Morgunblaðið - 12.05.1948, Side 8
Ít O R G U N D*L A Ð 1 Ð
Miðvikudagur 12. maí 1948.
mi
if ■%
i|(i# iÍúiL&i&i'i'íÍL
$s
líú
ri tr|
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrg3«rm.),
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
* Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlanda.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
XJíhuerji álri^ar
ÚE DAGLEGA LÍFINU
NORSK KYNNI
,.ENGIN þjóð er okkur eins nátengd og Norðmenn.“ Þannig
komst Gunnar Thoroddsen borgarstjóri að orði, er hann
ávarpaði hinn norska leikflokk í gær þegar hann, og bæjar-
ráð Reykjavíkur, tóku á móti hinum norsku gestum í Sjálf-
stæðishúsinu. Hann þakkaði þeim, og öðrum, sem stutt hafa
að þessari virðulegu heimsókn, hinni fyrstu leikför, sem
erlent þjóðleikhús hefur efnt til hingað, til að sýna leikrit
með sama hætti og það er sýnt í heimalandinu.
1 sambandi við heimsókn hins norska leikflokks er rjett
að rifja upp í stuttu máli hvað Norðmenn hafa nú á skömm-
um tima gert og gera innan skamms til að auka og tryggja
menningarkynni milli þjóðanna. En leikförin er einn merkur
þáttur í því markvissa starfi, frá þeirra hendi.
Segja má að upphaf hinna auknu kynna hafi verið ferð
Ólafs ríkiserfingja hingað til lands í fyrra sumar, með fríðu
föruneyti, í tilefni af afhjúpun Snorralíkneskisins. I sam-
bandi við þann atburð var sem fjelli hula af augurn ýmsra
hjerlendra manna, er áður höfðu talið, að samskifti Norð-
manna og Islendinga myndu æ sem fyrr, aðallega snerta
fisksölu og síldveiðar. Menn sjá nú, og sannfærast um, að
frændþjóðir þessar hafa sitthvað til hvor annarar að sækja,
sem kemur menningarmálum þeirra við.
Virðulegasta heimsóknin frá Noregi í sumar, verður heim-
sókn leikflokksins, þar sem úrvalslið frá hinu norska þjóð-
leikhúsi er hingað komið, undir forystu leikhússtjórans
Hergel. En frumkvæðið að heimsókn þessari mun vera frá
frú Gerd Grieg, sem ætlar ekki að gera endasleppa góðvild
sína í garð íslenskrar leiklistar, og leikhússmála.
Á meðan hinir bestu leikarar, sem þjóðleikhús Norðihanna
hefur á að skipa til að sýna Rosmerholm Ibsens æfa til
sýningar í Iðnó, keppir landslið Noregs í sundi við frækn-
ustu sundmenn okkar.
Vinarhót Norðmanna í garð Islendinga hafa komið fram
á margan hátt síðasta árið. Er þá fyrst að minnast þess, er
Norðmenn á síðastliðnum vetri efndu til Norsk-íslensks
fjelagsskapar, og er hin víðkunni sagnfræðingur A. W.
Brögger formaður hins nýja fjelags. Fulltrúaráð þess verður
kjörið um Jónsmessuleyti í sumar, þegar mannval úr ýmsum
bygðum Noregs kemur saman í Bergen til þess að vera við-
statt afhjúpun þess Snorralíkneskis, sem þar verður reist.
Stórþingið norska hefur nýlega, eins og getið hefur verið
um hjer í blaðinu, veitt Oslóar-háskóla fje, til þess að standa
straum af sendikennarastöðu við Háskóla íslands. Verður
staða þessi fengin einhverjum völdum fræðimanni norskum
1. júlí í ár. Er þar með trygt, að tekin verða upp menningar-
kynni hjer við Háskólann, sem varanleg verða.
Næsta norska heimsóknin hingað á þessu sumri verður
væntanlega koma norska stórskáldsins Arnulf överlands,
er kemur hingað á vegum Norræna fjelagsins. Verður hann
hjer kærkominn gestur. Svo mjög er hann dáður af öilum
frjálshuga Islendingum. Kvæði hans frá styrjaldarárunum,
þau fáu sem hingað bárust, voru Isiendingum hugstæður
vottur um þrotlausan baráttuliug norsku þjóðarínnar, sem
engin kúgun nje ofsóknir geta yfirbugað.
Enn er von á norskum íþróttaflokki hingað til lands í
sumar er þreyta mun hjer frjálsar íþróttir.
Og þegar haustar að, mun hingað koma formaður hins
nýstofnaða norsk-íslenska fjelags Brögger prófessor, og
halda hjer fyrirlestra á vegum Háskólans um söguleg efni
er snerta báðar þjóðir.
Þetta er þá hið helsta, sem Norðmenn leggja á þessu ári
til að auka og styrkja menningarkynnin.
