Morgunblaðið - 10.11.1948, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. nóv. 1948.
EFTIRHREYTUR OG ÁÆTL-
UNARBÚ8KAPUR
Noregsbrjef
frá Skúla Skúlasyni
Sami sparnaður til 1952.
Fulltrúar allra skömtunar-
nefnda í fylkjum Noregs sátu
nýlega þriggja, daga fund í
Osló, og þar mætti vitanlega
Hönsvald allsherjarþryti eða
„forsyningsminister“ þjóðarinn
ar. Hann kvað enga leið að af-
nema skömtunina í Noregi fyrr
en innflutningur á mann væri
orðinn eins mikill og var 1938,
en samkvæmt Brofoss-áætlun-
inni áðurnsfndu getur það ekki
orðið fyrr en 1952. „Það er hart
að þurfa að segja þetta, fyrir
mig, sem daglega finn „press-
una“ frá neytendum, en mað-
ur svíkur sjálfan sig, ef mað-
ur heldur að hægt sje að forð-
ast erfiðleikana með því að
neyta staðreyndum“, sagði Höns
vald. „Nú er talað opinskátt um
nýja styrjöld og væri það því
æskilegt að geta safnað birgð-
um bæði af neyslu- og fram-
leiðsluvörum“.
Og þó að Norðmenn hafi ekki
orðið fyrir síldarbresti eins og
við íslendingar, verður við-
skiftaneíndin samt að skera nið
ur innflutning það sem eftir
er ársins. Hinn 15. okt. var bú-
ið að veita innflutningsleyfi fyr
ir 2293 milj. kr., en áætlunin
fyrir allt árið er ekki nema
2630 miljónir og búið að veita
leyfi fyrir meiru af mörgum
vörutegundum en áætlað var.
Áætlunin hefir verið of lág á
flestum vörutegundum, en á
fáeinum óþarflega há, svo sem
á kolum og olíu. Innflutning-
ur á kolum frá Svalbarða varð
meiri en áætlað var og hefir
það sparað gjaldeyri fyrir elds-
neyti.
Matarhæfi er miklu einfald-
ara í Noregi ennþá en var fyrir
stríð. Vöntunin á fatnaði og
annari vefnaðar- og prjónavöru
er þó miklu tilfinnanlegri, og
kaupmenn segjast ekki fá nema
fimtung af því vörumagni, sem
þeir fengu áður, enda er ill-
mögulegt að fá nokkuð af fatn-
áði þó fólk hafi skömtunarseðla
í höndunum. Vatnsleðurstígvjel
fá fæstir aðrir en skógarhöggs-
menn.
Norski hvalveiðaflotinn er nú
á leið suður í höf og vertíðin
fer að byrja. Frá 10. okt. má
fara að skjóta hvalinn. Flot-
inn er nú talinn jafnstór og
hann var fyrir stríð, því að í
haust kom nýtt móðurskip til
sögunnar. Það heitir „Þórs-
höfði“ og er smíðað hjá Bur-
meister & Wain í Kaupmanna-
höfn og er stærsta skip, sem
smíðað hefir verið í Danmörku,
23.500 smálestir dw og 638 feta
langt. Fylgja því 11 hvalveiði-
bátar og alls eru 427 manns í
þessum eína leiðangri. En „Þórs
höfði“ er talinn fullkomnasta
móðurskip, sem enn hefir verið
gert út á hvalveiðar og búið
tækjum til enn betri vinnslu
úr öllu því sem til fellst en
eldri skip. Eigandi er hlutafje-
lagið Thor Dahl í Sandefjord.
Gera Norðmenn ráð fyrir að
fylla þá tölu, sem þeim er leyft
að veiða, jafnvel þó að veiðin
verði eins góð og verið hefir
undanfarin ár.
Síðari grein
Sitt af hverju.
