Morgunblaðið - 04.06.1947, Side 7

Morgunblaðið - 04.06.1947, Side 7
Jvliðvikudagur 4. júní 1947 MORGUNBLAÐIÐ 7 Tolluhækkunin f Framh. af bls. 5 upplýsinga um, dregin frá meðaltalinu af útgjöldum bú- reikninganna. Eins og endan- lega var gengið frá grundvelli vísitölunnar, skiftust útgjöldin hlutfallslega þannig: Matvörur 44,2% Eldsneyti og ljósm. 7,3% Fatnaður 16,6% Húsnæð 18,2% Ýmisl. útgj. 13,7% Samtals 100,0% Við nánari athugun á um- ræddri neysluskiftingu kemur í ljós, að tollahækkunin mun aðallega snerta útgjaldaliðina fatnað, hluta af „ýmsum út- gjöldum“ og lítinn hluta mat- vælanna, þ. e. a. s. feitmeti (smjörlíki og erlent -smjör), aldin og nokkurn hluta af ný- lenduvörunum, þó ekki þýðing ármiklar vörur eins og kaffi og sykur. En eins og áður er sagt, mun ríkið sennilega greið.a nið- ur þá hækkun, sem verðhækk- un þessara vara kynni að hafa á vísitöluna, með því t. d. að greiða niður verð innlendra landbúnaðarafurða, eða ef sú leið yrði ekki farin, myndi vísi- talan hækka og verkamenn þá fá tilsvarandi kauphækkun. — Undir öllum kringumstæðum ætti því fjölskylda, sem ver tekjum sínum eins og fyrr grein ir, ekki að verða fyrir neinni aukinni tollabyrði. En það er fleira sem lesa má út úr tölum þessu'm, einkum ef borin er saman útgjaldaskift- ing verkamannanna og hinna 10 örlítið tekjuhærri fjöl- skyldna sjómanna og iðnaðar- manna. Kemur þá t. d. í ljós, að verkamenn eyða 41,5% árs- tekjum sínum til kaupa á mat- vælum, en hinar fjölskyldurn- ar ekki nema 37,7% til kaupa á sömu vörum. Til kaupa á fatn aði verja verkamenn ekki nema 13,7%, en hinar fjölskyldurnar aftur á móti 18,2%. Þótt tekju- mismunur þeirra tveggja aðila, er þarna eru bornir saman, sje mjög lítill, verður þó þegar vart verulegs mismunar í skiftingu útgjalda þeirra. Það er hag- fræðilögmál, sem kent er við Engels, sem þarna kemur í ljós. Þáð segir okkur, að því lægri, sem tekjur manna eru, þeim mun meiri hluta tekna sinna verja þejr til kaupa á matvæl- um og öðrum brýnum líjsnauð- synjum og þá öfugt, því hærri sem tekjurnar eru, þeir mun lægri hundraðshluti af tekjum manna fer til kaupa á lífsnauð- synjum. En einmitt þárna er fundin lausnin á gátunni um það, hver raunverulega komi til með að bera hina nýju tolla. Segjum t. d. að verkamanna- fjölskylda myndi verja 50% af tekjum sínum til kaupa á brýn- um lífsnauðsynjum, sem hinir nýju tollar myndu annað hvort ekki lenda á eða verð þeirra vera greitt niður. Aftur á móti myndi efnamaðurinn ekki verja nema t. d. 30% eða það- an af minna af sínúm tekjum til kaupa á Svipuðum vörum. Báðir aðiljar myndu nú, ef rík- ið greiddi t. d. verð innlendra landbúnaðarafurða niður, fá þær uörur ódýrari en áður. — Verkamaðurinn gæti þá ef til vill aukið neyslu sína á þess- um vörum eða a. m. k. fengi hann þarna bætur fyrir þá hækkun, sem yrði á öðrum vör um, sem hann þyrfti að kaupa, en efnamanninum kæmi þetta að litlu haldi sökum þess, að hann þyrfti ekki eða gæti ekki aukið neyslu sína af tjeðurh vör um og þar sem hann ver að- eins litlum hluta tekna sinna 1 til kaupa á þessum vörum, myndi verðuppbótin á þeim verða honum að sama skapi lítilsvirði. í mótsetningu við verkamann inn eyðir efnamaðurinn megin hluta tekna sinna, og þeim mun meir, sem hann hefur hærri tekjur,*til kaupa á vörum, sem tollar munu hækka á, en þær eitt af tvennu eru ekki í vísi- tölunni, eða munu ekki verða greiddar niður. Má þar nefna dýran fatnað, húsgögn, skrautgripi, einkabíla, leikföng o. fl. Munu tekjur hans því nýtast ver til kaupa á þessum vörum og útgjöld hans aukast verulega, ef