Morgunblaðið - 14.12.1947, Page 1
Skemdarverk á járnbraulum
KOMMÚNISTAR í Frakklandi frömdu skemtíarverk á járnbraut-
um víða um landið í sambandi við verkföli sín á tíögunum. Eitt al-
varlegasta slysið, sem af þessum skemmdarverkum hlaust var er
París — Arras hraðlestin fór út af teinunum. Þar fórust 20 manns
og 40 særðust. Hjer er myndin af hraðlestinni eftir að hún fór út af.
Orustan um Arnhem
Blómagarður Helsingfors-
búa rússnesk herstöð
Danskur blaðamaður lýsir „lengstu jarð-
göngum Evrópu"—Porkkala hjeraðinu
finnska, sem Rússar bersilja
ÞEGAR líður frá hinum mikla
hildarleik, sem háður var um
allan heim í nærfeilt 7 ár, fellur
móða gleyrnskunnar smám sam-
an y'fir atburði, sem þóttu mikl-
um tíðindum sæta, þegar þeir
gerðust. Þjáningar. sem orð fá
ekki lýst, fórnarlund, hetjudáðir,
allt þetta fyrnist, hverfur fyrir
nýrri tíðindum, ef til vill enn
geigvænlegri en þær tvær heims
styrjaldir, sem mörg okkar hafa
lifað. En þó verða ávallt nokk-
ur nöfn öðrum minnisstæðari,
nöfn, sem minna á atburði, er
ollu straumhvörfum í hinum
miklu átökum, Dunkirk, Stalin-
grad, E1 Alamein og mörg önn-
ur. En það var oftar en á hin-
• um miklu örlagastundum ófrið-
arins, að dáðir voru drýgðar, sem
vart eiga sinn líka í hernaðar-
- sögunni. Fyrir slíka dáð verður
nafnið Arnhem jafnan minnis-
■ stætt.
Það var um miðjan september
1944. Bandamenn höfðu sött norð
ur eftir Belgíu og hugðust með
miklu átaki að reka Þjóðverja úr
Hollandi áður en vetur gengi í
garð. Stórsókn skyldi hafin að
. sunnan, en um leið var lið sent
í lofti til Hollands og látið svífa
til jarðar um 100 kílómetra að
baki víglínunnar. Lið þetta skyldi
ná á vald sitt brú yfir eina kvísl
Rínar hjá bænum Arnhem og
verja brúna, þangað til herinn,
sem sótti fram að sunnan, tæki
höndum saman við það. Var ætl-
ast til, að það yrði að 2 dögum
liðnum.
Tíu þúsund manna úrvalslið,
frá Bretlandi, Ameríku, sam-
veldislöndunum og víðar, sveif
’ til jarðar við Arnhem og náði
brúnni eins og fyrir það var lagt.
Allir muna' dnn, hverhig 1 fór.
Þjóðverjar slógu hring um her-
deildina, þeir stöðvuðu sóknina
að sunnan. Tveir dagar liðu, ekki
kom sóknarherinn að sunna; svo
leið hver dagurinn af öðrum.
Þjóðverjar hertu jafnt og þjett
sóknina, hringurinn þrengdist æ
meir. Eftír 9 daga fengu þeir,
sem þá stóðu uppi, skipun um að
bjarga sjer suður yfir fljótið. 1
svartamyrkri, en geigvænlegri
kúlnahríð, tókst 2000 mönnum að
komast yfir hina miklu móðu til
sinna manna, það var fimmti
Frh. á bls. 2.
Hermaður frá Arnheim.
FYRIR nokkrum dögum birti
danska blaðið Politiken grein
eftir einn af frjettamönnum sín-
um, sem nýlega hafði ferðast um
svæði það i Finnlandi, sem Rúss-
ar fengu með friðarsamningun-
um undir herstöðvar tii 50 ára.
Þessi lýsing á þeirri aðstöðu,
sem Rússar hafa skapað sjer í
nágrenni hinnar finnsku höfuð-
borgar er svo greinileg og gefur
svo góða hugmynd um aðstöðu
finnsku pjóðarinnar gagnvart
Rússum, að æskilegt er að hún
komi íslendingum fyrir sjónir.
Frjettamaðurinn kemst þannig
að orði:
Sovjet-Rússland liggur í 17 km
fjarlægð frá höfuðborg Finn-
lands.
Úr gluggunum í austurhverf-
um Helsingfors sjest niður á trjá-
toppana í Parkkala hjeraðinu,
hinu 380 ferkílómetra landsvæði
við finnska flóann, sem Rússar
fengu leigt til 50 ára samkvæmt
vopnahljesskilmálunum i sept.
