Morgunblaðið - 08.02.1947, Side 5
i Laugardagur 8. febr. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
5
MrjeS Srá Miþimgi:
Valdataka ríklsstjórnarinnar — Þjóðnýting
framfærslulöggjöf —
til páska
kvikmyndahúsa —
inghald
MERKASTI viðburður þess-
iarar viku á Alþingi var valda-
taka hinnar nýju ríkisstjórnar.
Stundvíslega kl. tvö á miðviku-
dag gekk ráðuneyti Stefáns Jóh.
Stefánssonar í þingsalinn og
settist í ráðherrastólana. Fyrr-
verandi ráðherrar höfðu nú tek
ið sjer sæti á þingbekkjum og
litu öldungis út sem aðrir þing-
menn. Yfir hinum nýu ráðherr-
um hvíldi hinsvegar virðuleiki
og tign fyrsta stjórnardagsins.
Aðeins einn ráðherra, Emil
Jónsson, átti sæti í fráfarandi
Btjórn.
Aldur ráðherranna.
Allir hinir nýju ráðherrar
eru menn á besta starfsaldri.
Forsætisráðherrann Stefán Jóh.
Stefánsson, er 52 ára gamall,
fjármálaráðherrann, Jóhann Þ.
Jósefsson, 61 árs, atvinnumála-
ráðherrann, Bjarni Ásgeirsson,
Ö5 ára, samgöngumálaráðherr-
ann, Emil Jónsson, 44 ára,
mentamálaráðherrann, Ey-
steinn Jónsson, 40 ára og utan-
ríkisráðherrann, Bjarni Bene-
diktsson 38 ára að aldri. Er
hann yngsti maður ráðuneytis-
ins.
Athöfnin, er hin nýja ríkis-
stjórn kynnti sig þinginu, fór
hið virðulegasta fram. Vel flest
ir þingmenn voru á fundi og
áheyrendapallar og hliðarher-
bergi þingsins troðfull.
Stjórnarstefnan.
Forsætisráðherra flutti boð-
skap stjórnarinnar í rúmlega
hálftíma ræðu. Meginatriði
hennar er að nýsköpunarfram-
kvæmdum fráfarandi stjórnar
skuli haldið áfram. Utanríkis-
stefnan verður hin sama, stefn-
an í dýrtíðarmálunum óbreytt.
Vöruverð skal greitt niður,
þannig að vísitalan hækki ekki
frá því sem nú er. Engar nýjar
ráðstafanir í dýrtíðarmálunum
eru ráðgerðar. Til þess að
tryggja rjett framtöl til skatts
og afla fjár til nýsköpunar verði
sett'löggjöf um eignakönnun og
skyldulán. Gerðar verði ráð-
stafanir að eignakönnuninni lok
inni, og í sambandi við hana til
þess að hafa betra og öruggara
eftirlit með skatta framtölum,
enda fari þá og fram heildar-
endurskoðun á skattalöggjöf-
inni.
Þetta er kjarni stjórnarstefn-
unnar. Er hann í öllum aðal-
atriðum í samræmi við stefnu
fráfarandi stjórnar enda standa
tveir sömu flokkarnir að þess-
ari stjórn og þeirri, er Ijet af
völdum. Framsóknarflokkurinn
hefir aðeins komið í samstarfið
í stað Sósíalistafíokksins.
Framtíðin mun skera úr um
það, hvernig hinnj nýju stjórn
farnast að framkvæma hina
ýtarlegu stefnuskrá sína. En
hvort sem menn eru ánægðir
<eða ekki með hina nýju sam-
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, utan-
ríkis- og dómsmálaráðherra, Jóhann Þ. Jósefsson, fjármála-
og sjávarútvegsmálaráðherra. (Ljósm. Mbl. F. Clausen).
stjórn, hlýtur þó þing og þjóð
að fagna því að tekist hefir að
mynda ríkisstjórn á þingræðis-
legan hátt. Þessi stjórn, mun,
eins og allar ríkisstjórnir, fyrst
og fremst verða dæmd af verk-
um sínum. Málefnasamningar,
þótt myndarlegir sjeu, fyrnast
og falla í gleymsku. En verkin
standa eftir og bera vott atorku
og framsýni eða athafngleysi og
doða. Verkin tala.
Þjóðnýting kvikmyndahúsa.
Fyrir nokkru er fram kom-
ið frumvarp í Ed. um Kvik-
myndastofnun ríkisins. Flm.
þess er Hannibal Valdimars-
son.
Aðalatriði frv. eru þessi:
Á vegum ríkisins skal reka
stofnun, er ein hefir með hönd-
um innflutning kvikmynda og
rekstur kvikmyndahúsa. Stofn-
unin heitir Kvikmyndastofnun
ríkisins. Hún skal undanþegin
hverskonar sköttum til ríkis og
sveitarfjelaga.
