Morgunblaðið - 12.12.1947, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.12.1947, Blaðsíða 9
Föstudagur 12. des. 1947 MORGVTS BLAÐIÐ 9 Jeg get ekki skilið hræðsluna við ölið -- - segir Ingóifur Gísla- son hjeraðslæknir JEG VAR að lesa þessa gömlu þingræðu, sem andstæðingar öls- ins nota nú fyrir sverð og skjöld. í>ar er ritað: „Þess greiðari sem aðgangur er að áfengum drykkjum og því fleiri tegundir sem um er að velja því meiri og almennari verður drykk j uskapurinn“. Þarna eru tvær fullyrðingar ó- sannaðar eins og gengur og sjálf- sagt finnst mjer að athuga þær ögn nánar. Gamla setningin: „Eigi leið þú oss í freistni“, er víst ennþá í fullu gildi og sannanlegt er það að áfengisnotkun minnkaði mjög mikið um aldamótin þegar sölu- bannið gekk í gildi út um þorp og sveitir og þá kvað einn, er hann kom i kaupstað næst á eft- ir: „Sorgarstranga svipinn ber sjerhver spangaviður, á drykkju- vangi dapurt er, drengir hanga niður“. En það er nú sama, allt fór vel, menn tóku gleði sína og ljetu sjer nægja að fá einstaka sinnum pela með póstinum, en svo fór að frjettast um bannið og þá vita allir hvernig fór. Það var ekki greiður aðgangur að áfengi hjer á íslandi á bann- tímanum, en hver vill fá það á- stand aftur, allan þann óþverra ofan í fólkið, öll þau lagabrot og svo peningaausturinn í ófyrir- leitna launokrara, bæði útlenda og innlenda. Eða hver vill fá aft- ur í starfrækslu skonsuna inni í Skuggahverfinu, þar sem lýður- inn stóð í langri og þjettskipaðri biðröð langt út á götu. Jeg gekk þar einu sinni framhjá og spurði undrandi hvað það væri sem hjer ætti að fara fram og mjer var sagt að þarna væru seld nokkurs- konar „recept“ upp á áfengi. Jeg hefði ekki viljað bíða þar tímum saman í kalsa veðri, en mikið var drukkið þau árin þótt aðgangur- inn væri ekki greiðari en þetta. Víða í borgum utanlands er vínflöskum raðað í gluggana, flöskum með glæsilegum miðum og ginnandi lit, ekkert Svarta- dauðamerki og svo verði stilt í hóf, en jeg hefi mjög sjaldan sjeð ös í þessum búðum, þótt jeg hafi reynt að veita því athygli, þegar jeg hefi gengið framhjá. Sumir segja að menn læri að standast freistingarnar — æfing- in sje holl í því sem öðru. Jeg veit það ekki. Svo er hin fullyrðingin: „Því fleiri tegundir, sem um er að velja, því meira drukkið“. Mjer er ekki ljóst hvaða rök eru fyrir þessu. Ef jeg kæmi inn í vínbúð, þar sem um væri að vélja Svarta dauða og gott öl þá tæki jeg öl- flöskuna og svo mundu fleiri gera. Jeg verð að fara fljótt yfir sögu. Næst kemur þetta: „Hver hinna þriggja höðuðtegunda á- fengra drykkja — öl, vín og brenndir drykkir á sinn söfnuð etc. „Ölið á unglinga, börn og erf iðismennina". Jeg held að ungl- ingar sjeu ekki frekar sólgnir í öl en aðrir, þeim þykir ekki bragð ið gott og aðhyllast fremur sæta drykki — þó náttúrlega undan- tekningar frá þessu eins og geng- ur. Jeg er gamall maður og hefi verið víða með þar sem vín hef- ur verið haft um hönd, en jeg hefi mjög sjaldan sjeð unga stúlku drekka öl. Engum heilvita manni, nema hálfgerðum glæpa- mönnum — ef þeir þá teljast til heilvita manna, dettur í hug að gefa eða selja barni áfengi. En þá eru það erfiðisrnennirnir. Jeg held að það sje engin hætta á því að heilbrigður maður neyti áfengis — hvorki öls nje annars — oftar en einu sinni eða tvisvar, ef hann vinnur erfiðisvinnu, verkamanna niður í sveit nokk- urskonar róna, sem sinna miklu síður guðs og manna lögum. Það má vera að konur þær, er víns neyta og fólk það, sem höf- undur kallar tískufólk, drekki aðallega vín, þó virðist mjer að því fólki líki eins vel sterkir eða