Morgunblaðið - 26.06.1946, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.06.1946, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 26. júní 1946 MORGUNBLAÐÍÐ Hin nýja útgáfa SLENDINGASAGNA tilkynnir. í haust kemur út vönduð og ódýr heildarútgáfa íslendingasagna. Sögurnar verða í 12 bindum, en auk þess fylgir nafnaskrá yfir allt verkið í sjerstöku bindi. í þessum bindum eru 120 sögur og þættir. 28 þeirra eru ekki í fyrri heildarútgáfum og sex af þeim hafa aldrei verið prentaðar áður. Skraut upp- hafsstafir verða fyrir hverri sögu og þætti, pappír vandaður, letrið skýrt, og allt verður þetta svo ódýrt miðað við núverandi gildi peninga og bókaverð, að s-íkt kostaboð hefur íslendingum aldrei verið boðið. Öll bindim 13 að tölu, 120 sögur og þættir, kosta aðeins 300 krónur — þrjú liundruð krónur — og eru þetta þó um 5600 blaðsíður. MákhandiS Tekist hefir að útvega hjerlendis (hjá Bókfell h.f.) band ábækurnar, sem er varla helmingur venju- legs bókandsverðs og líklega ódýrara, en hið erlenda tilboð er áður var auglýst. Skinnband á hverja bók kostar aðeins kr. 9.50 eða kr. 123,50 samtals á 13 bindin. Allt verkið í skinnbandi kostar því aðeins kr. 423.50 og er þetta verð líkara bókaverði fyrir stríð en bókaverði ársins 1946. Mmínaskráin Nafnaskrá verður í sjerstöku bindi og er það 'bindi í rauninni kaupbætir fram yfir það sem upp- haflega var lofað. Hún mun gera þessa útgáfu ómissandi fyrir alla, jafnvel fyrir fræðimenn, sem eiga all- ar eldri útgáfur. Er sagt frá Gunnari á Hlíðarenda í fleiri sögum en Njálu? Líttu í nafnaskrána. Hvar er sagt frá ýmsum íslenzkum höfuðbólum, frá bænum þínum? Gættu í nafnaskrána. Hún verður töfralykill að gullkistu fornsagnanna og næsta furðulegt að hann skuli ekki hafa verið smíðaður fyrir löngu. Tii Ésiendinga íslenska þjóðin stendur nú á miklum tímamótum, með sitt nýstoínaða lýðveldi í heimi, sem er full- ur af viðsjám og hættum. Nú ríður á að efla íslenzka þjóðmenningu og sjálfstæðishug til sóknar og varn- ar, hvað sem yfir kann að dynja. „Eggjar nú móðir vor oss lögeggjanu — er kjörorð þessara ára. Og það hefur komið í Ijós með nýjum áhuga almennings, yngri sem eldri, að þjóði nskilur, að dýrmætustu fornmentir hennar og framar öllu íslendinga sögur eru vopn og verjur, sverð og skjöldur, sem verður að neyta betur en nokkru sinni fyrr. Þær brýna til nýrra afreka, til öruggrar gæslu frelsisins. íslendingar heimta hin fornu handrit sín aftur heim. Sú krafa verður því öflugri, sem þeir sýna umheiminum betur hvers þeir meta þessar bókmenntir. Það er fyriræthm íslendingasagnaútgáfunnar ef hún fær svo marga áskrifendur, að ágóði verði af, að verjahonummeðal annars til þess að senda útgáfuna að gjöf til bóka safna og fræðimanna erlendis, sem nú geta ekki keypt íslenskar bækur, til þess að útbreiða þekkingu á íslenzkum menntum og styrkja málstað íslendinga gagnvart umheiminum. Líka á þennan hátt á útgáfan að vera íslensk landvörn og landkynning út á við í þeim anda, sem menningarþjóð er samboðn- astur og forn íslensk skáld og fræðimenn, sem báru ægishjálm yfir útlendum samtíðarmönnum sínum, eggja niðja sína að muna. Hver áskrifandi þessarar útgáfu, eignast ekki aðeins dýrmæta eign fyrir sjálfan sig, heldur stuðlar að því að gera þjóð sína öflugri inn á við og meira metna út á við. Takmark vort er. Allar íslendingasögur inn á hvert íslenskt heimili. — Gerist strax áskriíendur sendið pantanir í pósthólí 73 eða 523 Reykjavík 0 ɧ§§§p íenJincjaSacjnaátcjá^ait IQeijLjavíL Jeg undirrit.... gerist hjer með áskrifandi að ís- lendinga sögum íslendingasagnaútgáfunnar og óska að fá hana bundna óbundna (Yfir það sem ekki ósk- ast sje yfirstrikað). Nafn ..................................... Keimili .................................. Póststöð.................................. íslendingasagnaútgáfan, Pósthólf 73 eða 523 Rvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.