Morgunblaðið - 03.07.1947, Side 11
Fimmtudagur 3. júlí 1947
MORGUNBLAÐIÐ
11
Fjelagslíf
KNATTSPYRNU-
MENN!
Æfingar í dag á gras-
vellinum kl. C.30—7.30.
II. og' III. flokkur. — Þjálfarinn.
KVENSKÁTAR!
Merkjasala verð-
ur í Skátaheimil-
inu í kvöld kl.
7.30—8.30.
Stjórnin.
sKÁTAR!
Dansklúbburinn. Dansæfingin
/erður í kvöld kl. 8.30, en ekki á
morgun.
FRAMARAR!
3. og 4. fli fer til
Hafnarfjarðar kl. 6
í kvöld. Farið verður
frá Fram-vellinum.
— Áríðandi að allir
líiæii stundvíslega. — Þjálfarinn.
VlKINGAR!
Handknattleiksæfing-
ar í kvöld í Miðtúni.
Kl. 7—8 karlaflokk-
ar, kl. 8—9 kven-
flokkar. — Danski
iijálfarinn mætir. -—•
Stjórn Víkings.
FARFUGLAR.
Um næstu helgi verða
farnar þessar ferðir:
I. Hagavatnsferð. -
Laugardag ekið að
Hagavatni og gist þar. Sunnudag
gei gið á Jarlhettur og e. t. v. eitt-
hvað inn á Langjökul. Komið um
kvöxdið í bæinn. — II. Ferð í
ÍÞra tarlund. Laugardag ekið aust
tir I Þrastarlund og gist þar. —
Sunnudag gengið yfir Ingólfsfjall
að Hveragerði, þaðan verður ekið
í bæínn.
Sumarleyfisferðir.
I byrjun júlí verður farið aust-
•ur í Öræfi og um alla A.-Skafta-
fellssýsiu. 10 daga ferð. 12.—27.
Öskjuferð. Ekið til Akureyrar, Mý
vatns, Öskju, Herðubreið, Herðu-
breiðarlindir, Dettifoss, Ásbyrgi
og víðar. •— 12.—20. júlí. Vikudvöl
í Húsafellsskógi. Þátttakendúr í
Ösk: iferðina vitji farmiða kl. 9
—1Ó i kvöld að V. R. niðri. Tekið
verður á móti áskrifendum í allar
hinar ferðirnar.
Nefndin.
FERÐAFJELAG
ISLANDS
ráðgerir að fara skemti
ferð austur í Þjórsár-
dal um næstu helgi. —
Lagt af stað á laugardag kl. 3 síð-
degis frá Austurvelli. Ekið að Ás-
ólfsstöðum og gist þar í tjöldum.
Á sunnudaginn farið í bílunum að
Hjálparfossi og síðan upp að Gjá.
Farið gangandi yfir Stangarfjall
að Háafossi (130 m.) og svo með
Fossá niður fyrir Stangarfjall og
þar í bílana. Fornar minjar skoð-
aðar í Dalnum. Fólk þarf að hafa
með sjer mat fyrir sunnudaginn.
— Farmiðar seldir á föstudaginn
tii kl. 5 síðdegis á skrifstofunni í
TY xigötu 5.
Tapað
PENINGAVESKI
ácámt ökuskírteini nr. G.K. 27 og
iYeiru í, tapaðist í gær frá kl. 12
—2. Peningarnir, sem í veskinu
voru koma í stað fundarlauna. —
Ykilvís finnandi skili því í Litlu-
.! lílastöðina.
Tapast hefur
karlmannsveski
neð orlofsbók, matvælaseðlum o.
fi. Skilvís finnandi gjöri svo vel
og hringja í síma 5195.
»♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4
Vinna
hreingerningar
GLUGGAHREINSUN
Sími 1327 frá kl. 10—5.
Björn Jónsson.
Útsvars- og skattakærur skrifar
Pjetur Jakobsson, Kárastíg 12. —
Ureingcrningar
Vanix' menn. Pantið í tíma. Sími
7768.
Árni og Þorsteinn.
HREINGERNINGAR.
Vönduð vinna. Fljót afgreiðsla.
Sími 1954.
184. dagur ársins.
Næturlæknir er í lækna-
varðstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í lyfjabúð-
inni Iðunn, sími 1911.
Bílaskoðunin. í dag verða
skoðaðir bílar R-3101—3200.
Fjöltefli. Guðmundur S.
Guðmundsson teflir fjöltefli
við .30 menn í Mjólkurstöðinni
við Laugaveg kl. 7,30 í kvöld.
