Morgunblaðið - 04.06.1947, Blaðsíða 1
16 síður
<»
34. árgangur
122. tbl. — miðvikudagur 4. júní 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Friðarsamningar við Austurríki og Þýskulund
-4>
Gandhi á ierSalagi
Eins og hunnugt er, hafa mihlar óeir&ir geysáS ví&svegar í
Indlandi að undanförnu. Hefur Gandhi ferðast mikiö um
helstu óeirðasvœðin og reynt að stilla til friðar. Hjer sjest
Iiann ásaml nokhrum fylgismönnum sínum, á leiðinni inn í
ónafngreint þorp.
Rússar tefja friðarsamn-
inga við Austurríki
Til þess að halda herjum sínum í
Ungverjalandi og Rúmeníu
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
STJÖRNMÁLARITARAR telja nú, að eittlivað samband sje
á milli stjórnarkreppunnar í Ungverjalandi og tilrauna Rússa
til þess að tefja fvrir því, að gengið sje frá friðarsamningum
við Austurríki. Hversu lítið öryggi ungverskir stjórnmálamenn
telja þinghelgina skapa sjer þar í landi, sjest ljósast á því, að
forseti þingsins hefur nú flúið, og er sagður kominn á „örugg-
an stað fyrir utan landamærin". Eins og kunnugt er, sagði
ungverski forsætisráðherrann af sjer fyrir nokkrum dögum
síðan, og sendi inn lausnáfbeiðni sina gegnum sendiráð lands
síns í Svisslandi.
VILJA EKKI FLYTJA
HEIM HERINN
Frjettamenn telja, að Rúss-
ar tefji meðal annars fyrir
friðarsamningum við Austur-
ríki sökum þess, að slíkir
samningar mundu hafa það í
för með sjer, að þeir yrðu að
flytja herlið sitt úr landinu, og
þá jafnframt frá Uilgverjalandi
og Rúmeníu.
Framh. á bls. 6
HJUKRUNARKONUR TIL
ÁSTARLÍU
London: — Breski heilbrigð-
ismálaráðherrann hefur til-
kynnt, að 315 breskar hjúkrun-
arkonur verði sendar til Ástral-
íu, enda þótt Breta skorti
sjálfa um 30 þúsund sjúkrunar-
konur.
bróðnauðsynlegir
-<$>
31 farasf í fellibyl
New York í gær.
ÞRJÁTÍU og EINN maður biðu
bana í Arkansas, Bandaríkjun-
um, er fellibylur geisaði þar í
gær. Um hundrað manns munu
hafa særst, en meir en 500 eru
heimilislausir.
Þetta er annar fellibylurinn
í Bandaríkjunum á tuttugu og
fjórum klukkustundum. Geis-
aði sá fyrsti í Oklahoma, og
ljetu allmargir menn lífið, en
smáþorp eyðilagðist því nær
algerlega. — Reuter.
Palesfínunefndin
kýs sjer formann
New York í gærkvöldi.
NEFND SÚ, sem á vegum
Sameinuðu þjóðanna á að rann-
saka ástandið í Palestínu og
gera tillögur til úrbóta, kom
saman á fund í New York í gær
kvöldi til þess að kjósa sjer for-
mann. Kosningu hlaut sænski
dómarinn, Emil Sandström. —
Nefndin mun leggja af stað tilj
Palestínu einhvern næstu daga.
Samtök Gyðinga í Palestínu
hafa farið þess á leit við hinn
kunna leiðtoga Zíonista, dr. ^
Weizman, að hann tali máli
þeirra fyrir nefndinni, er hún
tekur til starfa í Palestínu.
— Reuter.
Bandaríkjamenn semja máske
án þátttöku Bússa
WASHINGTON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ARTHUR VANDENBERG öldungadeildarmaður, formað-
ur utanríkisnefndar Bandaríkjaþings, sagði í ræðu í dag, að vel
gæti svo farið, að Bandaríkin neyddust til að gera friðarsamn-
inga við Austurriki og Þýskaland án þátttöku Rúsa. Þá sagði
þingmaðurinn einnig, að verið gæti að koma þyrfti á alþjóða-
ákvæðum um eftirlit með atomorkunni, án samþykkis rússn-
esku stjórnaririnar. -
Skæruliðaárás
undirbúin í
Júgóslavíu
Aþena í gærkvöldi.
