Morgunblaðið - 12.08.1948, Blaðsíða 6
UORGUNBLAÐIV
Fimmtudagur 12. ágúst 1948,
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
rramkvjrtj.: Sigfúa Jónsson.
Rltatjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. ,
Auglýsingar: Aml Garðar Kristtnasoa.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600,
Askrlítargjald kr. 10,00 á mánuði, innsnlsnds,
f lausasölu S0 aura eintakið. 75 aura m«8 Lesbók.
kr. 12,00 utanlanda.
Truman eða Dewey ?
ÓVISSUNNI urri keppinautana um forsetatign í Bandaríkj-
unum er fyrir nokkru lokið. Kosningabaráttan er hafin af
fullum krafti.
Fyrsta skref Trumanns forseta, frambjóðanda Demokrata,
var að kveðja Bandaríkjaþing saman til aukafundar. Kom
það saman þann 27. júlí s.l. Þegar forsetinn tilkynnti þessa
ákvörðun sina á flokksþingi Demokrata í Philadelphiu,
blandaðist engum hugur um, hver tilgangur hans var með
henni. Hann vildi gefa þingmeirihluta Republicana í báðum
deildum þjóðþingsins, tækifæri til þess að standa við kosn-
ingaloforð sín og yfirlýsa stefnuskrá í ýmsum þýðingarmikl-
um málum, ekki hvað síst í dýrtíðarmálunum, sem verða
æ erfiðari viðfangs. Ólíklegt er talið að aukaþing sam-
þykki nokkra þýðingarmikla löggjöf fyrir kosningarnar. En
Truman hefur talið sjer hagstætt að geta í kosningabarátt-
unni sýnt fram á tregðu andstæðinga sinna til að taka
raunhæft á málunum, áður en þjóðin gengi að kjörborði.
En Republicanar hafa farið hörðum orðum um þetta
bragð Trumans.
T. d. komst einn þeirra fremstu manna, Vandenberg öld-
ungadeildarmaður, þannig að orði, að það væri síðasta ör-
þrifaráð fallandi stjómar.
En Demokratar eiga í vök að verjast í þessum kosning-
um. Að þeim steðja a. m. k. tvær hættur.
1 Suðurríkjunum, þar sem þeir jafnan hafa átt yfirgnæf-
andi fylgi að fagna, hefur verið sett fram sprengiframboð
gegn Truman, hinum kjörna frambjóðanda flokksins. Demo-
kratar þessara ríkja hafa lýst yfir framboði Thurmond rík-
isstjóra í mótmæla skyni við mannrjettinda stefnuskrá
Trumans.
I öðru lagi hefur Henry Wallace, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, stofnað nýjan flokk, er hann nefnir Fram-
sóknarflokk. Er gert ráð fyrir að hann verði aðallega studd-
ur af kommúnistum og ennfremur er talið líklegt að áll-
margir svertingjar muni fylgja honum.
Wallace yfirgaf stjórn Trumans, sem hann var verslunar-
málaráðherra í, fyrir alllöngu, fyrst og fremst vegna ágrein-
ings um utanríkismál. Síðan hefur hann haldið margar
ræður, þar sem hann hefur ráðist harðlega á Demokrata
fyrir afstöðu þeirra til Sovjet Rússlands. Hann hefur einnig
tekið upp skarpa andstöðu - gegn aðstoðinni við Vestur-
Evrópu, hinni svokölluðu Marshallhjálp.
Truman hefur þannig gjörsamlega mistekist að sameina
þau öfl flokks síns, sem Roosevelt með lagni sinni jafnan
tókst að laða til samstarfs, hina afturhaldssömu Suðurríkja-
menn og hina vinstri sinnuðu og sósíalistisku fylgjendur
flokksins víðsvegar um Bandaríkin.
