Morgunblaðið - 25.06.1947, Qupperneq 1
34. árgangur
139. tbl. — Miðvikudagur — 25. júní 1947
Ísaíoldarprentsmiðja h.f.
Refsingar á tuttugustu öldinni
Augu stungin úr föngum
Nýju Delhi í gær.
Einkaskeyti til Morgbl. frá Kemsley.
TVEIR forsprakkar uppreisnar þeirrar, sem nýlega var gerð
í Tibet, en í henni gerði fyrverandi landsstjóri, Jachen, tilraun
til að ná völdum í sínar hendur, hafa nú hlotið dóm sinn. —
Hefur hvor þeirra um sig verið dæmdur í 250 vandarhögg, fang-
elsi í hlekkjum æfilangt og auk þess á að stinga úr þeim augun.
Samsærið komst upp, þegar^
pakki, sem merktur var nú-
verandi landsstjóra, sprakk í
höndunum á þjóni nokkrum.
Dó í fangelsi.
Stjórnarvöldin handtóku
Jachen, sem síðar dó í fangelsi.
Uppreisnarmenn í klaustri
nálægt Lhassa, höfuðborg Ti-
bet, drápu ábótann þar og
vörðust í hinu umkringda
klausri öflugum stjórnarher-
sveitum í nokkra daga.
Börðust til þrautar.
Aðrir uppreisnarmenn, vopn
aðir rifflum, börðust til úrslita
við hersveitir stjórnarinnar
uþp í fjöllum í tvær vikur. —
Þrjú hundruð menn voru
drepnir.
Tíu farast
í eldsvoða
Brússel í gærkvöldi.
TÍU manns ljetu lífið og
um 30 særðust, er eldur kom
upp í belgiska mentamálaráðu-
nej'tinu í dag. Þeir, sem fórust,
gerðu tilraun til að stökkva út
úr hinu fimm hæða húsi, þar
sem skrifsfofur ráðuneytisins
voru.
Húsið gereyðilagðist, en eld-
urinn mun hafa komið upp í
kjallara þess. -— Reuter.
Betri horfur í
danska prenfara-
verkfallinu
Kaupmannahöfn í gær.
TILRAUNIR eru nú gerðar
til að finna lausn á deilu
danskra prentara og atvinnu-
rekenda. Fulltrúar prentara og
atvinnurekenda hafa haldið
fund með sjer í Ráðhúsinu og
stóð fundurinn í 16 tíma. Sam-
komulag varð um tillögur til
samninga. Tillögunum er að svo
komnu máli haldið leyndum, en
þær verða bráðlega lagðar fyrir
fundi prentara og atvinnuveit-
enda til samþyktar eða synjun-
ar. Líkur á samkomulagi eru
taldar betri en verið hefur lengi.
Leiði tillögurnar til samkomu-
lags, er búist við að verkfallinu
ljúki um þriðja júlí.
Rússneskar
atomsprengjur
innar þriggja ára
New York.
EDMUND Walsh, prófessor
við Georgetown háskóla, hefur
tjáð hermálanefnd bandarísku
fulltrúadeildarinnar að Rússar
,,hafi allar nauðsynlegar upp-
lýsingar um atomorkuna" og
muni vera reiðubúnir til að fara
í stríð, strax og þeir hef ji fram-
leiðslu atomsprengja. — Hann
gerði ráð fyrir, að það mundi
verða eftir þrjú eða fjögur ár.
Walsh tjáði nefndinni einnig,
að Rússar hefðu flutt um 7.000
vísindamenn frá Þýskalandi. —
Mönnum þessum hefði ýmist
verið rænt, eða þeir fengnir með
góðu móti til að fara til Rúss-
lands. — Kemsley.
Hambro forseli
Alþjóða verka-
málaráðsfefnunnar
London í gær.
HAMBRO, fyrverandi forseti
norska stórþingsins, var 1 dag
kosinn forseti Alþjóða verka-
málaráðstefnunnar, sem nú
kemur saman í þrítugasta
skipti. -
Fulltrúar 40 þjóða sækja ráð
stefnuna, en hún mun standa
yfir í þrjár vikur. — Reuter.
Ðrap bandaríska
stríðsfanga
Frankfurt í gærkvöldi.
ÞÝSK frjettastofa tilkynti í
dag, að liðsforingi sá, sem í
september 1944 bjargaði Musso-
líni til Þýskalands, verði dreg-
inn fyrir bandarískan herrjett í
Dachau 29. þessa mánaðar.
Hermaður þessi er sakaður
um að hafa drepið bandaríska
stríðsfanga, barist í amerísk-
um einkennisfötum og stela
Rauða kross pökkum, sem ætl-
aðir voru stríðsföngum.
— Reuter.
