Morgunblaðið - 05.05.1946, Side 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói
ÁRIÐ, sem Danir voru að
Vaxandi suð-austanáít, rign-
ing.
Sunnudagur 5. maí 1946
átta sig. — Eftir Ole Kiilerich.
.r— Bls. 9.
\
Norðfiriingur komn
sjei npp S00 hestafln
rafstöð
NYLEGA hafa veríð undirritaðir samningar um uppsetningu
á nýjum dieselrafvjelasamstæðum á Norðfirði og verður raf-
stöð Norðfjarðar aukin frá 120 hö. upp í 900 hestölf, en raf-
stöðvarhúsið er þannig bygt, að hægt er að stækka stöðina upp
í 2500 hö. Verður rafstöðin komin upp fyrir ifaustið.
BrésKur verkfræðingor, Mr.
Quarrell, frá fyrirtækinj Brit-
sh Oil Engines Export Co.,
hefir dvalið hjer undanfarið
til að ganga frá samningum um
hina nýju rafstöð Norðfirðinga,
en umboðsmenn firmans hjer á
landi eru Vjelar og Skip h.f.
Rafmagnstæki, rpennistöð fyr
ir Norðfjarðarbæ og fleira er
frá breska firmanu Brush
Electrical Co. Dieselvjelasam-
stæðurnar eru frá Mirreles og
Blaekstone.
Innkaupasamband rafvirkja
hjer í Reykjavík hefir tekið að
sjer að sjá um línukerfi fyrir
bæinn.
Á meðan Quarrell verkfræð-
ingur dvaldi hjer hjelt hann
fyrirlestur um dieselvjelaraf-
stöðvav í Verkfræðingafjelagi
Islands og leituðu margir til
hans um tekniskar upplýsing-
ar viðvíkjandi dieselrafstöðv-
um.
Vestmannaeyjastöðin að verða
tilbúin.
Eins og áður hefir verið get-
ið er Vestmannaevjabær einnig
að fá nýja rafstöð fyrir milli-
g'öngu Vjelar' og Skip h.f. Eru
vjelarnar að v-rða tilbunar
til afskipunar í Englandi og
munu koma’ með næstu skip-
um. Vjelstjóri frá Vestmanna-
evjum hefir verið í Englandi
til að kynna sjer vjelarnar.
„Ingéifur árnarson'
fyrsii Reykjavíkur-
fogarinn
„INGOLFUR ARNARSON"
verður nafnið á fyrsta togar-
anum, sem Reykjavíkurbær
kaupir og sem samkvæmt út-
drætti hjá Nýbyggingarráði
verður fyrstur þeirra 30 tog-
ara, sem ríkið kaupir í Eng-
landi, sem kemur til lands-
ins. Er togarans von hingað
í nóvember að hausti.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt hefir verið úthlutað 8
af nýju togurunum til Reykja
vikurbæjar.
Sendiherra Rúss-
lands á förum
SENDIHERRA Sovjetríkjanna,
sem hjer hefir verið undanfarin
tvö ár, Alexei N, Krassilnikov,
er að fara hjeðan alfarjnn. —
Hann mun taka við starfi hjá
Hinum sameinuðu þjóðum
(United Nations Organizaton)
og fer hjeðan beint ti) New
York ásamt fjölskyldu sinni.
(Samkv. frjettatilkynningu
frá ríki"stjórninni).
iVýtt verslunarstórhýsi
fullgert á Siglufirði
Siglufirði, föstudag. Frá frjettaritara vorum.
VERSLUNARFJELAG Siglufjarðar h.f., opnar í dag verslanir
sínar I hinu nýja húsi sinu við Túngötu 3 hjer í Siglufirði. Hús
þetta hefir fjelagið látið byggja og hefir bygging þess staðið
yfir í eitt ár. Það er bygt úr járnbentri steinsteypu, rammbygt,
vandað og smekklegt að öllu.
