Morgunblaðið - 05.05.1946, Page 1

Morgunblaðið - 05.05.1946, Page 1
r 16 síður og Lesbók 33. árgangur. 99. tbl. — Sunnudagur 5. maí 1946 Isafoldarprentsmiðja h.f. Utanríkisráðherrafundurinn í París: DEILUMÁL ÍTALA OG JÚGÓSLAVA ÓLEYST !- í Bandaríkjun- um veldur áhyggjum Washington í gærkveldi. RANNSÓKNARNEFND sú, sem Truman forseti skipaði í sambandi við verkfall 400,000 kolanámumanna í Bandaríkj- unum, hefur nú gefið honum skýrslu, þar sem svo er kom- ist að orði, .að verkfallið sje stórhættulegt fyrir allan efna hag Bandaríkjanna. Verksmiðjur víðsvegar um landið hafa orðið að hætta framleiðslu vegna kolaskorts, en verkfall þetta hefur nú staðið í mánuð. í skýrslunni er komist svo að orði, að al- menningur yfirleitt, hafi þó enn ekki orðið fyrir áhrifum verkfallsins. Skýrsla rannsóknarnefnd- arinnar var birt að undirlagi Trumans forseta, þar sem hann leit svo á, að almenning ur í Bandaríkjunum ætti rjett á því, að vita, hversu stór- hættulegar afleiðingar verk- fall kolanámumannanna gæti haft. Hálíðahðld hjer 17. júní BÆJARRÁÐ samþykti á fundi í fyrradag, að bæjarstjórn Reykjavíkur gengist fyrir há- tíðahöldum þann 17. júní. með líku sniði og var í fyrra. HJER SJAST þrir af fultlrúum á UNO-þinginu. Þeir voru síður en svo sammála á fundum, en það virðist fara vel á með þeim í fundarhijei, er þessi mynd var tekin. Þeir Byrnes, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna og Gromyko fulltrúi Rússa, skála, en Stettinius horfir á. Norðmenn ætla að % fjölmenna að Revk- holti að sumri ÞAÐ MUN nú vera endanlega ákveðið að ekki geti orðið úr afhjúpun minnismerkis Snorra Sturlusonar eftir Vigeland og sem Norðmenn ætla að gefa að Reykholti á þessu sumri. Mun það aðallega stafa af því, að Norðmenn treysta sjer ekki til að gera þessa för til íslands jafnveglega á þessu sumri, eins og þeir hefðu kosið. Leiðtogi Arababandalagsins boðar „heilagt strííf London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. AZZAM PASHA, leiðtogi Arababandalagsins, vakti í dag máls á því í Kairo, að vera majtti, að nauðsyn yrði að hefja brott- flutning barna og kvenna frá Palestínu, áður en hið „heilaga stríð“ Araba gegn innflutningi Gyðinga til landsins hæfist. Þrátt fyrir þessi ummæli Pasha, er þó alment talið ólík- legt, að Arabar grípi til vopna að svo stöddu en bíði þess, að öryggisráð sameinuðu þjoðartna tak málið til meðferðar, eða út- sjeð verði um, hvort Breta’r og 'Bandaríkjamenn fylgi ráðum nefndar þeirrar, sem að und- anförnu hefir rannsakað Gyð- ingavandamálið svokallaða. Frjettir bera það yfirleitt með sjer, að lítið hafi borið á óeirðum í löndum Araba til þessa, og er það tekið fram, að mótmælaverkfall Araba í Palestínu og samúðarverkfall- ið í Sýrlandi, en þeim er nú lokið, haíi farið rólega fram. Arabar í Sýrlandi og Liban- on virðast ýfirleitt líta svo á, að Bandaríkin eigi upptökin að tillögum Palestínúnefndarinnar. Hinsvegar mun hafinn und- irbúningur að því, að Norð- menn íjölmenni til Reykholts sumarið 1947 og koma þá hópur merkra manna á einu stóru skipi, eða fleirum og mun enn- fremur í ráði að í þeirri för verði margt stórmenni Noregs. Eins og kunnugt er af frjett- um, sem Morgunblaðið hefir áður birt, er Snorralíkneskið til búið í Noregi og varð það ekki fyrir neinum skemdum í styrj öldinni. Uppgjafar Þjóðverja minst í Danmörfcn og London í gærkveldi. HÁTÍÐAHÖLD hafa farið fram í Danmörku og Hollandi í dag í tilefni þess, að eitt ár er liðið frá uppgjöf Þjóðverja í löndunum. Dagsins Var minnst með ýmiskonar hátíð-. ahöldum Ágrelningur