Morgunblaðið - 07.11.1947, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 7. nóv. 1947
i
Frægasta orusiuskip heinisins
Forystuskipið „Victory“, sem Neísoa var á er hami stjórnaði
orustunni við Trafalgar og vann siim mikl^ signr, er eiui við
líði og þúsundir fcrðamanna koma árlega tii a'ð skoða<skipið.
Um daginn fór fram allshcrjar hrcmgerning ©g viðgerð á
skipinu, og þá var, myndin hjer að ofan tekin.
Ný Þingmát
Áínám prestskostninga
— Hjeraðshæii
Vill ekki taka að sjer varð-
stöðu á flugvellinum
Jéns Blöndal hag-
fræðings minsi í
bæjarsijóm
BÆJARSTJÓRN minntist í
gær látins bæjarfulltrúa, Jóns
Blöndal hagfræðings, bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins.
Forseti bæjarstjórnar Hall-
grímur Benediktsson mælti
nokkur orð. Fór hann miklum
viðurkenningarorðum um Jón
Blöndal. Hann átti sæti sem
varafulltrúi í bæjarstjórn á ár-
unum 1942 til 1946, en þá var
hann kosinn aðalfulltrúi. Enn-
fremur átti hann sæti í hafn-
arstjórn bæjarins og í bæjarráði
sem varamaður.
í minningar- og heiðurskyni
við hinn látna bað forseti bæj-
arfulltrúa að rísa úr sætum sín-
um.
-----&-!>-*»--
IsB um ferefiisip é
stiaimálshmanum
Á FUNDI bæjarstjórnar í gær,
skýrði borgarstjóri frá því, að á
fundi bæjarráðs í fyrradag hefði
komiö til umræðu breyting á
maímálstíma skrifstofufólks. —
Voru á þessum fundi bæjarráðs
kosnir 3 menn er gera skyldu
nákvæma rannsókn á því hvað
slík breyting heíði í för með
sjer fyrir bæjarstofnanir.
Gat borgarstjóri í þessu sam-
bandi hins eindregna vilja starfs
manna hinna ýmsu bæjarfyrir-
tækja, um það að t.aka bæri
breytinguna upp. En margs
væri að gæta, sagði borgarstjóri.
T. d. myndi matmálstíminn fær
ast yfir á ljósatímann, nauðsyn-
legt myndi vera, að láta gera
rnatstofur á vírinustöðum o. fl.
Værí hinsvegar svo, að einhver
hópur manna breyti um mat-
máistíma, en hjá öðrum veroi
bann óbreyttur frá því sem nú
er, þá myndi það stórlega jafna
r a f magn sálagið.
Isiensk lig fluft í ál»
varp í Ausfurríki
22. september s. 1. flutti út-
varpið í Graz í Austurríki söng-
lög eftir Pál ísólfsson, Sigfús
Einarsson, Kaldalóns, Árna
Thorsteinson og Karl Runólfs-
sori. Lögin voru sungin af Hertu
Töpper, söngkonu við óperuna
1 Graz, en dr. Franz Mixa ann-
aðist undirleikinn og ljek einnig
nokkra dansa eftir Jón Leifs.
A undan hljómleikunum mælti
dr. Mixa nokkur inngangsorð
um ísland og íslenska tónlist.
170 á námskeiðí á
Sauðárkróki
AXEL ANDRJESSON, sendi-
kennari Í.S.Í , hefir nýlokið nám
skeiði í knattspyrnu og hand-
knattleik á Sauðárkróki.
Þátttakendur voru alls 170 úr
gagnfræða- og barnaskóla Sauð
árkróks. Námskeiðið hófst 20.
okt. og var lokið 1. nóv. Var
áhugi og árangur nemenda með
ágætum.
Axel er nú kominn að Hóla-
nkóla, þar sem hann kennir á
jiárnskeiði.
JÓN PÁLMASON, Stein-
grímur Steinþórssoti. Jón Sig-
urðsson og Skúli Guðmunds-
son flytja fruxnvarj) um hjer-
aðshæli.
Samkvæmt því er lagt til að
rikissjóður greiði 2/3 kostnað-
ar við hjeraðssjúkrahús, sem
eitt eða fleiri hjeruð í samein-
ingu koma upp. Er þessum hæl
um ætlað að vera í senn sjúkra
hús, fæðingarstofnun, heilsu-
gæslustöð og vistheimili fyrir
gamalmenni.
Afnúm prestskosninga.
Gylfi Þ. Gíslason og Sigurð
ur Bjarnason flytja á ný frv.-
sitt um afnám prestskosninga.
Segir í greinargerð að Kirkju-
ráð hafi lagt til að frv. það er
þeir fluttu á síðasta þingi rueði
fram að ganga með nokkrum
breytingum. Hafa flutxiirigs-
menn nú sniðið frumvarpið
eftir tillögum þess.
