Morgunblaðið - 18.11.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.1947, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18.inóv. 1947 Útg : H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stJ.: Sigfús Jónsson Ritstjórl: Valtýr Steíánsson (ábyrgSarm.) Frjeííaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Arnl Garðar Kristinason. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr, 10,00 á mánuði innanlandf. kr. 12,00 utanlands. 1 lausasölu -50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Stuttb ylgj u útvarp til útlanda HVERSVEGNA notar íslenska ríkisútvarpið ekki stutt- bylgju þá, sem íslandi hefur verið úthlutað? Þúsundii; íslendinga, sem erlendis dvelja mundu áreið- enlega mjög gjarnan fá svar við þessari spurningu. En þetta er ekki mál, sem aðeins varðar þá íslendinga. sem erlendis dvelja og þyrstir í að fylgjast með því, sem gerist í heimalandi þeirra. Það varðar alla íslendinga, líka þá, sem heima eru. Við eigum að taka upp stuttbylgjuútvarp á íslensku til útlanda, að minnsta kosti einu sinni í viku til að byrja með. Það á að flytja frjettir af því, sem gerist með þjóð- inni, erindi og þætti um þjóðleg efni. Til athugunar væri einnig að í slíku útvarpi væri rekin kynningarstarfsemi um landið á erlendum málum. En fyrst og fremst er nauð- synlegt og sjálfsagt að hafið verið stuttbylgjuútvarp á islensku til þeirra íslendinga, sem erlendis dvelja. Þeir eiga nú engan kost að hlusta á útvarp frá heimalandi n'nu. Langbyngjusendingar Ríkisútvarpsins nú heyrast lítið lengra en til Færeyja. Það veit enginn, nema sá, sem erlendis hefur dvalið, íjarri heimahögum, hversu mikils virði allt samband við heimalandið er. Það eitt að heyra íslensku talaða vekur yl og þakklætiskennd í brjösti fólksins. Á stríðsárunum var urh skeið útvarpað hjeðan á stutt- bylgjum til útlanda. En því hefur verið hagitt, algerlega að ástæðulausu. Nauðsynin fyrir slíkt útvarp er ennþá fyrir hendi þótt sarngöngur hafi nú tekist við þau lönd, sem ílestir íslendingar dvelja í, það er að segja Norðurlöndin. Kostnaðurinn við þetta útvarp þarf ekki að standa því í vegi. Hóflegt væri að útvarpað yrði í eina klukkustund i einu vandaðri dagskrá. Það væri engin goðgá þótt nokkru fje væri varið til þess að gera hana sæmilega úr garði og þannig að hún næði sem best þeim tilgangi að gefa í senn gott yfirtlit um það, sem er að gerast með þjóðinni, og ílytja ýmiskonar þjóðlegt efni í talmáli og tónlist. Síldarflutningarnir í GÆR biðu um 20 síldveiðiskip með 15—17 þúsund mál síldar affermingar hjer í Reykjavíkurhöfn og betur ;leit út með veiðihorfur í Hvalfirði en nokkru sinni fyrr. ‘Samtals hafa nú aflast um 70 þúsund síldarmál hjer í .Faxaflóa í haust og tæp 30 þúsund í ísafjarðardjúpi. Hafa þannig aflast um 100 þús. mál það sem af er haustinu. „ Undanfarið hafa fjórtán skip annast síldarflutninga morður til ríkisverksmiðjanna á Siglufirði. Taka þau sam- -tals um 34 þus. mál. Þegar Selfoss og Súðin hafa verið , tekin til þessara flutninga annast þá skip sem taka nær 50 - þúsund mál síldar. Er þó ekki líklegt að það sje nægilega mikill skipakostur til þess að flutningarnir geti gengið •' eins greiðlega og nauðsyn ber til. En á það verður að leggja mikla áherslu að sem allra minnstar tafir verði á móttöku síldarinnar. Að því hefur líka verið unnið af dugnaði að gera þessa flutninga sem greiðasta, bæði af hálfu sjávarútvegsmálaráðherra, Síld- arverksmiðjg ríkisins og Landssambandi útvegsmanna. - Haust- og vetrarsíldveiðin getur haft mikla þýðingu fyr- - ír gjaldeyrisafkomu þjóðarinnar. Líklegt er að þegar hafi * verið framleitt