Morgunblaðið - 13.11.1946, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 13. nóv. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
15
p Glímunámskeið fýrir
byrjendur.' Æfing í
kvöld kl. 7—8 í
Iþróttahúsinu við Lindargötu.
Kennari í kvöld Guðmundur
Ágústsson glímukóngur. Nýir
menn gefi sig fram við kenn-
arann eða skrifstofu fjelags-
ins, opin 8—10 alla daga.
Glímufjelagið Ármann.
* SKEMTIFUNDUR
. verður haldinn í Tjarn
arcafé n.k. fimtudag
kl. 9. Skemtiatriði
auglýst síðar.
ÆFINGAR í DAG:
KI. 8—9 I. fl. kvenna.
Kl. 9—10 I. fl karla.
Æfingartafla
veturinn 1946—47.
Kvenfl. þriðjud og föstud
kl. 8—9.
Meistarafl. og 1. fl. þriðjud.
og föstud. kl. 9—10.
2. og 3. fl. miðvikud. kl. 9—10
föstud. 7—8
Nýir fjelagar láti innrita sig
hjá Halldóri Arinbjarnar
Strandgötu 28. Verið með frá
oyrjun.
Stjórnin.
LO.G.T
ST. EININGIN Nr. 14.
Fundur í kvöld kl. 8,30, eldri
embættismenn stjórna.
Skemtiatriði:
1. Upplestur Fr. Á. Brekkan
2. Kvikmyndasýning 1. fl.
annast.
Æ. T
ST. SÓLEY Nr. 242
Fundur í kvöld kl. 8,30 í
Templarahöllinni.
Dagskrá:
1. Inntaka.
2. Kosning embættismanna.
3. Vígsia embættismanna.
4. „Neistinn“ kemur út,
5. Kaffi.
Æ. T.
Bazarinn verður n.k. föstu
dag kl. 3 e.h. í Goodtempiara
húsinu. Tekið á móti munum
þar á fimtudag kl. 3—6 síðd.
og föstudag kl. 10—12 árd.
Bazarnefndin
s imiiifdimijiiiiiiiinmiimimmmiuiuuuui u
Tapað
Kvenúr tapaðist sl. laugardag
frá Framnesveg 10 að verslun
Haraldar Árnasonar. Vinsam
lega'skilist á Framnesveg 10.
Sala
<^í»
MINNINGARSPJÖLD
bamaspítalasjóös Hringsins
verða fyrstu um sinn af-
greidd í Litlu blómabúðinni.
Vínna
Tökum að okkur
HREIN GERNIN G AR,
nmi 5113, Kristján Guðmunds
317. dagur ársins.
Sólaruppráð kl. 8,51.
Sólarlag kl. 15,32.
Árdegisflæði kl. 8.15.
Síðdegisflæði kl. 20.42.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Rcykjavík-
ur Apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Hreyf-
ill, sími 6633.
I. O. O. F. (Spilakvöld).
Hjónaband. Nýlega hafa ver-
ið gefin saman í hjónaband ung
frú Þorgerður Egilsdóttir,
Húsavík og Steingrímur Jó-
hannesson, bílstjóri, Grímsstöð
um við Mývatn.
Hjónaefni. Opinberað hafa
trúlofun sína ungfrú Þóra Hall
grímsdóttir, Halldórsstöðum,
Laxárdal og Valdimar Hall-
dórsson, bílstjóri, Húsavík.
Sjúklingar í Kópavogi þakka
innilega heimsókn frú Maríu
Markan Östlund síðastliðinn
laugardag. Óska þeir þeim hjón
unum góðrar ferðar heim.
Hjónaefni: Síðastl. sunnu-
dag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Guðrún Magnúsdóttir,
Syðri-Tungu, Breiðuvík og Ste-
fán Guðmundsson, Litla-Kambi
sömu sveit.
