Morgunblaðið - 12.12.1947, Síða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. des. 1947
Útp.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
,,Hugsjónir“ Tímans
AUÐVELDASTA ráðið til þess að komast að raun um ihn-
ræti og eðli stjórnmálaforingja og flokka þeirra er að kynna
sjer, hvaða hugsjónum þeir berjast fyrir. Þetta er tiltölulega
auðvelt. Stjórnmálaflokkar og málgögn þeirra láta áhuga-
mál sín sjaldnast liggja í láginni. Þeir reyna að kynna þau
almenningi með öllum tiltækilegum aðferðum.
Ef athugað er, hver hafi á undanförnum þremur árum
verið æðsta hugsjón Framsóknarflokksins, þarf ekki lengi
að leita hennar. Hún hefur fram til þessa dags verið sú að
geta gert Islendingum það skiljanlegt, hversu mikið böl ný-
sköpunarstefna ríkisstjórnar Ólafs Thors, hafi leitt yfir ís-
lensku þjóðina, hversu óskynsamlegt hafi verið að semja
haustið 1944 um smíði rúmlega 30 nýtísku togara og verja
gjaldeyrisinneign þjóðarinnar til þess að kaupa ný og full-
komin tæki inn í landið.
Svo eldheitur var Tíminn í baráttunni fyrir þessari „hug-
sjón“ að hann gat ekki stillt sig um að hlakka yfir því, þegar
eitt af skipum þeim, sem keypt var til landsins á vegum
Nýbyggingarráðs sökk á hafi úti. Var því þá jafnvel spáð
að svo kynni að fara um fleiri nýsköpunarskip.
Nú mætti ætla að nokkrum fölskva hefði slegið á „hug-
sjónina" þegar að ríkisstjórn Ólafs Thors fór frá völdum og
hin nýju skip tóku að streyma til Islands og síðan út á mið.
En sú varð ekki raunin á. Hún var enn í fullu gildi, eldmóður
Tímans var hinn sami og áður. Islendingar urðu að skilja
það að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hefðu lagt grund-
völlinn að öllum örðugleikum, sem mættu þeim, nú og fram-
vegis. Það var að áliti Tímans kjarni málsins og um þann
kjarna snýst stefna hans að verulegu leyti enn þann dag
í dag.
Tímann varðaði lítið um hina harðnandi baráttu milli
hinna miklu andstæðna, hins vestræna lýðræðis og alþjóð-
lega austræna einræðis og ofbeldis. Að hans áliti var það
mest áríðandi í íslenskri stjórnmálabaráttu að sanna bænd-
um að Pjetur Magnússon hataði landbúnaðinn eins og pest-
ina og sjómönnum og útgerðarmönnum að Ólafur Thors og
Jóhann Þ. Jósefsson eyddu gjaldeyrir þjóðarinnar í að kaupa
skip, sem sykkju á leiðinni til landsins.
Síðasti boðandi orðsins, þ. e. ,,hugsjónarinnar“ gengur
fram fyrir skjöldu í Tímanum fyrir nokkrum dögum. Er þar
kominn fyrrverandi frambjóðandi Tímamanna í Vestmanna-
eyjum og skrifar um „falsávísanir" Nýbyggingarráðs. Skal
ekki dregið í efa að hann kunni eins vel skil á ýmsum teg-
undum ávísana og aðrir, eða jafnvel betur.
En hversvegna er þessi fallni framsóknarengill að skrifa
um þessi mál?
Frumorsök þess er sú sama og hjá öðrum rithöfundum
Tímans. Maðurinn er að berjast fyrir „hugsjóninni" og ef
til vill að bera sig upp undan því að Nýbyggingarráð og lán-
stofnanir landsins hafa orðið að meta nokkuð allar aðstæður
í úthlutun stuðnings við nýsköpunarframkvæmdir. Þetta
mat hefur trúlega orðið þessum athafnasama „hugsjóna-
manni“ í óhag.
En árás hans á Nýbyggingarráð er engu að síður ómakleg.
Það vann það merkilega starf að framkvæma að verulegu
leyti umbótastefnu ríkisstjórnar þeirrar, sem fór með völd
í landinu. Það veitti meðmæli með lánbeiðnum þeim, sem
því bárust til láristofnunar þeirrar, sem með lögum hafði
verið falin varsla lánsfjárins. Það starfaði að því að leggja
grundvöll að stórfelldum þjóðlífsumbótum. Það var hugsjón
þess og þeirrar stjórnarstefnu, sem Sjálfstæðisflokkurinn
mótaði.
