Morgunblaðið - 25.10.1946, Blaðsíða 16
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
Sunnan og suð-austan gola eða
kaldi. Rigning öðru hvoru.
RINNAN-MÁLAFERLIN I
Þrándheimi. — Bls. 9.
Föstudagur 25. október 1946
ísland lekii í
Á ÞINGI alþjóðasambands
skíðamanna (F.I.S.), sem hald-
ið var í september s. 1., var
íþróttasamband íslands tekið í
sambandið, en beiðni um það
var lögð fyrir s. 1. vetur.
Með stofnun skíðasambands-
ins hjer hefir það tekið stjórn
'iara mála í sínar hendur
'kværat lögum ÍSÍ og hefir
tiíkýnnt F.I.S. það.
íyfgreindum fundi F.I.S.
voru ennfremur tekin í skíða-
sambandið Skíðasamband
Bandaríkjanna, Danmerkur,
Belgíu og Austurríkis. (Frjett
frá ÍSÍ).
Gáleysi við akslur
sfræiisvagns
LAUST fyrir hádegi í gær
skeði atburður í Austurstræti,
sem hefði getað valdið stór-
slysi. Strætisvagni var ekið eft-
ir götunni með opna hurð, og
slóst hún til og frá.
Mikil umferð var á götunni,
er þetta var, og er vagninn
beygði alveg út að gangstjett-
inni rjett fyrir framan Bóka-
búð ísafoldar, slóst hurðin
langt út yfir stjettina og lenti
á stúlku, sem þar var. Fjell hún
í götuna við höggið, sem að
sjálfsögðu var þungt, en hefði
þó orðið enn þyngra, ef ekki
hefði verið búið að draga úr
ferð strætisvagnsins vegna
þrengsla á götunni. — Er hjer
um að ræða ófvrirgefanlegt
gáleysi, sem stórslys hefði getað
hlotist af.
Frá Kdlavíkurllugvellinuffi
SVFÍ efnir !il nám-
skeiða lyrir
Þessi mynd er tekin á Keflavíkurflugveliinum og sýnir flugvjelar á einni rcnnibrautinni. Af
þessari mynd er hægt að gera sjer nokkra hugmynd um hve völlurinn er stór, þótt ekki sjáist
nema lítill hluti af einni braut hans. Islendingum verður afhentur flugvöllurinn í dag kl.
3,30. (Grein á blaðsíðu 1).
Sex íþrófialandsmót
haldin é
IÞROTTASAMBAND Islands
hefir þegar ákveðið, að sex
landsmót í íþróttum skuli fara
fram á komandi vetri.
Þau mót, sem hjer um ræðir,
eru Skíðamót íslands, sem fer
fram 20.—23. mars, Meistara-
keppni íslands í flokkaglímu,
sem fer fram 28. mars, Hand-
knattleiksmót íslands (inni),
sem fer fram 29. mars — 15.
apríl, Hnefaleikamót íslands,
sem fer fram 15.—20. apríl,
Sundmeistaramót íslands, sem
fer fram 21.—23. apríl og Sund-
knattleiksmót íslands, sem
fram fer 10.—20. maí. (Sam-
kvæmt frjett frá ÍSÍ).
Íslendíngum boðnir
síi nýir díeseltog nrar
UM ÞESSAR MUNDIR er staddur hjer í bænum skoskur
skipaverkfræðingur, R. A. Taylor að nafni. Hann hefir á boð-
stólum sex nýja dieseltogara til afhendmgar á árinu 1947 og
hefir þegar samið um kaup á einum þeirra. Kaupandi þess skips
er Guðmundur Jörundsson á Akureyri. Þessi skip eru teiknuð
af Mr. Taylor, sem hefir áður teiknað nokkra íslenska togara,
þarámeðal togarann „Garðar“.