Thv. Aadahl, fyrrum ritstjóri
,,Nationen“ hefir verið fyrir
landsvikarjetti undanfarið, sak
aður um að hafa skrifað 60—70
greinar í þágu Þjóðverja og
gegn konungi og ríkisstjórn á
heniámsárunum. Mál þetta
vakti mikla athygli því áð Aa-
dahl var einn af kunnustu blaða
mönnum þjóðarinnar. Hann
bar það fyrir rjetti að hann
hefði verið tilneydd,ur að haga
sjer eins og hann gerði, og af
framburði vitna sannaðiát það,
að í hjarta sínu hefði hann eng-
inn Þjóðverjavinur verið og
beinn óvinur Quistlings. Ákær-
1 andinn fór fram á 1% árs fang
j elsi, en svo fóru lei.kar að Aa-
dahl var sýknaður. En 1V2 árs
fangelsi fjekk hinsvegar Arild
Hamsun, sonur skáldsins. Hann
er talinn nasisti enn í dag og
iðrast ekki gerða sinna. 10.000
krónur á hann að greiða í bæt-
ur, en að sögn hans er Hamsuns
f jölskyldan nú rúin inn að skyrt
unni og ekkert til upp í þær
150 þús. krónur, sem frú Marie
Hamsun var gert að greiða. —
Konrad Sundlo ofursti, sem
gaf Narvik upp í hendur Þjóð-
verja var dæmdur í æfilangt
fangelsi. — Sem betur fer þynn
1 ist nú óðum í fangabúðum land
J svikara. í kvennafangelsinu á
ÍBredtveit eru nú aðeins 77 fang
ar en voru 300 um þetta leyti
í fyrra. Á Ilebu (áður Grini)
eru rúmir 500 fangar, en þar
g'eymdu Þjóðverjar nær 5000
forðum. — Á Gulskogen við
Drammen eru 124 í stað 500.
En í Akershus er „fullt hús“.
Stórbruni varð í Bodö að-
faranótt 16. okt. .og'brann þar
kælihús sem í voru geymd 1200
tonn af saltfiski og tvö önnur
geymsluhús. Tjónið er metið á
5—6 miljón krónur auk þess
sem óbeinlínis hlýst af brunan-
um, því kælihúsið var einskon-
ar miðstöð alls saltfisksútflutn-
ings frá Norður-Noregi.
Timburverðið fyrir komandi
ár hefir verið ákveðið 1 kr.
hærra pr. rúmmmetra en í
fyrra, 40 kr. í stað 39 rúmm.
fyrir timbrið flutt á fleytingar-
stað. En talið er að verð á
„cellulose“ lækki í Bandaríkjun
urð á komandi ári. Þó að skóg-
urinn sje mikill þáttur í af-
komu Norðmanna, þá framleiða
Norðmenn samt ekki nema 0.7
% af heimsframleiðslunni. —
Norður-Ameríka leggur til
24,9%, Suður- og Austur-Asía
21.3%, Vestur-Evrópu 18.6%,
Sovjet-samveldið 17.8%,- Mið-
og Suður-Ameríka 12, 7% og
Afríka 3,2% að því er segir í
árbók FAO. Þar segir og að
timburframleiðslan þurfi að auk
ast um 60% til þess að full-
nægja eftirspurninni.
Verkfallinu hjá Norsk Hydro
í Porsgrunn lauk núna um mán
aðarmótin og hefst vinna aftur
einhvern næstu daga. Fengu
verkfallsmenn ekki neinum
kröfum -sínum fullnægt í bili,
en sennilegt er að þeir fái ein-
hverjar -ívilnanir þegar kaup-
galdsmálin verða tekin til end
urskoðunar á komandi vori. Er
nú alger vinnufriður í landinu
og snemma í október tóku bænd
ur aftur hótun sína um að
höggva ekki skóg.
Hermálaráðherra Dana, Norð
manna og Svía hjeldu fund í
Osló um miðjan október og hef
ir nú verið skipuð nefnd til að
undirbúa hernaðarlega sam-
vinnu þessara þriggja þjóða. Og
30. okt. gerði Halvard Lange
grein fyrir utanríkismálunum í
Stórþinginu. Hann kvað Noreg
hafa bygt utanríkismál sín ein
göngu á UNO, síðan það var
stofnað, en nú væri það sjeð,
að ekki væri hægt að treysta
því eingöngu, og yrði því að
leita annara tryggingarleiða,
fyrst og fremst að efla her-
varnasamvinnuna við Dan-
mörku og Svíþjóð.