Stefán íslandi óperusöngv-
ari hjelt aðra söngskemtun sína
í Gamla Bíó í gærkveldi fyrir
fullu húsi og miklum fagnað-
arlátum áheyrenda. Hann er
nú á förum norður í land í sum
arfrí en mun syngja hjer aftur
er hann kemur aftur til bæjar-
ins síðar í sumar.
Farþegar með flugvjel AOA
1. júlí. Frá Stokkhólmi: Carl
Andersen, Guðmundur Ás-
mundsson, Óskar Æjartmars,
Geir Hallgrímsson, Ármann
Snævarr og L. E. König.
Farþegar með flugvjel AOA
2. júlí. Frá New York: Kristj-
ana Mellk og John Plog. Til
Oslo: Gísli Sveinsson, Hinrik
Björnsson, Auður Rútsdóttir,
Gunnar Larsen, Gustav Lorent
zen og Sverre Heiberg.
Samtíðin: júlíheftið, hefir
blaðinu borist. Efni: Bagalegt
tómlæti eftir Sigurð Skúlason.
Nafnið (kvæði) eftir Bjarmar
Stein. Myndasíða. Hvað græðir
ísland á hlýrra loftslagi? eftir
dr. Björn Sigfússon. Fyrsti við-
komustaður (framhaldssaga)
eftir Elisabeth Jordan. Of mik-
il hvíld er hættuleg eftir R. O.
Potter. Þegar fjármálaheimur-
inn nötraði. Bókafregn. íslensk
ar mannlýsingar XXIV. Kross-
gáta. Skopsögur. Þeir vitru
sögðu. Gaman og alvara. Nýjar
bækur o. m. fl.
Skipafrjettir: — (Eimskip):
Brúarfoss er í Kaupmanna-
höfn. Lagarfoss var væntanleg
ur til Stokkseyrar í gær frá
Gautaborg. Selfoss fór frá
Porsgrunn 29/6 til Gautaborg-
ar. .Fjallfoss kom til Reykja-
víkur 17/6 frá Hull. Reykja-
foss fór frá Antwerpen 1/7 til
Lysekil í Svíþjóð. Salmon Knot
kom til Reykjavíkur 9/6 frá
New York. True Knot er í New
York. Becket Hitch kom til
Reykjavíkur 22/6 frá New
York. Anne fór frá Abö í Finn-
landi 30/6 til Kaupmanna-
hafnar. Lublin kom til Reykja
víkur 2/7 frá Hull. Dísa fór
frá Hjalteyri 26/6 til Svíþjóð-
ar. Resistance er í Antwerpen.
Lyngaa kom til Reykjavíkur
18/6 frá Gautaborg. Baltraffic
fór frá Liverpool 30/6 til Gauta
I. O. G. T.
STÚKAN „FRÓN“
fer skemtiferð til Krísuvíkur
sunnudaginn 6. júní n. k. Farið
verður frá Templarahöllinni kl.
1.30 e. h. — Væntanlegir þátttak-
cndur hringi í síma 2365 eða 3892
fyrir kl. 3"e. h. föstud. 4. júlí.
Skemtinefndin.
Kaup-Sala
Notuð húsgögn
og lítið slitin jakkaföt keypt hæsta
verði. Sótt heim. Staðgreiðsla. Sími
5691. Fornverslunin, Grettitgötu 45.
Tilkynning
HJÁLPRÆÐISHERINN.
1 kvöld kl. 8,30: Almenn sam-
koma. — Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA.
Samkoma í kvöld kl. 8,30. Carl
Andersen frá Svíþjóð og fleiri
tala. — Allir velkomnir.
borgar. Skogholt fór frá Hauge
sund 30/6 til Halden. 1
I skeyti frá Akureyri um út-
svörin í blaðinu í gær misrit-
aðist að þau hefðu hækkað um
V2 miljón, en átti að vera nær
IV2 miljón krónur.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30— 9,00 Morgunútvarp.
10.10 Veðurfregnir.
12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30— 16,30 Miðdegisútvarp.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Lög leikin á
bíó-orgel (plötur).
20,00 Frjettir.
20.20 Útvarpshljómsveitin
(stj.: Albert Klahn): a)
,,Hnotubrjótui’inn“ eftir
Tschakowsky. b) Slavneskur
dans, nr. 8, eftir Dvorsjak.
20.45 Dagskrá kvenna (Kven-
rjettindafjel. íslands): Björg
í Nesi, saga eftir Ólínu An-
drjesdóttur (frú Sigríður
Biörnsdóttir flytur).
21.10 Tónleikar: Píanó-sónata
í a-moll, Op. 143, eftir Schu-
bert.
21.30 Frá útlöndum (Gísli Ás-
mundsson).