Það er að vísu ekki gert ráð fyrir því að hinir tveir sprengi-
frambjóðendur Demokrata fái mikið fylgi. Þvert á móti er
talið víst að fylgi beggja þeirra muni verða mjög lítið. En
þau hljóta þó að gera róður Trumans töluvert erfiðari og
minka sigurvonir hans. En að sama skapi og hátrompum
Trumans fækkar vaxa líkur Deweys, frambjóðanda Repu-
blicana, fyrir því að ná kosningu, sem forseti Bandaríkjanna
x átökunum í nóvember. Flokkur hans vann glæsilegan sigur
í síðustu kosningum til þingsins og hefur nú hreinan meiri-
hluta í báðum deildum þess. Er mjög almennt gert ráð fyrir
því að langsamlega mestar líkur sjeu til þess að hann verði
næsti húsráðandi í Hvíta húsinu í Washington.
En þótt forsetaskipti kunni að verða á næstunni er talið
fullvíst að engar teljandi breytingar muni verða á stefnu
Bandaríkjanna út á við.
1 þeim málum greinir hina tvo áðalflokka landsins ekki
á, enda hafa Republicanar stutt stefnu Marshall og Trumans
eftir föngum. Hefur Dewey t. d. lýst því yfir að hann sje
eindregið fylgjandi Marshall lögunum og efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna við hinar 16 Evrópuþjóðir.
En Dewey mun ef að vanda lætur eftir forsetaskiptin
skipta um menn í ýmsum þýðingarmiklum stöðum. Má gera
láð fyrir að Republicanar, sem ekki hafa ráðið forsetakjöri
x 16 ár, sjeu orðnir all-langeygir í að koma mönnum sínum
að eftir slíka herleiðingu.
L
UR DAGLEGA LIFINU
Fjelag allra
borgarbúa.
FJELAGIÐ, sem stofnað var"
hjer í Þjóðleikhúsinu 17. júní
s.l. og sem aetlar að vinna að
fegrun borgarinnar fyrst ' og
fremst á að verða fjelag allra
Reykvíkinga, bæði þeirra, sem
hjer eru fæddir og uppaldir,
sem hinna er flust hafa hingað,
eða eiga eftir að setjast að í
Reykjavík. Fjelagið ætlar sjer
að vinna að því, að gera borg-
ina fallegri, þrifalegri og
fallefyi í alla staði og að því
hljóta allir íbúar hennar að
stuðla.
Eftir nokkra daga, á afmæli
Reykjavíkur, 18. ágúst, efnir
hið unga^fjelag til framhalds-
aðalfundgr og eftir þann fund
má búastyið, að áhrifa fjelags-
ins fari að gæta verulega. Hug-
myndin að stofnun þessa fjelags
skapar er góð og þörf. Vonandi
á felagið ‘ langa lífdaga fyrir
höndum.
•
Vantar nafn.
EN ÞAÐ vantar nafn á „17.
júní fjelagið“, eða fegrunarfje-
lagið, eins og það hefur verið
nefnt. Fyrra nafnið er ekki
heppilegt. Það segir svo lítið um
tilganginn. — Fegrunarfjelagið
fer ekki vel í munni. Mjer er
kunnugt um, að forystumenn-
irnir fyrir stofnun fjelagsins
haldá ekki fast við þessi nöfn
og að þeir skoða þau sem bráða
birgðanöfn, en vænta þess, að
tillögur komi fram um gott
nafn á framhalds aðalfundin-
um.
Það má kannske segja, að
nafnið skipti ekki aðalmáli, en
þó er það svo, að það skaðar
ekki að hafa gott nafn á f jelagi,
sem á svo gott og mikið við-
fangsefni fyrir höndum.
•
Afmæli
Reykjavíkur.
REYKJAVlKURFJELAGIÐ
nýja hefur ákv. að halda upp á
afmælisdag Reykjavíkur með
skemmtunum í öllum sam-
komuhúsum borgarinnar. Það
hefur verið vanrækt hingað til,
að almenningur hjeldi upp á
þenna afmælisdag höfuðborg-
arinnar.
