Morgunblaðið - 09.11.1947, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 9. nóv. 1947
Fimm mínúfna krossgáfan
Lárjett: — 1 barefli — 6
kveikur — 8 forskeyti — 10
hús — 11 hljóðfæri — 12 á
fæti — 13 eins — 14 nyt — 16
líkamshluti.
Lóðrjett: — 2 ending — 3
orka — 4 eins — 5 nagdýr —
7 ofar — 9 fljót — 10 afkvæmi
— 14 hljóðstafir — 15 skáld.
Lausri á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 frítt — 6 æst
— 8 og — lOii — 11 karfinn
— 12 an — 13 N. N. — 14 ála
— 16 öldur.
Lóðrjett: — 2 ræ — 3 ísafold
■— 4tt — 5 lokkar — 7 vinna
— 9 gan — 1 Oinn -—■ 14 ál ■—
15 au.
Fundur Reyklavíkur-
prófasfsdæmis
FYRIR nokkru síðan var hald
inn ■ hjeraðsfundur Reykjavík-
urprófastsdæmis og var á fund
inum rætt um hina fyrirhuguðu
Neskirkju.
ýSamþykkti fundurinn, að
beina þeim tilmælum til bæj-
arstjórnar Reykjavíkur, að hún
gjöri gangskör, að því að af-
henda Nessöfnuði þá lóð sem
ákveðin hefur verið til bygg-
ingar Neskirkju.
Bæjarráð ræddi tilmæli þessi
á fundi sínum í fyrradag og
var samþykkt að vísa málinu
til bæjarverkfræðings.
Ármann sæfcir um
íþróllasvæði
GLÍMUFJELAGIÍ) ÁRMANN
hefur sótt um íþróttasvæði fyrir
f jelagið í Nóatúni í Höfðahverfi.
Hyggst fjelagið gera þar tvo
handknattleiksvelli og 400 m.
langa hlaupabraut. Þá hyggur
fjelagið og á að koma þar upp
fjelagsheimili.
Bæjarráð hefur mál þetta til
meðferðar á föstudagsfundi sín-
um og vísaði það málinu til
skipuíagsmanna, til umsagnar.
— Meðai annara orða
Framh. af bls. 6
að engu samþykktir mikils
meirihluta stofnunarinnar.
• «
Austrænt „lýðræði“.
Stjórnmálanefndin hefur sam
þykkt skipun milliþinganefnd-
■ arinnar. Rússar segjast ætla að
hafa hana að engu. Þetta þýð-
ir það, að rússnesku leiðtog-
arnir neita að hlýða ‘vilja meiri
hluta stofnunar, sem þeir hafa
gerst aðilar að og skera á úr
deilumálum þjóðanna á lýðræð
islegan hátt. Mjög líklegt má
telja, að þeir ’hafi með þessu
brotið stefnuskrá Sameinuðu
þjóðanna — ef ekki, hafa þeir
að minnsta kosti þverbrotið
þær lýðræðisvenjur, sem við
eigum að venjast.
En afstaða þeirra og styrfni
mun grundvallast á austrænu
„lýðræði“.
Píanófcnleikar
Jórunnar V'iðar í
Auslurbæjarbíó
FRÚ JÓRUNN VIÐAR hjelt
íyrstu píanótónleika sína í Aust
urbæjarbíó síðastliðið miðviku-
dagskvöld og var húsið fullsetið.
Þetta var jafnframt ánægjuleg
vígsla á hinum nýja bíósal, sem
er hinn stærsti og glæsilegasti á
landi hjer, en þetta voru fyrstu
tónleikarnir, sem þar eru haldn-
ir síðan salurinn var fullgerður.
Er ástæða til að þakka forgöngu
mönnum þessa fyrirtækis fram-
takið, því salurinn, sem er lát-
laus, en í besta máta smekkleg-
ur, reyndist að hafa prýðileg
hljómskilyrði og er nú enn betur
en verið hefur búið að tónlist
höfuðstaðarins að þessu leyti.
Jórunn Viðar fór vel af stað
á þessum fyrstu tónleikum sín-
um, svo vel, að öllum, sem á
hlýddu, má vera._það ljóst, að
hún er til þess í heiminn borin
að þjóna frú musica, og þá fyrst
og fremst við píanóið, sem hun
hefur þegar náð ágætlega vel á
vald sitt, svo sem tónleikarnir
báru vitni um.
( Fyrsta viðfangsefnið var Pre-
lúdía og fúga í As-dúr eftir
Bach. Nokkurs taugaóstyrks
gætti að sjálfsögðu í upphafi
(það hendir þá sem vanari eru),
en þetta lagaðist þó fljótlega, og
óx henni ásmeginn við hvert við
fangsefni út alla tónleikana.
Næsta og veigamesta verkið
var sónatan op. 109 eftir Beet-
hoven. Þenna tónaóð, sem fullur
er af jnnileik og töframætti,
túlkaði frúin ágætlega vel með
upprunalegri músiktilfinningu.
