Morgunblaðið - 07.11.1947, Síða 1

Morgunblaðið - 07.11.1947, Síða 1
16 síður 34. árgangur 254. tbl. — Föstudagur 7. nóvember 1947 » ísafoldarprentsmiðja h.f. Allsherjarþing mun skipa milliþinganefnd Byrnes vill þýska frið- arsamninga næsta ár Mun flýta anduirebn Evrópu Winston Salem, North Carolina. ’ JAMES BYRNES, fyrverandi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. hefur tjáð sig fylgjandi því, að kvödd verði saman þegar á næsta ári ráðstefna, til að fjalla um þýsku friðarsamningana. Telur utanrikisráðherrann fyrverandi þetta vera nauðsynlegt, til í-.ð flýta fynr endurreisn Þýskalands og allrar Evrópu. Bandarísk aðstoð. Byrnes ljet í ljós þessar skoð- anir sínar í ræðu, sem hann flutti í Winston Salem s. 1. miðvikudag. Kvaðst hann álíta að gefa ætti Þjóðverjum þegar í stað leyfi til að hefja endur- reisnina heimafyrir, í stað þess að neyða þá til að byggja all- ar vonir sínar á aðstoð Banda- ríkjanna. Neitunarvaldið má ekki öllu ráða. Um þýsku friðarsamningana sagði Byrnes, að hann væri því meðmæltur, að gengið yrði frá þeim, jafnvel þótt Rússakynnu að neita að fara að vilja tveggja þriðju hluta fulltrúa hinnar væntanlegu friðarráðstefnu. Slík afstaða þyrfti engan veg- in að þýða það, að verið væri að gera sjersamning við Þýska- land, heldur hitt, að engri þjóð gæti haldist uppi að beita neit- unarvaldi sínu þar sem heims- friðurinn væri annarsvegar. (ripps unt kolabirgð- ir Brela London í gærkvöldi. SIR Stafford Cripps, efnahags- málaráðherra Breta, skýrði frá því í dag, að sökum góðveðurs- ins í sumar, væri Bretland nú betur búið undir veturinn hvað kolabirgðir snerti, en s.l. ár. Cripps sagði alla Breta mega fagna þessu, enda þótt það þýddi ekki það, að meira af kolum yrði látið fara til heimil anna. Framleiðsluna yrði að auka, en til þess þyrfti meiri kol. — Reuter. Álil alyinnunefndar BORGARSTJÓRI gaf þær upplýsingar á bæjarstjórnar- fundi í gær, að gefnu tilefni, að dregist hefði að atvinnumála- nefnd skilaði áliti m. a. vegna þess, að gengið hefir treglega að fá ýmsar upplýsingar frá atvinnurekendum sem óskað hefir verið eftir. ------------------------> Skipling Palestínu óhjákvæmileg London í gær ERKIBISKUPINN af York flutti ra'ðu í dag og talaði með al annars um Palestínu. Komst hann í upphafi svo að orði að enda þótt skipting landsins væri að sínu áliti ekki besta | lausn vandamálsins, væri nú svo komið, að framkvæmd hennar virtist óhjókvæmileg. Erkibiskupinn taldi Bretum hafa mistekist að halda uppi friði í Palestínu, en sagði það stafa af því, að þeir hefðu vilj að sýna bæði Aröbum og Gyð ingum fyllsta rjettlæti. Biskupinn lauk ræðu sinni með því að segja, að því fyr sem Bretar flyttu her sinn burt frá Landinu helga, því fyr mundu aðrar þjóðir gera sjer Ijóst að þær bæru einnig nokkra ábyrgð á þessu máli. — Reuter. Annað að vila en geta Washington í gærkvöldi. FRJETTAMENN hjer í Was- hington hafa rætt við ýmsa sjer fræðinga í sambandi við þá full- yrðingu Molotovs í ræðu hans í dag, að atomsprengjan sje hætt að vera leyndarmál. Sjerfræðingarnir vildu ekkert láta uppi um það, hvað hæft væri í staðhæfingu rússneska utanríkisráðherrans, en bentu á hversu geysimikill munur væri að vita um gerð sprengjunnar og smíða hana. Að Ijúka heimsfluginu NEW YURK: — Piper cub flug- vjelarnar tvær, sem hjer voru fyr- ir um tveim mánuðum síðan og ætluðu kringum hnöttinn, eru nú komnar til Alaska. Ætlunin er, að þær komi til Los Angeles 9. þessa mánaðar, en þá eru þrír mánuðir liðnir síðan þær lögðu upp frá austurströnd Bandaríkjanna. <$> Semur í London Eamon de Valcra. forsætisráð- herra Irlands, sem nú er stadd- ur ásamt þremur öðrum ráð- herrum sínum í London til að semja við brerku stjórnina um viðskipti milli Eire og Bietlands llm 5000 mái bárust hingað yær FIMM síldveiðiskip komu í gær hingað til Reykjavíkur með sam tals um 5000 mál síldar, er þau höfðu veitt í Hvalfirði. Af þessari síld fóru 400 mál til beitufrystingar, en hitt fór óskipt til bræðslu á Siglufirði. En Hrímfaxi sem er ;að lesta hjer síld flytur hana norður og leggur sennilega af stað í dag. Skipin sem komu í gær voru þessij