Morgunblaðið - 15.06.1947, Síða 1
12 síður og Lesbók
Undirbúa vísindaleiðangur
Danirnir Eigil Knuth og 2bbe Munck, undirbúa nú vísinda-
leiðangur til Græniands. — A myndinni sjest Knuth með
líkan af flugvjel, sem þeir ætla að hafa meðferðis. I væng
vjelarinnar á að vera rúm fyrir iítinn björgunarbát.
Aðeins þrjár þjóðir
meðlimir í öllum síofn-
unum S. Þ.
Rússar aSeins œei í einsni
. Lake Success, New York í gær.
AF HINUM fimm stórveldum heimsins, hafa aðeins Bret-
land og Bandaríkin formlega samþykkt að taka þátt í öllum
hinum sjerstöku stofnunum Sameinuðu þjóðanna, að því er
fregnir frá skrifstofu þeirra herma.
Þátttaka hinna ýnisu þjóða. ;
Rússland er aðeins meðlimur
heilbrigðisstofnunarinnar, en
hún er ein af hinum átta sjer-
stöku stofnunum, sem komið er
á fót til eflingar friði og. ör-
yggi í heiminum.
Frakkland er meðlimur allra
stófnananna nema flugmála-
Stofnunarinnar. -— Kína allra
nema undirbúningsnefndarinn-
ar um stofnun flóttamannar.
Til sameinuðu þjóðanna telj-
ast nú 55 þjóðir, en þáttakend-
ur í einstökum stcfnunum og
ráðum eru sem hjer segir:
I alþjóða verkamálaráðinu
eru 52 lönd, í fræðslu- og
menningarráðinu 30, matvæla-
og landbúnaðarráoinu 47, flug-
málaráðinu 28, alþjóðamyntráð
inu 43, alþjóðabankaráðinu 43.
heilbrigðismálaráðinu 18,' und-
irbúningsnefndinni undir stofn
un flóttamannaráðs 12
Hvíta-Rússland er c-ini með-
limur Sameinuðu þjóðanna,
sem ekki hefur samþykkt þátt-
töku í neinni stofnuninni. —
Kanada cr meðlimur þeirra
allrra.
LONDON: — Tveir breskir
foringjar úr setuliðinu í Jap-
an, brunnu inni fyrir nokkru
síðan, er eldur varð laus í her-
búðum þeim, er þeir höfðu að-
setur í- . C .-.álÍfS!
F O R S E T I íslands, herra
Sveinn Björnsson kom heim í
gærkvöldi með flugvjel. Áður
en hann fór frá Danmörku
lagði hann blómsveig á Minde-
lunden í Ryvangen að viðstödd-
utn kirkjumáiaráðherra Dana,
fulltrúa utanríkisráðuneytisins
einum ráðherra án sjerstakrar
stjórnardeildar, Jakob Möller,
sendi’nerra, Jóni Krabbe og
Tryggva Sveinbjörhssyni.
Forsetinn hefur dvalist ytra
síðan í apríllok, er hann fór til
að vera viðstaddur útför Krist-
jáns konungs tíunda. Síðan fór
forsetinn til Svíþjóðar, þar sem
hann leitaði sjer lækninga og
hefur hann nú fengið fulla bót
meina sinna.
Bevin til Parísar
London í gærkvöldi.
BEVIN, utanríkisráðherra
Breta, fer til Parísar á þriðju-
daginn kemur, þar sem hann
mun ræða við Bidaujt, utan-
ríkisráðherra Frakka, um fyrir
komulag á væntanlegri hjálp
Bandaríkjamanna við Evrópu-
þjóðir. — Reuter.
Ofbeldisflokkar Gyðinga
undirbúa nýja sókn
....... ' —.......
Nýliðar bætast í hópinn
Jerúsalem í gær.
ÞAÐ ER talið hjer meðal manna, sem vel þekkja til, að Stern-
ílokkurinn hafi að undanförnu eflst mikið í Evrópu og standi
nú föstum fótum einkum í Ítalíu og Frakklandi og hafi í huga
stórauknar hernaðaraðgerðir gegn Bretum.
Truman farinn frá
Kanada
Washington í gærkvöldi.
TRUMAN forseti, sem verið
hefir í þriggja daga heimsókn
í Kanada, lagði í dag af stað
til baka til Washington. Áður
en Truman fór, átti hann stutt
viðtal við blaðamenn.
Forsetinn sagði meðal ann-
ars, að bæði Bandaríkin og
Kanada hefðu áframhaldandi
frið að markmiði sínu, en ef
ekki reyndist kleift að ganga
varanlega frá friðnum, mundu
allir þeir, sem fjellu í heims-
styrjöldunum tveimur, hafa
látið lífið til einskis.
Frjettamenn segja, að dvöl
Trumans í Kanada hafi tekist
með ágætum. Engin mál, stjórn
málalegs eðlis, voru tekin til
meðferðar.
—Reuter.
