Morgunblaðið - 18.11.1947, Side 14

Morgunblaðið - 18.11.1947, Side 14
14 MORGUISBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. nóv. 1947 MÁNADALUR ^>bálcliaqa eptir JJcicL cJ.ondon 58. dagur „Jæja“,-sagði hann brosandi, „skilið kveðju til mannsins yðar og segið honum að fara vel með sig. Hann muni þurfa á öllu sínu að halda þegar við reynurn okk- ur. Verið þjer sælar“. „Þjer megið ekki fara í hend urnar á honum“, sagði hún. „Þjér megið ekki gera það. Þjer hafið ekkert við honum“. „Þetta líkar mjer að heyra“, sagði hann. „Þannig eiga konur | .að trúa á menn sína, Ef þjer væruð væskilskona, þá munduð þjer vera dauðhrædd um að ( maðurinn yðar fengi slæma út reið“. „Jeg er ekki hrædd — — hans vegna. Jeg er hrædd yðar vegna. Billy er bardagamaður, og þjer hafið ekkert að gera í hendurnar á honum. Þjer skul uð vara yður á honum. Og nú verð jeg að fara. Verið þjer sælir og þakka yður fyrir það livað þjer voruð vingjarnleg- ur“. Hún gekk eftir gangstjett- inni og var að hugsa um þenn- an mann. Hún varð að viður- kenna það að hann var góður — og þó var hann einn af þess- um stóru, sem Billy sagði að bæri ábyrgð á allri rangsleitn- inni gegn verkamönnum. Að lians áliti var það þessum manni að kenna hvað konur verka- manna áttu bágt. Það var hon- um að kenna að verkfallsmönn um var varpað í fangelsi og- þeir dæmdir til dauða. Og saint var þessi ungi maður ástúðleg- ur, kurteis og góður. Hún sá það á svip hans og framkomu. Hverið gat það átt sjer stað að hann bæri ábyrgð á öllu því jlla, sem nú skeði? Henni var þetta alveg óskiljaniegt, Hún var svo sem ekki undr- andi út af því að hún skyldi hafa vilst út í þetta borgar- hverfi, inn á milli skrauthýs- anna. Það var svo sem ekki meira en margt annað, sem hún gerði óafvitandi og í leiðslu þessa dagana. En hún sagði við sjálfa sig að þetta yrði hún að varast. Þá var betra að fara niður að höfn eða út á Rock Wall. Best var að fara út að Rock Wall. Þar var hún komin í skaut náttúrunnar og þar var hún frjáls. Þar var hún komin út úr þessum bandvitlausa heimi inn í annan betri heim. Enda þótt garðurinn þangað út væri gerður af mannahöndum, þá tók maðtfr ekki eftir öðru en að hann væri náttúrunnar smíð. Og þar var ekkert fólk. Engin lög, ekkert stríð nje úlf úð. Hafið hækkaði og lækkaði með flóði og fjöru. Sólin kom upp og gekk til viðar aftur. Á hverju kvöldi kom hafrænan dansandi inn um Gullna hlið- ið, ýfði sjóinn svo að hann varð dökkblár og gaf bátunum byr í seglin. Þar var friður og kyrð yfir öllu, engir árekstr- ar nje uppsteitur. Þar mátti hver haga sjef eins og hann vildi. Þar var nógur eldiviður og^hver maður mátti taka eins og~hann vildi. Þar var engin til að verðlegggja. Litlir drengir sátu á klöppunum og veiddu fisk og enginn bannaði þeim það. Þarna sátu þeir líka einu sinni Billy og Hutchins og veiddu eins og þessir drengir. Þá grunaði Billy það ekki að hann mundi verða hneptur í fa'ngelsi á besta aldri. Og hjer var nógur matur. Einhvern daginn, þegar hún hafði hvorki bragðað vott nje þurt; kom Jiún þar að drengj- um sem voru að safna skelj- um á klettunum, af því að þá var háfjara. Þeir fengu hana til þess að kveikja upp eld fyr- ir sig og svo steiktu þeir skel- fiskinn. Þetta var afbragðs mat ur. Og nú lærði hún að safna skeljum og ostrum. Einu sinni fann hún nokkra fiska, sem einhver drengjanna hafði skil- ið. eftir. En þrátt fyrir friðinn þarr.a bárust þangað sannindamerki um vonsku mannanna •— vonsku mannanna í borgunum. Einhverju sinni um flóð var röst af melónum á floti. Þær voru þar þúsundum saman og þær skolaði í hrannir upp á leirurnar. Það var hægt að ná í þær, sem voru á floti rjett við klettana. En þær voru allar ó- nýtar. I hverja melónu hafði verið ristur djúpur skurður svo að sjávarvatnið hafði farið inn í þær. Saxon vissi ekki hvern- ig á þessu stóð. Gömul portu- gölsk kona var að safna elds- neyti þarna. Saxon spurði hana. hvernig á því stæði að melón- urnar voru svona. „Þetta gera þeir, sem haía. ofnægtir“, sagði gamla konan og eldur brann úr augum henn ar. „Þeir sem hafa ofnægtir. Þeir gera það til þess að verð- ið lækki ekki. Það eru þeir í San Fransisco sem fleygja þeim í sjóinn“. . j „Hvers vegna gefa þeir þær ekki heldur- fátæklingum?