brenndir drykkir þynntir með einhverjum gosdrykkjum eða ávaxtasafa. Jeg efast því um að rónarnir, sem þarna eru settir í þriðja flokk, sitji einir að sterku drykkjunum. Þar er jeg hræddur um að sjeu afætur — hófdrykkju mennirnir, sem margir hverjir mundu þó fremur kjósa gott öl, ef það væri fáanlegt. Svo kemur: „Það er fánýt kenning að veikar áfengistegund- ir komi í staðinn fyrir sterku drykkina og útrými þeim“. Hvernig á að fara að því að sanna þetta? Jeg held því fram að hitt sje að minnsta kosti eins mikill sannleikur, að margur ljeti Svartadauða-flöskuna ó- hreyfða, ef hann ætti kost á GÓÐU ljettu víni, með skaplegu verði, eða flösku af Gamla Carls- berg eða háns ígildi og jeg veit með vissu að heil lönd eru til þar sem mjög lítið er um neyslu brenndra drykkja, en ljettu vín- in látin nægja, eins ætti að geta verið hjer. ef nokkur viðleitni væri höfð í þá átt að kenna fólk- inu að gæta skynsemi og hófsemi í viðskiptum við Bachus, eins og Bjarni á Leiti hafði eftir Sírak, hvað matinn snertir. Það gengur eins og rauður þráð ur í gegn um margar bindindis- ræður, að á ölinu læri unglingarn ir að drekka, eins og hundarnir að stela af mjóu þvengjunum. — Þessi skoðun er líka athugaverð. Þá gætu börnin alveg eins lært að drekka af eoca cola og ljetta ölinu, sem selt er í mjólkurbúð- unum, en engan hefi jeg heyrt tala um að þar sje neinn drykkju skóli fyrir þau Og svo mætíi spyrja hvernig standi á ófremd'- arástandinu í áfengismálunura hjer, sem ræðumaður lýsir rjetti- lega, ekki hefur áfengt öl hrundið því af stað því það hefur alls ekki verið hjsr til, svo einhver mótsögn er í þessu. Það er næst- um eins og þegar úlfurinn kenndi lambinu um að það gruggaði vatn ið fyrir sjer, þótt það stæði neð- ar við lækinn. Svo segir ræðumaður: ....... drekkum yfirleitt til að verða ölvaðir og vel drukknir". Hjer held jeg að sje fullmikið sagt. Fjöldi fólks fær sjer glas til að hressa upp á samviskuna og „vökva sálarblómið", eins og skáldið segir og svo má minna á hvað Salomon sagði og eins minnir mig að Hjálmar Tuddi kæmist einhvernvegin skemmti- lega að orði, þegar sjera Sigvaldi gaf honum í silfrinu, og svo þeg- ar þarna rjett á eftir er gefið í skin«að sterku drykkirnir sjeu síst óhollari en þeir veiku, þá dettur mjer í hug — eins og stjórnmálamennirnir segja hver við annan -— hvort ekki væri rjett að endurskoða þessa full- yrðingu. Margur iæknir kennir það mótsetta, þegar í hóf er stillt drykkjunni, og þetta með skemmdina í nýrum og æðakerfi á naumast við almenning, heldur við hóflausa þambara. -Jeg veit Hka með vissu að fjöldi fólks hef- ur orðið lasið í nýrum og æða- kerfi án þess að hafa smakkað öl hann finnur strax að það dregur allt sitt líf, að ráði. úr starfsorkunni og það er ein- | „Vjer íslendingar eigum nú um mitt hún, sem hann þarf á að sáran að binda, vegna almenns halda. Láti hann ekki vítin sjer og siðlauss drykkjuskapar".—Já að varnaði verða þá hrökklast því miður er mikið til í þessu, hann mjög fljótlega úr flokki en ekki er þetta ölinu að kenna, eins og áður er drepið á. Margir af þessum næturgestum hjá lög- reglunni hafa lítið eða ekki kynnst áfengu öli, en það er víst aðallega sá svarti, sem kom þeim á spenann. Mundi jeg því telja heppilegt að gáfaðir og góðir á- hrifamenn, eins og ræðumaður, gerðu hríð að brenndu drykkjunum og krefðust þess að þeir væru skammtaðir naumt, helst mjög naumt, en leyfðu heldur stálpuðu fólik og ráðsettu að fá sjer gias af góðu öli við og við. Og svo er þarna skemmtilegt spjall um síðasta vígið. Mjer dettur í hug grein eða saga, sem birtist hjer á árunum