Hjer þarf þó mikils við, og þar á
meðal reynslu, sem aðeins skap-
ast með aldrinum og stöðugri
túlkun. Ef til vill mætti segja,
að nokkuð hafi skort á hið de-
móniska og ægifagra í öðrum
þætti verksins, en hver tæmir
það mikla innihald, sem liggur
í verkum Beethovens? Þeir eru
þá fáir, og hafa gengið í gegn-
um marga hreinsunarelda. Víða
gætti skáldlgera tilþrifa í fyrsta
þættinum, og tilbrigðin voru,
þrátt fyrir nokkrar tempo-breyt
ingar, sem um mætti deila,
prýðilega sungin og af miklum
innileik. Aðalatriðið er, að heild
armeðferðin var afrek, ekki síst
á „fyrstu“ tónleikum.
Frá Beethoven lá svo leiðin
til Chopin, Debussy og Liszt-
Paganini. Var brátt auðheyrt að
Chopin á veÚvið skap Jórunnar,
og kom nú enn bétur í ljós hið
óþvipgaða og frjálslega við Ieik
hennar. Best naut sín Polonais-
en, þótt allt væri vel leikið. Þá
var og skemmíilegt að heyra
Debussý-lögin, sem voru „perl-
andi“ og skýr í allri meðferð
hennar. Að lokum voru Liszt-
Paganini tilbrigðin í a-moll, og
gáfu þau frúnni gott tækifæri
til að sýna tækni yfirburði og
allskonar gneistaflug.
Hjer er um merka listakonu
að ræða, þar sem frú Jórunn
Viðar er, ærlega og alvarlega,
og umfram allt: Hjer rennur ó-
svikið músikblóð í æðum.
P. í.
t
fiiiiiiiiiiiiiMtiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiitimmiiiiiiiiiiiiliiiii
BEST AÐ AUGLYSA
t MORGUNBLAÐINU
— Reykjavíkurbrjef.
Framh. á hls. 8
Prófessor tnlnr
ÞEGAR DÖNSKU kommún-
istarnir höfðu beðið ósigur sinn
í kosningunum þkr í landi, og
höfðu mist í einu um það bil
helminginn af fyrra fylgi sínu,
þá var einn af forystumönnum
flokks Mogens Fog prófessors
að því spurður, hvað hann teldi
orsökina til þess, að flokkurinn
hefði fengið svo herfilega út-
reið.
Prófessor þessi var áhrifamik
ill maður í andstöðuhreyfing-
unni í Danmörku, eftir að Hitler
hafði gert innrás í Rússland.
Hann var í samsteypustjórninni,
sem sett var á Iaggirnar í land-
inu eftir uppgjöf Þjóðverja. —
Hann er sá af flokksmönnum
kommúnista þar í landi, sem
hefur þótt manna álitiegastur til
trausts og og halds fyrir flokk-
inn.
Blaðamaður, við blað, sem oft
hefur verið kommúnistum hlið-
holt, spurði þenna mann, hvort
hann hjeldi ekki, að auðmýkt
og uridirgefni danskra kommún-
ista við erlent vald, hefði verið
orsök þess, hve fylgið hefur
hrunið af flokknum. Prófessor-
inn hafði engu öðm til að svara
en því, að hann áliti að stefna
flokksins hefði verið alveg lauk-
rjett.
Svarið er eðliiegt. Iýommún-
istar ráða engu um stefnu flokks
ins, hinir minniháttar dátar út
um lönd. Þeir verða að hegða
sjer í öllu eins og þeim er sagt.
Og mega ekki segja annað, en
að stefnan sem þeim er ávísuð
sje hin eina rjetta.
í öngþveiti sínu segir svo aum
ýngja maðurinn, að hann hafi
alltaf verið að berjast fyrir því,
að bæta kjör þeirra, sem lakast
eru staddir í þjóðfjelaginu. —
Skyldi það þá ekki einmitt vera
fróðlegt að heyra hvernig þetta
hefur tekist í „alþýðuríkinu“.
Hvort vegurinn til batnandi
kjara fyrir þá lakast stæðu liggi
um hlaðið hjá einveldinu, þar
sem allur atkvæðarjettur al-
mennings er afnuminn, og eng-
inn má hafa aðra skoðun, en
valdhafarnir.
Hinn danski prófpssor, sem
hældi sjer af brjóstgæðum til
þeirra bágstöddu, bauð sig fram
á Amager. Hann fjekk um 5000
atkvæðum færra en komm-
únistaflokkurinn fjekk fyr-
ir tveim árum síðan á hinni
flötu eyju. — Fimm þúsundir
manna þar, sem trúðu því árið
1945 að kommúnistar vildu, og
væru menn til að bæta kjör
hinna bágstöddu, voru nú komn-
ir á aðra skoðun.
Og svona er þetta um allar
jarðir. Fylgið hrynur af komm-
únistum. En þar sem þeir hafa
rússneskan her á bak við sig,
eins og í Póllandi og í Ungverja-
landi, þar þurfa þeir ekki marg-
ment fylgi, til að hafa völd.