Er hjer svo mikið að gert í einu, frá þeirra hendi, að
enginn getur efast um, að hugur fylgi máli. Það sje ein-
dreginn ásetningur þeirra, að vinna að því, að á komandi
tímum, verði tekinn upp þau nánu samskifti á hinu andlega
sviði, og í hinu daglega lífi, sem var báðum þjóðunum til
gagns og velfamaðar, á meðan báðar voru frjálsar fyrr á
öldum. . ,
Er ekki of djúpt tekið í árinni, að segja, að þessi vinátta
sem hjer kemur íram, í garð Islendinga, sje allri íslensku
þjóðinni gleðiefni. ,
ísland í erlendu
tímariti.
„THE NORSEMAN“ heitir
ágætt tímarit, sem nokkrir
Norðmenn gefa út í London.
Meðal útgefenda er Dr. Jacob
Worm-Miiller, sem margir Is-
lendingar kannast við. Dr. Arne
Ording, Keilhau prófessor og
í'leiri málsmetandi menn.
I rit þetta skrifa ýmsir ágæt-
ir rithöfundar um málefni, sem
skifta Norðurlöndin og hefir
Isla.nds stundum verið getið
' þar. í janúar-febrúarheftið í
| vetur skrifaði Stephen Simm-
i ons prein um ísland og ræddí
af fjálgleik nokkrum um auð-
æfi Islendinga og stríðsgróða,
| sem laQdanum hefði tekist að
eyða í flýti og nú lægi lítið fyr-
ir neraa basl og aumingjaskap-
ur á ný.
Tekinn upp hanski.
í SÍÐASTA HEFTI^ „The
Norsemen“ tekur góður íslands
vinur í London, James Whit-
taker, upp hanskann fyrir okk-
ur Islandinga vegna fyrnefndr-
ar greinar.
Lýsir hann vandamálum okk
ar fvr og eftir stríðið og fer þar
með rjett mál, sem hans var
von og vísa, því þessi maður
hefir látið sig skifta íslensk
málefni og gert mikið til að út-
breiða þekkingu í Bretlandi á
landi og þjóð.
Skal hjer ekki rakin grein
hans frékar, en vel kann jeg
við niðurlag greinarinnar, sem
er á þessa leið:
„Hvort Island kýs, að vinna
með eða fyrir utan alþjóðasam-
tök, verður ákveðið af íslend-
ingum einum, það á engin er-
lend þjóð með, að segja íslend-
ingum fyrir verkum“.
Þetta þótti mjer vel sagt.
Islensk trje í
enskum garði.
OG ÚR ÞVÍ að jeg fór að
minnast á James Whittaker og
hlýhug hans í garð ísler.dinga,
er best jeg segi frá því, að fyr-
ir einum tveimur árum tók
hann með sjer birkifræ, sem
hann fjekk fyrir milligöngu
Skóyræktarfjelags Islands og
gaf fræið Royal Botanic Gard-
ens í Kew, skamt frá London.
Eru þetta skrautgarðar miklir
og tilraunastöð, þar sem gróður
írá mörgum löndum hefir verið
settur niður.
Nú eru birkifræin frá íslandi
orðin, að litlum íslenskum
birki-,,trjám“, að vísu ekki
nema um þumlungur á hæð
ennbá, en þau eiga eftir að
vaxa og verða sennilega stærri
en þgu verða á íslandi.
Miljónri gesta.
í ÞENNA GRASGARÐ í Kew
koma miljónir gesta árlega.
Dagvn, sem forstjóri garðsins
skrifaði Whittaker og sagði hon
um, að íslenska birkið hefði
komið upp, komu 100.000 gest-
ir í garðinn.
Þyð segir sig því sjálft, áð
það verður dágóð auglýsing fyr
ir Island, að þarna skuli vera
íslenskur gróður, sem t.ugþus-
undir erlendra manna eiga eft-
ir að sjá á næstu árum.
llvað gengur að
útvarpinu?
TVO UNDANFARNA DAGA
hefir það komið fyrir, að út-
varpið hefir skyndilega þagnað
um hádegið. Eina skýringin á
þessu fyrirbæri er sú, að þul-
urinn biður afsökunar og get-
ur þ^ss um leið, að „þetta hlje“
hafi stafað af bilun.
Vitanlega er ekkert leyndar
dómsfult við það þótt bilun
verði á tækjum og getur ávalt
komið fyrir. Afsaka allir með
glöðu geði slík óhöpp. En það
mætti geta þess í frjettum hvað
það er, sem orsakar hinar tiðu
biianir í útvarpinu.
Er nokkuð að?
FYRIR NOKKRU gat frjetta-
stofa útvarpsins þess og sendi
ölTúm blöðum bæjarins frjett-
ina, að útvarpsstjórinn væri
nýlega kominn heim frá útlönd
um og að erindi hans hefðj m.
a. verið. að fá menn til að gera
við utvarpsstöðina.
Það hafði aldrei heyrst áður,
að hún þyrfti viðgerðar við og
fanst mönnum nokkuð einkenní
legt. að ekki skyldi vera sagt
frá bví hvað það er, sem er að,
Jeg reyndj að leita mjer upp-
lýsinga um þetta hjá sjerfræð-
ihgum, en þeir fullvissuðu mig
um. að bað væri í rauninni ekk_
ert að, en hinsvegar myndi hafa
verið vanrækt að kaupa vara-
i stykki til stöðvarinnar á méð-
j an gialdeyrir var fyrir hehdi
til sJíkra hluta.
| Æ’Jí það hefði ekki verið
' nær. að kaupa varastykki, en
I að pvða tugþúsundum dollara i
! teikningar að skýjahöllum, eins
; og gert var.
