Morgunblaðið - 11.01.1948, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 11. janúar 194H
„Þurfa hvorki gagnrýni
hje hjálp annarra þjóða“
„BRITISH COUNCIL" er að
hætta störfum sínum hjer á
landi. Frá 1. febrúar n.k. verður
skrifstofu þess á Laugaveg 34 lok
'að. Úr því mun ekki líða á löngu,
uns fultrúi þess hjer, herra K. M..
Willey, hverfur hjeðan ‘af landi
burt.
íslaml — Indland.
— I^veriar eru ásfæðurnar fyr-
ir þvi, að fjelagið er að hætta
störfum hjer? spyr jeg Mr. Wiil-
ey.
— Það er nokkuð langt að leita
þeirra, svarar hann Til þess verð
urn við að fara aHa leið auátur í
fndland. Eins og þú veist er Ind-
land nú orðið sjálfstætt ríki. —
Enda þótt samband sje nokkuð
við Bretiand, mun hið sjáifstæða
jndverska ríki ekki beinlínis
standa fyrir breskri kynningar-
starfsemi í landina. „British
Council1' hefur ekki starfað þar
‘áður. En nú hefur Pandit Nehru,
forsetisráðherra, farið fram á það
við fjelagið, að það komi sjer upp
þar stöðvum, til þ^ss að viðhalda
vináttunni við Bretland.
Þessvegna hefir verið ákveðið
að koma upp skrifstofum í Ind-
landi. En bæði á íslandi og í Sviss
hættir „British Councih' störf-
um. Auk þess, sem það dregur
mjög úr starfsemi í Suður-Ame-
ríku og Egyptalandi.
Starf fjelagsins.
Aður en jeg fer lengra litast
ýeg um í skrifstofu Mr. Willey.
Ekki er húsrúmið mikið. Tvö
herbergi annað meðalstórt en hitt
lítið. Samt hefur þetta verið mið-
stöð allrar þeirrar kynningarstarf
semi sem „British Council“ hef-
"ur staðið fyrir hjer á landi. Og
b&rna ér meðal annars hið ágæta
bókasafn íslensku fjelagsdeildar-
innar.
: „Biitish Council11 er öfiugt
f jelag, sem hefur deildir víða um
heim. Það var stofnað árið 1934.
Markmið þess var og er að kynna
breskar menntir, og hnekkja ó-
hróðri, sem ýmsar aðrar þjóðir
reyndu á þeim árum að bera út
um Breta og breska menningu.
•— Hjer á Islandi .hefur það haft
skrifstofu opna frá því 1941. Það
hefur m. a. á hverju ári styrkt
sex íslenska stúdenta til náms við
breska háskóla. Auk þess hefur
það greitt götu fjölda annarra
námsmanna í kynningarferðum
til ýmissa hluta Bretlands. Full-
trúar þess hafa annast kennslu
við heimspekideild háskólans.
Það hefur gefið stórar bókagjaf-
ir, bæði til Landsbókasafnsins og
Háskólabókasafnsins. Sent mörg-
um kennurum og menntamönn-
um brésk tírharit. Er hjer aðeins
fátt eitt talið, af hinu margþætta
starfi fjelagsins hjer á landi.
— Og hvert heldurðu að þú
farir svo þegar starfi fjelagsins
er lokið hjer? spyr jeg Mr.
Willey.
— Jeg verð áfram í þjónustu
„British Council“, svarar hann,
Þar eð þörf verður á Tnönnum í
Indlandi, býst jeg við, að jeg
yerði kominn þangað eítir tvo
eða þrjá mánuði.
„Jæja“.
— Hvað geturðu þá sagt okk-
ur unt dvöl þína hjer, og hvað
segirðu um fólkið, sem þú hefur
umg'engist?
— Jeg álít, segir hann, að ís-
lendingar taki of mikið tillit til
þess, sem útlendingar segja um
landið þeirfa og þjóðina. Að vísu
er sagt, að glöggt^sje gestsaugað.
Getur það gilt að sumu leyti. Oft
ast mun hitt samt vera rjettara
að útlendingar, sem hingað koma
ski’ji lítt og alls ekki til hlítar
íslensk málefni.
! Ekki er fyrir það að synja, að
^ið Englendingar lesum oft 1 okk
ar blöðum álit útlendinga á þjóð-
drhögum okkar. Ef þar er talað
vei úm landið okkar og hrós bor-
íb’ á þjóðina hugsum við flestir
K. M. Willey.
aðeins; „Jæja“. En ef útlending-
urinn leitar þess sem miður fer
í þjóðlífi okkar eða talar um, að
honum finnist landið ljótt, hugs-
um við yfirleitt: „Ójá, aumingja
kjáninn“.