Jafnvel á 150 ára afmælinu
var lítið um að vera. — En nú
verða hátíðahöld, sem allir taka I
væntanlega einhvern þátt í og
þeim verður án efa haldið á-
fram á næstu árum.
Reykjavíkurfjelagið, sem
einnig er gott og þarft fjelag
hefur sögulegu hlutverki að
gegna, ef svo mætti að orði
komast. Það er verkefni þess,
að halda við gömlum minjum
hjer í borginni og gæta þess að
saga borgarinnar falli ekki í
gleymsku. Einnig það fjelag ■
mun halda afmælisdag Reykja-
víkur hátíðlegan.
Stofnun hins nýa felags mun
ekki á einn eða neinn hátt draga
úr starfsdmi eða vinsældum
Reykjavíkurfjelagsins. Þvert á
móti ættu þessi tvö fjelög að
geta unnið saman að hagsmuna
málum borgarinnar og borgar-
búa.
- •
• Teikningar í
Pilt og stúlku.
ÞAÐ ER sagt, að við blaða-
mennirnir sjeum með nefið
ofan í öllu, bæði því, sem okk-
ur kemur við og hinu, sem okk-
ur .varðar ekki um. En góður
blaðamaður telur að ekkert
mannlegt sje honum óviðkom-
andi og það er -rjett.
í gær sá jeg af tilviljun
nokkrar nýar teikningar eftir
Halldór Pietursson, listmálara.
og .jeg get hreint ekki þagað
yfir þeim.
Þetta eru 30—40 teikningar,
sumar í litum, í Pilt og stúlku
Jóns Thoroddsen, en í ráði er
að gefa enn einu sinni út þessa
vinsælu skáldsögu, sem íslend-
ingar þreytast aldrei á að lesa.
Maður, sem kunnugur er bóka.
útgáfu fullyrti við mig í gær,
að þeir höfundar, sem vinsæl-
astir væru meðal íslendinga
enn þann dag í dag, sjeu Jón
Tho.roddsen og Jónas Hall-
grímsson. Það sýnir sig líka
best á því að bækur þessara
tveggja höfunda eru gefnar út
aftur og aftur og ár eftir ár.
•
Munu vekja
athygli.
TEIKNINGAR Halldórs Pjeturs
sonar í Pílt og stúlku eiga eftir
að vekja athygli. Það er jeg
viss um. Það er auðsjeð að Hall
dór hefur kynnt sjer söguna og
persónurnar vel og að hann skil
ur sjereinkenni þeirra.
Það verður sannarlega feng-
ur að þessari nýu útgáfu Helga-
fells. Mjer er ekki kunnugt um
hvenær hún á koma út, en ekki
þætti mjer ólíklegt, að um
„jólabók“ væri að ræða.
•
Umferðarkvik-
myndir verða teknar.
JÓN ODDGEIR JÓNSSON, full
trúi Slysavarnafjelags íslands,
hefur sagt mjer frá, að þegar
hafi verið gerðar ráðstafanir til
að taka stuttar umferðakvik-
myndir hjer í borginni á vegum
Slysavarnafjelagsins. Mun Ósk-
ar Gíslason bráðlega byrja á því.
Kvikmynd þessi verður bæði
til fróðleiks og skemmtunar.
Því miður taka íslenskir ljós_
myndarar ekki kvikmyndir
nema á mjófilmu og Tjarnar-
bíó er eina kvikmyndahúsið,
sem hefur tæki til að sýna þær
myndir.
Samvinna milli
ökumanna og
llögreglunnar.
ÞÁ SAGÐI fulltrúi Slysavarna-
felagsins, að farið hefði verið
fram á það við Sigurjón Sig-
urðsson, lögreglustjóra, að
hann undirbyggi samvinnu
milli Slysavarnafjelagsins, FÍB,
Hreyfils og Þróttar og lögregl-
unnar um sameiginlega fræðslu
í umferðarmálum.
