Morgunblaðið - 15.06.1947, Blaðsíða 4
Síða sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Ritstjórn: Sambandsstjórnin.
MORGUNBLAÐIÐ
... ..........|--- IM—M—
Sunnudagur 15. júní 1947Í 1
Fyrsia þing S. U. S.
á Norðurlandi
DAGANA 20.—23. júní verð
ur haldið níunda sambandsþing
ungra Sjálfstæðismanna. Þing-
haldið fer fram á Akureyri og
er þetta í fyrsta skifti sem ung
ir Sjálfstæðismenn halda Sam
bandsþing á Norðurlandi.
Samband ungra Sjálfstæðis-
manna var stofnað á Þingvöll-
um í sambandi við Alþingishá-
tíöina 1930. Síðan hafa sam-
bandsþingin verið haldin annað
hvert ár, ýmist í Reykjavík eða
á Þingvöllum.
Eftir því sem Sambandið hefir
eflst og fært út kvíarnar, hafa
komið fram fleiri raddir um það
að efna til Sámbandsþinga á
fleiri stöðum út um land. Nú
er í fyrsta sinni haldið Sam-
bandsþing á Akureyri og fer vel
á því að höfuðstaður Norður-
lands hefir orðið fyrir valinu.
Fjelagssamtök ungra Sjálf-
stæðismanna hafa aldrei verið
öflugri en nú. Um 20 fjelög
ungra Sjálfstæðismanna eru í
S. U. S. og 242 trúnaðarmenn í
fulltrúakerfi Sambandsins. Hef
ir einnig á sannast, hversu
drjúgur liðstyrkur Sjálfstæðis-
flokknum er í samtökum ungra
Sjálfstæðismanna og aldrei bet
ur en í kosningunum á liðnu
ári.
Sennilega verður Sambands-
þingið á Akureyri nú eitt fjöl-
mennasta þing ungra Sjálfstæð
ismanna. Sambandsstjórn,
Heimdallur og Stefnir í Hafnar
firði, undirbúa sameiginlega
ferð*fulltrúa á þingið að sunn-
an. í förina munu slást fulltrú
ar frá Rangárvallasýslú, Arnes
.sýslu, Vestmannaeyjum, Arnes
hrigu- og Kjósarsýslu og Borg
arfjarðarsýslu, og verður það
myndarlegur hópur, þegar sam
an kemur. A norðurleiðinni
slást í hópinn fulltrúar frá fleiri
sýslum. Ungir Sjálfstæðismenn
úr Reykjavík og nágrenni sem
hyggjast að sækja þingið eiga
að snúa sjer til skrifstofu Sjálf
stæðisflokksins í Reykjavík sem j
annast allar fyrirgreiðslur í sam
bandi við ferðirnar.
Samtök ungra Sjálfstæðis-
manna er þjóðholl frelsishreyf
ing, sem jafnan hefir staðið
fremst gegn hverskonar óþjóð-
legum kenningum og „internat
ionölu“ byltingabrölti komm-
únista.
í baráttunni og huga unga
fólksins hefir Sjálfstæðisstefn-
an borið hærri hlut í viðureign
inni við sosialismann. Æskan
hefir sjeð í gegn um blekkingar
og fagurgala kommúnista og
slegið skjaldborg um lýðræðis
hugsjónirnar undir merkjum
ungra Sjálfstæðismanna.
Þinghaldi ungra Sjálfstæðis-
manna á Akureyri verður veitt
mikil athygli og er þess að
vænta að þaðan megi streyma
holl politísk áhrif.
Þrælahald í Rússlandi
HVAÐA borgarar Sovjetríkj-
anna eru dæmir í þennan þræl-
dóm?
Það er aðallega fólk, sem hef-
ur reynt að hindra, gagnrýnt
eða búist er við að láti' í ljós ó-
ánægju með hið óhæfa stjórn-
skipulag kommúnista.
Þeir, sem best sleppa, þó
undarlegt sje, eru hinir raun-
verulegu glæpamenn, svo sem
þjófar og morðingjar. En þeir
sem verst er farið með eru and-
stæðingar kommúnista, sem
berjast gegn þeim af pólitísk-
um ástæðum eða vegna trúar-
bragða sinna. Þetta fólk nefna
kommúnistar „óvini þjóðarinn-
ar“. Hinir raunverulegu glæpa-
menn eru aðeins 15% af þræl-
unum. Afgangnum má svo aðal-
lega skipta í sjö aðalflokka.
1. Þeir, sem segja skilið við
kommúnista „veginn til lífsins“
eins og valdamennirnir þar
orða það. Þetta felur í sjer það
sem kallað er „afglöp í em-
bættisrekstri". Eða ef einhver
fer að áliti valdhafanna inn á
svið ríkisins. Þarna er ótæm-
andi uppspretta af nýjum þræl-
um í fangabúðirnar. Dæmi: ,
Matreiðslukona á samyrkju-
búi gleymdi að salta miðdegis-
matinn. Hún var lögsótt fyrír
„Misheppnuð störf í opinberri
þjónustu“.