FLÓTTAMANNARÁÐIÐ
NEW YORK: — Bolivia og
Argentina hafa nýlega gerst
aðilar að samkomulagi um al-
þjóða flóttamannaráð. 18 þjóð
ir hafa nú undirritað samn-.
ingana, en 13 þeirra eiga enn
eftir að staðfesta þá förmlega.
Ameríska þingið ræðir þessi
mál nú þessa dagana, en fram-
lag Bandaríkjanna til stofnun
arinnar er meira en 45%.
Vilja ekki fleiri
keppinaufa
Sidney.
ÁSTRALSKAR stúlkur hafa
að undanförnu sent harðorð
mótmæli til blaða í stórborg-
um landsins gegn þeirra tillögu,
að innflutningur kvenna á gift-
ingaraldri verði leyfður í stór-
um stíl. Þær hafa jafnvel kvart-
að yfir því, að nú þegar væri
orðinn skortur á karlmönnum,
sem tilkippilegir væru í hjóna-
bandið.
Þessi orrahríð hófst, er Cal-
well, ráðherra' sá, er fer með
málefni innflytjenda, svaraði
spurningu í Neðri málstofu ástr
alska þingsins og leiddi í svari
sínu athygli að Jbví ófremdar-
ástandi, að áberandi skortur
væri á ungum kónum í landinu.
Calwell sagði, að erlendum kon-
um mundi verða leyft að setjast
að í landinu ,,til þess að við-
halda áströlsku þjóðinni“.
— Kemsley.
Aðalstöðvar flokksins eru í
ítalíu og á Frakklandi og frá
þessum stöðum ætla þeir sjer
að gera tvennskonar árásir. —■
Annars vegar „árásir úr fjar-
lægð“, sem þegar eru byrjaðar
með sendingu sprengiefnabrjef
anna til hátt settra manna í
Bretlandi og hins vegar beinar
árásir á breskar stjórnarbygg-
ingar.
Leitað að spellvirkjum.
Lögreglumenn, sem sjerstak-
lega hafa kynnt sjer baráttuað-
ferðir ofbeldisflokkanna, voru
sendir til Róm, eftir árásina á
breska ræðismannsbúþtaðinn
þar í borg í október s. 1., eru enn
að reyna að hafa upp á spell-
virkjunum og njóta aðstoðar ít-
ölsku lögreglunnar.
Skæruliðaskólar.
Bæði Stern flokkurinn og
Irgun Zwai Leumi hafa komið
á fót „skólum“ í faginu í ítal-
íu. Tlestir nýliðarnir í flokkn-
um, eru úr hópi þeirra Gyðinga
sem hvergi hafa átt höfði sínu
að að halla árum saman.
Slapp frá Bretum.
Það er nú talið, að næst æðsti
maður Sternflokksins Isak
Yesternitsky, 33 ára gamall,
sje kominn til bækistöðvanna
í Ítalíu. Hann slapp í fyrra úr
fangabúðum í Ertreu.
KEMSLEY
„SprengibrJ@f"-tii
til Palesffnu
Jerúsalem í gærkvöldi.
ÁREIÐANJLEGAR heimildir
í Tel Aviv sögðu í kvöld, að ör-
yggislögreglan í .Palestínu hafi
sent pósthúsum í Tel Aviv og'
Jerúsalem aðvörun um það, að
vera á verði gegn „sprengibrjef-
um.“
Álitið er, að brjef þessi hafi
verið send frá Ítalíu til hátt-
settra embættismanna innan
Palestínustjórnarinnar.
í aðvörunarorðsendingunni
var meðal annars eftirfarandi:
„Verið á verði gegn gulum
umslögum, sjö sinnum tíu þuml-
ungar á stærð. árituð á ensku
og með stimpilmerkinu „leynd-
armál“.“ — Reuter.
50 manns farast í
flugslysi í louh-
ríkjunum
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
BANDARÍSK Skymaster flugvjel með 50 farþegum inn-
anborðs fórst í gær og fanst flakið af henni á fjalli nálægt
Leesburgh í Virginiu. Engin von er talin um, að nokkur mað-
ur hafi komist lífs af.
1000 MANNS LEITA.
Skymasterflugvjel, sem var á
leið frá Chicago til Washington,
týndist í gær í Blue Ridge f jöll-
unum í Virginiaríki. Er flugvjel
in var orðin 12 klukkustundir á
eftir áætlun, fóru menn að ótt-
ast alvarlega um afdrif hennar
og var gerður út 1000 manna
leiðangur til ao leita hennar. —
Flugvjelin átti eftir 25 mínútna
flug til Washington, er síðast
náðist samband við flugmenn-
ina. Skýjað loft var og erfitt um
leit úr flugvjelum, en annars er
landslagi svo háttað á þessum
slóðum, að menn gerðu sjer von
ir um, að nauðlending hefði tek-
ist, enda þótt farþegar og áhöfn
fyndust ékki, jaínvel dögum
saman. En þessar vonir manna
brugðust og í gær lýsti vara-
forseti flugfjelags þess, er átti
flugvjelina, yfir því, að flakið
hefði fundist á fjallstindi ná-
lægt Leesburgh og væri engin
von um, að nokkur maður væri
lífs.