Skúli Skúlason.
Illlllllll IIIIII IIIIR4V|t»V91ffimMi|| 111| 1111 IMIIIIIIIIfllllflflfll
Höfum kaupendur
i að 3ja—4ra og 5 her-
I bergja íbúðum, hálfum
| húsum og einbýlishúsum.
i Máiflutningsskrifstofa
Garðars Þorsteinssonar
og-Vagns E. Jónssonar,
Oddfellowhúsinu,
sími 4400.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiin
iiiiiiiiiiiiiiiiiinriii
iiiiiiiiiiiiiiini
í Rauðbrúnn i
Eversharp
sjálfblekungur
| með gullhettu hefur tap- I
Í ast. Vinsamlegast gerið \
i aðvart í síma 4109.
c E
lllllllllllll IIIIIUIIIIIIIIIII •11111111111III llllill||||||,|||fl|,|ll|
<HIIIIIIIIII|||||||||||||IH|I|I|IIIII,II|II,
ÍBÚD ÓSKAST |
s E
1—2 herbergi og eldhús i
.eða eldunarpláss, óskast I
til leigu, sem fyrst. Hús- I
hjálp, eða að sitja hjá !
börnym 1—2 kvöld í vjku I
kemur til greina. Tilboð \
óskast send afgr. Mbl. 1
fyrir laugardagskvöld: i
merkt: „S.A.—570“.
.liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiillliili
Frá fundi i Fasteigna-
eigendafj elaginu
ÞRIÐJUDAGINN 2. nóv. hjelt
Fasteignaeigendafjelag Reykja-
vikur fjölmennan fund, í fund-
arsal Nýju Mjólkurstöðvarinn-
ar í Reykjavík og setti formað-
ur fjelagsins, Helgi Lárusson,
fundinn og tilnefndi fundar-
stjóra Kristján Kristjánsson og
fundarritara Jón Sigtryggsson.
í framsöguræðu sinni gat fbr-
maður þess, að húsaleigulögin
væru ekki sæmandi frjálsri
þjóð, en þrátt fyrir að mikið
hefði verið unnið að því, að fá
þessi lög numin úr gildi, hefði
lítið áunnist vegna mikillar and
stöðu úr ýmsum áttum, en þó
einkum á Alþingi. — Þó hefðu
nokkrir þingmenn sýnt þessu
máli sanngirni og velvild og gat
hann þess að sumir þeirra væru
mættir á fundinum og þakkaði
hann þeim fyrir komu sína þang
að og velvild við málið.
Framkvæmdastjóri fjelagsins
Einar Guðmundsson gaf stutt
yfirlit um starf fjelagsins, þann
stutta tíma sem hann hafði starf
að í þágu þess og benti hann á
hversu herfilega rjettur hús-
eigenda væri fyrir borð borinn,
með húsaleigulögunum og
nefndi hann í því sambandi
nokkur raunveruleg dæmi, því
til sönnunar. Hann benti einnig
á það, að einungis húsaleiga
gömlu húsanna, sem ennþá
væru í gamalli leigu væri. not-
uð til að reikna út vísitöluna og
væri slíkt að sjálfsögðu hreint
fals, hvað vísitölunna viðkæmi
og ámóta og verðið á danska
smjörinu, sem væri selt svo lágt
til að falsa vísitöluna. Hann gat
einnig um brjef sem fjelagið
hefði sent fjárhagsráði og skatt
stjóranum málefnum fjelags-
manna viðkomandi. — Einnig
benti hann á þörf fjelagsmanna
um, að tekin væri til alvarlegr-
ar athugunar málefni Hitaveit-
unnar, þar sem upplýst væri að
skerndir á ofnum og leiðslum
víða í húsum væri all alvarlegt.
Margir tóku til máls á fund-
inum, þar á meðal alþingis-
mennirnir, Sigurður Krist.jáns-
son, Gísli Jónsson og Hallgrím-
ur Benediktsson.
