Morgunblaðið - 25.06.1947, Page 5
(iMiðvikudagur 25. júni 1947
MORGUNELAÐIÐ
Sjúkrasamlagið hættir
störfum um áramót
ÞÆR BREYTINGAR hafa«*
verið ákveðnar á iðgjöldum og
innheimtufyrirkomulagi Sjúkra
samlags Reykjavíkur, að heild-
ariðgjöld ársins 1947 skuli
hækka um 10 kr. á samlagsnúm
er og hækkunin innheimt með
iðgjöldum 6 síðustu mánaða árs
ins á 4 mánuðum, •— mánuðun-
ttm júlí—október.
Heildariðgjaldið síðara miss-
iri ársins verður því, að með-
talinni hækkuninni, 100 kr. á
samlagsnúmer, og á að inn-
heimta það með 25 kr. gjaldi á
mánuði hvern áðurnefndra
fjögra mánaða. Af þessu leiðir
að sjálfsögðu, að engin iðgjöld
verða innheimt fyrir mánuðina
nóvember og desember 1947. —
Þeim, sem greitt hafa iðgjöld
fyrirfram fyrir síðara helming
ársins, ber að sjálfsögðu að
greiða hækkunina, 10 krónur,
til viðbótar.
Um ástæðurnar fyrir þessum |
ráðstöfunum vill stjórn samlags
ins taka þetta fram:
HÆKKUNIN. j
Á árunum 1946 varð halli á
rekstri samlagsins um rúmlega
200 þús. krónur, þratt fyrir
hækkun iðgjalda 1. júní f. ár.
-— Stafar halli þessi fyrst og
fremst af hækkun á lyfjum, sem
varð á miðju ári og hækkun
vísitölunnar síðustu mánuði árs
ins. — Fyrirsjáanlegt er að
verulegur halli verður einnig á
rekstrinum í ár, ef iðgjöld verða
ekki hækkuð enn. Má í því sam-
bandi nefna, að fyrirsjáanieg er
mjög veruleg hækkun á útgjöld-
um vegna lyfja frá því sem var
í fyrra, og að meðalvísitala yfir-
standandi árs verður að líkind-
um ekki minna en 17—18 stig-
um hærri en ársins 1946. Vísi-
töluhækkunin ein jetur upp
mestan hluta þess tekjuauka,
sem samlagið hefur af því, að
iðgjaldahækkunin 1. júní 1946
kemur á alt þetta ár, í stað að-
eins 7 mánaða ársins 1946.
Við þetta bætist svo það, að
samlagið hlýtur óhjákvæmilega
að hafa töluverðan kostnað á
árinu 1948, vegna uppgjöra,
reikningsskila og innheimtu
eftirstöðva. En á móti þeim
kostnaði koma engar iðgjalda-
tekjur, þar sem samlagið hættir
störfum um næstu áramót.
Segja má að vísu, að samlag-
ið eigi sjóði, sem staðið geta
undir reikningshalla ársins 1947
og meira til. En sjóðseignum
samlagsins er ætlað mikilvægt
hlutverk í sambandi við heilsu-
vernd og sjúkraþjónustu í Rvík
í framtíðinni, og þótti því ekki
fært að ganga frekar á þær eign
' ir en orðið er.
FÆKKUN GJALDANNA.
Með því að samlagið hættir
störfum um næstu áramót, þótti
nauðsynlegt að láta öll iðgjöld
fyrir þetta ár falla í gjalddaga
nokkru fyrir áramót, til þess að
flýta fyrir og auðvelda inn-
heimtu eftirstöðva og draga úr
kostnaði við reikningsskil sam-
lagsins.
SKILYRÐI.