og hjet „Síðasta fullið“. — Mjer fannst eitthvað snilldarsnið á henni og jeg átti í stælum við prestinn minn út af henni. Hon- um var meinilla við vínguðinn og allt hans hafurtask, en mjer var alltaf fremur hlýtt til Bac- husar þrátt fyrir alla galla háns. Við prestur rifumst um það hvern málstaðinn greinin styddi, báðir voru ánægðir með hana og hvorum um sig fannst hún nokk- urskonar vígi. Er það nú ekki svo, að það valdi töluverðum á- greiningi hvort þetta ölbann sje nokkurt verulegt vígi. Bachus stendur þarna g^skafullur og sprautar í okkur whisky, vínum og brennivíni, liqurum og kogara, mundi ekki hið vígða Gvendar- 'brunnavatn, kryddað og treyst til geymslu með dálitlu að vínanda, verða nokkurskonar þrifabað á eftir, ef gætilega væri látið renna í kerið. Jeg held að vigið sje sundurskotið og að eins gott væri að standa á bersvæði og reyna að ná í krumlunaá Bachusi og semja skynsamlega við hann. Síðari partur ræðunnar er frekar almenns efnis og að nokkru leyti bundinn við annan stað og tíma, svo jeg fer ekki frekar út í þetta. - Eins og að ofan greinir er jeg ekki að öllu leyti á sama máli og heiðraður ræðumaður 6g jeg get ekki skilið þessa hræðslu við ölið hjá bindindismönnum yfirleitt, þegar sterkari vín eru ótæpt notuð og örðugt þykir að komast hjá því. Ræðan er líka nokkuð gömul, tímarnir breytast og við breytumsf með og jeg gæti trúað því að ræðan yrði dálítið öðru vísi ef þessi ágæti maður ætti nú að tala um þetta eins og málum er komið. Reynslan er alltaf að kenna okkur. Mjer skildist á greindum út- lendingi í sumar, að honum virð- ist það eitthvað skrítið að þessi merka söguþjóð skuli vera látin þamba brennivín næstum eins og forfeðurnir teiguðu mjöð í gamla daga,' en nú þoli hún ekki að dreypa á góðu öli. Það var þó álitið að Snorri Sturluson hafi hrest sig á einhverju. slíku þegar hann var að semja Heimskringlu. Persónulega er mjer þetta ekki kappsmál, hefði þó þegið að fá glas af góðu öli stöku sinnum með mat. Þjóðin verður að ráða fram úr þessu, helst æsinga- og áróðurslaust. Mjer finnst sorglegt að litið skuli vera á okkur sem hálfgerða ræfla, sem að vísu þoli vel brennivín, en sje ekki trú- andi fyrir ölglasi. Jeg held þjóðin ætti að reyna að láta lækna drykkjumennina, ef þess er kost ur og skammta svo vínið, eins og annað og kannske líka ölið, ef hún ræður af að gera tilraun með það; ef tilraunin gefst illa má brátt draga úr styrkleika á ölinu aftur. — Sem stendur er þetta allt einhvernvegin öðru vísi en það á að vera. Ing. Gíslason. Framtalsdagur eigna- könnunarimiar verð- ur 31. desember n.k. Innköllun peninga hefst þann sama dag Fjármálaráðherra birtir reglugerð um eignakönmmina. SVO SEM kunnugt er, var fyrir nokkru síðan hafin afhending nafnskírteina vegna eignakönnunarinnar. Nú hefur fjármálaráð- herra, Jóhann Þ. Jósefsson, gefið út reglugerð um eignakönnun- ina. Þar segir m. a. að framtal eigna og tekna samkvæmt lög- unum, skal fara fram 31. desember næstkomandi. Nefnist þessi dagur: Framtalsdagur. Framtölum ber að skila til viðkomandi skattyfirvalda fyrir 1. febr. 1948. Sjóðseign bókhaldsskyldra að- ila skal jafnframt talin eins og hún raunverulega var að kvöldi 31. des. Reglugerð þessi er í fimm köfl®> um og þeim skipt niður í 26 greinar. Hjer á eftir fer útdrátt ur úr ýmsum köflum og aðnr birtir í heild, er á þessu stigi málsins varðar almenning mestu Framtalsskyldir Framtalsskyldir eru allir þeir aðilar, sem fram eiga að telja til skatts samkv. gildandi skatta- lögum. Þar með talin börn, gam- almenni og aðrir, sem hvorki hafa talið fram áður nje verið skattlagðir