Þetta hefir mjer fundist and-
stætt hjá islendingum. Astæðan
er ef til vill, að þeir eru smá-
þjóð, lítt þekt meðal almennings
út um heim, svo ilt umtal eins
manns getur haft mikil áhrif.
En svo skal jeg koma að mínu
áliti á Islandi og íslendingum, og
jeg vona, að þeir sem það lesa
segi aðeins „Jæja“, því jeg hefi
dvalið hjer aðeins eitt ár. Svo
þeir menn, sem hjer eru bornir
og barnfæddir hljóta að þekkja
og finna betur en jeg, galla og
kosti þjóðlífsins.
Mín kynni af landi og þ.jóð.
Jeg kom hjer í fyrsta skipti
um miðjan síðasta vetur. Jeg var
alveg ókunnugur hjer, þekkti
engan, var einmana.
Jeg var nýkominn sunnan frá
Miðjarðarhafi, þar sem jeg hafði
verið fulltrúi „British Council“ á
Kyprus. Svo viðbrigðin voru
mikil. Hingað var jeg kominn
norður í dimmuna, myrkur 22
stundir á hverjum sólarhring,
rokið og rigningarnar voru hrylli
legar, börgin dimm og ' skugga-
leg, göturnar ataðar í leðju. Mjer
fannst allt, sem jeg hafði sjeð af
þessu landi skuggalegt og and-
styggilegt.
Um fólkið var það að segja, að
mjer fannst það jafn fráhrind-.
andi. Það var alvarlegt, kulda-
legt. Ekkert vingjarnlegt orð kom
frá því. Fannst mjer það mikil
umskipti frá hinum glaðlyndu
syngjandi íbúum Kyprus og Mið-
j ar ðarhaf slandanna.
En sólin hjer á Islandi fór að
hækka á lofti, það fór að vora.
Jörðin kom algræn undan ekki
beint snjó heldur eðju vetrarins.
Og um leið var jeg farinn að
skilja alt betur. Jeg komst að
raun um, þegar kom fram á sum-
arið, að Island er mjög fallegt
land. Oft fór jeg með vinum mín-
um út um sveitir. Stundum þeg-
ar jeg hef farið í fjallgöngur hef
jeg sjeð svo dásamlega staði, að
þó jeg, sje víðíörull, hef jeg
hvergi erlendis augum litið slíka
ólýsanlega fegurð.
Og Reykjavík, sem var skugga
leg að vetrarlagi, yngdist upp með
vorinu, varð snotur bær með
sljetta tjörnina og fuglana í hólm
anum.
Og síðan fólkið, — þjóðin sem
byggir þessa eyju. Jeg ber djúpa
virðingu fyrir henni. Jeg sagði
áðan, að Kyprus-búar væru glað-
lyndir, og að maður eignaðist þar
fljótlega marga kunningja. Hjer
á íslandi er erfitt að kynnast
fólkinu. En þegar manni' hefur
loks tekist það á sú vinátta diúp-
ar rætur.
Sjálfum sjer nógir.
íslendingar þurfa hvorki á
gagnrýni nje hjálp útlendinga að
lialda. Þeir eru einfærir um að
leysa af hendi öll störf, sem
menningarþjóðfjelag krefst. Eitt
dæmi um það er, að þegar jeg
hverf hjeðan af landi brott, um
eða eftir næstu mánaðarmót, og
hætti enskukenslu minni, mun
ungur Islendingur, Jóhann
Hannesson taka við kennslunni.
Hann er ágætur enskumaður, er
mjög vel að sjer í enskri bók-
menntasögu. Jeg óska honum alls
hins besía í staríinu.
Og þegar jeg hverf nú burt,
ætla jeg að biðja þig að senda
kveðju mína til allra þeirra, sem
jeg hef átt hjer skipti við.
Jeg sje ekki eftir dvöl minni
hjer.
Þ. T.
Sextugsahnæli
A MORGUN, 12. janúar, segja
kirkjubækurnar, að Hjörleifur
Jónsson frá Giljum sje 60 ára.