Til viðbótar ofanrituðu vill
stjórn samlagsins benda mönn-
um á, að rjettindi til sjúkra-
hjálpar hjá almannatryggingun
um á árinu 1948 verða því skil-
yrði bundin, að menn sjeu ekki
í vanskilum við samlagið árið
1947. Ættu því allir þe.ir, sem
vanrækt hafa iðgjaldagreiðslur,
að vinda bráðan bug að því að
koma rjettindum sínum í lag, til
þess að geta notið rjettinda á
þessu ári fyrir þau iðgjöld, sem
þeir verða hvort sem er að
greiða, ef þeir vilja ekki missa
rjettindi til sjúkrahjálpar hjá
almannatryggingunum á næsta
ári. í því sambandi er rjett að
benda á, að iðgjöld til almanna-
trygginganna eru innheimt í
einu lagi fyrir allar greinar
trygginganna og verða menn að
greiða alt iðgjaldið, jafnt fyrir
því, þó að þeir samkvæmt fram-
ansögðu eigi ekki rjett til sjúkra
hjálpar, vegna vanskila við sam
lagið.
II>llllllllllllllllllr>lllllllllllliri111111111111IIIII111111111
Dodge
model 1941, í góðu standi
til sýnis og sölu við Leifs
styttuna 1 kvöld milli kl. :
5—8.
iiiiiiimiiiiiiiiimmiimiiiiiiiifiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiin
iimmiiiiiuiun
Jeppabíll
til sölu og sýnis við Leifs
styttuna kl. 4—6 í dag.
Gólfbón
Húsgagnabón
Skóáburður
Heildverslunin Olver h.f.
Símar 5774 og 6444.
iiMimiiiiMiMiiMimmimimiiimmiiiimimmimiiiii
Til sölu notað
borðstofusett
úr eik. Upplýsingar á As-
veg 15, Kleppsholti.
Sumarbustaður
efst við Elliðaár til sölu.
Hann er á góðum stað við
ána og rjett hjá Elliða-
vatni. Stærð 25 ferm., tvö
herbergi og eldhús, méð
veranda. Uppl. í síma 6412
frá kl. 1—7 í dag.
17, júní hálíða-
höldin í Hafnarfirði
17. JÚNÍ hátíðarhöldiní í
Hafnarfirði, hófust kl. 1,30 e.
h. með því að boðhlaup milli
knattspyrnumanna íþróttafjel-
aganna fór fram. Keppt var í
tveim sveitum var önnur frá
F.H. og hin frá Haukum, og
voru þær skipaðar 4 mönnum
frá hverjum aldursflokki 3, 2 og
1. fl. alls voru því 12 menn í
hverri sveit. Hlaupið hófst við
íshús Hafnarfjarðar og var
hlaupið vestur Strandgötu og
endað hjá Ráðhúsinu. Fyrstu
fjórir sprettirnir voru 800 m.
en hinir 8 100 m. hvor, og var
því hlaupið alls 1120 metrar.
Sveit F.H. náði forustunni
straks eftir fyrsta sprettinn og
lengdi millibilið jafnt og þjett
til síðasta manns er kom um
10—12 metrum á undan síðasta
manni Hauka í mark. Tími
sveitanna varð: F.H 2.26,5 mín.
og Haukar 2.28,0 mín.
Að loknu boðhlaupinu var
gengið í skrúðgöngu frá Ráð-
húsinu upp á Sýslumannstún,
en þar fóru aðal hátíðahöldin
fram. Fyrstir í skrúðgöngunni
gengu skátar síðan meðlimir
íþróttafjelaganna F.H. og
Hauka. Undir fána F.H. gengu
tveir nýjir stúdentar, þeir Árni
Gunnlaugsson og Rögnvaldur
Finnbogason.
Guðmundur Árnason, bæjar-
gjaldkeri sétti hátíðina en ræð-
ur fluttu bæjarstjórinn Eiríkur
Pálsson og sjera Jakob Jóns-
son. Pjetur Jónsson söng ein-
söng og karlakórinn Þrestir kór
söng.
Tveir handknattleikir fóru
einnig þarna fram, voru það
meistaraflokkar karla og
kvenna úr F.H. og Haukum er
kepptu. Haukar unnu báða
leikina. Kvennaleikinn með
6:5 en karlaleikinn með 9:8.