Fyrsfi fundur íslendinga-
fjelagsins í Osló effir
sfríð
NÝLEGA var fyrsti fundur
íslendingafjelagsins í Osló eft-
ir stríðið haldinn. Voru þar um
40 Islendingar og vinir þeirra.
Fundurinn var mjög skemti-
legur. Skemtu menn sjer við
dans og leiki fram á nótt. Fór
fundurinn hið besta fram.
150 feta skip.
Sú tegund togara, sem Mr.
Taylor býður eru gerðir með
þarfir íslendinga fyrir augum
og hefir Guðmundur Jörunds-
son sagt fyrir um ýmislegt í
sambandi við þá og einnig hef-
ir verið leitað ráða Sigurjóns
Einarssonar skipstjóra í þess-
um efnum. Er gerð togaranna
þannig hagað að þeir verði
hentugir til síldveiða, ekki síð-
ur en togveiða. Ný gerð af vind
um verður í þeim, olíuknúð-
um. Yfirbygging skipanna verð
ur úr aluminum efni og björg-
unarbátar úr sama efni.
Þó skip þessi sjeu ekki nema
150 fet eiga bau að geta borið
jafn mikið fiskmagn og t. d.
175 feta skipin, sem verið er að
smíða fyrir okkur í Bretlandi.
Lestar verða þiljaðar með alum
ínum, sem bakteríur eiga ekki
að geta haldist við í. Ganghraði
skipanna á að vera 12^ míla á
klukkustund.
Diesel eða gufuskip.
Er Mr. Taylor hitti blaða-
menn frá dagblöðunum í gær-
dag barst í tal hvort hentugra
myndi reynast að hafa togara
með diesel- eða gufuvjelum.
Kvað skipaverkfræðingurinn að
tvær skoðanir ríktu í því efni
hjá skipstjórum og skipaverk-
fræðingum. Eldri skipstjórar og
skipaverkfræðingar hjeldu því
fram að gufuskip væru betri,
en yngri skipstjórar og skipa-
smiðir hjeldu dieseltogurum
fram. Væru hópar þessir alíka
fjölmennir, en eftir því sem
tímar liðu væri ekki nokkur
vafi á að diesel-skipin myndu
vinna. Þau væru mikið ódýrari
í rekstri. Gufutogararnir eins og
þeir, sem Islendingar væru nú
að byggja myndu eyða um 8V2
smálest af olíu á sólarhring, en
diesel-togarar þeir, sem fjelag
hans væri nú að byggja (150
feta) myndu eyða 3 V2 smálest.
Um mismun á rekstri reiknað
í krónum kvaðst hann ekki geta
sagt, þar sem sjer væri ekki
nógu vel kunnugt um verð á
hráolíu og dieselolíu hjer á
landi.
Verð skipanna.
Þessir 150 smálesta diesel-
togarar, sem verða álíka stórir
og stærstu togarar okkar, sem
við nú eigum, verða mun ódýr-
ari, en hin stóru skip, sem við
eigum nú í smíðum.
Af þeim sex skipum, sem
fjelag Mr. Taylors getur lokið
smíði á á næsta ári hefir þegar
einn verið seldur, hingað til
lands, eins og áður er sagt. í
samningum stendur um sölu á
öðrum togara, en Nýbygginga-
ráði - hafa verið boðnir fjórir
togarar til sölu, en ekki vitað
hvað ráðið gerir.
SÖLTUN Faxaflóasíldar er
lokið fyrir nokkru. Alls var
saltað í fimm útgerðarstöðvum
hjer við Faxaílóa. Heildarsölt-
unin nam þann 19. okt. 255 tn.
Mest var saltað í Keflavík
2603 tunnur, Hafnarfirði næst
mest, 2461 tunna, þá Grinda-
vík með 998 tunnur, í Sand-
gerði var sahað í 759 tunnur
og á Akranesi 434 tunnur.
SLYSAVARNAFJELAG IS-
LANDS hefir ákveðið, að efna
til námskeiðs fyrir sjómenn.