1944. A þessu landsvæði hafa
Rússar komið sjer upp hinum
mikið umræddu herstöðvum :;ín-
um, sem skapa þeim aðstöðu til
j þess að ráða yfir öllum sigling-
um um flóann.
Margar getgátur hafa verið
uppi um það, hvað Rússar hefð-
ust að innan hins 550 metra
breiða beltis, sem skilur Porkkala
hjeraðið frá öðru finnsku landi.
En Porkkala er lokað land.
Finnsk lögregla og rússneskir
hermenn gæta þess að enginn
komi of nálægt þvi.
Það er bannað að vera með
ljósrtiyndavjelar í þúsund metra
fjarlægð frá landamæraslánum.
Og að næturlagi er skipum bann-
að að koma inn í landhelgi Pork-
kala hjeraðsins. Stundum draga
Rússar þó upp stöðvunarmerki
um hábjartan dag. Bitnar það að
vísu sjaldan á farþegaskipum en
vöruflutningaskip verða oft að
liggja kyrr tímum saman. Slepp-
um við í gegn eða verðum við
stöðvaðir, er algeng spurning um
| borð í áætlunarskipunum milli
Helsingfors og Stokkhólms.
„Lengstu jarðgöng Evrópu“.
Komumst við i gegn hefur
einnig verið algeng spurning
járnbrautarfarþega á leiðinni um
hjeraðið. I meir en þrjú ár hefur
hraðlestin og vöruflutningalestin
milli Helsingfors og Abo, næst
stærstu borgar Finnlands, orðið
að fara í stórum sveig í kringum
Porkkala hjeraðið um hliðar-
braut, sem lengir leiðina um hálf
an þriðja klukkutíma eða meira
en helminginn af því, sem hún
tók fyrir stríð. En nú fer lestin
gegnum yfirráðasvæði Rússa.
Hin rússnesku hernaðaryfirvöld
í Porkkala hafa opnað járnbraut-
ai’göng þvert yfir hjeraðið.
Finnar kalla þau „lengstu járn-
brautargöng í Evrópu“, vegna
þess að þau eru farin í lokuðum,
læstum og innsigluðum vögnum,
sem dregnir eru af rússneskum
eimvögnum undir eftirliti rússn-
eskra varðmanna á brautarstöðv-
um og vagnþrepum.
í 50 nlínútur aka ferðamenn,
sem ferðast um Finnland um
framandi landssvæði. Þeir eru
háðir rússneskri lögsögn og rússn
esku hervaídi. Þeir verða að sæta
rússneskri vegabrjefaskoðun og
rannsóknum á farangri þeirra ef
þess er krafist og jafnvel hinir
finnsku starfsmenn lestanna
verða að sætta sig við áð vera
læstir inni. Stjóxrn þeirra er óvirk
meðan þeir fara gegnum Pork-
kala. Rússneskir starfsmenn hafa
tekið Við störfum þeirra.
Trjehlerar fyrir gluggunum.
Það er harðbannað að líta út
um gluggana. Það er raunar ó-
þarft, þar sem litlir möguleikár
eru á að sjá gegnum hina tommu
þykku trjehlera fyrir gluggun-
um. Það voru þó aðeins glugga-
tjöld fyrir gluggunum í Pólska
hliðinu á sínum tíma.
En ef til vill er það gott að
maður ekki sjer út um gluggana,
segir hinn finnski eiðsögumað-
ur minn. Hann og fjölskylda
hans bjuggu fyrir þremur árum
á litlum bóndabæ í Porkkalahjer-
aðinu. En síðan hafa þau búið í
hjeraði í nágrenni þess, sem þau
v'oru flutt til. Honum finnst að
hann hefði ekki gott af að sjá
það, sem hann ekki lengur má
snerta. Leiga Porkkala hjeraðs-
ins var sársaukafull ráðstöfun
fyi'ir alla finnsku þjóðina en ekki
hvað síst fyrir þær 10 þúsundir
manna, sem bjuggu þar. Það
þarf langan tíma til þess að græða
það þjóðarsár.
Kornskemma Finnlands.
Porkkala var áður en hjeraðið
var afhent Rússum, kornskemma,
matjurta- og ávaxtagarður Heis-
ingfors. Það var að langmestu
leyti byggt smábændum, garð-
yrkjumönnum og blómaræktar-
mönnum. Þaðan kom brauð,
mjólk, grænmeti og ávextir í rík-
um mæli til höfuðboi'garinnar.
Það var eitt frjósamasta hjerað
hins sænska hluta Finnlands, og
ein af menningarmiðstöðvum
hans. Menningarsaga þess nær
aftur til komu hinna fyrstu inn-
flytjenda. Þar settust hinir
sænsku innflytjendur að á 12.
