Morgunblaðið - 29.01.1948, Blaðsíða 12
VEOURÚTLITJÖ: Faxaflói:
Austaii kaldi — smáakúrir, cn
bjart á milli.
SLYSAVARNAFJELAG ÍS-
I.ANDS cr 20 ára i dag. —
Grcin á bls. 7. ____
Dagsbrún stöðvar allo síldarlönd-
11110 klst, á
28 síldveiðiskip biðu
unar í gærkvöldi
STJÓRN verkamannafjalagsins Dagsbránar tilkynnti í gær fram-
kvæmdarstjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, Jakobi
Hafstein, að hún hefði ákveðið að leyfa ekki næturvinnu frá kl.
10 að kvöldi til kl. 3 að morgni við losun síldveiðiskipanna, sem
nú stunda sáldveiðar í Hvalfirði. Hefur þetta þær afleiðingar að
öll vinna við síidarlosun, bæði í skip og á lartf hjer í Reykjavík
feiiur framvegis niður í 10 kiukkustundir á sólarhring.
Um síðustu áramót voru járnbrautirnar breskú þjcðnýtíar og verða
í famtíðinni reknar fyrir ríkisins reikning undir nafninu „Britislt
Railways". — Hjer sjest ein af kunnustu járnbrautunum bresku,
, The Flying Scotsman“.
Sýning, sem skýrir atom-
orkuna og atom-
sprengjuna
f “
í GÆRDAG var opnuð sýning í Listamannaskálanum, sem skýrir
atomorkuna og klofning atomsins, atomsprengjuna og önnur
undur, sem komið hafa fram í dagsljósið í sambandi við þessa
rniklu uppgötvun, sem líkt er við er maðurinn fann eldinn, raf-
magnið og annað, sem byltingum hefur valdið í sögu mannkyns-
ins. Sýning þessi er að nokkru leyti sniðin eftir atomsýningu
stórblaðsins „Daily Express" í London, en efni til hennar fengið
----------------------
S.VFJ. fær wu?-
kenningu íyrir
björgun Dboon-
manna
ERLEND slysavarnaf jelög hafa
sent Slysavarnafjelagi íslands
heillaóskir í tilefni af hinu fræki
lega afreki björgunarmannanna
við Látrabjarg, og samskonar
viðurkenningarávörp hafa verið
send sendiráðum íslands erlend-
is.
Þá hefur skrifstofustjóra fje-
lagsins borist persónulegt brjef
frá Captain F. G. Buchanan, yf-
irumsjónarmanni allra breskra
björgunarstöðva (His Majesty’s
Coastguard), en hann var einn
af fulltrúum Bretlands á alþjóða
björgunarráðstefnunni í Osló í
sumar.
Fer hann mjög miklum viður-
kenningarorðum um-björgunar-
afrekið við Látrabjarg og óskar
að mega lýsa hrifni hinnar kon-
unglegu bresku björgunar- og
strandgæslu yfir þessu frábæra
afreki, sem hann telur með eins-
dæmum, og óskar jafnframt eft-
ir að fá greinargóða skýrslu um
Ljörgunarstarfið við Látrabjarg.
sem hann álítur að þeir geti
margt af lært.
Þeíta þýðir það að stórauknar
tafir hljóta aff veröa á síldar-
flutningunum og að ekki verður
unnt að reka síldveiðarnar með
sama krafti og undanfarið.
Unnið alla nóttina undanfarið
í allan vetur heíur verið unn-
ið að losun síldveiðiskipanna,
hvort heldur var í flutningaskip
eða á land í Reykjavík, allan
sólarhringinn. Hafa verkamenn
að sjálfsögðu verið sjálfráðir
um það, hversu lengi þeir hafa
unnið. Fullt næturvinnukaup
hefur verið greitt fyrir alla næt-
urvinnu, eins og að líkum lætur.
