Morgunblaðið - 12.05.1948, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.05.1948, Qupperneq 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. maí 1948. Wlfiaa mU >» U illii kJÁ IB SIST vænti jeg þess þegar við Páll Þormar bjuggum saman í London þessa maídaga í fyrra- vor, að jeg mundi nákvæmlega að ári liðnu sitja hjer og skrifa minningarorð um hann látinn. En svona er það nú samt. Jeg mun lengi minnast þessara ánægju- legu daga okkar í London. Við höfðum þekkst í 26 ár en við kynntumst að vissu leyti meira á þessum fáu dögum þar, en öll hin árin samanlagt. Og mjer finnst það dáiítið einkennilegt nú, þegar Páil Þormar er horfinn yf- ir landamæ; in, að hugsa um, að umræðuefni ckkar var nálega á hverju einasta kvöldi það sama — einmitt þetta: — Hvað tekur við, þegar þessu lífi lýkur? Við Páll Þormar kynntumst fyrst á Norðfirði er jeg kom þang að 1921 sem kennari. Hann var þá fluttur þangað fyrir nokkrum árum og tekinn að starfa við hina umfangsmiklu verslun og útgerð tengdaföður síns, Konráðs Hjálmarssonar. Okkur varð fljótt vel til vma, þótt við værum sinn í hvorum stjórnmálaflokki og ættum af þeim sökum oft í póli- tiskum brösum. Páll var þá aðal- fyrirsvarsmaður Sjálfstæðis- flokksins á Norðfirði, en stjórn- málaerjur vo;u þá mjög að hefj- ast og fiokkaskiptingin að skerþ- ast einmitt um þær mundir. Þar sem jeg átti að heita að hafa fyrirsvar fyrir Alþýðuflokknum en Pá’l fvrir Sjálfstæðisflokkn- um lentum við saman, bæði í hreppsnefnd og síðar í bæjar- stjórn og áttum um mörg ár sam- an sæti í ílestum meiriháttar nefndum og stjórnum á Norð- firði. Þrátt fyrir þann pólitíska skoð- anamun, sem auðvitað var mikill þrándur í götu heilbrigðs sam- starfs hjá okkur eins og öðrum, verð jeg að segja, að jeg hefi með fáum eða engum andstæðingum mínurn starfað, sem samvinnu- þýðari og betrl voru að starfa með en Páll Þormar. Hann var duglegur að hverju því verki, sem hann gekk að og honum var falið, og hann var víðsýnn og laginn að koma málum fram. Við Páll Þormar vorum báðir á besta skeiði er við störfuðum saman á Norðfirði og hann var þar hreppstjóri eri jeg oddviti. Það mál, sem við beittum okkur mest fyrir sameiginlega var að fá hrundið fram kaupstaðarjett- indum handa Norðfirði. Það mál vár aldrei flokksmál en átti ýms- um örðugleikum að mæta þar héima. Páll Þormar átti sinn mikla hlut í því að það fjekkst fram. Við trúðum því báðir þá, að það væri því byggðarlagi, sem vi§ störfuðum fyrir, til hamingju og aukinnar menningar. jVið störfuðum einnig sameigin lega að því að koma á fót fyrstu rafveitunni fyrir Norðfjörð, og jeg minnist enn alls þess starfs, sejn Páll Þormar lagði þar fram, og þess áhuga sem hann sýndi í því erfiða máli. Mjer er að vonum Páll Þormar mjnnisstæðastur frá samveru- stjindum okkar á Norðfirði, þeg- an við í blóma lífsins ýmist bár- uiiist á pólitískum spjótalögum ecfa unnum saman að stórmálum býggðarlags okkar. Mjer eru líka þær