Morgunblaðið - 12.08.1948, Blaðsíða 12
TEÐURÚTLITIÐ (Faxaflói);
_ NORÐ-VESTAN gola, úr-
komulaust og Ijettskýjað síð-
jdegis.
188. tbl. — Fimmtudagur 12. ágúst 1948.
SKYNDIFERÐ tii New Yorls
„Gullfaxa“ Flugfjelags íslands.
með „Gullfaxa“ Flugfjelagg
íslands. — Grein á bls. 7.
Hundruð húseigenda
hafa vanrækt
að hreinsa lóðir sínar
| Bærirni iæfur hreinss jjær á kostnað
húselgenda
ÞAÐ verður haldið áfram að hreinsa til í Reykjavík, þar til
þrifnaðar og hollustuháttum verður komið í viðunandi horf,
sagði dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir, í viðtali við blaðamenn
í gær um lóðahreinsunina ,sem fram hefur farið hjer í bænum
í sumar. í dag verður byrjað að hreinsa til á lóðum þeirra hús-
eigenda, sem vanrækt hafa að gegna þeirri borgaralegu skyldu,
að hreinsa lóðirnar við hús sín.
Svo sem kunrugt er, hófst^
inokkru fyrir þjóðhátíðardag-
inn mikil herferð gegn hvers-
konar rusli og óþrifnaði við hús
hjer í bænum. Bæjarbúar tóku
þesari sókn yfirleitt vel og -að
því er mennirnir, sem vinna í
öskuhaugunum sögðu, hefur
aldrei annað eins af rusii bor-
ist þangað
Margir daufheyrðust
Margir húseigendur í bæn-
um daufheyrðust þó við til-
kynningu bæjaryfirvaldanna
um skyldur þeirra til að láta
hreinsa lóðir sínar. — Þessum
tnönnum var gefin frestur til
1. júlí s.l. Var þeim tilkynnt,
að af þeim tíma liðnum, mundi
fbærinn láta hreinsa lóðir
þeirra á þeirra kostnað.
JJndanfarna daga hafa svo
eftirlitsmenn við lóðahreinsurí-
ina farið um bæinn og kannað
ióðir þær, er hlut áttu að máli
þann 1. júlí, er fresturinn var
útrunninn.
Hundruð lóða eru óhreinsaðar
Það hefur komið í Ijós, að
iiundruð húseigenda hafa ekki
direinsað til á lóðum sínrnn,
þrátt fyrir margendurteknar
tilkynningar borgarlæknis og
lögreglustjóra. Nú hefur mönn
um þeim, er hjer eiga hlut að
•»náli, verið tilkynnt brjeflega,
í ábyrgðarjósti, að án frekari
aðvörunar muni bærinn láta
hreinsa til á lóðum þeirra og
jafnframt var þessum mönnum
Verða að greiða allan kostnað
Eins og fyrr segir, þá skipta
þeir húseigendur hundruðum,
sem fengið hafa tilkynningu um
að ióðir þeirra verði hreinsaðar
an frekari aðvörunar og þeim
gert kunnugt um að þeir fengju
sjálfir að borga brúsann. Þessir
húseigendur ættu því nú þegar
að hreinsa sínar lóðir sjálfir, áð-
ur en að til aðgerða af hálfu
þess opinbera kemur.
Á þeim lóðum, sem bærinn
lætur hreinsa til á, verður gjald-
ið miðað við vinnubók fíokks-
stjórans, sem halda á skýrslu
yfir vinnu við hverja einstaka
lóð. Síðan verður húseigendum
sendur reikningur í pósti, en
hann eiga þeir að greiða í bæj-
arskrifstofunum. Ef til vanskila
kemur, verður gjaldið innheimt
með lögtaki.
Blaðamenn spurðu borgar-
læknir, hvaða ráðstafanir bær-
inn myndi gera, gegn rottuplág-
unni, sem á s.l. ári hefur aukist
ægilega hjer í bænum.
Borgarlæknir sagði, að hann
hefði þetta mál til athugunar
og kvaðst sennilega myndi
leggja til að bæjarráð veiti fje
til rottueyðingar nú á næsta
hausti, því öllu lengur mætti
næsta rottuherferð ekki dragast.
M.s, Bjamarey
verður fyrir
vjelbllun
Djúpavík, miðvikudag.
Frá frjetfaritara vorum.
VJELSKIPIÐ Bjarnarey frá
Hafnarfirði, varð fyrir alvar-
legri vjelbilun við Selsker í
gær.
Skipið var á siglingu, er stór
viðarbútur, rekaviður, lenti í
skrúfu þess. Við það brotnaði
skrúfan af og sökk til botns,
en öxullinn hrökk í sundur.
Bjarnarey var dregin hingað
inn og var með um 1500 mál
síldar, en landað var við verk-
smiðjuna. Viðgerð getur ekki
farið fram á skipinu 'hjer og
hefur m.s. Skálafell verið feng
ið til að draga skipið til Hafn-
arfjarðar.
Dcttifossi híeynt af stokkunum.
Ummæii versiunarráð-
herra Belgíu
./
Haag í gærkvöldi.
í FYRIRLESTRI, er verslunar-
málaráðherra Belgíu flutti hjer
í dag, ljet hann svo ummælt, að
allt efnahagskerfi Evrópu þyrfti
endurskoðunar við. Hann stakk
einnig upp á því, að verslun yrði
auðvelduð milli Evrópulanda
með því að breyta greiðslu-
Bjðmson-feðgamir
FYRIR NOKKRU voru þeir
Gunnar Björnsson, fyrverandi
skattstjóri í Minneapolis og
synir hans fjórir, Hjálmar,
Valdimar, Björn og Jón heiðr-
aðir af ritstjórafjelagi eystri
bygða Minnesota-ríkis, fyrir
framúrskarandi frammistöðu á
sviði blaðamennskunnar. Tveir
aðrir blaðamenn voru heiðr-
aðir um leið og hlutu þeir, sem
heiðraðir voru, heiðursskjal.
