Morgunblaðið - 05.05.1946, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.05.1946, Blaðsíða 5
Sunnudagur 5. maí 1946 MOKCDNBLAÐIÐ 5 BYGGINGARSAGA SJÁLFSTÆÐISHÚSSINS Þegar Sjálfstæðishúsið var opnað til afnota á föstu- daginn var, skýrði for- maður byggingarnefndar, Eyjólfur Jóhannsson frá sögu þess máls. Birtast hjer kaflar úr ræðu hans. * FJELAGASAMTÖK Sjálf- atæðismanna í höfuðstað lands- ins hafa löngum verið illa á vegi stödd með húsnæði. Varð- arhúsið leysti þessa þörf á sín- um tíma, en svo fór, að flokk- urinn óx upp úr þeirri flík, flokksstarfseminni var brátt skorinn of þröngur stakkur í þeirri byggingu svo forustu- menn flokksins sáu það eitt ráð framundan að koma yfir flokkinn húsakynnum, er full- nægðu þörfum hans, hvað snerti fundarsal, flokksskrif-l stofur og flokksheimili. í þessu tilefni kallaði for- maður Sjálfstæðisflokksins, þáverandi atvinnumálaráðherra Olafur Thors, nokkra menn á sinn fund, laugardaginn 9. nóv. 1940. Niðurstöður þess fundar urðu þær, að kosiri var 7-manna nefnd, til að taka málið í sín- ar hendur og athuga möguleika fyrir því að koma upp flokks- húsi. I nefnd þessa voru kos in: Ólafur Thors, atvinnumála- ráðherra, sem fulltrúi Mið- stjórnar, Magnús Jónsson próf., sem fulltrúi Varðarfjelagsins, Guðrún Jónasson kaupkona, fulltrúi Hvatar, Jóhann Haf- stein, framkvæmdarstjóri, full- trúi Heimdallar, SigUrður Hall- dórsson, verkamaður, fulltrúi Óðins, Þórður Ólafsson, útgerð- armaður, fulltrúi Fulltrúaráðs- Eyjólfur Jóhannsson, fram- kvæmdarstjóri, fulltrúi Fjár- málaráðs. Nefndin skipti með sjer verk- um á þann hátt, að Magnús Jónsson var kjörinn formaður, Eyjólfur Jóhannsson gjaldkeri og Jóhann Hafstein ritari. Nefndin tók strax til starfa undir forustu formanns og at- hugaði ýmsa möguleika um stað fyrir væntanlega húsbyggingu. 19. marz 1941 festi nefndin kaup á húseign og lóð nr. 2 við Thorvaldsensstræt eign Hall- gríms Benediktssonar stórkaup- manns. Áður hafði nefndin haf- ist handa um fjáröflun til þess- afa húskaupa, undir forustu Þórðar Ólafssonar, m. a. var Varðarhúsið selt. Er skylt að þakka hluthöfum Varðarhúss- ins, sem undantekningarlítið gáfu Sjálfstæðisflokknum hluta brjef sín í Varðarhúsinu, svo söluverðið kom svo að segja óskert til greiðslu upp i kaup- verð á Thorvaldsensstr. 2. Flokkurinn hafði á undanförn- um árum verið á hrakólum með húsnæði fyrir skrifstofur sínar og fjelagsheimili. Með kaupum þessa húss var leyst úr þess- um vanda að mestu. Flokks- starfsemin fjekk 5 rúmgóð skrifstofuherbergi ^til umráða, en auk þess þrjú herbergi, sem aðseturstað fyrir flokksfjelögin, — loks fundarherbergi, þar sem flokkúrinn gat haldið minni fundi og sem jafnframt VIÐ AUSTURVÖLL Frá vígsluhátíð Sjálfstæðisflokksins. (Ljósmynd Vignir). var notað sem skólastofa fj'rir stjórnmálaskóla flokksins. Húsinu fylgdi stór lóð, sem nefndin hugsaði sjer að byggja á stóran fundarsal, ef ekki tæk- ist að koma upp veglegri bygg- ingu á allri lóðinni. Haustið 1944 var málið tekið upp að nýju af stjórn Fulltrúa- ráðsins, og samkomulag náðist um að skipa því að nokkru í nýjan farveg. Gerð var víðtæk verkaskipt- ing milli margra aðila. Sjer- stök nefnd skyldi annast bygg- ingu hússins, en aðrar nefndir annast um fjáröflun til .fram- kvæmdanna. Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfjelaganna, í Reykjavík kaus 18. október 1944 eftirtald- ar nefndir: Byggingarnefml: Eyjólfur Jóhannsson (form. nefndarinn- ar), Guðrún Jónasson, Guð- laugur Þorláksson, Helgi Ey- jólfsson, Jóhann Hafstein og Oddur Helgason Fjársöfnunarnefnd, til að annast fiársöfnun til hússins meðal flokksmanna. í nefnd þessa voru kosín: Jóhann Haf- stein (form. nefndarinnar), frú Ásta Guðjónsdóttir, Axel Guð- mundsaon, Baldur .Tohnson, Gísli Guðnason, Lúðvík Hjálm- týsson, Magnús Þorsteinsson, Ragnar Lárusson og frú Soffía Ólafsdóttir. Þá var kosin Happdrættis- nefnd. I nefndinni voru: Oddur Helgason (form. nefndarinnar) Björn Pjetursson. Guðrún Ól- afsdóttir, Lúðvík Hjálmtýsson, Ragnar Lárussan, Richard Theódórs og Sigurður Halldórs- son. Húsbyggingarnefndin hjelt fyrsta fund sinn hinn 25. okt. 1944. Ákveðið var á þeim fundi að hefjast þegar handa með byggingu á fundarsal á hinni óbyggðu lóð. Tengja salinn við gamla húsið, og bafa imigang- inn einnig gegnum gamla hús- ið. Hið nýja hús skyldi að mestu bygg't á grundvelli uppdráttar, er Hörður Bjarnason arkitekt hafði á sínum tíma gert fyrir eldri nefndina. Nokkrar breyt- ingar voru þó gerðar, og upp- drátturinn síðan sendur Bvgg- ingarnefnd til staðfestingar. 