Morgunblaðið - 25.10.1946, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.10.1946, Blaðsíða 8
Föstudagur 25. okt. 1946 I MORGUNBLAÐIÐ Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsia, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.0o á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. f lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Hvað er að gerast? HVAÐ er að gerast á Alþingi? Um þetta spyrja nú margir. Þetta gerist: Ýms hinna venjulegu þingmála, þ. á. m. fjárlögin ganga sinn jafna gang. Annað tefst vegna ó- vissunnar um samstarf og stjórnarmvndun. ★ Samkvæmt tillögu forseta íslands skipuðu flokkarnir þrjá menn í nefnd hver til viðræðna. Enginn flokkanna hefir forystu um þessar viðræður. Fundir eru haldnir daglega og hafa flokkarnir fundarstjóra til skiptis. Þingmönnum er ljóst. að vegna þess að þrír flokkarnir, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Sósíalistaflokkur hafa flokksþing eða flokksstjórnarfund í næsta mánuði, eru þessir flokkar ekki reiðubúnir til þátttöku í stjórnar- myndun fyrr en að afloknum þessum fundarhöldum. Má því telja víst, að stjórnarmyndun takist ekki fyrr en í lok nóvembermánaðar í fyrsta lagi. Af þessu leiðir, að enn sem komið er, er hvorki alvara nje hraði í viðræðum tólf-manna nefndarinnar. Það er verið að draga tímann. Skipun hinnar svonefndu hag- fræðinganefndar er m. a. af þeim toga spunnið. Sjest það best á því, að jafnvel Tíminn, sem í upphafi ljet mikið yfir „forystu“ Framsóknar, sem þá stundina bar ávöxt í hugkvæmninni, sem fæddi af sjer „hagfræðinganefnd- ina“, er nú í óðaönn að keppast við að skýra fyrir lesend- um, að auðvitað eigi hagfræðingarnir ekki að gera þetta, og að sjálfsögðu heldur ekki hitt, og eiginlega hvorki þetta nje hitt! Samt sem áður hafi tillagan komið frá Framsókn (sem þó auðvitað er málum blandið) o. s. frv. Jafnframt mun svo nefnd þessi hafa fengið til úrlausnar verkefni, sem Hermanns-Rauðka spreytti sig á í nokkur ár, áður en hún gafst upp. En í hlutarins eðli liggur, að gefist stjórnmálamenn- irnir upp við að benda á úrræðin, sem síst ætti að vera vandasamara nú en oft áður, má ekki vænta að aðrir reynist færir um það. ★ Mælt er, að engum af stjórnarflokkunum þrem sje mjög áfram um að vera í nýju stjórninni. Er það senni- lega rjett. Allir munu þeir þó fáanlegir til þess, ef sæmi- lega semst um málefni. Framsókn er sögð áköf í ráðherrasætin. En sá er hæng- ur á, að öllum hinum flokkunum er um og ó að leggja lag sitt við hana, af hræðslu við þá megnu andúð sem ríkir gegn Framsókn, einkum við sjóinn. ★ Þannig virðist ennþá a. m. k. lítill áhugi fyrir stjórnar- myndun hjá þeim sem á veltur. Af þessu leiðir, að bak- tjaldamakk er með minsta móti. En því meira ber á góðu innræti og blíðu viðmóti þeirra, sem mæna á ráðherrastól- ana. Ber þar mest á Hermanni voru'm, sem er nú svo tillátssamur við kommúnista og getspakur á óskir þeirra, að þeir kalla hann Hermann „lipra“ í stað „sterka“ hjer áður fyrr En lang „grínaktugasta fígúran11 í hópnum er Sigfús Sígurhjartarson. Veit enginn hvað fyrir honum vakir, og er lítið mark á tekið. Er helst ætlað að hann sje á ein- hvern hátt, að reyna að hefna sín á þeim, sem ráku hann frá ritstjórn Þjóðviljans, og segja kunnugir að hefni- þorstinn sje meiri en skoðanafestan. Snýst nú Sigfús eins og skopparakringla kringum Framsókn og vill ekki heyra á annað minst en að komm- ar flatsængi með gömlu maddömunni. Er Sigfús að smeygja greinum inn í Þjóðviljann, sem Hermann segir honum að skrifa. Henda menn gaman að öllum þessum tilburðum. Talið er, að fyrir Sigfúsi vaki þetta: Takist að koma á samstarfi kommúnista og Framsóknar, þá