Morgunblaðið - 17.11.1948, Síða 12

Morgunblaðið - 17.11.1948, Síða 12
12 Miðvikudagur 17. nóv 1948 MORGUNBLAÐIÐ islar faka Suhsien Nanking í gærkveldi. TILKYNT var í Nanking í dag, að hersveitir kommúnista hefðu tekið Suhsien herskyldi, en sú borg er 250 kílómetra fyr ir norðan höfuðborgina. — Um 100.000 stjórnarhermenn munu nú vera á leiðinni til Suhsien- svæðisins, en þar er búist við að dragi til mikillar orustu, sem jafnvel géti ráðið úrslitum um framsókn kommúnista. Suchow Fregnum ber ekk'i saman um, hvort kommúnistum hafi tek- ist að taka borgina Suchow, en útvarpsstöð kommúnista hélt því fram í gærkveldi, að borg- in hefði gefist upp fyrir kom- múnistaherjunum. í B' S5W 'A -g , ** T S -2 :' Alíf K ' ú- X'. Flótti Frá Shanghai og öðrum borg- um, sem sókn kínverskra kom- múnista nú stefnir í hættu, herma fregnir, að fjöldi manns sje lagður á flótta suður á bóg inn til Canton og bresku ný- lendunnar Hongkong. — Allar járnbrautarlestir, sem frá Nanking fara, eru yfirfullar af fólki, og margir hafa látið lífið er lágar brýr hafa sópað þeim af þökum járnbrautarvagnanna „Þokukenriar hugmyndir" í RÆÐU, sem Tito mar- skálkur flutti í dag, sagði hann meðal annars, að Júgó slavar væru þess fullviss- ir, að hægt yrði að koma á sósíalistisku skipulagi í landi sínu, þrátt fyrir skoð un „heimskingja, sem í sí- feldu lesa verk Marx, Lcnin og Stalin í þeirri von að finna þar tilvitn- anir til stuðnings hinum þokukendu hugmyndum sínum“. — Reuter. Flufsiingsbanninu ekki afljett fyrir jól, segir (lay Berlín í gærkv. CLAY, yfirhershöfðingi Banda' ríkjanna í Þýskalandi. Ijet svo um mælt hjer í dag, að hann væri sannfærður um, að Rúss-| ar myndu ekki afljett, flutn-' ingsbanni sínu á Berlín á þessu óri. „Jeg hef enga ástæðu til. þess að halda að landlsiðin tili Berlínar muni opnuð fyrir lokj þessa árs“, sagði hann —Reuter. Aukinn nemendafjöldi. WASHINGTON — 72,000 fleiri nem endur en s.l. ár Ijetu í haust innrita sig í háskóla og menntgskóla Banda ril'janna. Nemendatalan er nú 2.420,000. niiiiiiimiiiiiimniiii itiiiiuiiiiiiiiiitminit Jóhann Steinason Málflutningsskrifstofa Lækjargötu 10B. Sími 80211. - Tónlisfarhátíð Framh. aj bls. 9. taka upp þjóðlegt tónlistar- efni, en á frumstæðan hátt. Ef til vill á æðri tónlist eftir að þroskast af þeim tilraunum. — Vjer íslendingar stöndum fyrir utan þessa þróun, en það var augljóst á þessari tónlistarviku að íslensku tónskáldin sjö stóðu sem heild ekki aftar en hin nor rænu tónskáldin. Á mótinu voru flutt 51 verk eftir núlif- andi tónskáld frá Norðurlönd- unum fimm. Tónskáldafjelögin sjálf — eða nefndir í þeim •— gengu hvert fyrir sig frá dag- skrárliðum sínum og var reynt að koma sem flestum tónskáld um að, enda varð eingöngu tími fyrir umfangsminni tón- verk. Höfundar blaðadómanna voru yfirleitt annaðhvort sjálf ir tónskáld eða menn lítt ment aðir í tónlist. Dægurdómar um nýja list hljóta að hafa lítið gildi. Það sem mestu veldur um framgang nýrra tónverka er að þau sjeu flutt af skiln- • ingi og að þeir flytjendur taki þau að sjer, sem beita sjer fyr- ir útbreiðslu þeirra af eigin sannfæringu án tillits til dæg- urdóma, sem gleymast fljót- lega og það jafnt hvort þeir eru jákvæðir eða neikvæðir — enda báðar tegundir þeirra oft- ast tilorðnar af misskilningi. Ein göngu fyrir stílrjetta túlkun hefur alla tíð ný list getað náð útbreiðslu og varanlegri viður- kenningu. Slíkur skilningur frábær átti sjer stað á þessu móti í verkum Helga Pálsonar, Jóns