“, spurði Saxon. .J’eir vilja halda verðinu háa“. „Þeir -gætu það eins fyrir því. Fátæklingarnir geta hvort sem er ekki keypt melónur. Það mundi því ekki hafa nein áhrif á verðlagið þótt þeir fengi þær ókeypis“, sagði Saxon. Gamla konan ypti öxlum. „Jeg veit það ekki. En jeg veit að svona fara þeir að því. Þeir rista djúpan skurð í hverja einustu melónu svo að fátækl- ingarnir geti ekki lagt þær sjer til munns, ef þeir fyndu þær reknar. Eins fara þeir með epli og appelsínur. Og svo er það fiskurinn. Það er fiskliringur í San Francisko. Og þegar bát- arnir veiða of mikið, þá læt- ur hringurinn fleygja fiskin- um í sjóinn, heilum bátsförm- um af fiski. Þar sekkur fisk- urinn til botns og verður eng- um að notum. Fiskur er góð- ur matuc“. Þetta skildi Saxon ekki. Hún skildi ekki þann heim, þar sem sumir höfðu þær ofnægtir að þeir urðu að leigja menn til þes að eyðileggja þær, en sam tímis sultu þúsundir manna og börnin dóu af því að mæðurn- ar höfðu ekki mjólk í brjóst- um, en ungir menn börðust eins og villidýr um vinnu, og gamla fólkið varð að þræla 1 fátækrastofnunum, vegna þess að aðstandendur þess höfðu ekki neitt að bíta og .brenna. Skyldi það vera svona um all- an heim? hugsaði hún og mint- ist þá þess, sem Mercedes hafði sagt henni. Jú, það var víst svona um allan heim. Merced- es hafði horft upp á þúsundir deyja úr hungri í Indlandi, en hún hafði borið á sjer svo dýr- mæta gimsteina, að ef þeir hefðu verið seldir, þá hefði þeir getað bjarga’ð öllu þessu fólki. Hún var ein af þeim heismku. Allt benti til þess. Að minsta kosti var hún í þeirra hópi. Hvernig stóð á því? Ekki hafði móðir hennar verið heimsk og I ekki fyrstu landnemarnir. En þó hlaut þetta að vera þannig. j Annars mundi hún ekki vera j bjargarlaus, annars mundi ekki manninum, sem hún elsk- 1 aði hafa verið breytt í villidýr _ í fangaklefa, annars hefði hún ekki mist barnið sitt. Hún þjáðist af því að hugsa um þetta. Hvers vegna — hvers vegna var heimurinn svona? Og samt skein sólin svo yndis- lega, hafrænan ljek við vanga hennar og loftið var dásam- legt. Himininn var heiður og blár og víður og dásamlegur. Oll náttúran var dásamleg. Heimurinn, sem guð hafði skap að, var dásamlegur. En heim- urinn, sem mennirnir höfðu skapað.-var andstyggilegur, ör- yita, hræðilegur. Hvers vegna voru þeir heimsku heimskir? Var það eitt a'f lögmálum guðs? Nei, það gat ekki átt sjer stað. Guð hafði skapað heiminn fagr an, himininn og sólina. Menn- irnir höfðu skapað sjer annan heim, og hann var viðbjóðs- legur. Saxon sat lengi í þessum dap urlegu þönkum. En smám sam an vaknaði hjá henni uppreisn- arandi gegn ástandinu. Hvers vegna hafði guð látið alt þetta dynja yfir hana? Hvað hafði hún gert að hún ætti slíka með ferð skilið? Hún renndi hug- anum yfir æviferil sinn og at- hugaði hvort hún hefði fram- ið nokkrar dauðasyndir, en var engu nær. Hún hafði verið móð ur sinni hlýðin og hún hafði verið hlýðin þeim Cady hjón- unum, hún hafði verið hlýðin á barnaheimilinu og reynt að vera góð við hin börnin. Hún hafði verið Tom auðsveip eftir að hún kom til hans og aldrei rápað á götunum af því að hann vildi það ekki. í skólanum hafði hún jafnan fengið besta vitnisburð fyrir ástundun og góða hegðun. Hún hafði unnið á hverjum einasta degi frá því að hún kom úr skóla og þang- að til hún gifti sig. Og hún hafði verið dugleg. Gyðingur- inn litli, sem átti pappaverk- smiðjuna var nærri því farinn að gráta þegar hún fór frá hon um. Eins hafði hennar verið saknað þegar