öld og landshlutinn hjelt áfram
að vera sænskur gegn um alla
þróunarsögu Finnlands.
A síðustu árum varð Porkkala
aðal sumarbústaðahverfi íbúa
höfuðboi'garinnar. Falleg sumar-
hús voru byggð í hinu aðlaðandi
landslagi. Parkkala varð frægt
fýrir náttúrufegurð sína.
En í september 1944 urðu allir
íbúar hjeraðsins að verða þaðan
á burtu mcð tíu daga fyrirvara
og urðu að flvtja ineð sjer hús-
dýr sín og lausafjármuni en
skilja eftir híbýli sín og gripa-
hús.
A ellefta degi eftir uppgjöf
Finnlands hjeldu Rússar inn í
Porkkala með her sinn. Finnska
ríkið hefur reynt að bæta hjeraðs
búum tjón þeirra með því að
láta þá fá jarðnæði í næsta hjer-
aði. En hið raunverulega tjón er
ekki hægt að bæta þeim og það
er þeim lítil fróun að geta nú
ferðast í lokaðri lest gegnum ald-
ingarða höfuðborgar sinnar.
Eiturgas og lánsskjöl bönnuð.
Dyrum lestarinnar er lokað,
trjehlerunum ér skellt, rússnesk-
ir verðir taka sjer stöðu á vagn-
þrepunum, hinum lága svarta,
finnska eimvagni er krækt frá og
hinn hái rússneskl tengdur við
í staðinn. Allt þetta umstang tek-
ur um hálftíma. Svo þokast lest-
in af stað með hásu bauli frá
hinum græna rússneska eim-
vagni. Við erum á yfirráðasvæði
Sovjet-Rússlands.
Við athugum reglurnar. Það
er bannað að hafa í fari sínu,
vopn, flugvjelahluta, sprengi-
efni, flugelda, eiturgas, eldfim
efni, lánsskjöl, erlenda happ-
drættismiða, ljósmyndavjelar,
handrit, teikningar og myndii',
sem fela í sjer efni, sem bannað
er innan takmarka Sovjetríkj-
anna af pólitískum eða fjárhags-
legum ástæðum. Það er einnig
bannað að hafa með sjer efni,
sem slæm lykt er að eða smit-
hætta stafar af. Að öllum lík-
indum myndi danskur gamalost-
ur falla undir það að vera bann-
vara. Það/ er sömuleiðis harð-
bannað að hafa með sj";r brjef-
dúfur.
Rússnesku yfirvöldin virðast
treysta á það að þessar reglur
sjeu haldnar. Ennþá hefir ekki
verið sett upp rússnesk vega-
brjefaskoðun á Porkkolasvæð-
inu. Ef rannsókn hefði farið fram
í lestinni í dag mundi hafa kom-
ið í Ijós að eini fiðurfjenaðurinn
þar var steikti kjúklingurinn í
borðsalnum.
Eftir að eimvagninn hefur
baulað hásri röddu 13 sinnum og
eftir að hafa staðnæmst á nokkr-
um leyndardómsfullum stöðum,
erum við komnir til Tækter, sem
er önnur landamærastöð hjeraðs
ins, 5 kílómetra frá sjálfu landa-
mærahliðinu. Rússneski eimvagn
inn er losaður frá og hinum
finnska beitt fyrir. Hlerunum er
hleypt frá gluggunum og við
öndum ljettara.
Við höfum farið í gegnum
Sovjet-Rússland og erum aftur á
finnskri grund. Hin rússnesku
innsigli eru tekin burtu, dyrnar
eru opnaðar og hinir finnsku
járnbrautai’starfsmenn taka aft-
ur við störfum sínum um leið
og þeir kveðja hina rússnesku
starfsbræður sína.
47 ár ennþá.
Ennþá eru eftir 47 ár rúss-
neskrar hersetu í Porkkala. Það
verður næsta kynslóð, sem lifir
endurheimtu þessa finnska lands.
Sú staðreynd stendur á meðan
óhögguð að íbúar höfuðborgar-
innar geta illa varist tilfinningu
um öryggisleysi með erlenda
herbækistöð við bæjardyr sínar
svo að ekki sje minnst á áhrif
þess á þjóðernistilfinningu
þeirra.
Finnar hafa með missi Pork-
kala hjeraðsins glatað blómagarði
17 kílómetra frá Helsingfors. Það
eru ekki skrautjurtir, sem hafa
verið gróðursettar þar nú.
------»♦«-------- |
Bankar þjóðnýttir
MOSKVA: — Fregnir frá Ung-
verjalandi herma að þingið þaf
hafi( samþykt að allir bankar þar
í laiidi ’skuli verða þjóðnýttir.