Bevin, Bidault og Molotov
koma saman á föstudag
------------------------@> ______
llunu ræða
hjálpartilboð
Marshalls
„Lifli boli" gerir sitf gagn
■
í STYRJÖLDINNÍ notuðu bandamenn jarðýtur miklar, sem
nefndar voru „bolar“. Sáust þessi verkfæri hjer á landi
og munu nokkur þeirra hafa verið keypt af hernum til
vegagerðar og fleira. Bretar hafa nú framleitt minni teg-
und af þessum jarðýtum og nefna þær „kálfa“.
Alsherjarverkfall á Sikiley
Qeirðir víða í ítalíu
Rómaborg í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
HIN NÝJA ítalska ríkisstjórn horfist nú í augu við ó-
fremdarástand, sem vel kann að hafa í för með sjer upp-
lausn og öngþveiti í Ítalíu. Hefur komið til átaka milli hægri
og vinstri manna, en það aftur haft það i för með sjer, að
boðað hefur verið til alsherjarverkfalls á Sikiley.
DRÁP. ®
Hópur manna, sem álitið er
að sjeu áhangendur Salvetore
nokkurs Giuliano, gerði í dag
árás á aðalbækistöðvar vinstri-
manna á Sikiley. Beittu árásar-
mennirnir sprengjum og vjel-
byssum, en tveir menn voru
drepnir og meir en 20 særðust.
ÁRÁSIR.
Fregnir frá öðrum stöðum í
Ítalíu herma, að það fari nú
dagvaxandi, að flokksmenn
vinstri flokkanna geri árásir á
samkomur hægrimanna.
í verfcfalli
Washington í gær.
120 ÞÚSUND kolanámumenn
í Bandaríkjunum hafa nú gert
verkfall, til þess að mótmæla
hinni nýju verklýðsmálalöggjöf.
Verkfallið er ekki opinbert,
en gert er ráð fyrir, að það hafi
í för með sjer tap á um 100.000
tonnum af kolum á dag.
Aufcin viðskifti
Norðmanna og
Suður-Afríku
Jóhannesburg.'
BÚIST er við mjög auknum
gagnkvæmum viðskiptum milli
Noregs cg Suður-Afríku, eftir
því, sem A. Bommen, verslunar-
málafulltrúi norsku stjórnarinn
ar, hefur látið hafa eftir sjer, en
hann hefur verið í 6 mánaða
ferðalagi um Suður-Afríku, þar
sem hann hefur kynt sjer iðnað
og verslunarástand landsins. —
Hann mun gefa norska verslun-
arráðinu skýrslu um árangur-
inn af för sinni. Áður en hann
lagði af stað heim sagði hann:
„Suður-Afríka var valin sem
fyrsta landið, er Norðmenn
sendu fulltrúa til eftir styrjöld-
ina, til þess að leita hófanna um
aukin verslunarviðskipti, vegna
þeirra miklu möguleika, sem
landið hefur upp á að bjóða.“
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgbl.
frá Reuter.
CLAYTON, aðstoðar fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna,
er nú kominn til Bretlands og
ræddi í dag við Attlee forsætis
ráðherra. Viðstaddir viðræð-
urnar voru þeir Bevin, Dalton,
Sir Stafford Crips og banda-
ríski sendiherrann í Englandi.
Samkvæmt opinberri frjetta-
tilkynningu, sem gefin var út
skömmu seinna, snerust um-
ræðurnar um hina fyrirhuguðu
hjálp Bandaríkjanna við Ev-
rópulönd.
Molotov til Parísar.
Talsmaður rússneska utan-
ríkisráðuneytisins tilkynti í
dag, að Molotov mundi leggja
af stað til Parísar á fimtudag.
Eru þegar komnir um 60 full-
trúar til borgarinnar, en þeir
munu eiga að aðstoða rúss-
neska utanríkisráðherrann, er
fundir hans, Bevins og Bid-
aults hefjast á föstudag.
'H’ I
t
9
Vakti mikla athygli.
Bandaríkjamenn hafa enn
ekki ákveðið hvort þeir sendi
fulltrúa á fund ráðherranna. —•
Eins og kunnugt er, á hann að
fjalla um aðstoðartilboð Mars-
halls utanríkisráðherra, en það
hefur að vonum vakið geysi-
mikla athygli.
Ráðstefnan er boðuð af þeim
Bevin og Bidault.
Truman forseti hefir nu
skipað nefnd, sem rannsaka á
afleiðingar aðstoðarinnar.
Mannrán í Vínar-
borg
LÖGREGLAN í Vínarborg
leitar nú að vopnuðum mönn-
um, sem sagt er að rænt hafi
konu nokkurri úr byggingu, þar,
sem júgóslavneska stríðsglæpa-
nefndin er til húsa.
Blaðið „Wiener Kurier“ segir,
að mennirnir hefðu borið kon-
una hljóðandi út úr húsinu, en
lögreglumaður, sem kom á vett-
vang, fjekk ekkert að gert.
Enn hefur ekkert frjetst af 16
ára gömlum pilti, sem menn,
klæddir rússneskum einkennis-
búningum, rændu fyrir viku
síðan. — Reuter.