Hann er fæddur að Giljum í
Mýrdal 12. jan. 1888, sonur þeirra
heiðurshjóna Sigríðar Jakobs-
dóttur og Jóns Jónssonar, sem
mestallan ■ búskap sinn bjuggu
myndarbúi á Giljum. Bjuggu þau
í fyrstu við mik-la fátækt á hálfri
jörðinni, en tókst með sjerstök-
um dugnaði og ráðdeild að eign-
ast hana alla og bæta og prýða
svo að húsum og jarðabótum, að
við fráfall Jóns heitins árið 1920
var hún ein með glæsilegustu
jörðum sveitarinnar. En -veg
Giljanna var ekki lokið við frá-
fall húsbóndans. Að manni sín-
úm látnum hjelt ekkjan áfram
búskapnum með aðstoð barna
sinna, sem flest unnu sem einn
maður að heill og heiðri heimilis-
ins, og mun leitun á svo inni-
legu og ánægjulegu samstarfi, er
ríkti ávallt á Giljum, enda hænd-
ust að bæði gestir og gangandi
og e. t. v. ekki alltaf mikilla
erinda allir. En glaðværð, alúð
og gestiúsni Gilnaheimilisins var
hjeraðsfræg og mun ávallt minnst
með þakklæti og virðingu þeirra,
er nutu.
Ungur fór Hjörleifur heiman
að tiLaðdrátta hinu mannmarga
heimili. Að heiman að vetri til
ýmissa sjávarverka, heim aftur
með hækkandi sól og gróandi
jörð, ávallt með hugann við það,
hvað best gæti bætt og fegrað
„heima“ án tillits til þess, hvað
sjóður hans sjálfs varð gildur í
vertíðarlokin. Og árin liðu við
önn og fórnfúst starf í þágu hins
fagra Wylis. Og hópnum smá-
fækkar heima, móðirin hnígur í
valinn háöldruð, systkinahópur-
inn er kallaður út í lífið til
Frh. á bls. 8.
Líf skjörin i Rnsslnndi
oghjer
Samanburður á kaupmætli launanna
ÞEGAR Þjóðviljinn 16. des.
s. 1. komst að þeirri stoi-furðu-
iegu niðurstöðu, að myntskipt-
ingin í Rússlandi, sem fram fóru
á þann hátt, að hver Sovjetborg-
ari fjekk eina rúblu fyrir hverj-
ar tíu, sem hann átti fyrir, :nundi
hafa í för með sjer miklar kjara-
bætur fyrir allan almenning,
leiddi blaðið alveg hjá sjer að
geta þess, í hverju þessar bætur
væru fólgnar. Stalin hafði gefið
út tilskipun (það mun nægja
þarna austurfrá) um skiptingu
myntarinnar, og enda þótt það
væri látið fylgja, að þetta yrði
síðasta stórfórnin, sem farið yrði
fram á, að snauður almúginn
færði, sá blað kommúnista hjer
auðvitað ekkert annað við þetta,
en alsælu þeirra- rússnesku, s&m
áttu svo slunginn leiðtoga, að
hann gat með einni tilskipan gert
út af við dýrtíðina og búið Rúss-
um í staðinn og í einu vettvangi
stórbætt lífskjör. Það var öll fórn
in.
Kaupgeta rúblunnar.
Hinu sleppir Þjóðviljinn alveg,
að geta þess, hver væri kaupgeta
þessarar spánýju rúblu. Hann
minnist þannig ekki einu einasta
orði á það, að með tólf klukku-
stunda vinnu á dag,, tekur það
karlmann í Rússlandi hvorki
meira nje minna en 48 daga að
vinna sjer inn peninga fyrir ein-
um sæmilegum jakkafötum (sjá
meðfylgjandi töflu). Þá var blað-
ið heldur ekkert að vekja athygli
á því, að í landi öreiganna tekur
það tæpar ellefu klukkustundir
að vinna sjer inn fyrir einu pundi
af smjöri, nje heldur hinu, að
jníu daga vinnu þarf, til þess að
! aura saman í eina leðurskó. Nei,
I Þjóðviljinn sleppti þessu alveg
I— ljet sjer nægja tilskipun
í Stalins og göfuglyndi, og svo
þriggja dálka fyrirsögn, sem var
á þessa leið: Lífskjör almennings
í Sovjetríkjunum bætt stórlega.
Stjettaskipting.
Nú má auðvitað ekki skilja of-
angreindar tölur á þann veg, að
allir borgarar þessa fyrirmynd-
ar jafnrjettis og lýðræðisríkis
þurfi að strita í einn og hálfan
mánuð við verksmiðjuvjelina, til
þess að fá sjer spariklæðnað. Síð-
ur en svo: Það er kaldhæðni ör-
laganna, að í landinu, sem hæst
hrópar um jafnrjetti og bræðra-
lag, er nú yfirstjett, sem er að!
minnsta kosti jafn hátt hafin
yfir allan almenning og furst-
arnir og stórhertogarnir, sem
ljeku sjer að lífi og eignum al-
múgans á dögum keisaranna.