Þessi ákvörðun Dagsbrúnar-
stjórnarinnar kom fyrst til fram
kvæmda gegnvart vinnu við
flutningaskipið Hvassafell.
Átti það að byrja að taka
síld í fyrradag, en komst ekki
upp að bryggju sökum rúmleys-
'is fyrr en kl. 9. En þá hafði Sig-
urður Guðnason, án nokkurra
skýringa annara en þeirra, að
skipið hefði legið aðgerðarlaust
allan daginn, bannað vinnu við
það. En eins og áður var sagt
komst skipið ekki að bryggju,
vegna rúmleysis.
28 skip biða losunar
í gærkvöldi biðu 28 síldveiði-
skip með um 21 þúsund mál los-
unar. Frá því á miðnætti í fyrri-
nótt og til kl. 7 í gærkvöldi komu
16 skip með um 13 þúsund mál
síldar til Reykjavíkur.
Verið var að lesta Hvassafell
og True Knot, en nokkur skip
biðu þess að komast til ferm-
ingar.
En samkvæmt fyrirskipun
Dagsbrúnar var öll vinna við
síldarlöndun stöðvuð kl. 10 í
gærkvöldi.
Hin nýja minnihlutastjórn
kommúnista í Dagsbrún hefur
með þessu unnið sitt fyrsta
frægðarverk í þágu verkamanna
og sjómanna.
Góðar ísfisksölur
í GÆR bárus* frjettir til
landsins um góða ísfisksölu
fjögurra nýsköpunartogara, er
seldu í Englandi í fyrradag.
Þessi 4 skip séldu fyrir sam-
tals um kr. 1 173.136, en afli
þeirra var samanlagður 13.831
kit.
Togararnir eru þessir: Bjarni
Ólafsson serA var með 3062 kit
er seldust fyrir 9 400 sterlings-
pund, Egill Skallagrímsson
3505 kits fyrir 11.081 pund,
Hvassafeli 3313 kits fyrir 11.348
og Neptúnus, sem var í fyrstu
söluferð sinni seidi 3949 kits
fyrir 13.136 pund
„TröHafoss" sófiur
lil San Francisco
ÞAÐ HEFIR nú veríð ákveðið,
að Eimskipafjelagíð kaupi skip
ið „Coastal Coursei-*1, sem er af
hinni svo kallaðrí ..Knot“-gerð
og skýrt hefir verið frá hjer
í frjettum áður. Verður skiþ>
þetta skírt „Tröllafoss“. Skip-
ið liggur nú San-Francisco og
fer íslensk áhöfn flugleiðis til
að sækja það Verða það 29
manns, sem sækja skipið. Fara
21 þeirra í dag fluglciðis til
New York með AOA-flugvjel,
en 8 fara á iaugardag.
Ekki hefur ennþá verið val-
in áhöfn til frambúðar á Trölla
foss, heldur voru yaldir í þessa
för þeir siarfsmenn Eimskips,
sem náðist til hið fyrsta.
I þessari ferð verður Bjarni
Jónsson skipstjóri. Eymundur
Magnússon 1. stýrimaður. Ste-
fán Dagfinnsson 2 stýrimaður,
Jón Aðalsteinn Sveinsson 1.
vjelstjóri og Einar Benedikts-
son, loftskeytamaður.
Búist er við að það taki um
1Vz—2 mánuði að sigla skip-
inu frá vesturströnd Banda-
ríkjannaa, gegnum Panama-
skurð til New York og síðan
til-Reykjavíkur.
„Coatral Courser" var valinn
vegna þess, að það var eitt af
nýjustu skipunum af þeim, sem
á boðstólum voru. Hefir verið
lítið notað og þó einkum vegna
þess, að í skipinu er ágæt vjel,
því þótt skipiri sjeu öil lík að
útliti, þá eru mismunandi góð-
ar vjelar í heim.