Þórarinssonar og Páls ís- ólfssonar. Það voru miklir snillingar, sem ljeku verkin, og ætti að bjóða þeim í hljóm- leikaferð til íslands til þess að styðja útbreiðslu verkanna í fleiri löndum. Jón Leifs. Ingeborg Appe! í Askov látin NÝLEGA ER látin í Dan- mörku merkiskonan Ingeborg Appel og átti hún hjer marga vini. Hún var dóttir Ludvigs Schröders, sem stofnaði lýð- háskólann í Askov og var gift Jakob Appel skólastjóra í As- kov. Sjálf hafði hún á hendi skólastjórn í Askov á árunum 1909—1913 og aftur 1920— 1924, er maður hennar gengdi ráðherraembætti. Frú Appel var áhugasöm um íslandsmál og fylgdist vel með því sem hjer var að gerast. - Paleslína Framh. af bls. 1 kanadiska tillagan mundi að- eins verða til þess að draga Palestínudeiluna á langinn, en breski fulltrúinn í ráðinu vakti athygli á því, hversu ástandið væri nú alvarlegt í Norður- Palestínu, en þaðan hefðu Gyð- ingar á nokkrum stöðum sótt inn í Lebanon og lagt undir sig nokkur þorp. - Kominform Framh. af bls. 1 borist frá leynilegum erindrek- um sínum í kommúnistasellum víðsvegar í Frakklandi. Sagði hann að skýrslur þessara manna sönnuðu, að leiðtogar kommún ista hefðu fengið „frá æðri stöð um“ fyrirskipun um „að halda verkfallinu áfram þar til stjórn in fellur“. í einni sellunni komst einn af ræðumönnum kommún ista þannig að orði, að mark- miðið með verkfallinu væri „að steypa stjórninni og fá komm- únistaflokknum völdin í hendur með ofbeldi, ef nauðsyn kref- ur“. Moch bætti við: „Maðurinn, sem sagði þetta, er hjer í þing- salnum og fór á tímabili huldu höfði, sökum þess, að hann ótt- aðist að verða handtekinn“. Skæruliðahernaður. Um framkomu kommúnista í kolanámuverkfallinu hafði Moch það að segja, að þeir hefðu stundum gripið til skæru liðaaðgerða. Las innanríkisráð- herrann upp skýrslur frá lög- reglumönnum, þar sem því var lýst, hvernig kommúnistar hefðu komið fyrir jarðsprengj- um á vegum og brúm. „Þetta' eru ekki aðgerðir verklýðssam j taka“, sagði Moch, „þetta eru byltingarframkvæmdir". Verkfallið í Banda- ríkjunum breiðisf enn úl VERKFALL hafnarverka- manna, er hófst í New York, Boston og Philidelphia fyrir þremur dögum, breiðist nú ört út og hefur lamað alla starf- semi við flestar af höfnum Bandaríkjanna á Atlantshafs- ströndinni. Engar vörur eru afgreiddar til útflutnings,. að undanskildum vistum til banda rískra hermanna í Evrópu. — Geysimiklar vörubirgðir hafa nú safnast fyrir í New York, er flytja átti til Evrópu sam- kvæmt viðreisnaráætluninni. Verkamenn hafa lagt niður vinnu til þess að krefjast hærri launa. Alls eru nú um 65 þús. verkamenn í verkfalli í Bandaríkjunum. — Reuter. - Guðrún Brunborg (Framh. af bls. 2) milli Noregs og íslands. Styrk- urinn er veittur af háskólan- um í Osló 8. apríl ár hvert, til skiptis Norðmanni til náms í Reykjavík og íslendingi til náms í Osló eða Björgvin. Frú Guðrún Brunborg hefur safnað sjálf f je í þessa tvo sjóði, í íslenska sjóðinn að öllu leyti og í norska sjóðinn að mestu leyti, með fyrirlestrum og kvik myndasýningum. Hefur frúin dvalist í því skyni hjer á landi 3 síðastliðin sumur, ferðast um landið þvert og endilangt og sýnt í þessu starfi frábæra fórn fýsi og þrautseigju. Starfsemi hennar hefur verið ágætlega tekið, svo sem fjárfúlga sú ber vitni um, er hún hefur safn- að. Hefur hún nú hlotið þá um- bun verka sinna að sjá hug- sjón sína rætast. Báðir sjóð- irnir eru það myndarlegir, að vaxtatekjur þeirra nægja lang- drægt til vetrardvalar einum stúdent á íslandi