Morgunblaðið - 19.03.1947, Side 1
34. árgangur
65. tbl. — Miðyikudagur 19. mars 1947.
ísafoldarprentsmiðja h.f.
LEYNISAMNINGUR STÖRVELDANNA í YALTA
SENDIHERRAFRÚ Ágústa Thors skírir Skymasterflugvjel AOA
. Flagship Reykjavík“ í Washington. — Grein um komu flug-
vjelarinnar á bls 2. (Ljósm. AOA).
Illý uppreisn í breska verka-
mannaflokknum í aðsigi
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
NÝ „UPPREISN“ innan Verkamannaflokksins breska gegn
rikisstjórninni er í uppsiglingu, en eins og kunnugt er, gerðu
um 40 flokksmenn uppsteit nýlega vegna utanríkisstefnu Be-
vins. Að þessu sinni er það herþjónustufrumvarpið, sem mætir
mótspyrnu innan flokksins. Á morgun verða breytingartillögur
við herþjónustufrumvarpið til umræðu í breska þinginu og er
þá búist við átökum. Breytingartillögurnar fara fram á að her-
skyldulögin sjeu með öllu feld úr gildi.
-«>
IVColotov segir frá
ákvörðunum um skaða-
bótakröfur á hendur
Þjóðverjum
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
MOLOTOV hefir skýrt frá leynisamningi, sem gerður var á
fundi „hinna þriggja stóru“ <Roosevelt, Churchill og Stalin) í
Yalta á Krímskaga í febrúarmánuði 1945. Fjallaði þessi samn-
ingur um hvernig haga skyldi skaðabótakröfum á hendur Þjóð-
verjum að styrjöldinni lokinni. Þetta er annar leynisamningur
frá þessari ráðstefnu, sem komið hefir í dagsins ljós. Hinn var
samninguidnn um að Rússar segðu Japönum stríð á hendur, er
styrjöldinni í Evrópu væri lokið.
"^Áttu að greiða alt tjón.
Konsúll Rússa í
Shanghai biður
um vernd
Shanghai í gærkv.
RÚSSNESKI konsúllinn í
Shanghai hefir snúið sjer til
fulltrúa utanríkisráðuneytis
Kína þar í borg og farið fram
á, að hann geri ráðstafanir til
þess að öryggi sitt sje trygt og
að utanríkisráðuneytið ábyrg-
ist það. Sje farið fram á þetta
sökum vaxandi Sovjethaturs
almennings þar 1 borginni.
Che Kuo Lien5 sem er full-
trúi utanríkisráðuneytisins i
borginni, fullvissaði Rússann
um, að alt skyldi gert til að
koma í veg fyrir, að hann yrði
fyrir óþægindum. En hinsveg-
ar gat hann þess, að það væri
ómögulegt að stöðva almenn-
dng í því að sína þjóðernistil-
finningar sínar, ef það væri
gert án þess að lög landsins
væru brotin.
•— Reuter.
Hin mestu harðindi
á Seyðisfirði
Bærinn er kolaiaus.
Seyðisfirðú þriðjudag.
Frá frjetaritara vorum.
MESTU harðindi, sem komið
hafa hjer í fjöldamörg ár, hafa
verið undanfarinn mánuð. Sí-
feld snjókoma og frost daglega
frá 5—12 stig.
Inflúensufaraldur er mjög út
breiddur í bænum. Er hann held
ur vægurj þótt margir fái hita
um stundar sakir. Þar á ofan
bætist, að bærinn, sem hefir
einkasölu á kolum, á ekki kóla-
blað til.
Ræðismenn islands
boðnir á fund
Þjóðræknisfjelags-
ins
ÞJÓÐRÆKNISFJELAG Vest
ur-íslendinga heldur skemmti-
fund í Oddfellowhúsinu í kvöld
og hefir ræðismönnum íslands,
sem komu frá Ameríku í gær,
verið boðið á fundinn sem heið-
ursgestum.
Jóhann Þ. Jósefsson, fjármála
ráðherra flytur ræðu, Anna Þór
hallsdóttir syngur einsöng, og
Vigfús Sigurgeirsson sýnir kvik
myndir í eðlilegum litum. Að
lokum verður svo dansað til
klukkan 2.
Fundur uppreisnarmanna.
Þingmenn í verkamánnafl.
breska, sem eru á móti her-
skyldulögum á friðartímum,
hjeldu með sjer fund í þing-
inu í dag, en þeir eru nú um
40 talsins. Sumir þessara þing
manna eru á móti herskyldu-
lögunum vegna þess að þeir eru
yfirleitt þeirrar skoðunar, að
herinn eigi að minka niður í
fáment lið, en aðrir eru á móti
herskyldulögunum vegna þess,
að þeir eru þeirrar skoðunar,
að hægt sje að nota mannafla
í betri þarfir fyrir þjóðina, en
að æfa unga menn í vopna-
burði. Loks eru þeir, sem telja,
að herskylda á friðartímum sje
andstæð stefnu verkamanna-
flokksins.