Námskeiðið hefst hjer í
Reykjavík 4. nóv n. k. oe stend.
ur til 9. nóv. Fluttir verði fyr-
irlestrar um ýmislegt varðandi
sjómensku, t. d. hirðingu skipa,
meðferð öryggistækja svo sem
talstöðva, dýptarmæla og mið-
unarstöðva o. fl.
Þingið
Þingsköp.
í Nd. flytur Gylfi Þ. Gísla-
son frumvarp um breyting á
lögum um þingsköp Alþingis.
Leggur hann til að umræða geti
orðið bæði undan og eftir út-
varpsumræðu, og í öðru lagi að
minnihluta flokks sje veittur
viss rjettur, allt að þriðjungi a£
ræðutíma flokksins, í útvarps-
umræðum. Kvaðst flm. flytja
frumvarp þetta vegna þess að'
hann og Hannibal hafi ekki
fengið að taka til máls í um-
ræðunum um flugvallarsamn-
inginn á dögunum. — Var frv.
vísað til allsherjarnefndar.
Laun hreppstjóra.
Þorsteinn Þorsteinsson og
Guðm. í. Guðmundsson flytja
í Ed. frumvarp um breyting á
lögum um laun hreppstjóra og
aukatekjur. I frumvarpinu er
lagt til að laun hreppstjóra
hækki um 200 kr. á ári. — Var
því vísað til fjárhagsnefndar.
„Bresk-íslensk viðskifli“ —
lýtt mánaðarrit í London
„BRESK-ISLENSK VIÐSKIPTT* heitir nýtt mánaðarrit,
sem hefur göngu sína í London um miðjan nómember n.k. og
verður helgað viðskipta-, menningar- og sameiginlegum á
hugamálum Breta og íslendinga. Útgefendur er nýstoínaður
fjelagsskapur í London og er útgefandi Aubrey kapteinn, eii
ritstjóri er ráðinn Mr. Bate, kunnur breskur blaðamaður.
Björn Björnsson, stórkaup-^' ’
kaupmaður í London, skýrði enska lesendur. Útgefendur
blaðamönnum frá þessu í gær, J segjast gjarna vilja fá brjef og
en hann hefur veitt aðstoð við greinar senda’- frá íslandi, til
að koma þessu riti á fót. Ritið birtingar. í fyrsta heftinu verð
verður 36 síður. Þar af verða [ ur meðal annars grein um
12 síður auglýsingar, en 24 les plastik-efnið nýja. nýungar í
mál. Hefur ritinu verið tryggt j siglingafræði, ullariðnað og
Fastar flugferðir.
LONDON. Breska flugfje-
lagið European Airways er ný-
lega byrjað fastar flugferðir til
Ankara, höfuðborgar Tyrlt-
lands.
auglýsingamagn fyrstu 12 mán
uðina.
í ritið munu skrifa kunnir
menn, breskir og íslenskix, auk
ritstjórans. É fyrsta heftinu
verður t.d. grein eftir aðstoð-
arverslunarmálaráðh. Breta,
sendiherra íslands í London,
Stefán Þorvarðarson og Björn
Björnsson.
Útgefendur ritsins hafa
hugsað sjer að hafa það all-
fjölbreytt. Verður það prentað
jöfnum höndum á ensku og ís-
lensku, en þó er ekki gert ráð
fyrir, að aðrar greinar verði á
ensku, en þær, sem skipta
margt fleira.
Bæði útgefandi og ritstj. voru
hermenn 1 stríðinu, en ekki
hjer á landi. Bate er þekktur
blaðamaður, var hann m.a.
frjettaritari Reuters í spænsku
borgarastyrjöldinni og víðar
um lönd. Hann er sjerfræðing
ur í utanríkismálum.
Bresk stjórnarvöld hafa sýnt
velvilja fyrir þessu riti með
því að veita til þess pappírs-
skammt.
„Brelsk-íslensk viðskipti11
koma út í 4000 eintökum til að
byrja með og eiga að kosta
fimm krónur á mánuði.