útflutningsverðmæti fyrir um 8 miljónir króna úr þeim 100 þúsund málum, sem aflast hafa á haust- inu. í fyrra haust varð Faxaflóasíldarinnar fyrst vart að * ráði í desember en aðalveiðin hófst ekki fyrr en í janúar. Stóð hún fram í mars. Nú er veiðin hafin í október. Hve i iengi hún stendur verður að sjálfsögðu ekki fullyrt um. 1 En miklar líkur eru til þess að um mikla veiði geti enn I orðið að ræða. Þessvegna má einskis láta ófreistað til þess að hún verði hagnýtt til hins ýtrasta. uerji ,1 iknfar: UR DAGLEGA LIFINU Tjörnin og börnin. ÞEGAR Tjörnina leggur láta unglingarnir ekki standa á sjer að reyna ísinn. Skautar og skíðasleðar eru teknir fram, því betri skemtun er vart að fá, en skauta og sleðaferðir á svellinu. En ísinn getur verið hættu- legur og unglingarnir kunna oft ekki fótum sínum forráð, enda kemur það oft fyrir, að börn- in koma blaut heim eftir að hafa dottið í Tjörnina, gegnum vakir, eða veikan ís. Er það mesta mildi, að ekki skuli hljót ast fleiri alvarleg slys á Tjörn- inni en raun ber vitni, en oft skellur hurð nærri hælum. Varúðarráðstaf anir. FYRIR nokkrum árum gekk Slysavarnafjelagið fyrir því, að jafnan voru til taks björgun- artæki við Tjörnina, kaðlar og annað, sem hægt var að grípa til, ef slys bar að höndum. Má ganga út frá því sem vísu, að þessi tæki sjeu þar enn og að þeim hafi verið haldið við, því tækin eru nauðsynleg. En á hinu væri ekki vanþörf, að hafa gæslumann við Tjörn- ’ ina altat þegar hún er ný lögð, eða vakir eru á henni. Það ættu viðkomandi yfir- völd að athuga. • « Viðhald skauta- svells. OG ÞEGAR ís er á Tjörninni á að nota tækifærið og sjá til þess að bæjarbúar, bæði ung- ir og gamlir hafi þar gott skauta svell. Skautasvellið er afleitt eins og það er nú, eins og altaf þeg- ar Tjörnina leggur í hvass- viðri. ísinn er ósljettur og ó- hreinn. Nú er komið nóg af köldu vatni í bæinn og ekki hægt að bera því lengur við, að ekki sje hægt að sprauta svellið, en undanfarin ár hefir það ver ið svo sökum vatnsskors, að ekki hefir verið hægt að leyfa að sprauta svellið. Skautafjelagið hefir sjeð um þetta mál undanfarin ár og virð ist eðlilegast að það haldi því áfram. Kvörtun frá Aust- fjörðum. LESANDI Morgunblaðsins á Austfjörðum hefir beðið um, að minnst væri á erfiðleika, sem útvarpshlustendur eiga við að búa eystra vegna þess að endurvarpsstöðin að Eiðum er ekki í gangi nema endrum og eins. Segir lesandi þessi, að það virðist tilviljun og dutlungum einum háð hvenær stoðin sje höfð í gangi þarna austurfrá, en það er svo um marga út- varpshlustendur á Austfjörðum sem ekki hafa því sterkari tæki, að þeir hafa ekkert gagn af útvarpi frá Reykjavík, nema að því sje endurvarpað um Eiðastöðina. Til þess var hún bygð. ÞAÐ ER UNDARLEG ráð- stöfun, að hafa ekki Eiðastöðina í gangi í hvert sinn, sem út- varpað er frá Reykjavík. Aust- firðingar greiða víst sömu af- notagjöld af útvarpstækjum sín um og aðrir landsbúar og til þes var Eiðastöðin reist, að þeir hefðu full not af útvarpssend- ingum, eins og aðrir útvarps- hlustendur. • Lengri útvarpstínii. ANNARS ER það furðulegt, hve seint það gengur hjá út- varpsráði að lengja útvarpstím ann frá því sem nú er. Það hefir þráfaldlega og æ ofan í æ verið á það bent með rökum, að það gæti ekki kost- að mikið að útvarpa einhverju. skemtilegu efni t. d. á daginn, fyrir fólk, sem vinnur inni- vinnu og hefir gaman af að heyra ljetta og skemtilega mús ik. En það er eins og að klappa steininn. Gaman væri að heyra frá útvarpsráðinu hvað það hefir á móti því að lengja útvarps- tímann, eða hvaða erfiðleikum það strandar á. • Skemtileg dægra- dvöl. FJÖLDI