Breytingartillögurnar.
Einn af þingmönnum verka-
mannaflokksins, Ian Mikardo,
leggur til að herskyldufrum-
varpið verði felt vegna þess,
að verði það samþykt, þá verði
herstyrkur -landsins í öfugu
hlutfalli við þarfir þjóðarinnar.
Aðrar breytingartillögur,
sem ganga í þá átt, að fella
frumvarpið, eru frá frjálslynd-
um þingmönnum.
Gríska sljórnin
heldur fram rjelii
smáþjóðanna
Aþenu í gær.
GRÍSKI ambassadorinn í
Moskva hefir sent utanríkis-
herrafundinum orðsendingu,
á vegum stjórnar sinnar, þar
sem svo er að orði komist, að
gríska stjórnin sje þeirrar
skoðunar, að árangur fundar
ins myndi verða betri, ef leyft
yrði að smáþjóðirnar hefðu
fulltrúa á fundinum til að
fylgjast með hvað þar gerist.
— Reuter.
Uppreisnin í Para-
guay breiðisi
enn út
Buenos Aires í gær.
STJÓRNARHERINN í Para-
quay hefir nú örugglega á sínu
valdi norðausturhluta Para-
quay, sem að landflæmi til er
um 1/8 alls landsins. En sam-
kvæmt frjettum hefir upp-
reisnarmönnum tekist að ná á
sitt vald öðrum landsvæðum
síðustu daga, en 11 dagar eru
liðnir síðan uppreisnin hófst.
Það er einkum við landamæri
Parapuay og Brailíu, sem upp-
reisnarmönnum hefir tekist að
ná fótfestu. Ríkisstjórnin hef-
ir höfuðborgina, Asuncion, á
sínu valdi, en aðalborgin, sem
uppreisnarmenn hafa, heitir
Concefegin. Báðir aðilar telja
sjer sigur í tilkynningum sín-
um í dag, en stjórnin viður-
kennir nú, að uppreisnarmenn,
sem hún í fyrstu ætlaði 300
sjeu alls um 3000 talsins. Upp-
reisnarmenn segja hinsvegar
að þeir hafi 30.000 manns und-
ir vopnum.
— Reuter.
Utanríkisráðuneyti Breta og
Bandaríkjamanna hafa viður-
kent, að rjett sje hermt hjá
Molotov, að slíkur leynisamn-
ingur hafi verið gerður í Yalta,
er deilt var um það hvort hann
sje enn í gildi, þar sem ný á-
kvæði um skaðabótaskyldur
Þjóðverja voru samþykkt síðar
á Potsdamráðstefnunni.
Samkvæmt leynisamningun-
um var ákveðið að Þjóðverjar
greiddu í raunverulegum verð-
mætum skaðabætur til allra
þeirra bandamannaþjóða, sem
urðu fyrir tjóni af hendi Þjóð-
verja í styrjöldinni.
Verða að vera
sjálfum sjer nógir.
Nokkrar umræður urðu um
þetta mál á fundi utanríkisráð-
herranna í dag. Bevin hjelt því
fram, að það væri nauðsynlegt,
að leyfa Þjóðverjum að hafa
svo mikið handa á milli til
framleiðslu, að þeir yrðu ekki
öðrum þjóðum til byrði vegna
gjaldeyrisvandræða. Það yrði
að stefna að því að Þjóðverj-
ar flyttu út fyrir það, sem svar
aði gjaldeyrisþörf þeirra til
brýnustu lífsnauðsynja.
Það væri langt frá, að þeir
gætu það nú, en ver ættu þeir
með það, ef gengið yrði svo
hart að þeim í skaðabótakröf-
um, að þeir gætu ekki fram-
leitt neitt til útflutnings, vegna
þess að búið væri að flytja
verksmiðjur úr landi og taka
framleiðslutæki upp í stríðs-
skaðabætur. n
Tillaga Frakka.
Tillögur Frakka í sambandi
við fjárhagsmál Þjóðverja voru
á þá leið, að flytja bæri kol
frá Ruhr til Lothringen og til
Frakklands til þess að Frakk-
ar fengju betri aðstöðu til stál-
framleiðslu en þeir hafa nú en
aðeins bæri að leyfa litla iðn-
aðarframleiðslu innan Þýska-
lands.