Samþykt var með öllum
greiddum atkvæðum fundar-
manna svofeld tillaga:
„Fjölmennur fjelagsfundur í
Fasteignaeigendafjelagi Reykja
víkur, haldinn 2. nóvember.
1948. skorar á Alþingi það sem
nú situr að nema húsaleigu-
lögin tafarlaust úr gildi og leysa
upp allar húsaleigunefndir. —
Fundurinn telur húsaleigulögin
í fullkomnu ósamræmi við rjett
armeðvitund almennings og í
fyllstu mótsögn við lýðræðis-
hugsjón frjálsrar og fullvalda
þjóðar og vítir seinlæti alþing-
ismanna að hafa dregið svo
lengi að nema kúgunarlög þessi
úr gildi.“
Til viðbótar framangreindri
tillögu, kom fram frá Jakobi
Jónssyni svohljóðandi viðbót-
artillaga:
„Daufheyrist Alþingi enn við
kröfum fasteignaeigenda, telur
fundurinn brýna nauðsyn að
fasteignaeigendur í Reykjavík
stofni til pólitískra samtaka og
hafi menn í kjöri við næstu
-------- ]
alþingis- og bæjarstjórnarkosn-
ingar“.
Þessi tillaga var samþykt með
42 atkvæðum gegn 15 atkvæð-
um.
Frá Jóhannesi Teitssyni kom
fram tillaga um að stofna nú
þegar nýjan pólitískan flokk,
til að bæta úr ríkjandi, van-
sæmandi stjórnmálaástandi og
því öngþveiti og ringulréið, sem
nú ríkir í opinberum málum
þjóðarinnar.
Samþykt var að láta umræð-
ur um þá tillögu bíða, þar sem
fundarmenn væru ekki við því
búnir að taka afstöðu til slíks
stórmáls, á þessum funJi og
kom sú tillaga því ekki til at-
kvæða.
Umræður voru fjörugar og
stóðu til kl. hálf eitt um nótt-
ina, en þá var fundi slitið.
•llllll■llllll■lllllllllllll■llllllll•ll|||||•||l•||||||l|||■|||||||||
| 2
| Bókband |
| Bind alskonar bækur og |
i blöð í sherting, rexin og 1
1 skinn. Sendið nafn og |
i heimilisfang og símanúm i
i .er, ef til er, til afgr. Mbl. I
1 merkt: „Bákband—576“. i
iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiii
llllllllllllllllltllllM
[ Til söEu
i í Ingólfsstræti 21B, fiðla,
i _skíði á 7—10 ára og stig-
i in vefstóll.
iiiiiiiiiiitiiiiiiiiii
iiiiiiiiii 1111111111111111111111111111111111
IIIIIIHIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIHIIIIIIII
m * —
( Timbur (
| Mig vantar um tvö þús- |
i und og fimm hundruð fet \
\ af timbri, stærð 2+5 eða \
i 1++5. Þeir, sem kynnu i
i að vilja selja gjöri svo |
i vel og sendi tilboð til i
| Mbl. fyrir fimtudagskv., =
merkt: „2+5—579“.
iiiiiiiinii
IIIIIIIIIIHIIIIIII
11111111111111111111111111
IIIIIIIIIIHHIIHIII
Til sölu með tækifæris-
_verði fallegur þrísettur
i Skápurinn verður til sýn I
i is í dag og á morgun í |
| skrifstofunni Bókhald, i
i Garðastræti . 2, 4. hæð, I
= sími 6399.
IIIHIHIIIIIHIIIHHIHIHHHlHHHIIIIIHnitlHHHHIHHHIIII
i Vil láta nýja
1 klósettskál (
| með stút afturtir í skipt- i
i um fyrri skál með stút i
i neðanúr. Á sama stað til i
i sölu stór handlaug og |
| karlmannshjól. Uppl. á i
í Smirilisveg 24 eftir kl. 8 i
i í kvöld og næstu kvöld. i
UIIHHIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIHIIHIHIHIIIHIIIIIHIIIIIIHIHIII
H*<HIIIIIIIIII>allll||M||||||||l|||||||||l
SKOR A 1—2ja ÁRA i
VESTURBORG,
Garðastræti 6, sími 6759. i
MIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHII »
/
I