og öðrum í Noregi. Mun sú sjálp verða mörgum námsmanni til gagns og blessunar. Frú Brunborg mun hafa í hyggju að láta ekki sitja við það, sem orðið er, heldur halda áfram starfi sínu til eflingar sjóðum þessum. Háskóli íslands tekur einnig fúslega við gjöf- um og áheitum í Minningarsjóð norskra stúdenta. Hefur ein gjöf þegar borist, 200 kr. áheit frá Sigurði Hannesyni á ísa- firði, og afhenti frú Brunborg áheitið með stofnfje sjóðsins. (Frjett frá Háskóla íslands). £111111111111111111111111111. tlMlllllllll.lllllllllltlll i 1 Markúj I Jr E^jiiinitf 11111111111111111111111111111111 ll■lllll•lllllllllllllllllllllllllllllllllllt■llll^llMl■lflllllllllllllllllllllllllllllllllllll■ll■■llfml & Eftir Ed Dodd i ■ ■ i • 1111 ■ 11 ■ 111 ■ 11 ■ 1111111111 ■ i • i ■ i 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Úlvegsmenn ræða um siarfsgrundvöll útvegsins Á FUNDI Útvegsmannafjelags Reykjavíkur • í fyrrakvöld var meðal annara mála til umræðu svohljóðandi tillaga, sem sam- þykkt var á síðasta aðalfundi Landssambands íslenskra út- vegsmanna: „Þar sem alt er í óvissu um starfsgrundvöll fyrir áfram- haldandi rekstri útvegsins, og með því að ekki hefur fengist lausn á fjárhagsvandamálum þeim, er s.l. sumar skapaði og ennfremur að afla- og hluta- tryggingasjóðurinn er ekki stofnaður, og ekki upplýst um viðhorf þings og stjórnar til lausnar á þessum málum þá samþykkir aðalfundurinn að fela stjórn L.Í.Ú. og Verðlags- ráði sjávarútvegsins að fá sem fyrst úr þessu skorið. Fáist ekki skýr svör, eða full komið samkomulag við þing og stjórn í samræmi við ályktanir fundarins, skal stjórn L.Í.Ú. svo fljótt sem verða má, kalla sam- an fulltrúafund til þess að taka frekari ákvarðanir. Jafnframt skorar fundurinn á alla útvegsmenn að hefja ekki veiðar vetrarsíldar, fyrr en Verðlagsráð og stjórn L.Í.Ú. hafa samþykkt að viðunandi starfsgrundvöllur sje fyrir hendi.“ Fundarmenn ræddu tillög— una og ljetu einróma í ljósi samþykki sitt með henni. Svo- hljóðandi tillaga var samþykkt samhljóða: „Fundur í Útvegsmannafje- lagi Reykjavíkur 12. nóv. 1943 undirstrikar tillögu aðalfundar L.Í.Ú. um verðlag sjávarafurða Fundurinn lýsir einróma fylgi sínu með þeim ráðagerðum að til stöðvunar vjelbátaflotans verði gripið, þar til viðunandi starfsgrundvöllur sje fyrir hendi.“ íslendingamót í Los Angeles TALSVERT fjelagslíf er meðal íslendinga í Kaliforníu um þessar mundir. Hafa síðustu mánuðina verið haldin þrjú ís- lendingamót þar vestra. Síðasta mótið var haldið 24. okt. í Los Angeles og sóttu það 89 íslend- ingar. Var mót þetta hið ánægjuleg asta. Sýndar voru litkvikmynd ir frá íslandi, sem vöktu mikla athygli, því margir viðstaddir höfðu aldrei til íslands komið. Formaður fjelagsins er Jó- hannes S. Newton og héfir hann sýnt mikinn dugnað við að halda fjelaginu saman. — Hvar ertu Towne? Hjerna, jeg er kominn á þurt land. Áin hefur beygt hjer til hliðar. Geturðu heyrt til mín? i ist hjer í hellinum. — Já. nú er jeg að koma. — Mannabein. Þeir hafa far- — Já, það er auðsjeð. Á meðan hleypur Andi fram og aftur um klettabrúnina og lítur niður í Nornakleyf. Hann sjer mennina hvergi. Samkomuleg um djómarmyudtá Aþena í gærkveldi. SOFOULIS, fráfarandi for- sætisráðherra og leiðtogi gríska frjálslynda flokksins, og Stal- daris, fyrverandi utanrikisráð- herra, komust í kvöld að sam- komulag um að endurskipu- leggja samsteypustjórn þá, sem sagði af sjer síðastliðinn föstu- dag. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.