- Frá þeim tíma, er Kvikmynda
stofnun ríkisins hefir starfsemi
sína, er einstaklingum, fyrir-
tækjum og stofnunum, hvar
sem er á landinu, óheimilt að
reka kvikmyndahús. Mennta-
málaráðherra er heimilt að láta
taka eignarnámi fyrir Kvik-
myndastofnun ríkisins kvik-
myndahús þau, sem rekin eru
þegar lög þessi taka gildi. Við
eignarnámið koma til greina
húseignirnar sjálfar ásamt vjel-
um, innanstokksmunum og öðr-
um tækjum, og skal miða mat-
ið við það eitt.
Stofnunin skal taka til starfa
eigi síðar en 1. jan. 1948.
skal varið til þess að styrkja
leiklist, hljómlist og aðrar skyld
ar listgreinar. Af því tilefni
mun stjórn tónlistarsýningar-
innar hafa fengið flm. frv. til
þess að ræða það við gesti sýn-
ingarinnar eitt kvöld hennar.
Er undirrituðum að því mikill
harmur að hafa ekki getað hlust
að á það erindi, sem vafalaust
hefir haft mikið menningargildi
ef að líkum lætur, sjerstaklega
ef tónlist ódauðlegra. meistara
mjög villtir vega, sem telja að
hið opinbera hafi lítinn hagn-
að af rekstri kvikmyndahúsa.
Hið sanna í málinu er, að kvik-
myndahúsrekstur er skattlagð-
ur meira en almennt gerist um
atvinnurekstur. Meginhluti
hagnaðar hans rennur til ríkis
og bæja, þ. e. a. s. hjer í Reykja
vík. Vestur á ísafirði hafði
bæjarsjóður hinsvegar aðeins
17. þús. kr. tekjur af bíórekstri
árið 1946 og önnur ár minna.
Þar er rekið stórt kvikmynda
hús, sem verkalýðsfjelögin eru
talin eiga og bæjarsjóður fær
aðeins mjög lága prósenttölu af
hagnaði þess. Þar hefir flm. fyrr
greinds frv. og flokksbræður
hans, barist harðri baráttu gegn
því að bæjarfjelagið fengi að
leggja sætagjald á kvikmynda-
húsið. Um hagnað verkalýðs-
fjelaganna af rekstri þess liggja
ei^ar skýrslur fyrir þrátt fyr-
ir ítrekaðar fyrirspurnir um
hann. Á ísafirði rak bærinn
sjálfur um skeið kvikmynda-
hús en tapaði á því.
Um þetta frumvarp skal að
öðru leyti ekki fjölyrt á þessu
stigi málsins. Á það er þó rjett
að benda að mjög virðist sú
tillaga þess, að svipta bæjar-
fjelögin öllum tekjum af kvik-
myndahúsrekstri, vanhugsuð.
Tekjustofnar bæjarfjelaganna
eru sannarlega ekki of gildir.
hefir hljómað á undan því og
eftir!
Samkvæmt frv. skal 5 manna
kvikmyndaráð, er Alþingi kýs
eftir kosningar, stjórna hinni
nýju ríkisstofnun. Framkvæmd
arstjóra hennar skipar mennta-
málaráðherra og ber hann tit-
ilinn, kvikmyndastjóri ríkisins.
Gamalt deilumál.
Hjer er komið að gömlu
deilumáli. Því mun áður hafa
verið hreyft á Alþingi að þjóð-
nýta bæri rekstur kvikmynda-
húsa á einn eða annan hátt.
Meginrökin fyrir þeirri stefnu
hafa verið þau, að svo mikill', M-*ÖS óeðlile§t virðist að ríkið
gróði væri af þessum atvinnu- jeitt níóti arðsins af Þessum
rekstri að ekki væri ástæða til1 relisl;ri-
þess að láta hann renna í vasa
einstaklinga heldur bæri að
verja honum til almennings-
heilla, stuðnings, við listir og
önnur menningarmál.
Rekstur kvikmyndahúsa hef-
ir vafalaust verið arðvænlegur
k r \
atvinnurekstur undanfarin ar
hjer á landi eins og ýmsar aðr-
ar atvinnugreinar. En það er
athugandi í þessu sambandi,
hvernig skattgreiðslum kvik-
myndafyrirtækja er háttað nú,
hversu miklar tekjur hið opin-
bera, ríki og bæjarfjelög hafa
af honum. Jeg hefi aflað mjer
upplýsinga um, hve mikið tvö
stærstu kvikmyndahúsin 'hjer í
Reykjavík, hafa s. 1. 6 ár greitt
í opinber gjöld.