Samkvæmt því skal forseti
Islands skipa presta eins og
aðra embættismenn.
Þegar prestsembæth losnar,
skal biskup auglýsa það í sam-
ráði við kirkjumálaráðherra.
Að loknum umsóknarfresti skal
biskup senda kirkjumálaráð-
herra rökstutt álit sitt á um-
sóknum þeim, sem borist hafa
um hverjum skuli veit embætt
ið. Ennfrcmur slcal leita álits
hlutaðeigandi hjeraðsprófasts,
áður en embættið er veitt, svo
og sóknarnefn eða sóknar-
riefnda i prestakallinu og greiði
þær atkTræði um það á sameig
inlegum fundi. F.f þessir þrír
aðiljar, biskirp,' hjeraðsprófast-
ur og sóknarnefndir, verða á
eitt sáttir í áliti srnu um um-
sækjendur, skal veita embadtið
samkvæmt því.
Sje hlutaðeigandi prófastur
meðal umsækjenda skal þó leit
að álits sóknarnefndar einnar.
Efling bindindisstarfsemi.
Bjarni Benediktsson flytur
frv. um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að verja fje úr rík
issjóði til eflingar bindindisstarf
serni.
Er þar lagt til að ríkisstjórn
inni verið heimilað að verja í
þessu skyni sem samsvarar
tveim hundraðshlutum af ár-
legum hagnaði áfengisverslun
ar ríkisins á moðan hreinn
hagnaður nemi 35 miij. kr. eða
þar yfir.
Verði hagnaðurinn minni
megi verja til þessarar starf-
semi sem samsvarar þrem
hundraðshlutum, ef hami nem
um 20—25 miljórium kr. en
fjórum liundráðshlutum ef
hagrxaðurinn nemur enn minni
upphæð.
IS’afnbreyling Vinnuveitenda-
fjelags íslands.
Hallgrímur Benediktsson
flytur frv. um að ákvæði í nú-
gildandi löggjöf, sem snerta
Vinnuveitendafjelag íslands
skuli gilda jafnt urn þennan
fjelagsskap, þótt nafni fjelags-
ins verði breytt og það nefnt
Vi nnu vei tendasamba nd íslands
London í gærkvöldi.
HIN væníanlegu aukafjárlög
verða lögð fram í n'eðri mál-
stofu breska þingsins næstkom
andi miðvikudag. Þá, en ekki
fyr, mun Iíugh Ðalton fjár-
málaráðherra, tjá bresku þjóð
inni, lrvaða nýjar hyrðar hún
þurfi að taka á sig til að flýta
fyrir cfnahagsendúrreisninni.
Þess er vænst, að í fjárlögun
um verði gert ráð fyrir aukn
um tóbakstolli cg gróðaskatti.
— Reutér.
TILMÆLI hafa komið um það
frá Flugráði, að Reykjavíkur-
bær taki að sjer slökkviliðsþjón
ustu á Reykjavíkurflugvellin-
um.
Skýrði borgarstjóri frá þessu
máli í gær á fundi bæjarstjórn-
ar. Var málið rætt á síðasta bæj
arráðsfundi. Þar var Agnar Koe
fod Hansen flugvallastjóri við-
staddur og Jón Sigurðsson
slökkviliðsstjóri.
1 brjefi flugráðs, sagði borg-
arstjóri, er talað um, að rekst-
ur flugvallarins hafi reynst rík-
issjóði mjög kostnaðarsamur,
og nauðsyn sje á því talin að
draga mjög úr útgjöldum ríkis-
sjóðs við reksturinn. Hafa gjöld
in verið áætluð 4x/i miljón kr.
á ári.
Flugráðið segir í brjefi sínu,
að það telji eðlilegt, að leita
samstarfs við Reykjavíkurbæ
um samvinnu við slökkvistarfið,
þar sem bærinn hafi fjölment
og vel skipulagt slökkvilið. —
Gæti það tekið að sjer v'arðþjón
ustuna á vellinum.
Flugmálastjórnin sje fús til
þess, að láta bænum í tje þau
slökkvitæki, sem á vellinum eru,
og eins þau húsakynni, sem not-
uð bafa verið fyrir tæki þessi.
Er í brjefinu talað um hina
miklu samgöngubót, sem Rvík
er að flugvellinum. En hann
hafi verið gerður, og starfrækt-
ur, án þess að nokkrar f járhags-
legar skuldbindingar hafi kom-
ið á Reykjavíkurbæ.