hún fór úr niður- suðuverksmiðjunni. í hampiðj unni hafði henni verið borgað hærra kaup en nokkurri ann- ari stúlku. Hún hafði orðið fyr- ir mörgum freistingum af því hvað hún var lagleg. Ungu mennirnir höfðu verið vitlaus- ir eftir henni. Þeir höfðu elt hana á röndum og barist út af henni, svo að hver önnur stúlka hefði tapað sjer. En hún hafði gætt hreinleikans. Og svo hafði hún fengið Billy. Það voru laun in fyrir allt saman. Hún hafði reynt að vera honum góð kona, hún hafði stjanað við hann og fyrir hann frá morgni til kvölds, af því að hún elskaði hann. Og nú var svona komið að þau Billy voru að sökkva niður í boínlaust forað volæð- is og örvæntingar í þessum GULLNI SPORINN 134. „Æ já — þú ert karlmaður; heimurinn er fullur af heimsku. En sjáðu þá um hana, þá skal jeg sjá um þig. Ef uppreisnarmennirnir finna ykkur ekki hjerna, skuluð þið fara upp í leyniherbergið, sem þú veist hvar er, Jack, • cg bíða mín þar.“ Hún sveipaði um sig skikkjunni, tók byssur mínar og gekk út. Um leið gekk sólin til viðar, og það var eins og dökk slæða var breidd yfir alla heiðina. „Jóhanna!" hrópaði jeg, því jeg sá nú, hvað hún hafði í huga, og hljóp út til að stöðva hana. En hún var þegar komin á bak hesti mínum. „Snúðu við,“ sagði hún lágt og blíðlega — „mjer hæfir betur að vera karlmaður en kvenmaður.11 Þvínæst- keyrði hún hestinn af stað og þeysti burt frá kofanum og í áttina að þjóðveginum. Varla hafði mínúta liðið, er jeg heyrðj, að uppreisnar- mennirnir riðu að kcíanum. Delía og jeg vorum komin upp á loft og höfðum dregið stigann upp á eftir okkur. „Nú er bann búinn að vera,“ heyrði jeg einn riddaranna segja, „því jeg sá greinilega að hann beygði aftur í áttina til Launceston!“ „En hver skollinn varð að stelpunni?" sagði annar. „Hann var aðeins einn á hestinum.“ „Já, þú segir nokkuð! Sam, farðu inn þarna og reyndu að finna hana“. • Fjelagar hans þeystu af stað, og rjett á eftir heyrði jeg, að sá, sem þeir kölluðu Sam, fór af baki og gekk inn. Jeg læddist að glugga, sem þarna var í þekjunni, renndi stig- anum hljóðlega út um hann og ga£ Delíu merki um að koma til mín. Að því loknu hvíslaði jeg að henni að klifra út um gluggann og niður stigann. En hún var vart komin hálfa leið, þegar jeg heyrði ægilegt hljóð úr eldhúsinu og þvínæst rödd Sams, sem hrópaði: „Hjálp — hjálp! Guð hjálpi mjer — þetta er svartur köttur — þetta er galdranorn! Stelpan er enginn kven- maður heldur galdranorn!“ 'r% ' í 9 — Hann var rændur aðal djásninu. Blaðamaður var að ræða við Thomas Edison. — Voruð það ekki þjer, sem funduð, upp fyrstu talvjelina? spurði hann. — Nei, nei, svaraði Edison, fyrsta talvjelin var búin til úr mannsrifi löngu fyrir mína daga. ★ Eiginmaðurinn: — Það gleð ur mig að kynnast yður, ung- frút konan mín hefir talað svo illa um yður. ★ — Það gengur eiginlega ekk- ert að yður, sagði læknirinn við sjúkling sinn, þjer eruð bara dálítið slappur og skulið taka yður frí í nokkurn tíma. Sjúklingurinn: — En jeg hefi alls ekki gert neitt í heilt ár. Læknirinn: — Byrjið þjer þá að vinna þegar á morgun. — Jeg skil þetta ekki, mjer finnst brennivínið vera daufara núna í seinni tíð. — Það stafar af því vinur minn, að þegar þú færð snaf§ kemur vatn upp 1 munninn á þjer og þynnir það. ★ Hann: — Það er alveg sann- að mál, að kvenfólk er orðið svo stórt upp á sig að það vill alls ekki giftast. Hún: — Hvernig veistu það? Hann: — Þú ert sú sjötta, sem neitar mjer. ★ Húsmóðirin: — Yður er hjer með sagt upp. Þjer voruð staðn ar að því í gær að-kyssa mann- inn minn. Vinnukonan: ■— Því segið þjer manninum yðar ekki frek ar upp. Það er orðið miklu auð veldara að ná í eiginmenn en vinnukonur. Gæfa fylgir trúlofunar hringunum frá SIGURÞÖR Hafnarstr. 4 Reykjavik. Margar gerdir. Sendir gegn póstkröfu hveit á land sem er. —- SendSS nákvœmt mál —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.