Gamla Bíó hefir á árunum
1940—1946 (árslok) greitt rúm-
léga 3,3 milj. kr. í skemmtana-
skatt, leyfis- og sætagjald tekju
skatt og stríðsgróðaskatt. Af
þeirri upphæð hafa rúmlega
800 þús. kr. runnið í bæjarsjóð
Reykjavíkur, sem sætagjald og
útsvar. \
Nýja Bíó hefir á sama tíma
greitt sömu gjölcl, samtals rúm-
lega 2,5 milj. kr. Af þeirri upp-
hæð háfa rúmlega 640 þús. kr.
runnið til bæjarsjóðs sem sæta-
gjald og útsvör.
Þessi tvö kvikmyndahús hafa
þannig á þessu tímabili greitt
tæpar 6 milj. kr. til bæjar og
ríkis. Þeir menn fara þessvegna
Húsaleigulöggjöfin.
Framleiðsla þingsályktunar-
tillagna stendur með miklum
blóma á þingi um þessar mund-
ir. Frjósamastir í flutningi
þeirra eru þeir Jónas Jónsson,
Hermann Guðmundsson og
Gylfi Þ. Gíslason.
Nýjasta tillaga Jónasar Jóns-
sonar er varðandi húsaleigu-
löggjöfina.
Er hún á þessa leið:
,,Alþingi ályktar að skora á
ríljisstjórnina að leggja fyrir
núverandi Alþingi frumvarp til
laga um gagngerða breytingu á
húsaleigulöggjöf landsins, þar
sem byggt verði á þeim undir-
stöðu atriðum, er nú skal
greina:
1. Húseigandi á að öðlast
fulla heimild til þess að segja
leigjanda upp húsnæði.
2. Húseigandi skal vera ó-
heimilt að láta íbúðir standa
ónotaðar.
3. Öll húsaleiga í leiguíbúð-
um skal ákveðin a^húsaleigu-
nefnd, þannig að hún sje jafn-
mikil fyrir jafngott húsnæði,
hvort sem húsið er gamalt eða
nýtt.“
Fr amf ærslulögg j öf.
Heilbrigðis- og fjelagsmála-
nefnd Nd. flytur frv. til fram-
færslulaga, mikinn bálk í 75
greinum. Er frv. þetta flutt að
undangenginni heildarendur-
skoðun á framfærslulöggjöf
landsins er samþykkt var' að
játa fram fara er lögin um al-
mannatryggingar höfðu verið
sett.
I greinargerð frv. segir að í
því sje aðeins um eina veru-
lega breytingu að ræða frá því,
sem nú er, þá að 'niður er feld
6. gr. núgildandi framfærslu-
laga en hún er á þessa leið:
„Börn skulu, svo sem þau eru
fær um, ala önn fyrir foreldr-
um sínum, cg mega foreldrar
ekki verða framfærsluþurfar
meðan þau eiga börn á lífi, sem
eru þess umkomin að ánnast
þau. Á sama hátt skulu for-
eldrar ala önn fyrir börnum sín-
um 16 ára og eldri. Sama skylda
hvílir á kjörforeldrum og kjör-
börnum.“
Breyting þessi er talin leiða
af setningu hinna nýju trygg-
ingalaga og er elli- og sjúkra-
tryggingunni ætlað að ber.a
þann kostnað, er af fyrrgreindu
ákvæði leiddi.
Þinghald til páska?
Vegna þess að afgreiðsla fjár-
laga gat ekki orðið lokið fyrir
áramót fjekk ríkisstjórnin laga-
heimild til þess að annast
greiðslur úr ríkissjóði fram til
1. mars. Nú þykir sjeð að af-
greiðslu fjárlaga fyrir árið
1947 verði ekki lokið fyrir þann
tíma. Mun því fjármálaráð-
herra hafa í hyggju að bera
fram nýtt frv. um framleng-
ingu heimildarinnar. Annars
mun það nú áform ríkisstjórn-
arinnar að hraða þingstörfum
svo sem verða má. Fremur virð
ist þó ólíklegt að þingi verði
lokið fyrir páska. Löggjöf þarf
að setja um ýms atriði í mál-
efnasamningi stjórnarinnar,
svo sem um fjárhagsráð, sem
ætlað er að taka við störfum
viðskiptaráðs og nýbyggingar-
ráðs. Taka því mjög að styttast
lífdagar þessara tveggja virðu-
legu ráða. En upp af leiðum
þeirra mun rísa eitt hið volcl-
ugasta ráð, sem íslendingar
hafa augum litið.
Alþingi, 7. febr. 1947.
S. Bj.
Hoover í Berlín
Berljn í gærkvöldj.
HERBERT Hoover, fyrver-
andi Bandaríkjaforseti, kom
til Berlín frá Miinchen í gær
og*átti strax viðtal við breska
og bandaríska embættismenn
Hoover ferðast um Þýska-
land og Austurríki, sam-
kvæmt beiðni Trumans for-
seta, til að kynna sjer ástand
ið 1 þessum löndum.
Á fundi hans og embættis-
mannanna í dag um matvæla
ástandið í Þýskalandi einkum
hafa verið rætt. — Reuter. —<
Reuter. _j