Morgunblaðið - 28.03.1947, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 28. mars 1947
Gjöf fil forsetafrúarinnar
HraÖpressan
affur í kvöld
í ÞRJIJ kvöld hefir Lárus
Ingólfsson leikari, Sigríður Ar-
mann listdansari og Pjetur
Pjetursson þulur skemt í Sjálf-
stæðishúsinu fyrir fullu húsi
og miklum fögnuði áheyrenda.
Og af sjerstökum ástæðum hafa
þau fengið húsið aftur í kvöld
og mun það verða gleðiefni fyr
ir hina fjöldamörgu, sem frá
hafa orðið að hverfa undan-
farin kvöld sökum rúmleysis.
í gærkveldi ætlaði fagnaðar-
látunum aldrei að linna þegar
listamennirnir komu fram og
svo mun einnig verða i kvöld.
Landsffokksglíman
erí
Þetta er „Spettkakan“, sem Vilhjálmur Finsen, sendiherra í
Stokkhólmi sendi frú Georgiu Björnsson forsetafrú með fyrstu
ferð AOA frá Stokkhólmi. Á myndinni sjást, talið frá vinstri:
Mr. William Hipplc, upplýsingadeildarstjóri AOA á Norðurlönd-
um, Vilhjálmur Finscn scndiherra og Mr. Lestrade Brown for-
stjóri í Evrópudeild AOA.
„Spettkaka" til
íorsetafruarínnar
Var fyrsta sendingin með AOA flugvjelinni
frá Sfokkhólmi
ÞEGAR sænsku og norsku
blaðamennirnir, sem A.O.A.
hafði 'boðið til íslands, sem
fyrstu farþegum hinna nýju
flugferða milli Stokkhólms og
Ameríku, kom til Keflavíkur,
hafði flugvjelin einnig með-
ferðis sjaldgæfa sendingu til
forsetahjónanna •— eða til
forsetafrúarinnar, rjettara
sagt. Vilhjálmi Finsen, sendi-
lierra, langaði til að minnast
þessa merkilega viðburðar í
samgöngum vorum við aðrar
þjóðir, sem þessar föstu
flugferðir óneitanlega marka,
með því að senda forseta-
hjónunum eitthvað „typiskt“
sænskt.
Það „typiskt" sænska, sem
Finsen sendi, var heljarstór
svokölluð ,„spettkaka“, rúm-
lega 3 fet að hæð og kváðu
slíkar kökur vera sjerstak-
lega Ijúffengar, en frekar
þungar í maga. f kökuna til
forsetahjónanna fóru m.a.
rúmlega 60 egg. En til allrar
hamingju eru eggin ekki
skömtuð í Svíþjóð.
„Spettkökurnar" eru búnar
til á Skáni og þaðan kom
kaka Finsens. Hún var í sjer-
stökum umbúðum og kom
væntanlega óskemd fram að
Bessastöðum.
Þegar Finsen, kl. sjö að
morgni fyrri miðvikudag fór
vit á flugvöllinn við Stokk-
hólm, hafði hann kökukass-
anp með sjer og um leið og
hann kvaddi sænsku blaða-
mepnina og óskaði þeim góðr-
ar iferðar og ánægj ulega veru
hjér heima sagði hann þeim
frá sendingunni til forseta-
hjónanna og bætti við, um
leið og og kakan var borin
inn í flugvjelina: „Guð hjálpi
ykkur piltar, ef þið jetið af
kökunni á leiðinni, forseta-
frúin mundi aldrei gleyma
því!“
Vonandi líkar „spettkakan“
vel að Bessastöðum!
Landsflokkaglíman hefst í
íþróttahúsinu við Hólogaland
í kvöld kl. 9 e. h. Keppt verður
í þremur þyngdarflokkum og
verður hörð keppni í þeim öll-
um. Takast þar á margir hestu
glímumcnn landsins.
Myndin hjer að ofan er af
Guðmundi Guðmundssyni, en
hann er einn af þeim, sem
keppir í þyngsta flokkinum og
einn skemmtilegasti glímumað-
ur landsins.
Um 400 keppendur í
meistaramóti í handknattleik
MEISTARAMÓT ÍSLANDS í handknattleik innanhúss
hefst á morgun í íþróttahúsinu við Hálogaland. Á mótinu
verður alls keppt í sex flokkum, tveimur kvennaflokkum
og fjórum karlaflokkum. Níu íþróttafjelög taka þátt í
mótinu og senda alls um 40 lið. Einstakir keppendur verða
um 400.
Kept verður í meistaraA
flokki karla og kvenna, í 2.
flokki kvenna og 1., 2. og 3.
flokki karla.
Ármann og Haukar taka
þá^t í öllum flokkunum, f.R.
og K.R. í öllum, nema 2. fl.
kvenna, F.H. í öllum, nema 1.
flokki karla og Fram í öllum,
nema 1. og 3. flokki karla,
Víkingur keppir í meistara-,
1. og 2. flokki karla, íþrótta-
samband Akraness í meist-
araflokki kvenna og 2. og 3.
flokki karla og Valur í
meistara- og 2. flokki karla.
Meistaraflokknum, 2. og 3.
flokki karla, eða í þeim flokk-
um, þar sem sex lið eru eða
þau lið, sem vinna í riðlun-
um keppa síðan til úrslita. í
hverju liði mega vera 10
menn, en þó ekki fleiri en 7
á gólfinu í einu.
í meistaraflokkj kvenna
eru Haukar, Ármann, f.B.Ak.
og Fram í A-riðli, en ÍR, FH
og K.R. í B-riðli. í meistara-
flokki karla eru Haukar, Val-
ur, K.R., og Ármann í A-riðli,
en Víldngur, Í.R., Fram og
F.H. í B-riðli.