áður. Framtalsskyld ir eru einnig sjóðir, f jelög, stofn anir og bú, sem eru undir skipt- um, og aðrir ópersónulegir aðil- ar, sem eignir eiga, enda þótt þeir reki ekki atvinnu eða njóti skattfrelsis að lögum. Fram skal talið, þó að eign aðila sje ekki svo mikil, að skatt- skyldu nemi. Eign barns innan 16 ára ald- urs, sem ekki hefur verið sjálf- stæður framteljandi, telst með eignum foreldra, nema sannað sje, að barnið hafi verið orðið eigandi fjárins fyrir 1. septem- ber 1946, eða eignin sje sjálfs- aflafje barnsins. Framteljanda er skylt að sundurliða og sjergreina eignir ; sínar og skuldir í samræmi við það, sem krafist er á framtals- eyðublöðum, svo og að gefa fram talsnefnd og skattyfirvöldum allar þær upplýsingar, sem þess- ir aðilar óska um atriði, er snerta fjárhag hans. Innköllun neninga Landsbanka íslands ber að kalla inn alla peningaseðla sína, sem í umferð eru á framtalsdegi. Hætta þeir írá upphafi þess dags að vera löglegur gjaldmið- ill í greiðslur til opinberra sjóða og manna á milli, sbr. þó 3. og 4. mgr. hjer á eftir. Landsbankinn gefur út nýja tegund seðla, og skulu þeir látn- ir í skiptum fyrir þá, sem inn- kallaðir eru. Innkallaðir seðlar halda gildi sínu gagnvart Landsbanka ís- lands framtalsdag og næstu tíu daga þar á eftir. Þann tima er unt að afhenda seðla til inn- lausnar í bankanum sjálfum og þ;:im stofunum, sem bankinn veitir rjett til seðlainnlausnar í umboði sínu. Sá, sem síðar fær í hendur seðla í peningabrjefi, sem sett hefur verið í póst fyrir framtalsdag, getur þó innan mánaðar frá framtalsdegi feng- ið þá innleysta, sje peninga- brjefsumslagið jafnframt af- hent. Svo skulu og skipverjar og far þegar á íslensku skipi, sem ekki hefur verið statt á innlausnar- stað á framtalsdegi eða næstu tíu daga þar á eftir, eiga þess kost að fá seðla sína innleysta á fyrsta innlausnarstað, sem skipið kemur til eftir þann tíma, enda votti skipstjóri skriflega um f jarveru skipsins og að mað- ur sá, sem innlausnar æskir, hafi með því fylgst. Frá upphafi framtalsdags er afhending, viðtaka og sjerhver önnur ráðstöfun á innkölluðum peningaseðlum óheimil, að und- antekinni afhendingu til inn- lausnar. Framtalsdag og tvo næstu daga þar á eftir er þó heimilt að nota 5 kr. og 10 kr. seðla til greiðslu farmiða og flutningsgjalds, kaupa á meðul- um í lyfjabúðum, nauðsynlegri matvöru í smásöluverslunum og þess háttar. Viðtaka seðla þessa daga veitir þó ekki viðtakanda heimild til að skipta seðlum oft- ar en eitt sinn, sbr. 10. gr. Um auglýsingu innköllunar- innar fer eftir nánari ákvörðun Landsbanka íslands. Nafnskíríeinin Hver sá, er afhendir innlausn- arstofnun seðla til innlausnar, skal sýna stofnuninni nafnskír- teini sitt. Nafnskírteini eiga menn rjett á að fá útgefin af lögreglustjór- um og hreppstjórum. Innlausnarstofnun skal um leið og innlausn fer fram stimpla á nafnskírteinið, að eigandi þess hafi neytt innlausnarrjettar. Þá skal og sá, sem seðla af- hendir til innlausnar, undirrita innlausnarbeiðni í tvíriti. Skal þar greind upphæð hinn- ar afhentu seðlafúlgu, fullt nafn afhendanda ásamt fæðingprdegi og fæðingarári, svo og heimilis- fang hans. Hann skal einnig greina heimilisfang sitt við síð- asta skattframtal, ef annað hef- ur verið. Giftar konur, sem sjálf ar afhenda seðla til innlausnar, skulu auk nafns síns greina nafn og heimilisfang eiginmanns síns. í kaupstöðum og kauptúnum, þar sem innlausn fer fram, skulu einstaklingar, 16 ára og eldri, afhenda sjálfir seðla sina til inn- lausnar, sjeu þeir um það færir. Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.