FREGNIR frá Salonika
herma í dag, að tvær öflugar
árásir, sem gerðar voru á borg-
;na Florina, hafi verið undir-
búnar í Júgóslavíu. — Segir í
sömu fregnum, að fulltrúar frá
Tito marskálki hafi verið við-
staddir, er árásirnar voru
skipulagðar.
Gríska stjórnin telur, að
hefði Florina fallið í hendur
uppreisnarmönnum, hafi það
verið ætlun þeirra, að gera
hana að höfuðborg „frjáls
Grikklands". — Reuter.
Knattspyrnan í gær:
* x
Bretar unnu Islendinga með 9:0
ÞAÐ fór eins og margir höfðu öttast, að breska atvinnu-
liðið „Queens Park Rangers“ myndi ekki einungis vinna
úrvalslið Reykjavíkurfjelaganna með yfirburðum heldur
„rótbursta“ það. Kom þar hvorttveggja til, að lið Bretanna
var mjög sterkt en íslendinganna vægast sagt ljelegt.
Lelkurinn endaði með sigri Breta með 9 mörkum gegn
engu.
® Áður en leikurinn hófst voru
þjóðsöngvar Breta og íslend-
inga leiknir, en lítil stúlka færði
fyrirliða Breta á leikvelli lít-
Tillaga um herskyldu
í Bandaríkjunum
Washington í gærkvöldi.
NEFND, skipuð Truman for-
seta, hefir liga til, að herþjón-
usta verði tekin upp í Banda-
ríkjunum á friðartímum. Telur
nefndin, að slíkt mundi efla
gengi Sameinuðu þjóðanna, og
leggur til, að herskyldan nái
til allra, sem náð hafa 18 ára
aldri.
inn blómvönd.
5:0 í fyrri hálfleik.
Það komjstrax í ljós, er Bret-
arnir byrjuðu leikinn, að hjer
voru á ferðinni fyrsta flokks
knattspyrnumenn. íslendingarn
ir voru aftur á móti allástyrkir
og virtust ekki gera sjer fylli-
lega grein fyrir, hvernig þeir
ættu að taka þessum sterku
Framli. á bls. 12
F ri&arsamningar.
Vandenberg ljet þessi orð
falla, er hann flutti ræðu í
sambandi við friðarsamninga
þá, sem þegar hafa verið gerðir
við fimm fyrverandi óvinaríki.
Vandenberg, sem er republik-
ani, sagði og, að vart væri
hægt að bíða mikið Iengur eftir
samvinnu Rússa við að koma á
einhverri reglu í Mið- og Vest-
ur-Evrópu. „Að því hlýtur að
reka“, sagði hann, „að Evrópa
verði ein efnahagsleg og stjórn
málaleg heild“.
ítalía.
Vandenberg upplýsti það og,
að fjölmargir Bandaríkjamenn
eru andvígir því, að ítölsku
friðarsamningarnir verði sam-
þykktir. Hafa margar öflugar
stofnanir snúið sjer til þing-
manna með beiðni um það, að
Bandaríkjaþing neiti að viður-
kenna samningana. En verði
samningarnir ekki samþykktir,
heldur Vandenberg því fram,
að ítalía muni lenda í klóm
kommúnista.
Svih hommúnista.
Vandenberg fór og nokkrum
orðum um ástandið í Ungverja-
landi. Kallaði hann aðgerðir
kommúnista þar í landi svik-
samlega, enda hefðu þeir beitt
sjer fyrir því, að hin lögkjörna
stjórn landsins neyddist til að
segja af sjer. Lagðist Vanden-
berg þó með því, að friðar-
samningarnir við Ungverjaland
yrðu undirritaðir af Banda-
ríkjastjórn.
Ráðsfefna um Japan
Sidney í gærkvöldi.
DR. EVATT, utanríkisráð-
herra Ástralíu, tilkynnti í
kvöld, að sennilega myndu full-
trúar bresku samveldisríkj-
anna, sem þátt tóku í styrjöld-
inni gegn Japönum, koma sam-
an á ráðstefnu í Ástralíu í ág-
ústmánuði n.k. Á ráðstefnunni
mun verða rætt um væntanlega
friðarsamninga við Japani.