gerir Sigfús sjer vonir um að komast í ráðherrastól, vegna þéás að enginn annar yrði fáanlegur í sætið. Sigfús í ráðherrastól! Of mikið af öllu má þó gera. uer^i ÚR DAGLEGA LÍFINU „Bannsvæði“. í DAG TAKA íslensk yfir- völd við Keflavíkurflugvellin- um til eignar og umráða. Síð- ustu leyfar hernáms og her- verndar styrjaldaráranna eru að hverfa. I gær birti Morgun- blaðið þá fregn, að búið væri að taka niður skilti við her- búðir, sem hermenn dvelja I, þar sem gefið var til kynna, að herbúðirnar „væru barn- svæði“, eða „Yfirráðasvæði Bandaríkjanna“, og að „vopn- aðir hermenn með byssur“, gættu þess, að óviðkomandi færu ekki of langt. Alt er þetta ánægjulegt og í rjetta átt stefnt. En hirðulaus- ir höfum við sjálfir verið í mesta máta því þó að aðvör- unarspjöld hinna útlensku sjeu nú horfin af herbúðum, sem þeir búa enn í, þá eru þessi spjöld enn uppi víða um land- ið í auðum og hálfhrundum herbúðum. Hermennirnir, sam bjuggu þar forðum fóru í flýti og hirtu ekki um að taka nið- ur þessi skilti, nje skilti með erlendum nöfnum á hsrbuð- um, enda keypti víst ríkið braggana með öllu „múr- og naglföstu“. Það væri nú þarfa verk, að senda flokk manna með verk- færi og bíl í öll gömlu bragga- hverfin hjer í nágrenninu og láta taka niður öll skilti, bæði þau, sem sett voru til viðvör- unar og hin, sem segja til vm erlend nöfn braggahverfanna. • Þegar Keflavíkur- útvarpið hættir. NÚ HLÝTUR Keflavíkurút- varp hersins að hætta, um leið og hermennirnir fara, því ekki kemur til mála, að þeir Banda- ríkjamenn, sem í Keflavík kunna að dvelja vegna flug- samgangna geti haft þar eigin útvarpsstöð, enda ólíklegt, að nokkur vilji leggja í kostnað til að halda þeirri stöð í gangi. Þessi stöð hefir verið mörg- um þyrnir í augum, en aorir hafa haft af henni mikla á- nægju, ef dæma má eftir hvað margir hlust;. á hana hjer sunr,- anlands, þar sem, hún heyrist vel. í öðrum hverjum leigubíl og annari hevrri íbúð, svo ekki sje nú talað um þá vinnustaði, þar sem útvarpi hefir verið komið fyrir til ánægju fyrir starfs- fólkið, glymur braggastöðin daglangt. Vinnustaðirnir hafa nær eingöngu hlustað á Kefla- víkurstöðina, þar sem varla hefir verið í önnur hús að venda, nema þegar að hlust- unarskilyrði hafi verið einkar- góð og náðst hefir til erlendra stöðva. Hvað kemur í staðinn? HVAÐ KEMUR NÚ í staðinn fyrir Keflavíkurútvarpið. Fyr- ir nokkrum mánuðum var á það drepið hjer í dálkunum, að rík- isútvarpið ætti að halda uppi útvarpi á daginn fyrir hina mörgu, Sem hafa vanið sig á að hlusta á útvarp við vinnu sína. Var í því sambandi bent á, að nota mætti Ijetta og til- tölulega ódýra dagskrá, ljett lög af grammófónplötum, end- urtekningu á góðum dagskrái- liðum, sem komið hafa í aðal- dagskrá og fleira. Meðal annars var mint á stál- vírshljóðritunina í því sam- bandi. Það verður nú gaman að sjá hvort Ríkisútvarpið okkar er þeim vanda vaxið, að veita landsmönnum eitthvað í stað- inn fyrir braggastöðina, sem hefir verið bæði skömmuð og henni hælt á undanförnum mánuðum. Tálvonir. EITT AF DAGBLÖÐUM höf- uðstaðarins segir frá því, að það mikil þurð sje orðin á ame- rískum sigarettum, að farið sje að selja bunkt með 10 pökk- um (karton) á 60 krónur. Með öðrum orðum, að amerískar sígarettur sjeu komnar á svart- an markað hjá okkur. Hræddur er jeg um, að með þessu sje verið að vekja tál- vonir hjá þeim mönnum, sem kunna að eiga einhverjar birgð- ir af amerískum sigarettum í fórum sínum. • Þóttu óreykjandi. ÞAÐ ER AUÐVITAÐ mál, að fjöldi manna hefir vanið sig á að reykja amerískar sigarettur, þar sem nær eingöngu hafa flutst amerískar sigarettur til landsins um þriggja ára skeið. En varla kemur