Húsið er 3 hæðir og gólfflöt-
ur rúmir 260 fermetrar. Teikn-
ingu að húsinu gerðu bygginga-
meistararnir Sveinn Ásmunds-
son og Gísli Þorsteinsson, sem
einnig bygðu húsið. Raflagnir
framkvæmdi Jóhann Jóhannes’-
son, en Trjesmíðaverkstæði
Kristjáns Aðatsteinssonar, Ak-
ureyri teiknaði og smíðaði inn-
rjettingu sölubúðanna, en nið-
ursetningu hennar önnuðust
Friðgeir Sigurhjórftsson og Gest
ur Magnússon frá sömu vinnu-4
stofu.
Á neðstu hæð er sölubúð í
fjórum deildum, nýlenriuvöru,
húsáhalda, vefnaðarvöru, skó-
og fatnaðardeild. Þar er einnig
sjerstök deild til þess að ann-
ast afgreiðslu til skipa og heim-
sendingar, herbergi fyrir starfs
fólkið, snyrtiherbergi og ávaxta
geymsla. Efri hæðirnar eru fyr-
ir vörugeymslur og skrifstofur
og flytur rafknúin lyfta vörurn-
ar milli hæðarma.
Verslunarfjélag Siglufiarðar
var stofnað 1932. Stofnendur
voru 12 og htutafje aðeins 10
þús. Rr.
KAÞÓLSKIR GEFA HVEITI
LONDON. -— Rómversk-ka-
þólskir menn í Bandaríkjunum
hafa ákveðið að gefa 500 smá-
lestir af hveiti til íbúa ind-
versku borgarinnar Bombay,
til þess að aðstoða við afljett-
ingu hungursneyðar þar í horg.
Afmælisveisla Varoarfjelagsins
Fjórir menn sæmdir heiðursmerki
fjelagsins.
AFMÆLISVEISLA Varðarfjelagsins, er haldin var í Sjálfstæðis-
húsinu við Austurvöll í gærkvöldi, var hin ánægjulegasta.
Veislustjóri var fyrsti for-
maður fjelagsins, Magnús Jóns-
son.
Allmargar ræður voru flutt-
ar meðan á borðhaldi stóð.
M. a. flutti Gunnar Thor-
oddsen minni íslands, Bjarni
Benediktsson minni Reykja-
víkur, Jóhann Hafstein minni
Sjálfstæðisflokksins og Guð-
mundur Benediktsson, bæjar-
gjaldkeri, minni Varðarfje-
lagsins.
Núverandi formaður Varðar,
Ragnar Lárusson tilkynti, að
stjórn fjelagsins hefði ákveðið
að kjósa fjóia heiðursfjelaga
Varðarfjelagsins og sæma þá
heiðursmerki Var'ðar — gull-
krossi. Voru þrír þeirra við-
staddir, en sá fjórði, Ólafur
Thors, forsætisráðherrr.. fjar-
verandi. Hanr. er nú staddur
í París. Hann sendi fjelaginu
heillaóskaskeyti. Hinir eru
Magnús Jónsson alþm., Jakob
Möller sendiherra og Bjarni
Sigurðsson, hinn alkunni skrif-
stofustjóri Varðar. er veiið hef-
‘ir í þjónustu fjelagsins í 17 ár.
Ragnar Lárusson afhenti þess-
um mönnum heiðursmerkin. En
þéir fluttu allir stutt ávörp til
veislugesta, og þökkuðu gott og
ánægjuleft samstarf við fjelags
menn Varðar.
Aðrir ræðumenn voi*u þessir:
Stefán A. Pálsson, Sigurbjörn
Ármann, Sigurður Björnsson
frá Veðramóti og Bjarni Snæ-
björnsson, er flutti fjelaginu
kveðju frá Sjálf?tæðisfjelög-
unum í Hafnarfirði.
Iraqsfjórn móimælir
tiliögum Palesfínu-
nefndarinnar
London í gærkvöldi.