Nýlega sannfrjettist frá Pól-1
landi, þar sem þeir ráða öllu,
að um 5% kjósendanna fylgi
þeim. Og þeir voru innan við
10 kommúnistarnir, sem hrifs-
uðu til sín vöid í Ungverjalandi
sem kunnugt er. Svo menn geta
ímyndað sjer að kommúnistar
leggi ekki mikið upp úr því, að
hafa fjölmenni með sjer. Því
þeir hugsa sjer að vinna völdin
með hinum austrænu aðferðum,
en ekki með þeim lýðræðisregl-
um, sem gilda í vestrænum lönd-
um.
í Dómkirkjunni kl. 2 í dag.
(Sr. Sigurjón Þ. Arnason).
Harry Steinsson, Hringbr. 68.
Haukur Steinsson, Hringbr. 68
Ásta Eyjólfsdóttir Kolbeins,
Kolbeinsstöðum.
Birna Þórðardóttir, Sörla-
skjóli 84.
Elísabet Guðjohnsen, Lauga-
vegi 40.
Erna Magda Dyrset, Lauga-
vegi 24B.
Kristín Jónasdóttir( Máva-
hlíð 8.
| Vil kaupa |
I nýja 5 manna fólksbifreið, \
1 ameríska. Tilboð leggist 1
| inn á afgr. Mbl. merkt: i
| „A. K. 914 — 804“ fyrir \
§ kl. 6 þriðjudagskvöld 11.
I nóv.
.................... iiinii iii
lls. Dronning
Alexandrine
*
Næstu tvær ferðir frá Kaup-
mannahöfn verða sem hjer
segir: 18. nóvember og 6. des.
Flutningur tilkynnist til skrif-
stofu Sameinaða gufuskipa-
fjelagsins í Kaupmannahöfn.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN
Erlendur Pjeturssoi)
MflllllflilMtlllll III lllll IIIIMI11111111111111111111 IIIIIHtllQ
Vjelar í efnalaug j
til sölu. i
Nýleg white sprit hreinsi- I
vjel, sem tekur ca. 20 i
fatnaði í einu, distiílations- =
tæki og fúga. Allir til- i
heyrandi mótorar og rofar i
fylgja ásamt leiðslum. — |
Tilboð merkt: „Hreinsi- i
vjel“ sendist Mbl.. fyrir I
miðvikudagskvöld. i
iMMMMMMMMMMMMIMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMM1
IIIMIMMMII1111MM11111111MMMMMMMMMIMMIMIIMIIIMMIIII
Stórt, fallegt |
| Franskt sjel |
i (fjórfalt) til sölu. Tilboð =
\ merkt: „17 —797“ send 1
i ist afgr. Mbl. fyrir þriðju- =
i dagskvöld. |
■ IIIIIIIMIMIIf MMMMMMMMMMMMMMMMMIMMIIMMMMIMII
IMMMMMMMMMMMMMMIII..
| Herbergi (
Sjómaður óskar eftir I
i herbergi, helst í vestur- |
i bænum. Tilboðum sje skil =
i að til afgr. Mbl. fyrir mið i
i vikudagskvöld, merkt: =
í ..Strax — 801“.
111111111111111111111 IIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMMMMMIMlf >1111 MIII Ml|
teppi. stórt og lítið, til 1
söiu. Uppl. í síma 6186. |
S
MIIIMIIMIIMIMIIIIMIIIIIMMMIIMIMIIIIMMIIMMIIMIIIMIIIMl
\ Mikið urval af íslenskum i
i og útlendum frimerkjum. =
j TÓBAKSBÚÐIN 1
Austurstræti 1.
MMMMMMMMMMMMMMMIMMMM IMMIMI MMMMMMMM MMI*
! Jarðyrkjuvjelar
<§)
f Vegna mikilla takmarkana á innflutningi, og erfiðleika
f á útvegun, sendið okkur nú þegar pantanir yðar til
x afgreiðslu fyrir vorið:*
f Herfi (fyrir traktora og hesta)
Áburðardreifarar (fyrir tilbúin áburð) Villemöes.
i »>
\J*\ri6tján Cj. (jíáíaóon (C Co. Í
®^®®<®®<®<®^SX$><®^<®<$K^<®<®^®^><$K®<®®<$><SK®^K$K$K$>^<®K$Kg><^<^^K$><$>^K$K$.
Frá Batex Company Ltd., Bratislava, Tjekkóslóvakíu,
útvegum við allar tegundir af skófatnaði gegn gjald-
eyris -og innflutningsleyfum. Sýnishorn fyrirliggjandi.
SIGURÐUR ÞORSTEÍNSSON ÍI.F.
Grettisgötu 3. Simar 5774 & 6444.
1 Cjartar Cjíátaáoa Craelmcj Ctorp. |
52 Wall Street, New York, N. Y.
tftvega á hagkvæman hátt allskonar verslnnarvörur, "|>
vjelar og efni til iðnaðar.’ —- Pantanir afgreiddar svo %
fljótt sem auðið er, og fyrirspurnum fúslega svarað. |>