Báðir leikirnir voru mjög tví-
sýnir og spennandi einkum
hinn síðarnefndi.
Kl. 9 um kvöldið var svo
stiginn dans á Strandgötunni
fyrir framan Sjálfstæðishúsið.
Fjölmenni var mikið við hátíð-
arhöldin og fánar á hverri stöng
í bænum, sömuleiðis voru öll
skip við bryggjurnar og á höfn
inni skreytt fánum.
Á. Á.
Valur: Víkingur 2 :1
llDómari j-^orítei
unn
(^inciráóon
ÞAÐ fór eins og margir höfðu^
búist við að fimmti leikur ís-
landsmótsins, leikur Vals og
Víkings, yrði bæði betur leikinn
og skemmtilegri, heldur en þeir
er þegar hafa farið fram. Að
vísu var leikur þessi ekki neitt
sjerstakt knattspyrnuundur, —
hvorugt liðið var skipað sínum
bestu mönnum, t.d. vantaði Val
Svein Helgason og Víking Brand
Brynjólfsson, en leikurinn var
Ijettur og yfirleitt vel leikinn,
þó aldrei sjerlega harður, en
oft á tíðum vel uppbyggður,
með öruggum, stuttum sam-
leik, samfara mjög góðum skipt
ingum. Vorú þar sjerstaklega
innframherjar og framverðir
Víkings að verki, Einar Pálsson,
Gunnlaugur Lárusson, Bjarni
Guðnason og Haukur Óskars-
son. Hinn öruggi leikur og stað-
setningar þeirra, urðu þess vald
andi að Víkingsliðið náði strax
í byrjun leiksins yfirburðum á
miðju vallarins. — Þó var þessi
samleikur og yfirburðir ekki
eins árangursríkur og mátti
hafði búast við, þar sem of
mikið bar á sentringum yfir
þverann völlinn og tengslin við
útframherja liðsins skorti að
mestu leyti.
Valsliðið virtist mjer ekki
eins heilsteypt að þessu sinni
og það hefur verið áður, en
hinir sterku menn liðsins: Al-
bert Guðmundsson, Sigurður Ó1
afsson og Ellert Sölfason, á-
vanst með hinni öruggu knatt-
meðferð og sentringum að
byggja liðið upp — og þó sjer-
staklega í snöggum upphlaup-
um upp vinstri kantinn, þar er
oft brá við áberandi staðsetning
argöllum í hægri helming Vík-
ingsvarnarinnar.
Einstök atriði — Fyrri
hálfleikur.
vann hand
knattleiksmót
Vestfjarða
ísafirði, mánudag.
HANDKNATTLEIKSMÓT
Vestfjarða var háð á ísafirði
fyrir skömmu síðan. Að þessu
sinni tóku aðeins tvö fjelög
þátt í mótinu, en þau eru Stefn
ir í Súgandafirði og Ksf. Hörð
ur á Isafirði.
Leikar fóru þannig, að Stefn
ir vann Hörð með 11 mörkum
gegn 6. Þetta er í annáð skifti
í röð, sem Stefnir vinnur hand
knattleiksmót Vestfjarða.
—M.B.J.
Kauphöllin
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna. Sími 1710.
Er 20 mínútur voru af leik
höfðu Víkingar fengið dæmdar
tvær hornspyrnur á Val, sem þó
ekkert varð úr — báðar illa
teknar. Eftir aðra hornspyrn-
una gera Valsmenn mjög
sriökkt og skemmtilegt upp-
hlaup, og er knötturinn er í
sentringu við vítateig, til Ellerts
sjest annar línuvörðurinn veifa
— rangstöðu — sem þó dómar-
inn tekur ekki eftir, en að augna
bliki liðnu, dæmir hann auka-
spyrnu á Víking. Knötturinn er
látinn niður rjett við vítateig-
inn — Víkingarnir raða sjer
fyrir markið. Albert tekur
spyrnuna, og spyrnir föstu
skoti að marki Víkinganna. —
Knötturinn lendir í einum
þeirra, og hrekkur af honum í
stöngina við hægra horn marks
ins. Hættuleg þvaga verður við
þetta fyrir framan markið, en
að lokum bjargar Bjarni með
langri spyrnu frá markinu. —
Valsliðið hefur nú hverja sókn-
arlotuna af annari, þar til á 30.