itiiili ilússa og vesturveldsiina London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR 'fjórveldanna, Frakklands, Bret- lands, Bandaríkjanna og Rússlandt, hjeldu áfram fundum sín- um í dag, en eftir tveggja klukkustunda umræður, hafði þeim enn reynst ókieyft að komast að samkomulagi um landamæri Ítalíu og Júgóslafíu og þá einkum um ráðstöfun Trieste. Ágrein- ingurinn var á milli Molotovs annarsvegar og Bevins og Byrnes hinsvegar. Annar fundur mun verða haldinn í dag, sunnudag, og verður Bevin í forsæti. _______________________ - ' ' -- — ■- Molotov styður Júgoslava. Að áliti Molotovs voru til- lögur Byrnes og Bevins ekki í samræmi við hlutverk það, sem Júgoslavía hefir leikið í styrjöldinni. Taldi hann, að skylt væri að taka kröfur Júgo- slava til greina og gefa bæri þeim yfirráðarjett yfir Trieste. Bevin andmælti þessu og kvað umleitunum júgoslavnesku stjórnarinnar hafa verið tekið með fullri sanngirni, en sam- kvæmt tillögum Breta og Bandaríkjanna mundu Júgo- slavar fá landssvseði, sem á byggju 375,000 manns. Stórkoslleg skof- færasprenging við Nurnberg Núrnberg í gærkvöldi. HÚS í Núrnberg ljeku á reiðiskjálfi og gluggarúður brotnuðu, er stórkostleg spreng ing varð í skotfærageymslu skamt frá borginni í kvöld. Sprenging þessi varð, er verið var að eyðileggja þýskar skot- færabirgðir og eldur komst í sprengiefni, sem geymt* var á sama stað. Skotfærageymsla þessi er um tíu mílur frá Núrnberg, ná- lægt borginni Stalac, þar sem mikill fjöldi SS-fanga eru hafð ir í haldi. Við sprenginguna sprungu gluggarúður í húsi því, sem nasistaleiðtogarnir þýsku sitja nú fyrir rjetti, en mismunandi sterkar sprengingar hjeldu á- fram í tvær klukkustundir samtals. —Reuter. Fangar í Alcatras gera uppreisn New York í gærkveldi: FANGAUPPREISN sú, sem hófsí í fyrrinótt í ameríska fangelsinu Alcatras, hefir nú að mestu verið brótin á bak aftur. Samkvæm-t upplýsingum Jam- es Bennets, umsjónarmanns fangahúsa Bandaríkjanm, vörð ust fjórir eða sex fangar að vísu ' ennþá, en undirbúningur var hafinn, til að yfirbuga þá. Stilwell hershöfðingi hefir stjórnað aðgerðum gegn upp- reisnarmönnum og um tíma var allmikið herlið kallað til aðstoðar. Fangar þeir, sem þeg- ar síðast frjettist, vöruðst enn þá í hluta af fangelsinu, hafa nóg af skotfærum en eru mat- arlausir. Yfirvöld fangelsins hafa kraf ist skilyrðislausrar uppgjafar þeirra. Byrnes vill atkvæðagreiðslu íbúanna. Á fundinum gerði Byrnes, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, tilraun til að leysa deiluefnið. Lagði hann fram tillögu, þess efnis, að íbúum hins umdeilda landssvæðis yrði gefinn kostur ú að velja um, hvort þeir vildu lúta stjófn I- tala eða Júgoslava. Bevin- og Bidault utanríkis- ráðherra Frakka, lögðust hins vegar gegn~~þessu og töldu, að með atkvæðagreiðslu mundi verða vikið frá ákvörðunum þeim, sem teknar voru á fundi utanríkisráðherranna í London s. 1. ár, en Molotov kvaðst líta svo á, að ef til atkvæðagreiðslu kæmi, ætti hún að ná til tölu- vert stærra landssvæðis en nú er deilt um. Enn vonir um samkomulag. Þrátt fyrir fundinn í dag, eru menn ekki vonlausir um, að samkomulág náist um þetta mál, en Molotov hefir skýrt frá því, að verið gæti að hann mundi fallast á tillögur Itala um greiðslu þeirra á stríðs- skaðabótum, ef kröfur Júgo- slava um Trieste yrðu teknar til greina. Gerðu verkfall LONDON. Starfsfólk óper- unnar í París, söngvarar, dans- arar og aðrir gerðu nýlega verkfall og stóð það í rúma viku. Síðan var gengið að i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.