Morgunblaðið - 12.10.1946, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.10.1946, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. ’okt. 1946 MORGUNBLAÐIÐ UNGLINGA VANTAR TIL AÐ BERA MORGUNBLAÐIÐ í EFTIRTALIN HVERFI Skólavörðustíg Hverfisgölu Hringbraut í Vesturbænum Við flytjum blöðin heim til barnanna. Talið strax við afgreiðsluna, simi 1600. Símar FjelagsmáSaráðuneytisins eru 5838 og 1159 Nýkomið PELSAR ýmsar tegundir verð frá kr. 785.00. Modelkápur og dragtir stór númer, nýkomið. Spartci Garðastræti 6. . ...... ............ Best að auglýsa í Morgunblaðinu Minning Bjöms Jénssonar íiskimatsmanns og fulltrúa’ Búnaðarfjelags Norðfjarðar,! Neskaupstað. F. 11/6 1372. D.1 11/8 1945. Margur drjúpti höfði í hryggð huldist tárum bráin, þá sagður var um breiða byggð Björn Jónasson dáinn. t Harmur skyggði heimaból, harmaði sveit og bærinn. Harmaskýjin huidu sól, harmþungt stundi særinn. Karmurinn því harðast skar hjarta ekkju og barna. Ekkert ráð varð upphugssað, er því mætti varna. j Saknaðartár þó svelli á brá og svíði hjartans undir, vonarsólin sýna má sælan endurfundin. Kæri Björn, jega þakka þjer það alt áttum saman; þess að minnast indælt er og altaf verður gaman. i Gleðin ljúf þjer ijek á brá, Ijetti þjer starf og sporði. í sonarmissi og sárri þrá sástu bjarta vorið. ' t Söngur, þitt var yndi æ, og þá list þú glæddir, ir.n um sveit og út í bæ um hans dulmál fræddir. Söngrödd þín var hrein og hú, með heillandi undirhreimi. Mjer finst sem hana hlusti enn á, henni jeg aldrei gleymi. . I E: þitt vildir vita vamm á verks fjölþættu sviði, í grandvarleik því gekstu fram góðu öliu að liði. t Opinberu störf þín sterk styrku fjelags böndin. Þau voru bæði möörg og merk, sem miðlaði lýð þín höndin. ) Þó að sárt þín sakni nú jeg sje í huga mínum, að góðverkin, sem gjörðir þú gróa í sporum þínum. I Ei skal syrgja mætan mann en minning um hann gevma, og engu, er fjekk afrkað hann aldrei heldur gleyma. t > Hjeðan burt ert horfinn þú, heims frá mæðu dölum. Lífsins herra lofar nú í Ijóssins gleði sölum. Brynjólfur Björnsson. — UM BYGGINGAR Framh. af bls. 6. Vil jeg nú enn á ný skora á arkitekta og húsameistara landsins að ræða þetta mál af sjerþekkingu sinni, svo því verði forðað frá því að verða að pexi um smáskítleg atriði á milli okkar, sem ekki erum taldir bera skynbragð á það. 16. sept. 1946. J. H NY BOK: Uppreisnin á Cayolte Eftir EARL VVHITEHORNE HAUSTIÐ 1868 kom japönsk fiskisnekkja með skips- rekald nokkurt, sem hún hafði rekist á, til hafnar- borgarinnar Hakodadi í Japan. Yfir skipi þessu hvíldi hvílík ógn og leynd, að alheimsathygli vakti. Innan borðs í skipinu voru 40 kínverskir verkamenn, nær dauða en lífi af hungri, enda var hvergi neitt ætilegt í skipinu. Hinsvegar var þar að finna mikil auðæfi í gulli og silfri, hjer og þar um skipið. EN HVERGI var að finna blað eða brjefmiða, er gefið gæti hinar minnstu upplýsingar um það, hvert þetta skip væri. Af frásögnum Kínverjanna varð ekkert ráðið. Eitt þótti þó augljóst: að skipið væri ekki jap- anskt, heldur mundi það hafa tilheyrt verstrænum mönnum. Skipið var atað blóði, og virtist því ekki leika vafi á, hver hefðu orðið örlög þeirra, er þar höfðu ráðið fyrir. Sjerstök ógn og hrilling stóð mönn- um af geigvænlegu tákni, er var að finna við inn- ganginn að hibýlum skipstjórans. Það var nákvæmt far eftir alblóðuga hönd, sem stutt hafði verið þungt á hvítmálað þilið. Það var dulmögnuð kjmngi yfir þessu óbrotna en máttuga tákni um glæpi og hryðju- verk. EN HVER hafði hann verið, þessi helsærði maður, sem þarna hafði leitað stuðnings, hver höfðu orðið örlög hans og fjelaga hans, og hver var hún þessi óheilla- fleyta, sem skaut mönnum svo mikinn skelk í bringu? Hvaða glæpa- og hryðjuverk höfðu þarna verið fram- in og af hvaða hvötum? Þessum og ýmsum öðrum spufningum var leitast við að fá svarað með rann- sókn þriggja stórvelda, en án árangurs. Amerískum flotaforingja auðnaðist hins vegar að varpa ljósi yfir þetta dularfulla mál, og því gat bókin um uppreisnina á Cayolte orðið til, en svo hjet skipið. BÓK ÞESSI hefir nú verið þýdd á íslensku, og er það skemmst af að segja um hana, að hún er frábærilega spennandi, svo að fáar bækur komast til jafns við hana hvað það snertir. Yfir frásögninni hvílir myrk, dulmögnuð kynngi, og er bókin sannast að segja ekki hollur lestur fyrir taugaveiklað fólk eða hrifnæmt. En handa þeim, sem kjósa sjer æsandi og spennandi lestrarefni er vandfundin æskilegri bók en UPPREISNIN Á CAYOLTE. Fæst hjá bóksöluin. — Verft kr. 18.00. Alí til logsuðu Nýkomiö: Suðuvír, fyrir eir, stál, ryðfrítt stál. Silfurslaglóð, suðuhanskar, vagnar fyrir gas- og súrhylki, handbækur, fyrir logsuðu. Skurðabrennarar, hjóldrifnir. naglabrenn- arar og raufbrennarar. Þrýstimælar, fyrir gas og súr. Einkaumboð fyrir UNITOR A/S Oslo. ^Álálwn J/óhannóSon &Co. Sölvhólsgötu 14 — Sími 6916 AUGLÝSING E R GULLS ÍGILDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.