mínútu, að Albert spyrnir föstu
skoti á mark Víkings — þó af
mjög löngu færi — knötturinn
svífur óhindraður gegnum vörn
Víkinganna og í mark. Skot er
bæði vörn og þó sjerstaklega
markmaður hefði átt að fá var-
ið..—
Þegar um 40 mínútur voru af
leik, er langri spyrnu frá fram-
herja Víkings spyrnt að Vals-
markinu. Svavar Þórhallsson og
Bjarni Guðnason, fylgja knett-
inum vel eftir og loka Hermann
af í markinu. Bjarni nær knett-
inum á skalla, en skallar í stöng
ina. Knötturinn hrekkur af
henni út frá markinu, beint
fyrir fætur vinstri útframherja
Víkings, er spyrnir snöggu
skoti á mark — en af einhverj-
um ástæðum er Hermann þar
fyrir og bjargar. — Margir
vildu kalla þetta heppni fyrir
Val.
Síðari hálfleikur.
Síðari hálfleikurinn var mun
hraðar og enn betur leikinn en
sá fyrri. Er 10 mínútur voru af
leik gera Valsmenn snöggt upp-
hlaup. Ellert fær hæðar sentr-
ingu fyrir markið ög skallar
knöttinn undir stöng Víkings
marksins, og hrekkur knöttur-
inn skáhalt út frá mark-
inu, þar sem Einari Halldórs-
syni tókst að ná honum alveg
út við endamörk, fast við stöng-
ina og senda hann föstu, óverj-
andi skoti í mark. Leikurinn
2—0 íyrir Val.
Eftir markið nær Víkingslið-
ið mjög harðri og öruggri sókn.
Og á 15. mínútu spyrnir Hauk-
ur mjög góðu skoti á mark Vals,
en Hermann ver. Á 20. mínútu
er Víkingum dæmd hendi á Val,
nokkrum metrum fyrir utan
vítateig. Ilaukur tekur spyrn-
una og spyrnir föstu hæðar
skoti að marki Vals, en bak-
vörður skallar frá markinu. —
Víkingar ná knettinum og íeika
með öruggum og stuttum sam-
leik gegnum vörn Vals, sem
endar með því að Svavar Þór-
hallsson sentrar knettinum fram
hjá Hermanni — í mark. Leik-
urinn 2—1 fyrir Val.
Víkingar halda enn sókninni
og á 33. mínútu er horn dæmt
á Val. Halldór Sigurðsson tekur
hornið og svífur knötturinn fyr-
ir markið, Einar Pálsson nær
honum rjett fyrir framan
markið, skallar og knötturinn f
netinu. — Dómarinn flautar og
dæmir —mark á hann. Leikur-
inn því enn 2—1 fyrir Val. —
Víkingar halda enn sókninni og
fá á mjög skömmum tíma tiæmd
ar tvær hornspyrnur á Val, sem
misheppnast, þrátt fyrir að báð-
ar sjeu sjerlega vel teknar. —
Síðustu sjö til átta mínúturnar
ná Valsmenn mjög hröðum og
snöggum upphlaupum, sem þó
misheppnast er að marki kom,
oftast nær fyrir of langar sentr-
ingar.
Á. Á.
Oiíukynding
ar 5415 og 5414 heima.
í lítið tveggja hæða hús
óskast keypt. Tilboð merkt
„Olíukynding — 1468“
scndist Mbl. . ;;
BEST AÐ AUGLYSA
I MORGUNBIJVÐINÚ