Maður af samyrkjubúi var
sendur til borgar til að selja
rúg og seldi það á 23 rúblur í
staoin fyrir 26. Hann var
fangelsaður fyrir ljelega sölu-
hæfileika.
2. Framtakssamir og happa-
sælir bændur, sem hafa á heið-
arlegan hátt aflað sjer lítið eitt
meira landrými heldur en ná-
búar þeirra og trú á rjett sinn
til að halda því. Þessir menn
mynda einhvern stærsta þræla-
hópinn — og eru vegna sinnar
sterku byggingar og vegna þess
hversu þeir eru vanir erfiðis-
vinnu, úthaldsbestir. Þeir hafa
verið fluttir frá óðulum sínum
í milljóna tali og allir íbúar
sumra þorpa hafa verið þrælk-
aðir. Jarðir þeirra eru svo lagð-
ar undir samyrkjubúin eða
gefnar einhverjum kommún-
ista.
3. Iðnaðarverkamenn, sakað-
ir um þekkingarskort eða
skemmdarstarfsemi. Alvarlegir
glæpir í lögbók Sovjet # Rúss-
lands. Undir þetta fellur endur-
teknar fjarvistir eða seinlæti á
vinnustað, én alvarlegasti glæp-
urinn er þó mótmæli gegn hin-
um langa vinnutíma, kaupi eða
öryggi við vinnuna.
4. Verkamenn og kommúnist-
ar frá öðrum löndum, sem tæld-
ir eru til Rússlands með fögr-
um loforðum um gull og græna
skóga. Þeir koma sem pílagrím-
ar til þessa föðurlands alþjóða
kommúnismanns. Það er álitið
athugavert að sleppa þessum
mönnum aftur og eru þeir því
Síðari grein
kyrrsettir. Einnig Rússar, sem
hafa verið erlendis eða eru
grunaðir að hafa orðið fyrir á-
hrifum af hugsunarhætti hins
Vestræna heims. Þessir menn
eru taldir með hinum útlendu
gestum.
Til dæmis var stúlka að nafni
Anieblka á dansleik þar sem
hún hlaut verðlaun fyrir að
dansa best af þeim er þar voru.
Kona ítalska sendiherrans var
stödd á skemmtuninni og óskaði
henni til hamingju með sigur-
inn og talaði vingjarnlega við
hana í tvær eða þrjár mínútur.
Næsta dag var stúlkan handtek-
in og send í þrælkunarvinnu.
5. Mótþróafullir prestar og
trúrækið fólk, sem af einlægni
trúir' á guð. Þetta fólk er sak-
fellt vegna skoðana sinna í
trúmálum.
6. Nokkrar milljónir af íbú-
um Póllands, Búlgaríu og ann-
arra leppríkja. Þetta fólk hefur
myndað nýjan þrælahóp síðan
heimsstyrjöldinni lauk og er
farið með það eins og rússneska
þræla.
7. Rússneskir fangar úr stríð-
inu. Það er venja í Rauða hern-
um að enginn einstakur her-
maður má gefast upp. Hanh
(verður að berjast uns yfir lýkur.
Þess vegna er allt frelsi þeirra
bundið við það hvernig þeir hafa
barist að áliti foringjanna. —
Heilar sveitir hermanna hafa
verið reknar í fangabúðir vegna
þess að þær hafa verið grunað-
ar um mótþróa gegn kommún-
istum. Þó hafa sár margra her-
mannanna sýnt að þeir hafa
barist meðan kostur var á. Það
er óttinn við þennan þrældóm,
sem hefur orsakað það að þús-
undir af rússneskum hermönn-
um hefur neitað að hverfa aft-
ur heim til föðurlandsins.
Samkvæmt lögum er hver
fangelsun takmörkuð við ákveð-
inn tíma en ríkislögreglan þekk
ir engin lög. Hver dómur getur
því haldist eins lengi og þeim
sýnist. Það er haldið að aðeins
5%* af þeim sem dæmdir eru í
fangabúðirnar sleppi þaðan aft-
ur.
Hvers vegna þessi ægilega
kúgun hefur næstum verið ó-
þekkt í öðrum löndum er næsta
merkilegt og stafar af því að
valdhafarnir í Rússlandi hafa
lokað landinu fyrir frjálsum
ferðamönnum. Árið 1930 settu
Bandaríkin verkbann á vörur
frá Rússlandi, sem unnar voru
af ánauðugu fólki. En Molotov,
sem þá var settur forsætisráð-
herra — bældi niður orðróm-
inn með frámunalegri lygi:
„Margir atvinnulausir verka-
menn í kapitalisku ríkjunum
munu öfundast yfir þeim lífs-
kjörum er fangarnir búa við í
okkar norðlægu hjeruðum“. —
Stjórn Bandaríkjanna ljetti af
verslunarbanninu. Hver grun-
semd hefur síðan jafnan verið
barin niður / af „vinveittum
ferðamönnum“, sem oft halda
því fram að fangabúðirnar sjeu
litlu verri en sumarheimili
skáta.