Tók lögreglustjóri þessu vel,
en mun ekki hafa komið því við
að hrinda málinu af stað áður
en hann fór utan.
I MEÐAL ANNARA ORÐA . . . .
Hún njt
JAPONSKU hermennirnir
óttuðust fátt meira en smá-
vöxnu, tötralegu stúlkuna, sem
tíðum sást á ferli á götunum í
Manila. Enginn varðmaður tafði
hana lengi, þegar hann upp-
götvaði hcldsveikissárin undir
blússu hennar. En þúsundir
bandarískra hermanna þekktu
hana og gáfu henni gælunafnið
Joey.
Fyrir stríð hafði frú Josefina
Guerrero verið velþekkt í
Manila. Hún var ung og falleg.
Eiginmaður hennar var flug-
ríkur læknanemi í Santo Tomas
háskóla. Þau áttu tveggja ára
gamla dóttur.
• •
JOFY GERIST NJÓSNARI
ARIÐ 1941 komst frú Guerr-
ero að raun ym, að hún Var
holdsveik. Hún leitaði til lækna.
En þegar Japanir rjeðust inn í
Filipseyjar, var holdsveikis-
spítölunum lokað. Hún sneri aft
ur til Maaila og gekk í and-
stöðuhreyfmguna. Asamt öðrum
ungum stúlkum, byrjaði hún
að hjálpa bandarískum stríðs-
föngum og senda þeim matvæli
fatnað og lyf.
Þegar Bandaríkjamenn gerðu
innrás í Leyte, notfærði Joey
sjer ótta Japana við holdsveik-
ina til að njósna fyrir banda-
ríska hermn. Hún gerði kort
yfir japönsk virki og loftvarna-
stöðvar, og ef einhver reyndi
að stöðva nana, nægði henni að
benda á sárin á líkama sínum.
Og Bandaríkjamenn notfærðu
sjer kort nennar og teikningar
og gereyðiiögðu meðal annars
loftvarnasiöðvarnar, sem hún
vísaði þein á.
• •
ÓTTAÐIST EKKI DAUÐANN
VEGNA holdsveikinnar, stóð
henni næstum alveg á sama um
öryggi sitt. Þegar andstöðu-
hreyfingin i Filipseyjum komst
að því, að Japanir höfðu komið
fyrir jarðsprengjum þar sem
73. bandaríska herdeildin átti
að ráðast á Manila í innrás-
inni, var Joey valin til að koma
þessum upplýsingum til Banda
ríkjamanna. Kort yfir jarð-
sprengjusvæðið var fest á bak-
ið á henni með heffiplástri og
svo var hún send af stað. Hún
gekk yfir 56 mílna breitt svæði,
þar sem Japanir voru á hverju
strái. Hún var oft stöðvuð, en
fjekk að halda áfram ferð sinni,
eftir að aðeins lauslega hafði
verið leitaö á henni. Hún kom
kortinu í ijettar hendur.
AÐ STRÍÐI LOKNU
EFTIR sigur Bandaríkja-
manna í Filipseyjum, voru
íholdsveikrasjúkrahúsin opnuð
á ný, en það vantaði peninga
til að reka þau og veita sjúkl-
inguntim nauðsynlega aðhlynn-
ingu. Þakklátir Bandaríkja-
menn sendu Jöey fatnað, lyf og
peninga. Hermálaráðuneytið
sæmdi hana frelsisorðunni
bandarísku. En Joey batnaði
ekki. Fyrir tveim mánuðum
síðan fengu vinir hennar í
Bandaríkj unum stjórnína til að
veita he:mi undanþágu frá
banninu um holdsveika inn-
flytjendur og leyfa henni að
leggjast á holdsveikraspítalann
í Carville, Louisiana,.
• ®
í BANDARÍKJUNUM
SlÐASTLIÐINN mánuð kom
frú Guerrero til San Francisco.
A bryggjunni tóku á móti henni
Framh. á bls. 8.