Reykvíkinga dund- aði við skemtilega dægradvöl um helgina, en það var að labba niður að höfn og horfa á síld- arskipin koma sökkhlaðin í höfn úr Hvalfirðinum. Á öllum bryggjum mátti sjá prúðbúið fólk vera að horfa á síldina. Sumir höfðu víst vafa- laust aldrei sjeð síldarskip fyr, með þilfarið fult af síld og „síld arkarlana" hreistruga upp yfir haus. Þarr^ voru ungir menn og gamlir, konur og krakkar til að skoða þessi undur. Sildveiðin hefir aldrei ver- ið meiri en nú um helgina og vonandi að Reykvíkingar geti enn nokkrar helgar skemt sjer við þessa nýstárlegu sjón, sem ef að líkum lætur verður harla hverslegur við burður er líða fer á veturinn. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . j Eftir G. J. A. |- Enginn gefur sigrað í afomsfyrjöfd ÞAÐ VAKTI nokkra athygli á þrjátíu ára afmæli rússnesku byltingarinnar, þegar Molotov utanríkisráðherra, gaf 1 skyn í ræðu sinni í Moskva, að Banda ríkin hjeldu ekki lengur ein leyndardómi atomsprengjunn- ar. Blaðamönnum þótti þetta miklar frjettir, og fjöldi atom- fræðinga voru sóttir heim, til að heyra álit þeirra á ummæl- um rússneska utanríkisráðherr ans. Yfirleitt virtust sjerfræðing- arnir sammála um, að ómögu- legt væfi að Rússum hefði þeg ar tekist að leysa leyndardóma atomorkunnar. Þeir bentu á hinn gífurlega kostnað atom- rannsóknanna og alla þá vinnu, sem það hafði kostað vísinda- menn fjölda þjóða að framleiða sprengjuna, sem varpað var é Hiroshirha. — En þeir voru líke sammálá um, að ekki mundi langt líða, þar til Rússar og aðrar þjóðir —stórar og smá- ar — gætu framleitt þetta geig- vænlega vopn. Núna nýverið barst mjer blað í hendur, þar sem eðlisfræð- ingurinn Roald Tangen gerh atomrannsóknir og atomsprengj ur að umræðuefni. Hann segi: meðal annars: Mciri fræðsla nauð synleg. Fólk þyrfti að vita meira cn það gerir um ógnir atomork- unnar. Við verðum að opna aug un fyrir næstu árum, sem hljóta að ráða úrslitum um menningu vora. — Enginn get- ur að svo komnu máli dregið upp mynd^af því, hvernig at- omstyrjöld mundi verða. Til þess skortir okkur reynslu. En við getum gert okkur grein fyr- ir augljósustu staðreyndunum. Eyðileggingaráhrif atomsprengj unnar eru svo óumræðilega meiri en jafnvel stærstu venju- legra sprengja. Sprengiefnið í atomsprengju vegur aðeins örfá kíló. Það verður aldrei mögu- legt að koma upp áhrifaríkum vörnum gegn atomsprengjunni. Það er miklu ódýrara að nota Notað við atomrannsóknir. atomsprengjur en gamaldags sprengjur. Tangen ræðir það nokkuð, hvað ske mundi ef atomárás yrði gerð á eina af stórborgum Evrópu. Hann tekur London sem dæmi og segir: • • Árás á London. Eftir að fyrstu eða annari sprengjunni hefði verið varpað, væri ef til vill hægt að ná nokkru fólki saman til hjálpar. Eftir þriðju og fjórðu sprengj- una mundi engin aðstoð koma til greina, og eftir þá fimmtu eða sjöttu mundi borgin alger- lega afmáð af yfirborði jarð- ar. Fyrir minni bæi mundi ein til tvær sprengjur nægja. Tangen segir ennfremur: Allir bandarískir sjerfræð- ingar eru sammála um, að eng ar varnir sjeu til gegn atom- sprengjunni. Að nokkrum árum liðnum, geta allar þjóðir fram- leitt atomsprengjur. Ef aðeins nokkur prósent af sprengjun- um komast í gegnum varnar- kerfið, er það meira en nóg til að gersigra landið, sem árás- inni er beint gegn. í atomstyrj- öld verður það ekki lengur sá sterki, sem hægt og bítandi sigr ar þann veikari. Afleiðingin yrði algert hrun fyrir alla að- ila, og enda þótt einhver yrði í lokin kallaður sigurvegari, mundi það í raun og veru að- eins gert til að fullnægja venj- unni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.