Sjálfstæðisflokkurinn má vel una samanburðinum á hug-
sjónum hans og Tímans. Árangurinn af baráttu hans fyrir
henni munu Islendingar sjá þegar ný og fullkomin skip halda
á mið, þegar vjelknúin jarðyrkjuverkfæri breyta móum í
ræktað larid, þegar framleiðsla þjóðarinnar eykst og verður
arðgæfari.
En „hugsjón“ Tímans, hvað verður um hana?
Núlifandi kynslóð mun minnast hennar til viðvörunar. En
síðan mun leggja yfir hana harðfenni gleymskunnar.
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Gömul regla broíin.
REYKVÍKINGAR, sem nú
eru rúmlega þrítugir og þar
undir muna víst ekki eftir nein
um iólum svo að ekki væri jóla
trje með marglitum Ijósaperum
við flaggstöngina á Haraldar-
búð í Austurstræti. Jólatrje á
þessum stað hefir um margra
ára skeið verið svo föst venja,
að menn hafa horft þangað til
þess að vita hvort jólafastan
væri byrjuð.
Og nú í fyrsta skifti hefir
þessi regla verið brotin. Á Har-
aldarbúð er ekkert jólatrje fyr-
ir þessi jól. Það er eins og það
vanti eitthvað í Miðbæinn, sem
bæjarbúum finst að þar eigi að
vera. — Svona er vaninn.
Gerfi-jólatrje.
HARALDARBÚÐ hefir að
vísu reynt að bæta úr jólatrjes-
skortinum með því að setja upp
mislitar ljósaperur í hring og á
prik.
Það er út af fyrir sig lofsam-
leg viðleitni af Haraldarbúð, að
setja upp þessi ljós. En því mið-
ur gera þau ekki alveg sama
gagn og jólatrjeð.
Aðeins eitt bæjarblaðið hefir
varið þá ráðstöfun gjaldeyris-
yfir.valdanna, að leyfa ekki jóla
trjesinnflutning í ár. Og ekki
nóg með það heldur hafa þeir
blaðamenn, sem fundið hafa að
þessari ráðstöfun verið sagðir
,,hysterískir“. — Hræddur er
jeg um að það sjeu mörg „hyst-
eríutilfellin“ í bænum út af
jólatrjánum.
Ekki um auðugan
garð að gresja.
EINU SINNI var það mikið
tíðka.ð í bænum, að fólk tók sjer
gönvpferðir um bæinn fyrir
jólin til þess eins að skoða í
búðarglugga. Þar var venjulega
margt að sjá og jafnvel á
kreppuárunum fyrir stríðið var
eitthvað að sjá í búðargluggun-
um._ sem girnilegt var, svo ekki
sje nú talað um sjálf stríðs-
árin.
En nú er ekki lengur um auð-
ugan garð að gresja í þessu
efni.
Það er næstum því rauna-
legt að fara um aðalverslunar-
götur bæjarins og horfa á jóla-
útstillingar.
Sumar verslanir eru bókstaf-
lega hálftómar af vörum og
hafa eklcert að sýna, eða bjóða
upp á.
Það er óhætt að fullyrða, að
það sjeu mörg — fjölda mörg
— ár liðin síðan, að jafnfátæk-
legt hefir verið í verslunum fyr
ir jólin og nú er.
•
Afturför.
TALSVERT BER enn á ýmsu
smádóti, sem menn hafa gert í
höndunum heima hjá sjer, eða
í smáverksmiðjum. Leikföng,
jólasveinar til skrauts og annað
þessháttar. Stundum hefir kom
ið fyrir, að slíkir smáhlutir
hafa verið haglega og smekk-
lega gerðir.
En nú er um sýnilega aftur-
för að ræða. Flest af því sem
fæst er ,,klossað“, sem kallað
er.
Það er annaðhvort, að fólk
gefur sjer ekki tíma til þess
lengur að fást við þessa smáiðju
eða að það hefir týnt niður
þeirri list.
En hvernig sem á því stendur,
þá er þetta skaði.
•
Árós á hafragrautinn.
„HAFRAGRAUTUR einasta
yndið mitt er“ syngja börnin.
Sú vísa hefir greinilega verið
gerð í áróðursskyni, en vafa-
laust í góðri trú. Því það hefir
verið trú manna lengi, að hafra
grautur væri hin hollasta fæða
fyrir börn sem fullorðna, þótt
stundum þurfi að grípa til
áróðurs til þess að fá ung-
linga til að borða grautinn.
En nú er það komið upp úr
kafinu, að hafragrautur sje hin
óhollasta fæða, nema að þess sje
gætt að borða hann á rjettan
hátt.