Henry Wallace mistókst auð-
sjáanlega að sjá á ferð sinni til
Rússlands og Síberíu árið 1944,
það sem Wendell Wilkie nefndi
„hið veftjulega samansafn
fangabúða“. Waelabe fjekk hug
myndir sínar í skemmtiferð
með Ivah Nikislov, hinum rudda
lega foringja í Dalskroi, stærstu
og hræðilegustu fangabúðunum
í Síberíu, sem taka yfir land-
svæði, sem er nokkru stærra
en Frakkland og sem er að öllu
leyti stjórnað af ríkislögregl-
unni. Þar eru þrælar drepnir
svo þúsundum skiptir í hinni
hamstola tilraun Sovjetríkj-
anna til að komast fram úr öðr-
um þjóðum í gullframleiðslu.
Mannúðlegar refsingar voru í
frumatriðum í lögum í Rúss-
landi þangað til 1928, er hinn
tröllaukni áætlunarbúskapur
hófst með fimm ára áætluninni.
Þá var hætt að hugsa um nokk-
uð annað en það að fá verkið
unniö. Þannig hvarf góðgjörn
þjóð. Og var hneppt í fjötra,
vegna hins hamslausa kapp-
hlaups. Og hugmyndir LeninS
um mannrjettmæti allar kæfðar,
Ríkislögreglan og dómsmála-
ráðuneytið hafa haldið því fast
fram aftur og aftur að með
„óvina flokkana" skuli fara ver
heldur en þá sem fremja
ópólitíska glæpi. Seimon Firin,
háttsettur foringi í ríkislögregl-
unni sagði: „Við segjum við
ykkpr venjulegu glæpamenn,
Við skoðum ykkur ekki sem ó-
vini af því að meðal ykkar er
engínn sonur landeiganda eða
kaupmanns".
Það eru þúsundir barna £
þessum fangabúðum. Eftir til-
skipun frá 1935, sem aldrei hef-
ur verið numin úr gildi, ná refs-
ingar hegningarlaganna yfir
börn niður að 12 ára aldri. —•
Þrælunum er bannað að eiga
börn, en margar konur freista
þess að*eignast börn í von um
að þær fái stundarhvíld um
meðgöngutímann og sjerstakan
matarskammt. Á sjöunda eða
áttunda mánuði eru þær fluttar
í Sjerstakar fangabúðir. Þar sem
þær hafa hægari vinnu í eitt ár,
í lok ársins er barnið tekið frá
móðurinni og alið upp af ríkinu
og hún fær oft á tíðum ekki að
sjá það framar.
Þegar þrælahaldið var tekið
upp urðu leiðtogar Sovjetríkj-
anna að leysa úr erfiðu hag-
fræðispursmáli. Árið 1932—33
var meðalkaup verkamanna í
Sovjetríkjunum 1496 rúblu á
ári, en kostnaðurinn við uppi-
hald fanganna var áætlaður 500
rúblur. Þetta virðist vera nokk-
Framh. á bls. 8
Dagskrá Sambandsþings
ungra Sjálfstæðismanna
20.-23, júní á Akiireyri.
EINS og áður er skýrt frá efna ungir Sjálfstæðismenn til
Sambandsþings á Akureyri í þessum mánuði dagana 20.—23.
júní.
Dagskráin hefir verið ákveðin í stórum dráttum á þessa leið:
Föstudagur 20. jún:
Kl. 10 f. h.: Þingsetning — Skýrlsa formanns um fjelagsmálefni
og störf sambandsins. — Kosning nefna. Lögð fram
frumvörp að ályktunum.
Kl. 4 e. h.: Umræður um þingmál. Nefndarálit.
Kl. 9 e. h.: Ávörp þingfulltrúa. — Kaffidrykkja.
Laugardagur 21. júní:
I Kl. 10 f. h.: Framhaldsumræður um þingmál. Afgreiðsla mála.
I Kl. 2 e. h.: Stjórnarkosning og önnur störf.
j Kl. 9 e. h.: Kvöldskemmtun.
Sunnudagur 22. júní:
Kl. 2 e. h.: Útisamkoma í Naustaborgum, — skemmtistað
Sjálfstæðismanna á Akureyri. — Ræðuhöld. — Skemti-
atriði. — Dans. — Þingslit.
★
Unnið hefir verið kappsamlega að undirbúningi þinghaldsins
og er búist við góðri þátttöku. Fulltrúar frá Reykjavík og Hafn-
arfirði eru beðnir að tilkynna þátttöku sína í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins fyrir helgi.