Morgunblaðið - 12.12.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.12.1947, Blaðsíða 1
16 síður 34. árganguj 285. tbl. — Föstudagur 12. desember 1947 l < íaaloldarprentsmiðja h.l Állsherjarverkfallið í Róm heldur áfram Sföðug manndráp og óeirðir í Palestínu Róm í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. LEIÐTOGAR verklýðsf jelaganna í Rómaborg gengu til atkvæða um það í kvöld, hvort halda skyldi áfram allsherjarverkfallinu, en um 600,000 verkamenn eiga í verkfalli og krefjast jólaupp- bótar og að veittar verði um 130 miljónir króna til atvinnubóta- vinnu fyrir atvinnulausa verkamenn. Fyr í dag var búist við að verkíallinu myndi Ijúka á morgun. Þriggja tíma fundur hjá ríkisstjórninni Fyr í dag höfðu verklýðsfje- laga leiðtogarnir átt þriggja klukkustunda fund með ríkis- stjórninni og hafði samkomulag náðst þar um ýms mikilsverð atriði. Var því alment talið að verk- lýðsf jelögin myndu ganga að til- boðum stjórnarinnar. Á fundi leiðtoga verklýðsfje- Kommúnistar á móti laganna, sem haídinn var eftir fundinn með ríkisstjórninni var ekki samkomulag. Þar voru 12 með því að halda verkfallinu áfram, en 7 á móti. Sósíalistaflokkurinn, sem Pie- tro Nenni stjórnar, var klofinn í málinu. Greiddu kommúnistar atkvæði með því að halda verk- fallinu áfram, en Cuiseppe Sara- gat og fylgismenn hans vildu af ljetta verkfallinu. Lögreglan viðbúin Lögreglan var viðbúin á göt- um Rómar í dag. Voru lögreglu- menn með stálhjálma og höfðu hríðskotabyssur að vopnum. — Dreifðu þeir mannfjölda, er hann safnaðist saman á götun- um. Verkfallið ekki algert Það er langt frá því að verk- fallið sje algert. Ýmsir verka- menn hafa mætt til vinnu sinn- ar og veitingahús öll eru opin, einnig kvikmyndahús og aðrir skemtistaðir. Póstur og sími er í fuílum gangi og er talið að 70% af opinberum starfsmönn- um hafi mætt til vinnu sinnar í morgun. 6 komus! a! - 23 fórnst í f!ugs!?s- iny í Labrador New York í gær. SEX MANNS komust af, en 23 fórust, með „Skymaster“- fluevjelinni amerísku, sem fórst í Labrodor, ekki allfjarri Goosebay, i fyrradag. Helicopterflugvjel ' flutti lækna og hjúkrunarlið á slys- staðinn og tókst að lenda rjett við slysstaðinn, þrátt fyrir mik inn pg djúpan snjó. Björgunar- sveitir höfðu v.erið sendar og höfðu þær hundasleða til að ferðast á. Heill sólarhringur leið áður en komist væri að flugvjelinni, sem hrapað hafði á hinni eyði- legu strönd Labrador. — Reuter. Fiiiírúadeiiiu sam- þykkir 590 aiíjónir dollðra Washington í gær. Einkaskeyti til Morgbl. frá Reuter. Fulltrúadeild Banda- ríkjaþings sasnþykti í dag beiðni Trumans forseta um 500 miljónir dollara fjár- veitingu til hjálpar Frökk- um, Austurríkismönnum, Itölum og Kínverjum. Hcfir hin upphaflega upp hæð, sein forsetinn fór fram á verið lækkuð óveru lega. Eins og kunnugt er, er þetta bráðabirgðahiálp og ekki Marshallhjálpin öll. I Frakklandi var þessum frjcttum vel tekið, en þó er látin í Ijós nokkur kvíði fyrir því, að fjárhagur Frakklands hafí beðið það mikla hnckki við nýaf- staðin verkföll, að aðstoð Bandaríkjanna komi ekki að þeim notum, sem við var búist í upphafi. Sex farasi í námu- slysi Pennsylvanía í gærkv. SEX námumenn ljetu lífið í dag og að minnsta kosti þrír meiddust, ef sprenging varð í einni af kolanámum Penn- sylvaníu. Björgunarsveitir og sjúkra- bifreiðar voru sendar í flýti á slysstaðinn ,en ókleift reynd- ist bá að bjarga mönnum þeim, sem fórust. Skyldmönflum Hirohifos bönnuð vinna Tokio. MÁGI OG SVILA Hirohitos Jap- anskeisara hefur verið bannað að taka að sjer opinber störf í Japan að dómi stjórnarnefndar- innar japönsku. Þá var og 9 öðr- um prinsum japanska aðalsins bönnuð öil -opinber störf. Ástæð- an fyrir banni þessu er sú að þeir hafi verið í japanska hern- um annar sem ofursti en hinn sem fiotaforingi. — Reuter. París. — Nimitz, flotaforingi Bandaríkjanna, hefur verið sæmdur merki Frönsku Heiðurs- fylkingarinnar. Bretar þvo hendur sínar af ákvörðun Sameinuðu þjóðanna Jerúsalem í gærkvöidi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. EKKERT lát er enn á óeirðunum í Palestínu og hafa nú verið arepnir 126 menn á síðustu 12 dögum, en um 500 særðir. í dag voru minsta kosti níu Gyðingar drepnir þegar tveir hervagnar Haganahliðsins voru eyðilagðir við Solomon Pools nálægt Betle- hem og fjórir í viðbót voru drepnir í suður Palestínu.