minningar að mörgu leyti kærastar í sambandi við Pál Þifrmar, því þá reyndi oft mest á jnanndóm okkar beggja. Porlögin höguðu því þannig, að ' vi?S fluttum frá Norðfirði báðir sajna árið hingað til Reykjavík- uri Eftir að Páll Þormar fluttist tif Reykjavíkur varð aðalstarf hcjns í sambandi við loðdýrarækt og hafði hann mikinn áhuga fyrir þeirri atvinnugrein. Hann var friimkvæmdastjóri Loðdýrarækt- aifjelags íslands. Hin síðari ár hjþr í Reykjavík starfaði hann r ökkuð í Sálarrannsóknarfjelagi Isfands og mun hafa átt mikinn j þatt í því að fjelagið eignaðist ; hus fyrir starfsemi sína' Sýndi i hann í því sama dugnaðinn og fyrrum einkenndi þau störf, er hann tók að sjer að leysa af hendi. + Páll Þormar var fæddur 27. máí 1834 að Eiðum. Hann var sonur Guttorms Vigfússonar al- þingismanns í Geitagerði. Páll lauk námi í Akureyrarskóla 1906 og var starfsmaður hjá Útvegs- bankanum á Seyðisfirði frá 1907 til 1915, og jafnframt bæjargjald- keri á Seyðisfirði. Arið 1912 kvæntist Páll Þormar eftirlifandi konu sinni Sigfríði Konráðsdótt- ur Hjálmarssonar kaupmanns og útgerðarmanns á Norðfirði. Flutt ust þau. hjónin 1915 til Norðfjarð- ar og rak Páil þar verslun og útgerð í fjelagi við tengdaföður sinn til ársins lOf7 er þeir seldu úgnir sínar þar cg Páll fluttist neð fjölskyldu sína til Reykja- víkur. A Norðfirði gengdi Páll Þorm- ir fjölda trúnaðarstarfa. Hann /ar þar oddviti og Hreppstjóri áður en Norðfjörður fjekk kaup- staðarrjettindi. Hann átti um mörg ár sæti í yíirskattanefnd 3.-Múlasýslu og síðar Neskaup- staðar. Hann var einn af stoí-i- ;ndum Sparisjóðs Norðfjarðar og iðalhvatamaður að stofnun hans, 3g stjórnaði honum í 13 ár. Þá var hann og breskur konsúll á VorðfirðL A yngri árum var Páll Þormar góður íþróttamaður og /ar hann einn þeirra er fór í glímuflokki Jóhannesar Jósefs- sonar á Olympíuleikana í London árið 1908. Páll Þormar var riddari fálkaorðunnar. Þeim Páli og Sigfríði varð sex barna auðið og eru þau öll á lífi nema dóttir þeirra Sigríður, sem fórst með Goðafossi er hann var skotinn niður af Þjóðverjum í síð asta ófriði. Hún var uppkomin og á heimleið frá námi í Ameríku. Var sár harmur kveðinn af þeim hjónum við fráfall, hennar því hún var eina dóttir þeirra. Tók Páll Þormar sjer fráfall hennar miklu nær en menn almennt gerðu sjer Ijóst. Hin síðustu ár æfi sinnar var Páll Þormar aldrei heill heilsu og gerði ráð íyrir því, að snögglega gæti um skipt fyrir sjer, eins og líka varð raunin á. Hann andaðist að heimili sínu 1. maí s. 1. eftir stutta legu. Jónas Guðmundsson. FLUGPOSTFERÐIR eru nú svo að segja daglega milli íslands og Norðurlanda og Ameríku. Kemur það fyrir, að brjef eru borin hjer út í bænum, sem voru sett í póst í Ameríku deg- inum áður. Innanlands eru póst- samgöngurnar á landi enn með vetrarsniði, en flugið bætir mjög úr hvað pós.tsamgöngur snertir og á næstu vikum hefjast dag- legar landpóstferðir til ýmsra staða á landinu. j Morgunblaðið