31. október, eða 5 dögum eft- ir að nefndin tók til starfa, var verkið hafið, og formanni nefnd arinnar falið að hafa eftirlit með bvggingunni Nefndinni var strax ljóst, að hún hafði tekið að sjer mjög vandasamt verk, að sjá um byggingu á sal, sem helst þurfti að fudnægja margskonar og mismunandi notkunarþörf. í fyrsta lagi átti hjer að koma fundarsalur, en í salnum þurfti einnig að vera hægt að sýna kvikmyndir, halda í honum hljómleika og samsöngva stórra hljómsveita og kóra. Ennfrem- ur yrði að vera allur útbún- aður fyrir veitingastarfsemi, helst af fullkomnustu gerð. Nefndin vissi af mörgum mis fellum, sem orðið höfðu hjer á landi í byggingu samkomu- húsa, kirkna, leikhúsa og fund- arsala, varðandi ,,acoustic“ eða hljómun. Nefndin tók því það ráð, að senda frumteikningar af hús- inu til Ameríku, og fjekk þar firma, er hafði sjerþekkingu á þessu sviði, til að leiðbeina og gera tillögur, jafnframt því að gera tillögur um lýsingar og skreytingu á salnum. Firmað Rogers Assocition í New York leysti þetta verk af hendi með miklum ágætum. Firmað gerði nefndinni grein fyrir vissum tæknilegum örðugleikum við að fullnægja öllum þeim skilyrð- um, sem hin margþætta notk- unarþörf krafðist.- Að lokum kváðust þeir þó vera ánægðir og vonuðust til, að nefndin yrði líka ápægð með þann árangur, er nást myndi, ef tillögum þeirra yrði fyigt. Accustik eða hljóðplöturnar, er þið sjáið á loftinu, og á gafli, andspænis senunni, gera það að verkum, hve vel hljóðið fer í salnum. Þær eru settar þannig, að þær eru til skrauts, jafn- hliða því að gera sitt gagn. Bogadregnu línurnar til hlið- anna varna því, að hljóðið brotni á skörpum köntum og hornum. Ljósakrónurnar eru frá sama firma, valdar af smekkvísi og falla vel við hina einföldu loft- skreytingu. Glerin í handtiðunum, með hinum sandblásnu myndum, eru teiknuð og gerð af þessu firma. Þau eru með sjerkenni- legri lýsingu, sem varpar, sje hún notuð ein, sjerstakri feg- urð á umhverfið. Þetta firma gérði einnig til— lögur um lýsingar á salnum, fyrirkomulagi kvikmyndatækj- anna, það gerði uppdrátt að senuútbúnaði og útvegaði öll senutjöldin. Fulltrúar nefndarinnar í New York voru þeir verslunarfull- trúarnir Bjarni Björnsson og Stefán Wathne, sú aðstoð sém þeir veittu nefndinni var ómet- anleg, enda lögðu þeir fram mikla vinnu og fvrirhöin. Það er skylt að geta þess, atf allar þær breytnigar, sem fram kvæmdar voru af þessum sjer- fræðingum, voru samþykktar af nefndinni í samráði við aðal- arkitekt hússins, Hörð Bjarna- son, en hann teiknaði, auk hússins, allar aðrar innanhúss- teikníngar, ásamt aðstoðar- manni sínum, Gunnari Theó- dórssyni arkitekt. Nokkuð af innrjettingunum var gert eftir teikningum yfir- smiðsins, Hjartar Hafliðasonar. Þá vil jeg í stórum dráttum gefa • yfirlit yfir það, hverjir hafa stjórnað hinum einstöku liðum verksins. Almenna Byggingarfielagið tók að sjer að koma húsinu undir þak, undir verkstjórn Valgeirs Jónssonar, bygginga- meistara, að öðru leyti en því, að Þorgeir Þórðarson, múrara- meistari og fjelagar hans, önn- uðust hleðslu á veggjum húss- ins. Hjörtur Hafliðason, byggingji meistari, tók að sjer að sjá um allar innrjettingar á nýbygg- ingunni og breytingar á gamla húsinu. Hefir hann verið yfir- smiður við bygginguna og haft margháttaða umsjón með öðr- um greinum framkvæmdanna. Hitunar- og loftræstingakerf ið er teiknað af Benedikt Gfön- dal, verkfræðing Hefir hlutafjelagið Ilamar útvegað og annast uppsetningu lofthitunar og ræstitækja, en Runólfur Jónsson, pípulagninga meistari, hefir ennfremur sjeð um þessar lagnir, auk þess sem hann hefir lagt allar hita- skolp- og vatnsleyðslur 1 hús- ið, ásamt öllum hreinlætis- Tækjum. Á grundvelli tillagna Roger’s Association um lýsingar í saln- um, gerði hr. verkfræðingur Stefán Bjarnason allar raf- magnsteikningar, og hefir Rafall annast allar raflagnir í húsinu. Múrhúðun utan húss og inn- an, hafa annast Aðalsteinn Sig- Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.