Borgarstjóri sagði m. a. að
enda þótt bærinn hafi ekki orðið
fyrir beinum útgjöldum vegna
vallarins, þá hafi hann orðið
fyrir þungum busifjum vegna
tilkomu hans. Þvr eins og kunn-
ugt er hafi bærinn á árunum
fyrir styrjöldina, lagt mikla f jár
hæð, eftir þeirra tíma mæli-
kvarða, í íþróttasvæðið við
Nauthólsvík. En þegar flugvöll-
urinn kom varð alt það verk
ónýtt, sem þar hafði verið gert.
Margar íbúðarhúsalóðir hefðu
orðið ónothæfar vegna vallar-
ins. Enda hefði völlurinn ekki
verið gerður fyrir tilmæli bæj-
arstjórnarinnar, heldur þrátt
fyrir mótmæii bæjarins.
Borgarstjóri skýrði frá, að
Jón Sigurðsson slökkviliðsstjóri
hefði rannsakað þetta mál ítar-
lega. Hann hefði skýrt svo frá,
að húsakynnin fyrir slökkvi-
liðstækin væri braggi, sem er
svo ljelegur, að liann lekur, og
svo kaldur að eitt sinn í fyrra-
vetur var mælt 8 stiga frost r
bragganum, þó allir ofnar væru
kappkyntir.
Slökkvitækin væru úr sjer
gengin og þyrftu brátt endur-
nýjunar við.
Bæjarráðið hefði ekki afgreitt
málið, sagði borgarstjóri. En
hann skýrði frá þessu, til upp-
lýsingar fyrir bæjarfulltrúana.
Útgjöldin til slökkviliðsins á
flugvellinum hefði hálft síðasta
ár orðið kr. 180,000, svo ársút-
gjöldin yrðu eftir því upp undir
400.000 kr. En slökkviðilsðsstj.
liti svo á að núverandi varðlið
á vellinum væri of fáliðað. Þar
væru 8 manns. Þyrfti að fjölga
varðmönnum. Og þá yrði kostn-
aðurinn ennþá meiri. Borgarstj.
var því andvígur að bærinn tækr
að sjer að annast útgjöldin við
varolið þetta og slökkviliðsþjón
ustu, en taldi, að komið gæti til
mála að stjórnin á slökkviliði
flugvallarins yrði sameinuð
stjórn slökkviliðs bæjarins, þó
þannig að bærinn hefði ekki út-
gjöldin á sinni könnu.
Umferðaspegillinn
kemur
SAMÞYKT vap á bæjarstjórn-f
arfundi í gær að heimila lög-
reglustjóra að kaupa einn um-
ferðaspegil til reynslu.
Hefur Erlingur Pálsson mælt
með því, að þetta yrði reynt. Á
ferð sinni til Suður-FrakklandsT
í sumar, kyntist hann slíkum
umferðaspeglum, og hefur skýrt
svo frá, að slysahætta yrði mun
minni á fjölförnum götuhorn-
um, þar sem slík leiðbeiningar-
tæki eru, eftir því sem borgar-
stjóri skýrði frá á fundinum,
Setja á spegilinn á hornið á
Barónsstíg og Laufásveg á 2x/z
meters háa stöng. En spegillinr;
er þannig gerður, að t. d. þeir
sern koma austan Barónsstíg-
inn, geta sjeð umferðina til
beggja hliða á Laufásveginurrs
áður en þeir koma fyrir hornið,
Sendbi ekki helm
gegn vlija sínnm
Lake Success, N. Y.
FRtJ Eleanor Roosevelt hefui’
endurtekið r einni af nefndum
Sameinuðu þjóðanna þá stefnu.
Bandaríkjanna, að flóttafólk f
Evrópu verði ekki flutt tií.
heimalanda sinna, nema það
sjálft vilji.
Þessi yfirlýsing frúarinnar
kom fram í sambandi við end
urteknar krÖfur Rússa um að
hafist verið handa þegar í stað
við að senda heim það flótta-
fólk, sem ennþá býr í flótta-
mannabúðum.
áfgreiHsliÉmi i
mjólkurbúðum
FRESTA var að ganga til at-
kvæða á bæjarstjórnarfundi í
gær um breytingartillögur sem
fyrir liggja, um afgreiðslutíma
í brauð- og mjólkursölubúðum.
Aðilar hafa ekki komið sjer sam
an um tillögurnar. Þótti rjett að
bæjarstjórnin eigi viðræður við
báða aðila áður en nokkur á-
kvörðun yrði tekin í málinu.
Þingkosflingar í
Pliiiipseyjym
Washington.
ELLEFTA þessa mánaðar
munu fara fram fyrstu þing-
kosningarnar í Philipseyjum,
síðan Band,aríkin veittu þeim
algera sjálfstjórn 4. júlí 1946.
Meir en þrjár miljónir Philips
eyinga hafa kosningarjett í ár,
og áætlað er, að um 85 prósent
þeirra greiði atkvæði í kosning-
unum.