hefir átt tal i við Sigurð Baldvinsson, póst- meistara og fengið hjá honum eftirf arandi upplýsingar um póstsamgöngurnar • j hafa hins vegar ekki verið eins tíðar, en munu nú fara batn- í flugvjelaWrkjuEi. Haraldur Hagan og Viggó Einarsson bera saman athuganir sínar í Flugvirkjaskólanum í Cal-Aero í Glendale í Kaliforníu, þar sem þeir eru báðir við nám. Tveir íslendingar við flugvjelavírkjun I -4> Ylir 200 bifreiðar eru r | ■ f nu GLENDALE, Kaliforníu: — Haraldur Flagan cg Viggó Ein- arsson, tveir Reykvíkingar, sem stunda nám í flugvjelavirkjun í Cal-Aero iðnskólanum, hafa lokið fyrrahlutaprófi í flugvjela virkjun. Er það nám að mestu bóklegt. Gert er ráð fyrir að þeir ljúki aðalprófinu í október í haust. Þeir fjelagar eru nú byrjaðir á verklega náminu og munu kynna sier allar tegundir flugvjelahreyfla. * Haraldur er bróðir Eiríks Iíagan, Laufásveg 12 og Viggó er sonur Magneu Sigurðardótt- ur, Kárastíg 9. AÐALFUNDUR Samvinnu- fjelagsins Hreyfill var haldinn 28. apríl s. 1. Úr stjórn fjelags- ins áttu að ganga þeir Ingjaldur ísaksson og Ingimundur Gests- son, en voru báðir endurkosnir. Stjórn fjelagsir.s skipa nú: Ingjaldur ísaksson, formaður, Ingvar Sigurðsson, gjaldkeri, Ingimundur Gestsson, ritari og Vilhjálmur Þórðarson, varafor- maður. Framkvæmdastjóri fjelagsins er Tryggvi Kristjánsson og á hann einnig sæti í stjórn fjel- agsins. Á bifreiðastöð fjelagsins eru nú yfir 200 bifreiðar. Hagur fjelagsins er góður.1 í Landpóstar. | Það má heita, að innanlands- samgöngurnar sjeu ennþá með . vetrar sniði. Þó hefur einni ferð I verið bætt inn í á r.orðurleið- inni*sem sje sunnudagsferð. I vetur voru 2 ferðir í viku, þriðiudaga og föstudaga, með ! póstbílunum til Akureyrar og ( hafði hann viðkomu í þeim ferð : um á öllum póststöðum á leið- inni. Nú hefur sunnudagsferð verið bætt inn í. Daglegar póst- ferðir norður munu hins vegar hefjast um næstu mánaðamót. Frá sama tíma munu þá einnig hefjast póstíerðir til og frá Aust urlandi um Akureyri. Þá er gert ráð fyrir að póstbíllinn, sem gengur frá Sauðárkrók til Ilaga nesvíkur um Fljót. aki daglega um Siglufjarðarskarð til Siglu- fjarðar. Póstsamgöngur um Suðurland. Póstur er sendur daglega til póstafgreiðslnanna í Gullbringu og Kjósarsýslu, Árnessýslu og nokkurs hluta Rangárvalla- sýslu. Til annarra hluta á Suð- ur- og Vesturlandi þar sem bíl- arnir komast ekki á enda póst- leiðarinnar, eru póstar sendir vikulega og hálfsmánaðarlega. Á jeg hjer við Dalasýsluna og A.-Barðastrandarsýslu. Sama máli gegnir um Strandasýsluna. Þangað gengur póstur frá Stað í Hrútafirði hálfsmánaðarlega nema um loft- eða sjóferðir sje að ræða, en þær eru nú orðnar til tíðar til Strandahafnanna og þá einkum til Hólmavíkxir. Ann ars verður reynt að senda póst landleiðina, eins fljótt og snjóa leysir, til allra þessara staða. rnnanlandsflugið nýtist yfirleitt vel til póstflutninga. Með tilstyrk flugfjelaganna hafa póstsamgöngurnar aukist