til að neinn voði sje á ferðum og menn vilji greiða hvaða verð sem er fyrir að fá amerískar sigarettur þegar nóg er af öðru tóbaki á m.arkaðnum. Sú var tíðin að menn fussuðu hjer við amerísku tóbaki og ráku upp harmavein, eins og heimurinn væri að farast, þeg- ar enska tóbakið hætti að flyti- ast. Sem sagt. Það er varla ástæða fyrir nokkurn mann, að birgja sig upp af amerískum sigarett- um í þeirri von að geta hagn- ast á þeim, því þar að auki mun bráðlega voa á nýjum birgðum af amerísku tóbaki til landsins. • Þakkar fyrir barnaleikvöll. KONA á Grímsstaðaholti, biður mig fyrir eftirfarandi þakklæti til viðkomandi bæj- aryfirvalda: „Mig langar til að biðja þig að koma á framfæri fyrir mig, og jeg veit margra annara kvenna hjer um slóðir -— þakk- læti til þeirra, sem stóðu að því, að komið var upp barna- leikvelli hjer í nágrenninu. — Hann hefði mátt vera kominn fyrir löngu, því alstaðar í bæn- um er þörf fyrir barnaleikvelli. En maður getur þakkað alt, sem er til bóta“. iiHrnimitintmiiiMimU MEÐAL ANNARA ORÐA . . .. I FRAM er komin á Alþingi þingsályktunartillaga um rann- sókn á dýralífi í Hvammsfirði, flutningsmaður Þorst. Þor- steinsson. Segir þar svo: „Alþingi ályktar að fela fljótt og því verður við komið fara fram rannsóknir á dýralífi í Hvammsfirði til þess að fá úr því skorið, hvort fjörðurinn sje heppilegur til fiskiræktar“. í greinargerð segir: „Eins og kunnugt er flest- um, þá er Hvammsfjörður einn af stærstu fjörðum landsins og víða alldjúpur, en fiskveiðar hafa ekki verið þar teljandi nema hrognkelsaveiðar. Þó er það álit nokkurra, að flatfiskur (lúða og koli) sje þar yst í firðinum, en vegna þess að krökt sje þar af sel, haldist hann lítt við á þeim slóðum. Mikið er af fiskseiðum í firð- inum, þar á meðal kolaseiðum, og síli eru þar nokkur, er vart verður af fuglageri miklu, er safnast að sílatorfunni og fylgir henni eftir firðinum. Fjörðurinn er einstakur að því leyti, að fyrir. xninni hans er íjöldi eyjg og 'hólma, en. jnjó og grunn surid liggjá rnilli hans og Dýralíf í Hvammsfirð Breiðafjarðar; eru þar sjávar- föll mikil og straumar afar- harðir, en fjörðurinn víður og alldjúpur, þegar inn er komið úr sundum þessum. Fjörðurinn hefir áður verið mældur allverulega á innsigl- ingaleiðum, en á ýmsum svæð- um mun hann enn lítt mæld- ur, og litlar sem engar rann- sóknir hafa enn farið fram á dýralífi hans, og mun þó það vera merkilegt verkefni og lík- legt til nytsemdar. Hefi jeg átt tal við Árna Friðriksson fiski- fræðing um þetta efni, og tel- ur hann, að það, sem rannsaka þurfi þarna, sje fyrst og fremst 1. Mæla upp fjörðinn og um leið athuga botnlag hans. 2. Athuga eðli sjávarins (hita hans, seltu o. fl.). 3. Rannsaka svifið (þörunga, lirfur o. fl.). 4. Rannsaka botndýralífið (mergð botndýra og tegundir). 5. Athuga fiskistofnana (teg- undir og vöxt). Sjerstaklega ætti að haga rannsóknum þessum með það fyrir augum, að þar yrði fiski- fækt, en einnig, hvórt þar væri ekki fært að auka kræklings- íekju. Myndir af afföku nasisfaleiðfopnna Berlín í gærkvöidi. FRAKKAR og Rússar hafa fallist á þá tillögu Bandarikj- anna, að heimsblöðin fái að birta myndir af aftökum nas- istaleiðtoganna tíu — Bretar eru þessu hinsvegar andvígir, telja að ekkert sje unnið við það, að láta myndir þessar koma fyrir almenningssjónir. Árangurinn af þessu verður sá, að engar myndir af aftök- unum verða birtar á hernáms- hluta Breta í Þýskalandi. — Þá munu stjórnarvöld í Bretlandi heldur. ekki.pjá blöðunum þar í landi fyrir slíkum myndum, og verða þau að útvega sjer þær annars staðar ftá, ef þau æskja eftir að nota þeer- —Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.