Þessi árás á hafragrautinn
kemur fram í mörgum erlend-
um blöðum um þessar mundir.
•
Pottur af mjólk —
einn hafragrauts-
diskur.
STOKKHOLMSBLAÐIÐ „Ex
pressen" heldur því fram og
þykist hafa það eftir næringa-
fræðingum, að hafragrautur
eyði kalki í mannslíkamanum
svo ákaft, að til þess að vinna
upp á móti einum disk af hafra
graut þurfi menn að drekka að
minsta kosti einn líter af mjólk
með.
Þið munið ef til vill eftir því,
sem jeg sagði ykkur um matar-
gaflana á dögunum, og því
slæma orðið, sem búið er að
koma á þá.
Á nú ein hugsjónin enn að
fara út um þúfur? Sú að hafra-
grautur sje hollur.
•
Póstmál.
NÚ ER VAFALAUST verið
að prenta vasabækur með daga-
tali, sem gefnar verða út um
nýárið. í þeim er oft mikinn og
góðan fróðleik að finna.
Vonandi muna þeir, sem sjá
um útgáfu slíkra bóka, eftir að
hafa þar ,,póstmál“. Eða skrár
yfir hvað burðargjald brjefa er
til hinna og þessara staða utan
lands og innan. Það er fróðleik-
ur, sem menn þurfa á að halda
við og við.
í pósthúsinu eru frímerkja-
sjálfsalar, en þar vantar til-
finnanlega töflu yfir hvað það
kostar að senda brjef til Am-
eríku, Englands, og annara
staða erlendis, og svo skaðaði
ekki að geta þess, hvað kostar
undir brjef innan lands.
MEÐAL ANNARA ORÐA ....
-- j Eftir G. J. Á. ' — ---— —— —
Alúðlegar móifökur eru mikils virði.
ÞEGAR gerður er saman-
burður á farþegaþjónustunni
hjerna á Reykjavíkurflugvelli
og bjónustunni á ýmsum flug-
völlum erlendis, kemur í Ijós,
hversu óhemjumikið við Islend
ingar eigum eftir að læra í
þessum málum. Okkur er þetta
að yi.su vorkunnarmál, þar sem
segj.a mál, að mjög stut sje lið-
ið síðan við eignuðumst lend-
ingarvelli, sem yfirleitt hefir
verið hægt að kalla flugvelli í
fylstu merkingu þess orðs, en
mikið held jeg forráðamenn
okkar í þessum málum gerðu þó
rjett í því að sækja ýmsar fyrir-
.myndir sínar til þeirra þjóða,
sem mesta reynsluna hafa í
þessum efnum.
Sumt af þéssu er svo ákaf-
lega ódýrt.
• •
Góðir vellir.
Núna um helgina átti jeg
þess kost að fara með hinni á-
gætu Skymasterfl. Loftleiða
til flugvallanna í Prestwich og
Kastrup. Báðir eru þessir vell-
ir, að jeg held, hinir prýðileg-
ustu frá sjónarmiði fíugfarþeg-
ans, mjer liggur við að segja
annar heimur, sjeu þeir bornir
saman við flugvellina í Reykja
vík og Keflavík. Og þó eru þeir
á engan hátt íburðarmiklir.
Mikli munurinn á þeim og
Hún var yngsti farþeginn í
Skymastervjel Loftlciða til
Kaupmannahafnar síðastlið-
inn sunnudag
völlimum hjerna heima er sá,
að í Prestwich og Kastrup hefir
maður það á tilfinningunni, að
þarna sjeu húsbændur eins og
húsbændur eru bestir.
Þessir flugvellir eru að ýmsu
leyti eins og geysistór heimili,
þar sem húsmóðirin hefir
traust tök á^illum hlutum og
getur tekið á móti stærstu
gestahópum, án þess það að
nokkru leyti setji heimilið úr
jafnvægi.
• e
Góðar móttökur.
Prestwich þótti mjer þarna
skrefi framar en Kastrupflug-
völlurinn. Flugvjelin var varla
fyr lent en prúðbúin stúlka var
búin að leiða farþegana inn í
þægilegan biðsal, hafði skýrt
þeim frá því, hvar þeir gætu
fenvið sjer að borða, og sjeð
fyrir þörfum þeirra á annan
hátt. Eftir það mátti heita, að
hún væri eiginlega stöðugt ein-
hversstaðar í námunda við okk
ur, bann rúmlega einn og hálfa
tíma, sem við stöldruðum við.
• •
Eins og góðir
kunningjar.
Annað gerði hún ekki. Og þó
Frh. á bls. 12.