21.50 Tónleikar: Valsar (plöt-
ur).
22,00 Frjettir.
<22.05 Kirkjutónlist (plötur).
22.30 Dagskrárlok.
Ungversku friSar-
samningamir
staðfesfir
Budapest í gærkveldi.
UNGVERSKA þingið stað-
festi í dag friðarsamninga Ung-
verjalands við bandamenn.
—Reuter.
Happdrætfi
femplara
í HAPPDRÆTTI templara
hafa þessir vitjað vinninga:
Fyrst gáfu sig fram eigend-
ur 3. vinningsins Skoda bíls-
ins, reyndust það vera tveggja
ára tvíburar, Gunnar og Óskar
Sverrissynir, Hringbraut 83,
Rvík. Næst gaf sig fram eigandi
4. vinningsins, Renault bílsins,
.Kristín Guðbjartsdóttir, iðn-
mær, Grenimel 26, Rvík. Því-
næst kom umboðsmaður eig-
anda 2. vinnings, Peugeot bíls-
ins, eigandi reyndist vera pilt-
ur á Djúpavogi, Þórarinn Gúst-
afsson. Þá gaf sig fram eigandi
1. vinnings, Morris bílsins, en
nafnið vitum við ekki, vegna
þess að ekki hefir verið hægt
að afhenda vinninginn, en á-
stæðan til þess er sú, að hann
er enn ókominn til landsins.
5. vinningsins, Tttra bílsins,
sem kom upp á nr. 33000, hefir
enn ekki verið vitjað, en von-
andi líður ekki á löngu að eig-
andinn gefi sig fram við Bóka-
búð Æskunnar eða í síma 4980.
Við hefðum helst kosið að
geta birt nöfn allra eigendanna
í einu, en viljum ekki draga
lengur að láta frá okkur heyra.
Um leið og við óskum þeim,
sem hlutu vinningana allra
heilla, viljum við þakka hinn
almenna og ágæta skilning, sem
fram kom bæði hjá kaupend-
um og seljendum happdrættis-
miðanna.
Happdrættisnefndin.
Hjartanlega þalcka jeg öllum, sem glöddu mig á 75
ára afmcéli mínu 2J/. júní með heimsóknum, skeytum
og gjöfum. — Guð blessi ykkur öll,
Jórunn Þórðardóttir
Haustimsum, Garði.
Hjer með sendi jeg mitt innilegasta þákklæti til
barna minna, tengdábarna, barnábarna og annara
skildra og vandálausra vina minna, sem glöddu mig
á 75 ára afmæli mínu með blómum, skeytum og öðr-
um gjöfum og á, ýmsan hátt gerðu mjer daginn ó-
gleymanlegan. Jeg bið góðan guð að launa ykkur af
ríkdómi sinnar náðar.
Jón Jónsson, Smirilsveg 23.
♦n?
Skemmti oy kynningarkvöld
heldur Garðyrkjufjelag Islands í Tjarnarkaffi föstu-
dag 4. júlí kl. 8,30 e. h.
Til skemmtunar:
1) Ávarp: form. fjelagsins, Jóhann Jónasson, bústj.
Bessastöðum. -7
2) Kvikmyndir frá Noregi og fleira.
3) Söngur.
4) Dans.
Aðgöngumiðar í sýningardeild Garðyrkjufjelagsins
á Landbúnaðarsýningunni og við innganginn, ef eitt-
hvað verður eftir.
Stjórnin.
AUGLÝSING ER GULLS ÍGILDI
£♦♦<$♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'
Síldarstúlkur
Nokkrar góðar stúlkur vantar til síldarsöltunar á
söltunarstöð Kaupfjelags Siglfirðinga, Siglufirði. —
Ibúð með ljósi og hita í góðu húsnæði og ferða-
kostnaður. — Nánari úpplýsingar gefur
^a^núó (jn&mundóóon
Sambandinu, sími 7080.
«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦••»••♦♦«>
»♦»»»»»»»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Lokað
í dag, vegna jarðarfarar frá kl. 12—4.
S.KÓON
— Bankastræti 14 —
Kveðjuathöfn
ARNDlSAR KRISTOFERSDÖTTUR
frá Hnausum
fer fram föstudaginn 4. þ. m. og hefst kl. 10 f. h. áð
. Elliheimilinu Grund.
Jarðarförin auglýst síðar.
Vandamenn.
Innilegustu þakkir til allra þeirra f jær og nær, sem
hafa sýnt okkur samúð og hjálp við fráfall og jarðar-
för litla drengsins okkar
HAUKS ARNAR.
Guð blessi ykkur öll!
Una Indriðadóttir.
Friðrik Sigurðsson.
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4