hann vill halda óbreyttum neyslu- venjum. Með öðrum orðum sagt, það verða ekki verkamennirnir og aðrar láglaunastjettir, sem tolla 1 hækkunina bera, heldur mun hún koma fram sem stighækk- andi (progressiv) skattur á tekjuhærri stjettir þjóðfjelags- ins. Sigurður B. Sig- urðsson ræðis- maður fimtugur SIGURÐUR B. SIGURÐSSON, ræðismaður Breta hjer í bæ, er fimmtugur í dag. — Hann er fæddur í Flatey á Breiðafirði, sonur Björns Sigurðssonar, kaupmanns og síðar bankastj. og konu hans, Guðrúnar Jóns- dóttur. . Að loknu gagnfræðaprófi hjer lagði hann stund á versl- unarfræði í Kaupmannahöfn, Bretlandi og loks á Spáni. —- Hann varð meðeigandi í verslun inni Edinborg árið 1926 og var einn af stofnendum Veiðafæra- gerðar íslands, Fiskimjöl h.f. og fleiri fyrirtækja. Sigurður var settur ræðis- maður Breta hjer í Reykjavík árið 1933 og skipaður árið eftir í það starf, sem hann hefur haft síðan. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í fje- lögum stjettarbræðra sinna, vai’ í stjórn Fjelags vefnaðar- vörukaupmanna og virkur með- limur í fleiri samtökum kaup- sýslumanna. Árið 1944 sæmdi Bretakon- ungur hann orðunni O.B.E. (Officer of British Empire). Sigurður B. Sigurðsson er virtur vel af stjettarbræðrum sínum og öðrum, sem honum hafa kynnst. Hann er hæglynd- ur maður og dagfarsgóður. Kurteis í fornri merkingu þess orðs. Glaður í vinahóp og góð- ur heim að sækja. Einn þeirra manna, sem vill vinna verk sitt í kyrþci og vinna það vel, og má ekki vamm sitt vita í neinu. Sannur gentlemaður. Breska utanríkisráðuneytið er vandað að virðingu sinni og ekki síst þegar það velur fulltrúa sína meðal erlendra þjóða. Það var vandfundinn maður í sæti Ás- geirs Sigurðssonar, cn breska stjórnin vissi hvert hún átti að snúa sjer til að skipa í þá virð- ingarstöðu. Kvæntur er Sigurður Káritas Einarsdóttur, skipstj. í Reykja vík, hinni ágætustu konu. Fteikningshald & endurskoðun Mjóstræti 6 — öími 3028 BEST AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU VINNUSTOFU OG A1 GREÍÐSLU, á góðum stað, vantar mig sem fyrst. August Hákonsson — Skiltagcrði Hverfisgötu 41 — Sími 4896 Velbátur til sölu 35 smálesta vjelbátur með 160 liestafla dieselvjel er til sölu nú þegar. Veiðarfæri sem fylgja eru 70—80 bjóð af línu, 3 trawl og 100 reknet. Bátur, vjel og veiðarfæri í prýðilegu standi. Tilboð óskast send Landssambandi íslenskra útvegs- manna, Hafnarhvoli, Reykjavik. Nótabáta árar 14—15 — 16 feta, einnig allar aðrar stærðir nýkomnar „ Cjeióir 7,/ V eiSarfceradeildin. Sköft á steypuskóflur úr brenni, fyrirliggjandi. Arinbjörn Jónsson, heildverslun Laugaveg 39 Sími 6003 16-18 ára unglingspilt vantar til afgreiðslustarfa strax. Uppl. i búðinni Barma hlíð 8. •♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦,,. Buick 1942 Buick einkabifreið, vel með farin, er til s'ýnis og sölu 1 við Miðbæjarbarnaskólann frá kl. 8—10 í kvöld. 1 bílnum er nýr mótor. Gamli mótorinn fvlgir með. IMýr ísskápur Nýr amerískur isskápur til sölu strax. Tilboð sendist x afgr. Mbl. fvrir föstudagskvöld, merkt: „Strax“. Afgreiðslumann vantar okkur nú þegar, þarf helst að vera vanur. öSufélag garðyrkjumanna Sími 5836. ♦*♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Skrifstofpláss á besta stað i miðbænum til leigu. Tilboð merkt: „Mið bær“, sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld. ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ KELLErS vvvvvvvwxmvy i Hefir notið hyili yfir 100 ár DUNDEE / a _ Marniclaði j 'fý' . *%< * 4 t ^ 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.