stórkostlega. Einkum þá að því er snertir Vestfirði og Austfirði. Svo má heita að flugpóstur sje nú sendur daglega til hinna ýmsu staða innanlands og t.il sumra þeirra oftar en einu sinni á dag' þegar veður ekki hamla. Flugpóstur milli landa. Lítið vantar nxt á að við fáum póst daglega frá Norðurlöndum og Bandaríkjunum, segir póst- meistari. Sama er að segja um póst hjeðan. Hann er venjulega afgreiddur 4—5 sinnum á viku. Það er því ekki ósjaldan að flug póstur sje nú borinn út í bæinn daginn eftir að hann er afgfeidd ur hingað til lands frá Banda- rikjunum og Norðurlöndum. Flugferðir til og frá Englandi andi fyrir tilstyrk íslensku flug- fjelaganna. Eru samgöngur betri, að því er flugpóst snertir við útlönd, en þær voru s. 1. ór? Á s. 1. ári afgreiddi pósthúsið hjer 170 fiugpóstafgreiðslur til Bandaríkjanna en þaðan komu 150 afgreiðslur. En frá Faup- mannahöfn fengum við s. 1. ár 225 flugafgreiðslur en tal: vert færri frá hinum Norðurlörduri- um og Bretlandi. Jeg geri því fastlega ráð fyrir að fjöldi flug afgreiðslnanna til og frá íslandi verði enn meiri í ár en nokkru sinni fyrr. Leiðbeiningar. Er nokkuð sjerstakt, sem þjer viljið taka fram í sambandi við póstmálin? — Já, jeg vil m. a. biðja yður að benda almenningi á það, að vegna hinna öru flugferða til útlanda, og sökum þess að senda verður póstinn í flestum tilfell- um til Keflavíkurflugvallar, þá er nauðsynlegt að afhenda öll flugbrjef fyrir kl. 15.00 virka daga og kl. 11.00 óvirka, sje þeim ætlað að ná fyrstu ferð. Loks vil jeg bioja yður að benda póstnotendum á það, að frí- merkja sjálfir póstsendingar sín ar og skrifa greinilega utan á þær, og helst ætti nafn send- anda að sjást á brjefum svo að endursending sje auðveld, ef þau af einhverjum ástæðum kornast ekki til viðtakanda. — Þá er og æskilegt að vekja at- hygli póstnotenda á því, að draga ekki að póstleggja send- ingar, því oft falla aukaferðir fyrirvaralítið, og er þá sendur sá póstur, sem fyrir liggur. leiksliðin, er keppa við Danina, valin VALIÐ hefur verið í handknat.t- leikslið þau, sem keppa tvo fyrstu leikina við dönsku hand- knattleiksmennina, sem hingað koma 17. þ. m. Fyrsti leikur Dananna verður útileikur, og verður íslenska lið- ið þá þannig skipað: Sólmundur í Val, markvörður, Jón Erlends- son, Á, Sigfús Einarsson, Á, Ingi Þorsteinsson, ÍR, Hafsteinn , Guðmundss., Val, Sveinn Helga- ! son, Val, Garðar Halldórsson, |Val, Sigurður G. Norðdahl, Á, Bjarni Guðnason, Víking og Kjartan Magnússon, Á. í fyrsta innileiknum verður lið Islendinga þannig skipað: Halldór Sigurgeirsson, Á, Hauk- ur Bjarnason, Á, Sveinn Ragn- arsson, Fram, Sigfús Einarsson, Á, Hafsteinn Guomundsson, Val, Sveinn Helgason, Val, Garðar Halldórsson, Val, Sigurður G. Norðdal, Á, Kjartan Magnússon, Á, og Bjarni Guðnason, Víking. Þeir Halldór Erlendsson og Grímur Jónsson sjá um lið ís- londinganna og dæmir Halldór fyrsta leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.