Gluggaþvottur.
,.ÞÚ ert að tala um götu-
þvott. Víkverji minn, skrifar
gamall lesandi. Það er ágætt hjá
þjér. Jeg ér einn þeirra, sem
er því fylgjandi að göturnar
sjeu bvegnar.
,,En það er langt síðan þú
hefir minst á gluggaþvottinn.
Og væri þó ekki vanþörf á. Það
er hörmung að sjá hve rúður
eru óhreinar jafnvel í stórhýs-
um hjer i bænum.
..Menn ættu þó ekki að vera
að útiloka þessa litlu sólar-
glætu, sem við njótum þessa
dagana, það er ekki að vita hve
lengi hún stendur“.
Hjer með er þessu komið á
framfæri við rjetta hlutaðeig-
endur.
MEÐAL ANNARA ORÐA
Eftir G. J. Á.
Verðlaunasamkeppni MorgunblaSsins og World Sporf
ENGINN vafi er á því, að verð-
launasamkepni Morgunblaðsins
og World Sport hefur vakið
mikla athygli hjer á landi. —
Það má heyra það á ýmsum,
að þeir eru staðráðnir í að taka
þátt í samkepninni og að gera
heiðarlega og' rækilega tilraun
til að hreppa fyrstu verðlaun
— fría ferð á Olympíuleikana
í Bretlandi og uppihald þar.
Morgunblaðinu hefur borist
ýmsar _nýjar upplýsingar frá
WorJd Sport um tilhögun sam-
keppninnar, þátttöku og fleira.
í síðustu tilkynningu íþrótta-
ritsins er þannig skýrt frá því,
að blöð og útvarpsstöðvar í ell-
efu lönðum hafi þá þegar þegið
boðið vqn þátttöku. Þessi lönd
eru Belgía, Danmörk, Frakk-
land, Holland, ísland, Ítalía,
Luxembourg, Noregur, Portú-
gal, Svíþjóð og Ungverjaland.
• •
MISLITUR HÓPUR.
Sum blöðin heita hinum
furðulegustu nöfnúm frá okkar
sjónarhól sjeð. I P.elgíu hafa La
Derniere Heure og Het Laatste
Nieu\ys þannig tekið höndum
saman um verðlaunásamkepn-
jna, en í Frakklandi stendur
blaðið France-Soir eitt að
henni. í Ungverjalandi sjer
blaðið Uj Magyarorszag eitt um
kepnina, í Ítalíu Gazzeta Delle
Sport og í Portúgal O Secule.
Tilhögun kepninnar er ekki
eins á hverjum stað. France-
Soir er að hugsa um að láta
verðlaunasamkepnina bvggjast
á ritgerðum ura „Fegursta
dæmið um sannan íþróttaanda.
sem þú hefir verið vitni að“. I
dómnefndinni verða ýmsir af
fremstu íþróttamönnum Frakka
auk tveggja eða þriggja þektra
íþróttaritara. France-Soir gérir
ráð fvrir að fá -hvorki méira
nje rninna en um 100 000 svör,
og sjefstök deild verðnf sett á
stofn innan blaðsins til þess að
sjá um kepnina Eftir að 15
til 20 bestu ritgerðirnar hafa
ve-ið vatdar úr. er í ráði að
bjóða höfundum þeirra til Par-
ísar á ýmiskonar íbróttamót,
en í París fer fram lokakepni
um það. hver hreppí ferðina á
Olympíuleikana.
• •
SPURNINGAR OG
GÁTUR.
Ungverska blaðið Uj Magyar-
orszag hefur tilkýnt, að það
muni ekki láta verðlaunasam-
kepnina byggjast eihungis á
ritgerðum, heldur hefir það
einnig í hyggju að leggja ýms-
ar spurningar um Olympíuleik-
ana fyrir lesendur sína og bera
á borð fyrir þá krossgátur urn
ýmiskonar íþróttaefni. —- Auk
Olympíufararinnar, ætlar Uj
Magyarorszag að veita. auka-
verðlaun, svo vinnendurnir í
Ungverjalandi verða um 250.
• •
EINS OG BLÓM
í EGGI.
Sigurvegurunum í öllum þess
um samkepnum verður, eins og
áður er sagt, boðið á Olympíu-
leikana í Bretlandi. Blaðið, sem
annast keppnina í hverju landi,
leggur þeim til far til óg frá
Bretlandi, en þar í landi verða
þeir á vegum Wcrld Sport. í
London dvelja beir hlutskörp-
ustu í góðu veitingahúsi, þeim
verður sjeð fvrir fyrsta flokks
sætum á Olvmpíuleikunum,
þeim verður boðið í leikhús og
sýnt það markverðasta í borg-
innni og svo verða þeir kyntir
fyrir ýmsum málsmetandi
ifíönnum. Þeir munu með öðr-
uni orðum lifa eins og blóm í
eggi.