- í morgun voru tveir Gyðingar drepnir og um sextíu særðir. Bretar halda áfram að fá Aröbum aukin lögregluvöld í hendur í Jaffa, sem er arabisk borg. Verða þau undir stjórn bæjarráðs Jaffa. KirkjudciSa s Esiglandi I Brctlandi er komin upp kirkjudeiía milli erkibiskups- ins al' Kantaraborg, dr. G. Fischers og hiskupsins af Birm- ingham Dr. Ernest William Barnes. Erkibiskupinn ásakar embættisbróður sinn um guð- last, en Barnes hefir í bók, sem nýlega er komin út eftir hann, stungið uppá því að þeir kaflar í Gamlatestamentinu, sem fjalla um kraftaverk verði strikaðir út úr kristnum fræðum. Barnes biskup, sem er 73 ára sjest hjer á myndinni, þar sem har.n er að verja mál sitt í Lávarðadeild brcska þingsins. iöfSariiierM Srá flugvje! á Miðjarð- arfíafi — Reuter. Róm í gærkveldi. NEYÐARMERKI heyrðust í kvöjd frá flugvjel, sem talin er vera ítölsk og sem í munu vera fimm menn. Flugvjelin hapaði í sjóinn fyrir austan Korsíku í dag. Þar var mikil þoka. Útvarpsstöðin, sem tók á móti neyðarmerkjunum sagði að þau hefðu heyrst nokkrum sinnum frá flugvjelinni, en hefðu svo allt í einu þagnað. ítölsk korvetta var send á staðinn, þar sem flugvjelin hranaði. „Hræðilegar aflejðingar“ Creech Joncs sagði í neðri deild breska þingsins í dag bæði Gyðingum og Aröbum að óeirðir þær, sem undanfarið hafa hrjáð land þeirra myndi hafa „hræðiiegar afleiðingar“,. ef þær ekki hættu strax. Hann sagði að Bretar hefðu ekkert vald til þess að þröngva aðgerð- um öðrum hvorum þeirra í hag og að Bretar samþyktu ákvörð- un S. þ. sem ákvörðun alþjóða- dómstóls. Bera ekki ábyrgðina. Nýlendumálaráðherrann sagði þó að Bretar hefðu tekið það skýrt fram á Allsherjarþinginu að þeir gætu ekki tekið á sig þá ábyrgð, sem ákvörðun þeirra fylgdi og að leiða málið til lykta með vopnum. Hann sagði að á- kvörðun Breta um að fara úr Palestínu væri að skapi bresku þjóðarinnar og væri óhagganleg. Utanríkisráðherrar koma sjer saman tim stálfram- leiðslu Þjóðverja o. fl. London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunbiaðsins frá Reuter. Á FUNDI utanríkismálaráðherranna sem var einn sá árangurs- mesti sem enn hefur verið halinn komu ráðherrarnir sjer saman um eftirfarandi. Stálframleiðsla Þýskalands skal vera 11 miljón og 500 þús. tonn á ári. Kolaframleiðsla Þýskalands skal vera sama og á síðasta ári eða meiri. Hafði Bevin lagt til að 11 millj. tonn af stáli yrðu framleidd, en Molotov milli 10 eða 12 milljónir. I Verksmiðjuáhöld Einnig var ákveðið hvenær og hvað mikið yrði útflutt af verk- smiðjuáhöldum Þýskalands. — Bidault sagði að 1933 hefðu verksmiðjuáhöld Þýskalands ver ið ein miljón og 25 þúsund en í stríðinu hækkað upp í tvær miljónir og hundrað og fimtíu þúsund, sem væri miklu meira en hægt væri að notast við á friðartímum. Bevin mótmælti en Bidault krafðist að nefnd yrði skipuð til þess að athuga þetta. Var síðan ákveðið að 15. apríl 1948 skyldi vera búið að telja saman og á- kveða hve mikið af verksmiðju- tækjum Þýskalands skyldi flutt burt. Umræður um hergangasmiðj- ur voru síðan ræddar en ekki var tekin nein ákvörðun um, hvað við þær yrði gert. Nýtt skipulag Creech Jones sagði að það væri ekki Breta að taka enn á ný á sig þá miklu ábyrgð, sem færi með því að koma á nýju skipulagi í landinu helga. Hann bað menn að muna að þegar Alls herjarþingið samþykti skipting- una þá hefði minnihlutinn barist harðlega gegn því, en þingið haft ónógan stuðning til þess að halda fyrirsjáaniegum vandræð- um í skef jum. Ilafa litla trú á aðferðum S. þ. Hann sagði og að Bretar hefðu fengið litlar þakkir fyrir þátt sinn í framförum Gyðingalands. Bretar væri fegnir að fara úr Palestínu þótt hann hefði litla trú að aðferðum þeim sem S. þ. ætlaði að nota til þess að leysa málið. Nefnd S. þ. verður að vakna Þess verður að krefjast af stjórninni að hún ákveði sem fvrst hvaða dag Bretar yfirgefa landið, svo að nefnd S. þ. myndi vakna og huga að þessu máli með þeirri festu, sem það krefð- ist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.