Victoría með 1000 mál, af þyí fóru 400 til beitu. Guð- mundur Þorláksson 600 mál, Bragi með sama málafjölda og Riísnes og Fagriklettur með 1400 mál hvort. Veiðiveður var ekki hagstætt í gær á Hvalfirði. Síid á ytri hðfnlnni ÞEGAR hafnsögumenn fóru í gærmorgun til móts við ms. Dronning Alexandrine, út á ytri höfn, sáu þeir síld vaða þar í torfum. Torfurnar voru tvær og virt- ist síldin vera þjett. Er nú kom- ið eiris og í fyrra, er síldin óð alt inn fyrir Kolbeinshaus. Börn í þrælkunarvinnu. NtlRNBERG — Ákærandi Banda- rikjanna í rjettarhöldunum yfir fyr- verandi yfirmönnum I. G. Farben, hefur lagt fram sönnunargögn, sem sýna. að fyrirteekið notaði jafnvel átt ára börn í þrælkunarvinnu í verksmiðjum sínum. Rússar segjast ekkert skipta sjer af henni Verið að flæma okkur úr Sameinuðu þjóðunum, segir Vishinsky LAKE SUCCESS, N. Y., 1 gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. STJÓRNMÁLANEFND Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld með 43 atkvæðum gegn sex þá tillögu Bandaríkjatma, að skipuð verði milliþinganefnd, sem í eigi sæti allar meðlima- þjóðir S. Þ. Fulltrúar sex þjóða sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una, en strax að henni lokinni, tilkynnti Vishinsky, að Rússland mundi engin afskipti liafa af „Litla alsherjarþinginu", eins og nefnd þessi hefur verið kölluð að undanförnu. Vishinsky hafði áður ráð- ist heiftarlega á tillögu Bandaríkjanna og haldið því fram meðal annars, að með hemd væri verið að reyna að flæma Rússa úr Sameinuðu þjóðunum. Forsæiisráóherra Burma sýnl bana- fiiræls Rangoon í gærkvöldi. I DAG var gerð tilraun til að ráða forsætisráðherra Burma af dögum, er hann var á leið- inni frá Búdda-musteri nokkru til Rangoon. Var hafin skothríð á bifreið hans, er hún átti um 50 mílur ófarnar til höfuðborg arinnar. Sakaði forsætisráðherr ann þó ekki, en hinsvegar varð jeppabifreið, sem ók á eftir bíl hans, fyrir skotum, með þeim árangri, að breskur hermaður sem í henni var, ljet lífið, en liðsforingi særðist. Aðeins stutt er liðið síðan for sætisráðherrann kom til Burma frá London en þar ræddi hann við bresku stjórnina um vænt- anlegt sjálfstæði landsins. Frumvarpið um sjálfstæði þess var samþykkt í neðri málstofu breska þingsins i gærkvöldi. Greiddu 288 atkvæði með því en 114 voru á móti. Reuter. EINS og áður hefir verið skýrt frá í blaðinu, lauk atvinnuleys isskráningu ráðningarskrif- stofu Reykjavíkurbæjar s.l. miðvikudag, en slík skráning fer fram ársfjórðungslega. Sjáir erfiðum vetri. STUTTGART — Clay hershöfð- ingi liefur sagt i ræðu fyrir þýsk- um embættismönnum, að þeir megi búast við erfiðum vetri, en ef þeir bili hvergi. geti þeir vænst þess, að endurreisnin liefjist af fullum krafti á komandi vori. Afstaða Rússa. Áður en atkvæðagreiðslan fór fram, höfðu fulltrúar ýmissa landa — þar á meðal Frakk- lands og Noregs — tjáð sig tillög unni fylgjandi. Sir Hartley Shawcross, breski fulltrúinn, hafði og lýst yfir fylgi sínu í langri ræðu, þar sem hann meðal annars ræddi afstöðu Rússa til bandarísku tillögunn- ar og Sameinuðu þióðanna yfir leitt. Teheran og Yalta. Shawcross minntist meðal annars á það, að bæði í Teher- an og Yalta hefði verið lýst yf- ir ákvörðun stórveldanna um samheldni. En síðan hefði eítt þessara stórvelda þráfaldlega reynt og stundum tekist að neyða alla aðra til að lúta vilja sínum. Otti og grunsemdir. Samheldni, hjelt Shawcross áfram, verður ekki náð á þenn- an hátt. Við höfum hvað eftir annað farið bónarveg að Rúss- um. Ef hinir rússnesku sam- starfsmenn okkar vildu aðeins einu sinni varpa fyrir borð öll- um ótta sínum og grunsemdum, mundu þeir sjálfir geta gert mikið til þess, að sú samvinna náist, sem þeir lótast keppa að. Um ræðu þá, sem Vishinsky flutti í dag, sagði Shawcross: Vishinsky hefur ekkert getað lagt fram þeirri full- yrðingu sinni til sönnunar, að „Litla alsherjarþingið“ sje í ósamræmi við sáttmála Sam einuðu þjóðanna. Er jeg hlustaði á ræðu hans, gat jeg ekki annað en hugsað til þess hvað skeð hefði, ef hann í einum af þessum frægu (Framhald á bls. 12) I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.