Mótið hefst kl. 4 á morgun
og heldur áfram kl. 8 e. h.
Það heldur svo áfram á sunnu
dag, mánudag og þriðjudag,
en verður þá frestað til 8.
Frá Vibro-verksmiðjunni
smiðju norður á Akureyri. —•
Gat hann þess, í sambandi
við þetta, að mikill hluti allra
nýbygginga þar um slóðin
væru hlaðnar úr steini. Þörf-
in fyrir nýbyggingar væri
þar mikil og sama væri að
segja um nærsveitir þar og
annarsstaðar Norðanlands.
fleiri, er skipt í tvo riðla, en apríl og líkur 15. apríl.
Efni í 100 ferm hús úr Vibro-
steini kostar nærri 0 fiiís. kr.
Verksmiðju verður komið upp á Akureyri
SEINT á s. 1. sumri tók til starfa hjer í bænum fyrir-
tæki, sem framleiðir steina til húsagerðar. Fyrirtæki þettá
heitir Vibro h. f. og er verksmiðja þess inn við Fífuhvammi
í Kópavogi.
Framkvæmdastjóri fjelags-1
ins, Örn Guðmundsson, bauð
blaðamönnum í gær að skoða
verksmiðjuna og kynnast
starfrækslu hennar.
Um uppfyndingu Vibro-
steina, sagði örn, að hún væri
komin frá Svíþjóð. Þar í
landi eru nú um 60 slíkar'
verksmiðjur, þá hafa Finnar
komið upp hjá sjer einum 20.
f löndum þeim, sem herjað
var í, í síðustu heimsstyrj-
öld, svo sem Póllandi, Hol-
landi, Tjekkóslóvakíu, Noregi
og Danmörku, hafa margar
Vibroverksmiðjur verið sett-
ar á laggirnar. Þá mun áður
en langt um líður verða sett-
ar upp Vibroverksmiðjur í
Vínarborg, til þess að endur-
byggja borgina, en þar mun
þurfa að byggja alt að 2000
íbúðarhús.
Framleiðslan
Vibrosteinninn er gerður
úr sementi, sandi og vatni og
er ákveðnu lilutfalli fylgt
milli þessara efna. Blandan
er síðan sett í hrærivjel, það-
an í vjel, sem mótar steininn
við vjelhristing, en við það
verður styrkleikinn meiri og
samdráttur í veggjum hverf-
andi. Frá þessari vjel, er
steinninn fluttur til gufu-
herslu, í til þess gerðum klefa
og er hann látinn vera þar í
einn til tvo sólarhringa, en
þaðan er hann fluttur ■ í
geymslustað og látinn standa
uns hann hefur náð nægum
styrkleika. öll framleiðsla
verksmiðjunnar er undir
ströngu eftirliti.
Efni í 100 fermetra hús
Er örn Guðmundsson var
að því spurður hversu marga
steina myndi þurfa til bygg-
ingar á 100 fermetra húsi,
einlyftú, kvað hann til þess
þurfa um það bil 3000 steina
og myndu þeir kosta því sem
næst 6000 krónur og væri
verðið miðað við efni komið
á bíl við verksmiðjuna.
Um einangrunargildi Vibro
steina, sagði örn, að nægja
myndi að klæða innan á stein
vegginn einfalda trjeteks-
plötu á grind og klæða svo
utan á hana með pappa.
Bygt eitt frystihús
Stærsta húsið, sem fjelag-
ið hefur útvegað efni til væri
hraðfrystihús Þórkötlustaða
h.f. í Grindavík, en það hús
er mikið um sig. Áætlaður
byggingakostnaður var tals-
vert minni, en gerður hafði
verið og er slíkt sjaldgæft
nú á dögum.
Verksmiðja á Akureyri.
Að lokum gat Örn Guð-
mundsson, f ramkvæmdast j.
þess, að á þessu ári myndi
> Vibro h.f. láta reisa verk-
— Maivælaaðsfoð
■ Framh. af bls. 1
völd Breta hafa aflað sjer,
benda til þess, að brauðskamt-
ur Júgóslava hafi verið mun
meiri en almennings í Englandi.
Er það tekið sem dæmi, að þeir
Júgóslavar, sem erfiðisvinnu
stunda, hafi til skamm's tíma
fengið 800 grömm af brauði á
Úag. Mun skammtur þessi vera
næstum því helmingi meiri en
skammtur þeirra manna í Bret-
landi, sem stunda erfiðisvinnu.
Þá er og bent á, að Júgóslav-
ar hafi boðið til sölu utanlands
svínakjöt, smjör og alifugla, en
þessar fæðutegundir eru mjög
ríkar af hitaeiningum.
Ávarp lil
ökumanna
frá S.V.F.Í.
AÐ GEFNU tilefni eru
það tilmæli Slysavarna-
fjelagsins, til allra öku-
manna á Islandi, að verði
Iþeir varir við slasaða
menn á vegum úti, þá ?
veiti þeir strax þá aðstoð, I
sem þeir geta í tje látið, I
eða láti vita um slysið.
Ef menn þurfa að stöðva I
bifreið af framangreind- !
um ástæðum skulu þeir f
veifa báðum höndum í ?
kross yfir höfði sjer og í
helst hafa veifu, svo sem E
vasaklút eða trefil, í hönd- E
unUm. Jafnframt eru öku- f
3
menn góðfúslega beðnir }
að taka sjerstaka kall- |
merki til greina.
Slysavarnafjelag íslands. f