Hjónaefni: Síðastliðinn laug-
ardag opinberuðu trúlofun
sína frk. Ragnheiður Jónsdótt-
ir, verslunarmær, Vestmanna-
eyjum og Ernst Fridólf Back-
mann, laugarvörður í Sund-
höll Reykjavíkur.
Hjónaefni: Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Gróa Jóelsdóttir, Strandgötu
21, Hafnarfirði og Jón P. Jóns-
son, skrifstofumaður hjá
Hvannbergsbræðrum.
Skipafrjettir: Brúarfoss fer
frá Höfn í dag 12. 11. til Rv.
Lagarfoss er í Gautaborg. Sel-
foss kom til Leith í gær 11.
11. frá Rvík. Fjallfoss fór frá
Hull 9. 11. til Rvíkur. Reykja-
foss er á Dagverðareyri í dag.
Salmon Knot fór frá Reykja-
vík 28. 10. til New York. True
Knot fór frá Halifax í gær 11.
11. til Rvíkur. Becket Hitch
hleður í New York síðari hluta
nóvember. Anne fór frá Rvík
9. 11. til Hafnar og Gauta-
borgar. Lech er á ísafirði í dag.
Horsa er væntanleg til Seyð-
isfjarðar í kvöld, fer þaðan til
Leith. Lublin hleður í Antwerp
en um miðjan nóv.
ÚTVARPIÐ í DAG: .
8.30— 9,00 Morgunútvarp.
12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30— 16,30 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 2. fl.
19,00 Þýskukensla, 1. fl.
19,25 Þingfrjettir.
20,00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka: a) Kristján
jjS' j
Eldjárn magister: Silfursjoð-
urinn frá Gaulverjabæ. —
Erindi. b) Kvæði kvöldvök-
unnar. c) Vilhjálmur Þ.
Gíslason: Frá Ásgrími Jóns-
syni og málaralist hans. d)
Guðrún Jónsdóttir frá Prest-
bakka: Sögukafli.
2205 Tónleikar: Harmonikulög
(plötur).
Frh. af bls. 1
Ekki gert betur.
Churchill sagði, að þjóð-
stjórn hefði varla gert betur,
en jafnaðarmannastjórnin, sem
nú situr að völdum. Aftur á
móti sagði hann að íhaldsflokk
urinn gæti ekki borið neina á-
byrgð á Potsdamsáttmálanum,
því þar hefðu málin verið þrif
in úr höndum hans, þegar mest
á reið að vel væri frá þeim
gengið. Churchill bætti því við,
að þrátt fyrir þetta, væri nú
ástandið þannig, að 18 mán.
eftir uppgjöf Þjóðverja og
meira en ári eftir ósigur Jap-
ana, sje enn dimmt yfir heim-
inum og hann á ringulreið, og
að engin veruleg bót á þessu á-
standi væri sjáanleg í nánustu
framtíð. Churchill sagði að lok
um, að mest af öllu riði á,
hvernig farið væri með Þýska-
land. Sagði hann að sigurveg-
ararnir hefðu enn ekki ráðið
fram úr því vandamáli að láta
70—80 miljónir af duglegasta
fólki Evrópu sitja auðum hönd
um.
Ræða Attlee
Attlee byrjaði ræðu sína með
því að tilkynna, að eftir árslok
1948 yrði herskyldutími Breta
eitt og hálft ár. Sagðist hann
vona að hægt yrði að stytta tím
ann síðar. Hann sagði að bráð-
nauðsynlegt væri fyrir Breta
að allt varalið þeirra hefði feng
ið falla þjálfun, vegna þess að
landinu væri sjerlega hætt í
í nútímahernaði. Sagði Attlee,
að Bretar hefðu altaf áður haft
alllangan undirbúningstíma
undir stríð, en nú væri hann
ekki fyrir hendi, ef stríð skyldi
skella á.
tuuiumiimmmiimmiimiiummiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmimun
''tiiimiiiiiimmmiimmiimiiim
Tilkynning
ZION
Hafnarfirði
Samkoma í kvöld kl. 8.