Hagur Bússa.
Nú er það vitað mál, að það>
er kaupgeta peninganna, sem
fyrst og fremst er spurt um, þeg-
ar reynt er að komast að ein-
hverri niðurstöðu um kjör og
afkomu borgaranna. Þeim, sem
tekur sjer fyrir hendur að kynna.
sjer hag almennings, þykir því
jafnan handhægast, að bera s?m-
an laun og kaupgetu, — verðlag
og launagreiðslur.
Sje þessi sjálfsagða aðferð
höfð við land Stalins marskálks,
verður stjórnviska einræðisherr-
ans og fjelaga hans óhjákvæmi-
Jega ljett á metaskálunum. Því í
ljós kemur, að eftir tuttugu og
fjögurra ára algera eínræðisstjóm
Stalins, er rússneska þjóðin enn-
þá blásnauð, lífslfjör almcnnings:
margfallt verri en í lýðræðis-
ríkjum Vestur Evrópu ög fram-
tíðin allt annað en glæsileg.
Hefur algerlega mistekist.
Hinni kommúmstisku einræðis
stjórn hefur þannig mistekist
herfilega það hlutverk, sem húii
ætlaði sjer í upphafi: stjettaskipt
ingin er jafnmikil og nokkru
sinni áður, óvissan jafn djúpgró-
in og fátæktin, óttinn jafn út-
breiddur og myndirnar af Stalin,
frelsi og mannrjettindi óþekkt
hugtök.
100 prósent.
Blað eitt skýrði nýlega frá því,
að við síðustu „kosningar" í
Rússlandi hefði Stalin hlotið 10Ú
prósent atkvæða. Ýmsir vilja
halda því fram, að ósigur rússn-
eskra kommúnista í hinni svo-
kölluðu baráttu þeirra fyrir
bættu þjóðskipulagi hafi veriS
jafn algcr og „kosningasigur’*
húsbónda þeirra.
Arthur Machen látinn
LONDON: — Nýlega er látinrx
Arthur Machen höfundur bóltar-
innar The Bowmen, sem fjekk
marga breska hermenn til þess að
trúa, að St. Th.omas hafi hjálpa'5
sjer að sigra Þjóðverja í orust-
unni við Moons 1914.
Sá hluti töflunnar, sem hjer fer á eftir og að Rússlandi lýtur,
er byggður á upplýsingum, sem birtust í blaðinu New York:
Times skömmu fyrir áramót. Er þar miðað við 500 rúblur, sem
meðal mánaðarkaup rússneskra launþega og vöruverð það, sem
tilkynnt var í Moskva 15. des. s.l. Hinn hluti töflunnar — sá, sem
að íslandi lýtur — miðast við lægsta Dagsbrúnartaxta og vísi-*
töluna 300, en við samanburð á tíma þeim, sem þaö tekur launþega
í hvoru landinu fyrir sig að vinna sjer inn fyrir helstu nauð-
synjum, hefur verið leitast við að taka aðeins sömu eða mjög
líkar vörutegundir.
ÍSL. RUSSL,
klst. mín. klst. mín.
Hveitibrauð (Hjer kr. 0,82 pd. ) 6 1 10
Hveiti ( — — 0,90 pd. ) 6,5 1 19
Molasykur ( — — 1,10 pd. ) 8 2 34
Kálfakjöt ( —— 4,00 pd. ) 28 5 5 15
Smjör ( — — 31,00 pd. ) 3 34 10 42
Nýr fiskur ( _ __ 0,52 pd. ) 4 1 59
Mjólk ( — — 1,88 pr. 1. ) 13,5 1 1S
Egg ( — — 12,00 tylft ) 1 26 4 57
Kaffi ( — — 4,40 pd. ) 31,5 14 6
Handsápa ( — — 1,40 stk. ) 10 1 39
Sígarettur ( — — 4,80 20 stk) 34 2 4
Ullarkjóll C — — 450,00 ) 53 34 252 Ö
Karlmannsföt ( — — 650,00 ) 77 23 580 15
Leðurskór karla ( — — 100,00 parið ) 11 54 104 30
Kvenskór ( — — 80,00 — ) 9 31 107 30