Blöðin í Minnesota geta
þeirra Björnson feðga lofsam-
lega í tilefni af þessum heiðri,
sem þeir hlutu og minnast þess,
að þeir hafa fengist við blaða-
mensku í fylkinu í 40 ár með
sóma fyrir sálfa sig og fylkið.
Síldveiðiflotinn aðgerð-
arlaus í svarta þoku
Nckkur góð kösl við Horn
Siglufirði í gærkvöldi.
Frá frjettaritara vorum.
SVARTA ÞOKA hefur verið fyrir öllu Norðurlandi í allan dag
og hefur síldveiðiflotinn ekkert getað athafnað sig. Skip, sem
þurfa að leita hafnar verða að biðja um miðun á fárra mínútna
fresti og um veiði er ekki að ræða í dag, þar sem þokan er svo
dimm, að ekki kæmi til mála, að senda báta frá skipi í slikri
þoku, jafnvel þótt síldar yrði vart.
Nokkur veiði við Horn.
Áður en þokan skall á í gær
kvöldi (þriðjudagskvöld) varð
vart síldar við Horn og komust
nokkur skip í þá veiðihrotu, en
ekki munu þau almennt hafa
fengið mikinn afla. Rifsnes
mun vera þeirra skipa afla-
hæst, sem þarna voru. Fjekk
það 1100 mál. önnur skip eru
í dag á leið til Skagastrandar
Hjalteyrar og Djúpavíkur og
annara síldveiðihafna, en ekki
er vitað um afla þeirra ennþá.
Til verksfniðjanna í Siglu-
firði hafa borist rúmlega 1000
mál síðastliðinn sóiarhring.
Hæstan afla hafði Sleipnir, 700
mál, sem veiddust við Hórn.
Síðasta sólarhring voru salt
aðar 1092 tunnur hjer í Siglu
firði og 1313 annarsstaðar á
landinu.
Er þá alls búið að salta 26141
tunnu á þessu sumrx á móti
28909 á sama tíma í fyrra.
Hjalteyri.
I gær lönduðu á Hjalteyri
Sindri 126 mál, Sverrir 31 og
Þristur 95.
Nýi Dettifoss verður
fagurt skip
Lýsing á skipi
imskip, sem hleypt var af
i s.l. flmmhidag
EINS OG GETIÐ hefur verið í frjettum var „Dettifossi“ hinum
nýja hleypt af stokkunum í skipasmíðastöð Burmeister & Wain
í' Kaupmannahöfn. Ungfrú Margrjet, dóttir Guðmundar Vilhjálms
sonar forstjóra, skírði skipið ,,Dettifoss“. Viðstaddir þessa athöfn
voru Jón Guðbrandsson forstjóri í Höfn og frú hans, Sigurjón
Sigurðsson lögreglustjóri og frú, Ludvig Storr konsúll og frú,
fulltrúar frá sendiráði íslands í Kaupmannahöfn, og frá Bur-
meister & Wain voru meðal annars C. A. Möeller verkfræðingur,
og forstjórarnir G. Dithmer og H. Carstensen.
Systurskip Goðafoss.
Dettifoss verður 1 aðalatrið-
um eins og Goðafoss. Lengd
skipsins er 290 fet og breidd
46 fet, brúttósmálestatala skips
ins Verður 2950. Það á að geta
gengið 15 mílur fullhlaðið.
Smíði skipsins er samkvæmt
fyrirmælum Lloyds í hæsta
flokki og plötur í byrðing eru
rafsoðnar þar sem hægt var að
koma því við.
Ibúðir skipverja eru á milli-
þilfari miðskips og aftur á. —
Herbergi háseta og vjelamanna
eru allt eins manns herbergi.
Rúm er fyrir 12 farþega mið-
skips í tveggja manna klefum.
Borðstofa farþega er undir
brúnni og get 16 manns borðað
í einu, en reyksalur tekur 20
manns í sæti. Lýsing og loft-
ræsting er samkvæmt nýustu
tísku.
i
Nýustu öryggis- og
siglingatæki.
Dettifoss verður búinn öll-
um nýustu og bestu siglingar-
og öryggistækjum. Sími er um
allt skipið. Loftskeytastöðin
hefur stuttbylgju og langbylgju
sendir og móttakara og talstöð.
Vjelar skipsins eru einnig
mjög fullkomnar og hinar bestu
sem völ er á.
Ráðgert er að Dettifoss verði
fullsmíðaður um áramót.
Ráðsfefna sáífræðinga
London í gærkvöldi.
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA sál-
fræðinga hófst hjer í London í
dag. Hana sitja fulltrúar frá 300
fjelögum í 20 löndum. — Reuter.
Hafa merkl 3000
síldar
Raufarhöfn, miðvikudag.
Frá frjettaritara vorum.
ÁRNI Friðriksson fiskifræð-
ingur, norski fiskifræðingurinn
Aase og Hilmar Kristjónsson,
hafa undanfarið dvalið hjer við
síldarmerkingar.
Til þessa hafa fiskifræðing-
arnir merkt rúmlega 3000 síld-
ar, e nþeir munu halda merk-
ingunum áfram, og munu þær
fara fram á Þistilfirði. ,