Reykjavík í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
UPPLYSINGA- og
HJÁLPARSTÖÐ
Þingstúku Reykjavíkur er op-
in á mánudögum, naiðvikudög
um og föstudögum, frá kl. 2—
3,30 e. h. í Templarahöllinni
við Fríkirkjuveg.
Aðstoð og hjálp verður
veitít, eftir því sem föng eru
á, öllum þeim, sem í erfiðleik
um eiga vegna áfengisneyslu
sín eða sinna. -— Mcð öll mál
er farið sem einkamáL
Tundurdufl slædd
við Albanfusfrendur
London í gærkveldi.
BRESK herskip hafa byrj-
að að slæða upp tundurdufl
úr sundinu milli Aibaníu-
stranda og eyjarinnar Corfu,
þar sem tveir breskir tundur-
'spiliar rákust á tundurdufi a
dögunum og löskuðust en
mikið manntjón varð.
Albanar hafa mótmælt þessu
og sagt að það væri móðgun
við albanska ríkið, ef erlend
herskip slæddu tundurdufl í
landhelgi þess. Hafa Albanar
kvartað um þetta við samein-
uðu þjóðirnar. Alþjóðanefnd
sú, sem fer með tundurdufla-
slæðingar, og þar sem bæði
Bretar, Bandaríkjamenn og
Rússar eiga fulltrúa, hafði áð
ur ákveðið að Bretar skyldu
hreinsa þetta sund, enda eru
ekki aðrir tundúrdufláslæðar
þarna fyrir hendi en breskir.
— Reuter.
Áætlunarferðir á leiðinni Reykjavík—Sand-
gerði verða framvegis:
Rrá Reykjavík kl. 10 árd. og kl. 1 s.d.
Frá Sandgerði kl. 1 og kl. 5 s.d.
Farþegum skal sjerstaklega bent á hina
hentugu ferð frá Reykjavík kl. 10 árd.
Bifreiðastöð Steindórs
Móðir mín,
ÞORGERÐUR BRYNJÓLFSDÓTTIR,
andaðist 11 þessa mánaðar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður Árnason.
Bróðir minn og mágur minn,
JÓN ÁRNASON, skipstjóri,
andaðist á Landakotsspítala, 11. þ. m.
Tilkynnist hjer með fyrir hönd okkar og
annarra vandamanna.
Vigdís Árnadóttir, Ingólfur Lárusson.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir
ÞÓRHALLUR EINARSSON, trjesmiður
andaðist að St. Jósefsspítala þriðjud. 12. nóv.
Jóhanna Bergmann,
börn, tengdadóttir og barnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
andaðist 12. þ.m. að Elliheimilinu Grund.
Rannveig Jónsdóttir, Helgi ívarsson.
Kristín Samúelsdóttir, Elías Jónsson.
Jarðarför föður okkar,
ALBERTS JÓNSSONAR,
frá Stóru-Völlum
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14.
þessa mánaðar, kl. 2 eftir hádegi.
Kirkjuathöfninni verður útvarpað.
Aðalbjörg Albertsdóttir,
Halldór Albertsson.
Alúðar hjartans þakkir færi jeg skyldfólki,
vinum og kunningjum, fyrir alla hjálp og
vinsemd, við andlát og jarðarför mannsins
míns,
ÞÓRARINS BRYNJÓLFSSONAR, vjelstj.
Sjerstaklega vil jeg þakka fóstursystkinum
hins látna íyrir allt, íyr og síðar.
Þórunn Bjarnadóttir,
Mánagötu 3, Keflavík.
-i.’ipj
Innilegt þakklæti til allra þeirra er auð-
sýndu samúð, við andlát og jarðarför eigin-
manns míns.
JÚLÍUSAR ODDSSONAR,
Hrísey.
Fyrir mína hönd, barna minna og annarra
vandamanna
Sigríður Jörundsdóttir.
3