Rúml.13þús. kr.
hðfa safnasf
ÞÓ EKKI sje liðinn langur
tími síðan fjársöfnun til kaupa
á björgunarflugvjei fyrir Slysa
varnafjelagið, þá hefur söfn-
unin gengið mjög að óskum.
Þegar hafa safnast alls 13.200
krónur í þessu skyni og voru
gefendur bæði einstaklingar og
ýmsar deildir fjelagsins.
F.Í.6. og sjómenn við
samningageið
UNDANFARIÐ hafa staðið yf-
ir samningar milli Fjelags ísl.
botnvörpuskipaeigenda annars
vegar og hinsvegar skipstjóra,
stýrimanna, vjelstjóra, loft-
skeytamanna og annara, sem
heyra undir samninga sjómanna
fjelaganna, um breytingar á
kjörum sjómanna í sambandi
við áhættuþóknun þeirra.
Samningunum hefur enn ekki
verið sagt upp, en það var F.Í.B.
sem fór fram á breytingar á
samningunum, en þeim er lögum
samkvæmt hægt að segja upp
með hálfs mánaðar fyrirvara.
Sáttanefnd hefui setið á dag-
legum fundum með aðilum, en
þeir hafa ekki leitt til samkomu
lags, enda eru samningarnir
talsvert flóknir, og þvi margs
að gæta. -
víðsvegar að.
Til góðs cða iils fyrir
mannkynið.
Það er Jörundur Pálsson
teiknari, sem komið hefir sýn-
ingunni upp, en til þess hefir
hann notið aðstoðar dr. Trausta
Einarssonar stjörnufræðings,
Þorbjörns Sigurgeirssonar atom
eðlisfræðings og dr. Sigurðar
Þórarinssonar jarðfræðings.
Klukkan 4 í gær var allmörg
um gestum boðijð að skoða sýn-
inguna, áður en hún var opnuð
almenningi. Jörundur setti sýn-
inguna og bauð gesti velkomna,
dr. Sigurður Þórarinsson flutti
stutt en fróðlegt erindi um atom
orkuna og þann kynjakraft sem
maðurinn hefir nú beislað.
Benti Sigurður á, að þessi upp
götvun vísindamannanna, sem
tókst að béisla atomorkuna,
myndi annaðhvort verða mann-
kyninu til góðs eða ills, tortím-
ingar eða farsældar. Það væri
ekki nema um annað af tvennu
að ræða.
Það Væri vel, að menn hjer
kyntu sjer eftir föngum hvað
það er sem hjer er á ferðinnx
en það væri einmitt tilgangur-
inn með sýningu þcssari.
Fróðlcgar skýringar.
Þorbjörn Sigurgeirsson atom
eðlisfræðingur, gekk með gest-
um um sýninguna og skýrði
myndirnar fyrir þeim og undir
stöðuatriðum í atomfræðunum.
Var það hið fróðlegasta alt og
munu fiestir hafa farið vísari
af sýningunni en þeir komu.
Skýringarmyndirnai eru marg
ar ágætar, einfaldar, en bó svo
að þær skýra efnið vel.
Þarna eru myndir frá Hiro-
sima og Nagasaki, þar sem
fyrstu atomsprengjunum var
varpað í ágúst 1945. Þá eru
myndir frá atomorkuverksmiðj
um í Bandaríkjunum, Mkinga
og skýringamyndir allskonar,
sem vekja munu mikla athygli
sýningargesta.
Að lokum var svo sýnd ame-
rísk kvikmynd um rafmagnið
Atomsýningin verður opin í
12—14 daga og má búast við
mikilli aðsókn að henri, þvi
hún er bæði nýstárleg og íræð-
andi.'
FUNDUR vcrður h-’ld-
inn í fuiltrúaráöi Heim-
dailar í Sjálfstæðishúsinu
á föstudagskvöid ki. 8,30.
Áríðandi er að allir full-
trúar mæti vel og stund-
víslega.