STJÓRNARVÖLDIN í Iraq
hafa gefið út yfirlýsingu, þar
sem mótmælt er niðurstöðum
bresk-amerísku nefndarinnar
um Palestínumálin. Segir í þess
ari yfirlýsingu stjórnarinnar,
að líklegt sje að til blóðsút-
hellingar í löndum Araba komi,
verði stefna nefndarinnar tekin
upp. Þá er það tekið fram, að
nefndin sje ólögmæt að áliti
stjórnarinnar, og að litið yrði
á innflutning 100,000 Gyðinga
til Palestinu sem árás á rjett-
indi Araba og alþjóðalög.
—rReuter.
Tengdadóftir Musso-
linls drukknar
London í gærkvöldi.
TILKYNT hefir venð, að
Gina Mussolini, ekkja Bruno
Mussölini, sonar einræðisherr-
ans fyrverandi, hafi verið með-
al fimm farþega á breskum mó-
torbát, sem sökk í gærkvöldi
á Comovatni. Á bátnum voru
einnig tveir breskir liðsforingj-
ar og tvær stúlkur aðrar-. Að
eins annar liðsforingjanna og
önnur stúlkan komst lífs af.
*—Reuter.
10 þósund krénum
stoiið
í FYRRINÓTT var fram.ð
innbrot í afgreiðslu smjörlík-
isgerðanna í Þverholti 21. Var
m. a.. brotinn upp peninga-
kassi og stolið rúmum 10 þús.
kr. að minnsta kosti, en um,
upphæðina er ekki vitað al-i
veg með vissu.
Auk þess sem stolið var
þarna, hafði verið rótað í skúff
um og kössum.
Átfa nýir lögregiu-
þjónar
LÖGREGLUSTJÓRI hefir
lagt til við bæjarráð, að skip-
aðir verði eftirtaldir 8 lögreglu
þjónar í Reykjavík:
Gísli óskar Sesselíusson, Óð.
4. Kristján Jóhannesson, Sólv.
4. Jón Jóhannsson, Hátún 15,
Skarphjeðinn Kr. Loftsson,
Lind. 26, Ingibergar Sæmunds-
son, Ásv. 4. Ásmundur Matt-
híasson, Efstas. 6, Þorleifur
Pálmi Jónsson, Óð. 14, Leifur
Jónsson, Laugav. 46 B.
Honlgomery held-
ur ræðu
London í gærkvöldi.
MONTGOMERY hershöfðingi
hefir haldið ræðu í tilefni þess,
að eitt ár er liðið síðan styrj-
öldinni 1 Evrópu lauk. Hers-
höfðinginn komst svo að orði,
að besta tryggingin fyrir friði
væri styrldeikur sameinuðu
þjóðanna,.og mintist í þv? sam-
bandi á hina ágætu samvinnu
herja bandamanna.
Montgomery vjek nokkuð að
baráttu Breia í styrjöldinni og'
hversu þeir hefðu um tíma stað
ið einir gegn herafla Þýska-
lands, Ítalíu og Japan. Hann
varaði menn við að gleyma því,
sem gerst hefði styrjaldarárin
og orsökum styrjaldarinnar. —
Loks kvaðst hann þess fullviss
að friðarþrá þjóðanna væri
mikil.
Lesbókin í dag
Hún hefst á frásögn um
mannskaðann mikla á
Skagaströnd 1887, þegar
24 menn fóru í sjóinn. Þá
má nefna tvær einkenni-
legar greinar. aðra eftir
Lajos Zilakj: „Hvenær
dó János Kowács?“ og
hinna eftir Karel Capec:
„Sunnudagur11. Þá er frá-
sögn af sögulegasta hnefa
leik, sem háður hefir ver-
ið, er þeir Dempsey og
Firpo keptu um heims-
meistaratitilinn. Þá er af-
mæliskvæði til Theódórs
Fríðrikssonar rithöfundar,
sem nýskeð varð sjötugur.
Grein um gleraugun og
önnur um Uranium. sem
notað er við kjarnorku-
framleiðslu. Þá er greina-
flokkurinn Ókunn lönd,
Barnahjal, ýmsar smá-
greinar og Fjaðrafok.