki of nálægt þessum hættulegu drápstækjum. Verði menn'varir við tund- urdufl verða þeir að gæta þess að fikta ekki við þau og helst ekki koma nálægt þeim, heldur tilkynna þegar næsta yfirvaldi um fundinn. • Flugvjelum fjölgar. FLUGFJELÖGIN okkar eru áhugasöm um að fjölga flug- vjelaeign íslendinga og er það vel að duglegir og framtaks- samir menn skuli hafa valist til að veita flugfjelögunum for- stöðu. Það er ekki nokkur vafi á að flugvjelin verður okkar helsta og nauðsynlegasta far- artæki í framtíðinni, því hveigi er flugvjelin jafn nauðsynleg og heppileg og í strjálbygðum og víðáttumiklum löndum, eins og Island er. Sennilega verður lögð aðal- áherslan á a^ fjölga flugvjel- um til innanlandsflugferða, áður en við leggjum áherslu á að taka upp millilandaflug- ferðir. í hvert sinn, sem okkur bæt- ist ný farþegaflugvjel er stigið stórt og nauðsynlegt spor í samgöngumálum okkar og ber því að fagna slíkum atburði. Þeir, sem stuðla að aukningu flugflota okkar vinna þarft verk. Margar frístundir. ÞAÐ HEFIR VERIÐ mikið um frístundir undanfarna daga. Við vorum að tala um þetta nokkrir kunningjar í gær og komumst að þeirri niðurstöðu, að síðastliðna 14 ■ daga hefðu 8 verið frídagar hjá flestum, þegar reiknað er með tveimur sunnudögum, sem voru á þessu timabili. Nú kemur alllangt tímabil hjá okkur frídagalaust að sunnu dögum fráskildum, eða þangað til á uppstigningardag, sem ber upp á fimtudag að þessu sinni. í júní kemur svo hvítasunnan og 17. júní, sem ber upp á inánudag. A INNLENDUM VETTVANGI íslensku handritin eiga aS vera í Reykjavík SIGURÐUR Nordal prófess- or hefir ritað grein um „hand- ritamálið“ í „Nordisk Tids- skrift“. Er hún veigamesta sóknin, sem enn hefir kom- ið.fram frá hendi íslendinga, síðan málið kom nú á dagskrá. Þegar pappírinn kom. I upphafi gerir höfundur grein fyrir því hve eðlilegt það sje, að íslendingar eigi erfitt með að sætta sig við, að öll hin fornu skinnhandrit skuli vera komin út úr landinu. Síð- an minnist höfundur ‘ á, hvað muni hafa orðið tij þess, að mikið af hinum fornu skinn- handritum muni hafa glatast, á tímabilinu frá 1550—1700. Að ákaflyndir siðbótarmenn hafi eytt kaþólskum guðsþjón- ustubókum og sögum helgra manna. Ljeleg húsakynni hafi átt sinn þátt í eyðileggingunni, fátækt manna eftir að einok- unin kom til sögunnar, og stundum hafi fólk í örbyrgð sinni gripið skinnblöðin til annara nota. En höf. segir að fleiri og veigameiri ástæður hafi kom- ið til greina. Ymsir hafi talið, og það ranglega, að andlegu lífi hafi hnignað mjög á 17. öld. Með því eigi áhuginn fyrir fornritunum að hafa minkað. En það væri öðru nær. Á þeirri öld veraldlegrar ör- birgðar, stóð andlegt líf þjóð- arinnar í blóma. Skinnbækurn-, ar hefðu gengið milli manna kynslóð eftir kynslóð. Þær voru orðnar slitnar af mikilli notk- un. Þá kom pappírinn til sög- unnar. Menn afskrifuðu skinn- handritin á pappír-. Því papp- írshandrit voru læsilegri. En þá kom það fyrir sem aldrei skyldi verið hafa, að menn hafa fleygt hinum snjáðu skinn handritum, er þau voru afskrif uð, eins og höfundar fleygja frumritum eftir prentun. Nokkrir menn, fyrst og fremst Árni Magnússon, sáu gildi frumritanna, fengu þau fyrir lítið sem ekkert, og fluttu þau úr landi. Vissulega hefðu hinar veigamestu og merkustu skinnbækur, sem voru í eigu efnaðra ætta, ekki glatast, þótt þær hefðu fengið að v.era kyrr- ar í landinu. Lagarjettur og hinn. Sigurður Nordal leiðir hjá sjer, að ræða um hinn lagalega rjett til eignarhalds á hand- ritunum, enda sje gildi hans nú takmarkað í viðskiftum þjóða á milli. Um hinn siðferð- islega rjett segir hann, að hann geti öfundað hvern þann, sem sje svo áttvís í siðfræðinni og framkvæmd hennar að hann ge'ti kveðið upp úrskurð í þessu handritamáli með einu penna- striki. En aðalatriði málsins sje, hvar handritin sjeu best geymd til þess að þau komi að mestu gagni í framtíðinni. Hvað hafa menn leyfi til að eiga. Og hann varpar fram þeirri spurningu: Hvað hafa menn leyfi til að eiga? Fyrr á tímum voru þvi eng- in takmörk sett. En smátt og smátt hefir mannkynið staul- ast gegnum byltingar og deil- ur, til eðlilegra skilnings á eignarjettinum og takmörkun- um hans. Fyrir Dani eru handritin aldrei annað en sýningargrip- ir. En þau eru hinar sýnilegu minjar íslensku þjóðarinnar frá mestu menningaröld hennar. Að þau skuli geymd erlendis er sívakandi minning um mestu niðurlægingartíma í stjórn- mála- og viðskiftasögu okkar. Höf. kemst að orði á þessa leið: Jeg er ekki meðal þeirra, sem halda því fram, að núlif- andi Danir beri ábyrgð á þeim hörmungum. sem forfeður þeirra leiddu yfir þjóð vora. En aftur á móti lít jeg svo á, að nútíma Danir eigi ekki að halda í þá minjagripi hörm- ungatímanna, sem hægt er að skila aftur. Jeg er viss um, að hver ein- asti Dani, sem er gagnkunnug- ur raunasögu íslands á 16.—18. öld, mun feginn vilja segja við íslendinga: Við getum ekki endurvakið (Gjörið svo vel að fletta á bls. 12, 1. dálk.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.